Morgunblaðið - 12.03.1918, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.03.1918, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ vonandi, að skortnr á því verði eigi fyrirtækinu til meins. Hlutaútboð er auglýst hér í blað- inu í dag og vísast til þeirrar aug- lýsingar viðvíkjandi nánari upplýs- ingum. Félagsmenn sitja fyrir þvi, að skrá sig fyrir nýjum hlutum. Eru þeir nú 90 talsins og má þvi búast við að greiðlega gangi að fá hjá þeim þessar 20 þúsund krónur. Dúfa Sú nýlunda skeði hér hinn 9. þ. m. að dufa kom fljúgandi undan fálka. Úr hvaða átt hún kom, veit eg ekki, þvi að enginn varð hennar var fyr en að bænum kom. Elti fálkinn hana af mikilli ákefð, unz hún náði að sleppa inn, en hann »hnitaði hringa marga* yfir bænum, unz hann hvarf á braut. Dúfan var mjög móð og örþreytt. Hún er hvit að lit, og auðsælega mannvön og tamin. Engin merki eru sjáanleg á henni Er það kyn- legt nokkuð, að dúfa skyldi vera hér á ferð langt uppi i sveit um hávetur. Henni virðist nú liða vel, og hún etur og drekkur. Hólmi, 11. marz 1918. Esgert Guðmundsson. DAGBOK Hjálparstarfsemi Bandalags k v e n n a. Viðtalstími miðvikud. og föstud. kl. 2—4 á lesstofu kvenna, ASalstræti 8. Hlufaútboi. Samkvæmt ályktun er gerð var á aðalfundi Kalkfélagsins í Reykja- vik, sem haldinn var þ. 1. maiz þ. á., var ákveðið á stjórnarfundi þ. 3. þ. mán. að auka hlutafé félagsins, svo að það gæti tekið til starfa á kom- andi vori. Fél gið hefir trygt sér námuland það í Esjunni er kalk var unnið úr fyrir ca. 30 árum síðan, og sem reyndist vel þá, eins og ganga má úr skugga um með því að skoða ýmsa húsgrunna hér í bænum frá þeim tíma. Við frekari rannsókn er félagið hefir látið fram fara, hefir það ótvírætt sýnt sig að kalkið er bæði mikið og gott. Félagið lét á siðastliðnu hausti byggja kalkofn fyrir neðan aðalnám- una, en vegna óhagstæðrar veðráttu vanst ekki tími til frekari framkvæmda, enda var og fé það að þrotum komið, er safnað hafði verið í upphafi tii þessa undirbúnings. Með því að félagið lítur svo á að hér sé um mikið þjóðþrifafyrir- tæki að ræða, og þar sem hinsvegar allar horfur eru á að kalkvinslan verði sérlega arðvænleg, þá hefir félagsstjórnin ákveðið að færa nú út kviarnar, og byggja þráðbraut frá námunni, til flutnings á kalkinu niður gil það er aðálnáman er i, og reysa hús fyrir neðan námuna fyrir verka- fólk og efni, til þess að geta byrjað reglulegá kalkvinslu í sumar. 3 Til þess að hægt sé að taka til starfa með von um góðan árangur, þarf félagið að auka hlutafé sitt upp í 30.000 kr., þannig, að auk eldri hluta er æt'ast til að teknar verði 20.000 kr. i nýjum hlutum. Samkvæmt því gefst hérmeð þeim er áhuga hafa á þessu málefni kostur á að skrifa sig fyrir samtals kr. 20,000 - tuttugu þúsund krónum - í hlutafélaginu Kalkfélagið í Reykjavík. Gjaldkeri félagsins, hr. Guðm. Breiðfjörð, tekur á móti hlutaloforð- um, og ennfremur verður lagður fram listi í Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar, er menn geta skrifað sig fyrir hlutum á. Hver hlutur er ákve^inn minst 50 kr., og áskilur félagsstjórnin sér rétt til þess að draga úr framboðnu hlutafé, ef menn skyldu ritá sig fyrir meira fé samtals, en óskað er eítir. Hinsvegar verður íéð ekki innkallað nema þvi að eins að öll upphæðin fáist. flestum opinberum byggingum bsejar-- ins og all-víða annarsstaðar. »VilIemoes« er nú Blönduósi og fermir þar kjöt. Hefir fermingin gengið mæta vel nyrðra. Siðustu símfregnir lenin íaíar. Khöfn, 10. marz. Lenin hefir lýst því yflr, að hann á'.íti að nauðsyn beri til þess að Rússar gangi að öllum kröfum Þjóð« verja. Eysfrasalt þýzkf. Khöfn, 10. marz. Londonarblaðið »The Times* segir að það sé auðséð á öllu að fyrirætlun Þjóðverja sé að gera Eystrasalt að þýzkum innsævi. Þjöðverjar viða að sér. Khöfn, 10. mirz. Þjóðverjar hafa látið flytja ógrynni birgða af kornvörum til Volhyniu og ætla að geyma þær þar. Orusfur í Trakhfandi. Khöfn, 10. marz. Barist er nú ákaft á vesturvíg- stöðvunum. Hafa báðir gert útrásir. Hvorugum veitir betur. Pdfinn. Khöfn, 10. marz. Úkrainestjórnin hefir beðið páf- ann að reyna að koma á samkomu- lagi um það, hverjum Cholm-hérað skuli framvegis lúta. Hr. Guðm. Breiðfjörð gefur þeim er þess óska upplýsingar um áætl- I 1' nnw ~"'rli ~~ 1—uniin 1 'ií—ji T>m ijlKr 1 nÉpi ^iir 1 ■■ÉWw MW a •s^amgt aðar tekjur og gjöld félagsins yfir fyrstu rekstursmánuði 'a. Hlutaúrboð þetta liggur frammi dagana 12.—26. marz þ. á. og verða hluthafar boðaðir á fund að þeim tíma liðnum. Reykjavík, n. marz 1918. í stjórn Kalkfélagsins i Reykjavík. Lárns Fjeldsted, (formaður) Gflðm. Breiðfjörð, (gjaldkeri) Einar Erlendsson, (ritari) Magnús Th. S. Biöndahl. Jðn Halldórsson, Gangverð erlendrar myntar. Bankar Doll. U.S.A. & Canada 3,50 Pósthúa 3,60 Frankl franskur 62,00 60,00 Sænsk króna ... 109,00 110,00 Norsk króna ... 104,00 106,50 Sterllngspund ... 16,00 16,00 ••• ••• 6800 ... Holi. Florin ... ••• ••• ... 1.37 Austurr. bróna... • • • •« • Ml • • • íþróttafélag Reybjavíknr haldur afmælisfagnað næsta fimtudag 1 »Iðnó« Verður þar danzleibur og fleira. Heyrt höfum vér að flokkur manna úr félaginu sýni þar leikfimi. Verður þar vafalaust skemtilegt, enda eru danzleikir félagsins ætíð með þeim beztu sem hér eru haldnir. »Geysir« kom upp að uppfylling- unni í gærmorgun og er nú verið að afferma skipið. það hefir ýmislegan varning meðferðis til kaupmanna. »Hafsteinn«, þilsbip G. Zoega o fl., kom af fiskiveiðum í fyrradag og hafði aflað 3000. Mesta ókyrð í hafi og varð skipið að leita hafnar fyrir ofveðri. Samverjinn. »Ónefndur« færði oss 25 kr. í gær handa Samverjanum. »Lagarfoss«. |>að er nú fastákveð- ið að »Lagarfoss« fari héðan í lok vikunnar austur um land og taki kjöt það, sem Norðmenn eiga þar. Síðan bemur skipið hingað aftur áð- ur en það heldur áleiðis til Noregs. Rfkiserfinginn dansbi, Eristján Friðrekur Franz Mikael Karl Valdemar Georg, áttí 19 ára afmæli sitt í gær. Flögg blöktu við hún á 200 ferðir til Islands. r -- Þegar Island kom hingað síðast frá Ameriku var það i tvöhundrað- asta skiftið, sem Aasberg skipstjóri kom hingað til lands. 195 sinnum hefir hinn góðkunni íslandsfari komíð hingað á skipum Sameinaða- félagsins frá Danmörku og 3 ferðir hefir hann stýrt skipi sínu héðan til New York til þess að sækja nauð- synjavörur fyrir landsstjórnina. Aasberg skipstjóri er íslendingum að öllu góðu kunnur. Hann mun vera einn hinna fáu útlendinga, sem hvert mannsbarn í öllum kauptúnum landsins, er komið er til vits og ára þekkir, ef ekki af viðkynningu, þú af afspurn — og góðri eingöngu. Hann hefir getið sér framúrskarandi góðan orðstir meðal íslendinga, bæði sem varkár og duglegur skipstjóri og sem sæmdarmaður í allri framkomu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.