Morgunblaðið - 12.03.1918, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.03.1918, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ Es. Lagarfoss íer héðan væntalnega á fimtudagskvöld til Seyöisíjarðar, Húsavíkur, Sauð- árkróks og til Akureyrar eí hægt verður að komast þangað fyrir hafís. Þeir sem óska að fá flattar vorur með skipinu eru beðnir að tilkynna það sem fyrst. Vér veitum vörum móttöku á miðvikudaginn. ^ H.f. Eimskipafélag Islands. Allir matvörukaupm. I bænum nær undantekningarlaust, selja dilkakæfu og kilkakjöt frá Niðursuðuverksmiðjunni Island Kiötið er kraftafæða, Kæfan er stnjörsígildi. Frá Tungunámu. Vetur gekk snemma í garð síðast- liðið haust, svo sem kunnugt er. Einkum fékk Norðurland að kenna á honum. Með byrjun október- tnánaðar lagðist hann að með fár- viðrum og fannkomu, og varð mörg- um erfitt um haustverkin að þessu sinni. Ótíð þessi fór ekki fram hjikola- námu landssjóðs í Ytii-Tungu á Tjörnesi, fremur en öðrum. Um þrer mundir var unnið að undirbún- ingi vetrar eftir föngum. En vetur varð fljótari á hólminn en nokkr- um hafði til hugar komið, og þótt- ust þó margir áður kenna kulda frá herbáðum hans. íbúðarhús námunn- ar, sem ætlað er um ioo manns, var þá i smíðum og tæplega fok- helt, þegar hríðin skall á. En þrátt fyrir frost og fjúk var unnið kapp- samlega að smíðum úti og inni, enda var þörfin hin brýnasta. Aður lágu flestir í tjöldum. Og þegar áður höfðu menn átt þar illa æfi sakir votviðra og krepju af hafi. Nú tók að frjósa og tjöldin að springa ofan af mönnum, en plögg og föt vot og hálf-freðin að morgni, þegar til vinnu skyldi búast. Þurfti til þess þolgæði ' og karlmensku að búa við slíka óblíðu. En viku af október var svo komið, að allir höfðu fluzt i íbúðarhúsið, og b;tn- aði þá aðbúð manna stórum, þó enn væri margt ógert að smíðinu. Um þessar mundir var kapp lagt á að komast áleiðis með námugöng- in inn í jörðina og láta hana skýla mönnum fyrir fárviðrum. Þrír gang- ar voru unnir nokkurnvegin jafn- hliða, og þegar inn var komið nokk- urn spöl, var tekið að gera hliðar- ganga, svo loftrás örvaðist og sem flestum yrði beitt á verkið. En hve- nær sem fárviðrum slotaði, lögðu skip og bátar að landi til kolasókn- ar. Urðu námumenn jafnan fyrir vosi miklu við framskipun, því oft- ast var unnið í frosti og stundum i fjúki, en tæki til framskipunar ónóg og ófullkomin. Skýli all-stórt til kolageymslu átti að reisa fram uudan námugöngun- uro. En ótíð bannaði aðflutning timburs og annað en veggjagerð að nokkru leyti, svo tóttin stóð opin undir veturinn. Varð þetta hinn mesti bagi fyrir námuna, því að sumpart urðu kolin að liggja úti og sumpart var þeim safnað saman í hliðargöngum inni í námunni; tafði Þsð verkið að nokkru og gerði það að verkum, að út varð að keyra alian ruðning, sem þó hefði átt að ^tisa inni eftir því sem rúm leyfði. Fram á veturinn unnu 50—60 ^anns í námunni. En um 20. ^óvember reyndist óhjákvæmilegt fækka mönnum sakir skorts á sptengiefni, ef náman átti eitthvað að geta starfað í vetur, og fóru þá 0lít 20 manns. Hafa síðan statfað ^ 30 og nokkuð .þar yfir siðan i miðÍ«m janúar. Aðalgöngn eru komin all-langt inn í jörðtna. Samtals munu göng- in öll, með hliðargöngum, vera orð- in nú (í miðjum febrúar) rúmlega 700 metrar á lengd. Frá íbúðarhúsinu til námunnar eru um 600 metrar, og stendur húsið norðar en náman. Var því jafnan móti veðri að sækja í óveðr- um, þegar frá vinnu var gengið. Verkamenn komu út votir af leka i námunni. En bráðlega gödduðu klæði þeirra, og þannig til reika komu þeir heim. Sú var þó bótin, að inni beið þeirra oftast nógur hiti, því húsið hefir reynst hlýtt og auð- velt að hita það upp. — Lasnir hafa menn orðið dag og dag eða nokkra daga i senn, en eigi hafa reynst mikil brögð að veikindum. En baráttan við veturinn hefir þó verið þung og hörð. Stórhríðar voru tímunum saman og stundum með hörkufrosti. Loks rak inn haf- is fyrri hluta janúar og gerði haf- þök undir miðjan mánuðinn. Var þá um sinn daglega -4- 30—33° C. — í stórhriðum var það miklum erfiðleikum bundið að halda auðum sporvegum þeim, sem út úr nám- unni liggja, svo vagnar gætu gengið óhindraðir. Var það ráð tekið snemma að löng SDjógöng voru gerð fram undan námugöngunum, og voru þau mjög til bóta. En loftrásin í göng- unum heftist þó nokkuð við þetta. Snemma í febrúar féll snjóflóð nm nótt frara yfir námugöngin, og olli það nokkrum skemdum. Braut það smiðju námunnar og bryggjur, sem stóðu á uppfyllingunni fram- undan; en hún hefir myndast af ruðningi úr námunni. Það er i frásögur færandi, að þrátt fyrir þá grimmustu vetrartíð, sem komið hefir siðan 1880—81, hefir altaf verið unnið i námunni, full 10 srunda vinna á dag. Enginn ein- asti vinnudagur hefir úr fallið ait til þessa dags, 16. febrúar. Meðan hafísinn lá við land, var allmiklu af kolum ekið á sleðum frá námunni til Húsavíkur. Meira eu þriðjungur leiðarinfiar lá um sjó- inn á ísi. Sáust oft langar lestir hesti og manna á þessu ferðalagi og stundum í miklu frosti. Nú er hafisinn að fara, og allir vona, að hann hverfi til fulls. En margir vetrardagar eru enn eftir i Tungunámu. Kunnugur. Jón frá Vaðnesi hefir fengið — með »Geyair« — góðar Jiartöftur $ rXaupsRapur ^ Lítið hús laust til ibúðar 14. maí, óska eg að fá keypt, helzt fyrir marz. B. Benónýsson, Laugavegi 39. Sími 619. Barnakerra óskast til kaups. UppL á Hverfisg. 30. ij *&nna ig Stúlka óskar eftir atvinvu við hæg skrifstofustörf eða aðra létta atvinnu A. v. á. . Skipstrand Snemma í gærdag kom hingað stórt gufuskip af hafi og sigldi & boðana fyrir innan Gróttu og strand- aði þar. Geir brá þegar við og fór vestur. Var hacn í allan gærdag að reyna að ná skipinu út og flutti það loks kl. 6 í gærkvöldi inn á Eiðsvík og dældi sjónum úr þvi. Var svo að sjá, að mikill sjór væri í þvi, enda þorði Geir eigi að halda með það til Reykjavíkur að svo stöddu. Kl. 8 í gærkvöldi náðist loks sam- band við skipið úr landi. Það heitir »Köbenhavn« og er frá Kaupmanna- höfn. Einn skipverja segir svo fri ferð þess: 19. febrúar fór það frá Phila- delphia í Bandarikjunum áleiðis til Liverpool á Euglandi. Á leiðinni hrepti það versta veður, sifelda storma með afskaplega miklum sjó. Fyrir nokkrum dögum skall brotsjór á skipið og tók á bnrt alla björgunar- báta þess nema tvær litlar kænur, Skipið hafði siglt norðarlega, en skipstjóri vildi ekki leggja inn á hafnbannssvæðið án björgunarbáta, ef ske kynni, að skipverjar þyiftu á þeim að halda,- Var þvi afráðið að halda til Reykja- vikur til þess að fá þar nýja báta. Inn i Faxaflóa kom skipið í fyrra- kvöld, en hélt sér úti fyrir til morg- uns. Þá silgdi það nær landi, dróg upp hafnsögumerki hjá Gróttu, en sigldi rétt á eftir á Bygggarðsboða fyrir norðan Gróttu. Skipið er 3700 smál. að stærð og er hlaðið smurningsolíu o. fl. Hefir m. a. noootunnur af smurningsolíu meðferðis og töluvert af efni, sem nefnist »sterolic« og er notað til þess að smyrja með fallbyssur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.