Morgunblaðið - 16.05.1918, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.05.1918, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ stjóra. Var því vísað til síðari um- ræðu. Þegar hér var komið, lýsti for- seti því yíir, að nú gæti atkvæða- greiðsla um dýrtiðarhjálpina farið fram, pví að þingmenn væru allir mættir. Stóð hún yfir lengi, því að nafnakall varð að hafa við nær all- ar breytingartillögur og sjálfar grein- ar frumvarpsins. Urðu úrslitin þau, að allar breyt- ingartillögur meiri hluta bjargráða- nefndar voru feldar og frumvarp stjórnarinnar samþykt með þeirri einu breytingu, að stjórnin má að eins veita dýrtíðarvinnu í þarfir fram- leiðslu og að henni er heimilað að kaupa afurðir af dýrtiðarvinnu sveitar- og bæjarfélaga. Frumvarpinu var vísað til 3. umræðu með 14 atkvæðum gegn 12. í gær gerðist ekkert sögulegt I neðri deild. Mörg mál á dagskrá, en nær engar umræður. Samþykt var með 21:2 atkvæðum að leyfa fyrirspurnina til landsstjórnar um sykurhækkunina. Sögðu allir já nema Þorsteinn Metúsalem og Einar Arnason. í efri deild gerðist eigi heldur neitt merkilegt. Nokkur mál á dag- skrá, en litlar umræður. Frumvarpi um eftirlaun Björns Kristjánssonar var vísað til allsherjarnefndar. 1. þingmaður Arnesinga ber fram í neðri deild frumvarp til laga um viðauka við lög um hrossakynbætur. Viðaukinn er um graðfola og hljóðar svo: Heimilt er 1 samþykt að ákveða að eldri graðhesta en l1/^ órs, er hittast gæslulausir, megi gelda á kostn- að og ábyrgð eiganda eða geymanda. Greinargerð: Eigi verður annað sagt, en að þessi viðauki við lögin sé nauðsynlegur og aðkallandi. Eitt af aðalatriðunum er það, að geta trygt sér not grað- hesta. Margir láta sig þetta mál litlu skifta og eru jafnvel andvígir. Meðal annars leyfa menn sér að láta ó v a 1 d a graðfola og kynslæma, sem bannað er að nota, leika laus- um hala 1 trássi við skýlaus fyrir- mæli laga. Fyrir því verður blátt áfram að leyfa að gelda slíka fola ef þeir hittast gæslulausir. Ann- ars eiga menn það sífelt á hættu að þessir folar geri skaða.---------- Já, það er líklega satt, að grað- folar fara ekki að lögum. En hörð eru þessi ákvæði og eigi mannúðleg. Eða hafa allir gleymt gömlu vísunni: Ef þú hittir fátækan á förnum vegi, gerð’onum gott en gelt’ann eigi — guð mun launa á efsta degi. Elendínns. Kaupgjald verkamanna. I tilkynningu, dagsettri 13. þ. m. tilkynnir stjórn verkamanna- félagsins »Dagsbrún«, að kaup verkamanna hækki frá 15. þ. m. upp í 90 aura á klukkustund 0g kr. 1.50 fyrir tímann á helgi- dögum og í »eftirvinnu«. Tilkynning þessi kom yfir vinnuveitendur eins og þruma úr heiðskíru lofti. Bæði var fyr- irvarinn stuttur og svo hafði eigi verið leitað samninga við þá um þetta efni. Munu því flestir þeirra taka þann kost, að veita engum vinnu fyrst um sinu ef verkamenn halda fast við þessa kröfu. Margir verkamenn skyldu til- kynninguna þannig, að kaupið ætti eigi að hækka fyr en að liðnum 15. degi mánaðarins og unnu þeir í gær. En ýmsir aðr- ir munu hafa lagt niður vinnu. Nú þykir og leika nokkur efi á þvi, að samþykt sú, er félags- fundur »Dagsbrúnar« gerði um þetta efni, hafi verið lögleg og höfum vér verið beðnir að birta eftirfarandi tilkynningu: Þar eð »Verkmannafél. Dags- brún« hefir ekki á þessu ári enn gert neina löglega samþykt um breytingu á kauptaxta félagsins, þeim sem samþ. var síðastliðið haust, höfum við ástæðu til að ætla að einhver óhlutvandur ná- ungi hafi í heimildarleysi birt auglýsingu þá um hækkun á kaupi, sem birtist í dagblöðunum nýverið,oger undirskrifuð »stjórn- int. Teljum við auglýsingu þessa alveg óviðkomandi félaginu og félag8mönnum yfirleitt, jafnvel þó einhver úr stjórn þess hafi komið henni á framfæri. Margir Dagsbrúnarmenn. Má af þessu sjá að einhver misskilningur á sér stað innan félagsins. Annars er ekkert hægt um það að segja, hvernig þetta mál kann að fara. Skrásetning báta. Morgunblaðið benti á það I vet- ur, að safna þyrfti skýrslu um alla sjófæra báta hér i bæ, og sjá um það, að þeir yrðu allir notaðir 1 vor og sumar til þess að draga björg í þjóðarbúið og þá um leið gerðar ráðstafanir til þess að þeir gasti fengið salt og veiðarfæri. Að undir- lagi stjórnarinnar hefir nú þetta ver- ið gett og reyndust sjófærar fleytur hér (tveggja — sexmannaför) 120 al!s. Af þeim munu 20 vera ór.otaðar sem stendur, en hinar ganga allar til veiða. Má gera ráð fyrir að um 500 manns hafi atvinnu á þessum bátum. En nú var orðið saltlaust hér og horfði til stórvandræða því að nú fengu sjómennirnir eigi rreira en 10 aura fyrir pundið I flöttum fiski. En sjálfir áttu þeir eigi salt. Þykir mörgum það því spá góðu, að farið var að skrásetja bátana og vænta þess að eigi verði látið þar við lenda, heldur reyni nú yfirvöldin líka að sjá til þess að þessi smá-bátaútveg- ur fati eigi í kalda kol jafnharðan. Það er hart að vita til þess, að salt skuli hafa verið selt út úr land- inu til þess að Færeyingar gætu stundað fiskveiðar, en landsmönn- um sjálfum eigi séð fyrir nægum birgðum. Og eru það einkennilegar ráðstafanir, svo eigi sé meira sagt, að reyna eigi fyrst og fremst að efla at.innuvegi í landinu sjilfu, þar sem það verða beztu bjargráðin. Við vitum hvernig atvinnubæturnar gef- ast — að það er betra að hjálpa mönnum með ráðum og dáð til þess að þeir þurfi ekki að vera upp á þær komnir. Vér vitum nú eigi hvað stjórnin ætlar að gera i þessu máli, en oss virðist, sem bæjarstjórn ætti nú að hefjast handa og reyna að tryggja þeim bæjarmönnum salt, sem fisk- veiðar stunda. Hingað kom saltskip I fyrradag og er nú tækifæri til að sýna af sér röggsemi og fyrirhyggju. Einstakir menn hafa eigi efni á þvi að birgja sig að salti til hausts, en bæjarstjórn gæti fest kaup á salti og úthlutað þvi siðar til bátanna i hlut- falli við stærð þeirra og áhöfn, eftir því sem þörf gerist. Nú er nægur fiskafli þegar á sjó gefur og horfur á að veiðin haldist fram eftir snmrinu Er það lán í óláni, en þó því að eins, að hægt sé að stunda sjó. Síðan skýrslan um bútana var tek- in, hafa nokkrir þeirra hætt sjósókn- um vegna þess að eigi var markað- ur fyrir fiskinn og eigendur þeirra áttu ekkert salt. Annað eins má ekki eiga sér stað. í landinu er yfir- vofandi bjargarskortur en rétt utan við landsteina er nóg björg. Og svo á ekki að bera sig eftir henni. Sumir munu segja að hægt sé að herða fiskinn. Það er satt. En þeir sem sjó sækja á opnum bátum eru fæstir svo. efnum búnir að þeir geti beðið þess til hausts að fá fé fyrir sumarstarf sitt. Sykurmálið. Níu þingmenn i N'h- diT l' f fram eftirfarandi fyrirspurn til stjórn- arinnar. Hvers vegna hækkaði landstjórnin verð á sykri landsverzlunar síðastliðið haust? Og hvers vegna lækkaði stjórnin sykurverðið aftur? —-------- Þrátt fyrir margitrekaðar spurning- ar og særingar, hefir stjórnin aldrei viljað gefa almenningi' upplýsingar í sykurmálinu. Nú neyðist hún senni- lega til þess og þá duga eigi sams- konar vífilengjur eins og á borgara- fundinum I haust. Nú verður hún að leggja skjölin á borðið hvort sem henni þykir betur eða ver, og hefði þó fyr verið betra. Skipamiðlar. Allsherjarnefnd Ed. hefi komið fram með álit sitt i því máli og er það að ýmsu leyti einkennilegt. Þar sejfir meðal annais svo: Nefndin hefir athugað frumvarp þetta eftir föngum og reynt að afla sér þeirrar þekkingar á málefninu,. er henni var mögulegt á þessum stutta tíma, sem hún hefir yfir að' ráða. Nefndin fékk til athugunar allítar- legt frumvarp (í handriti) til laga um verzlunar- og siglingamiðla, er hún óthugaði, en komst^að þeirri niður- stöðn, að bæði vantaði tíma til þess að afgreiða svo langt og vandasamt frumvarp á einu aukaþingi, sem að likindum var vel hálnað, þegar það barst nefndinni, og svo væri miðil- starfið svo mjög á byrjunarstigi, að tæpast væri kominn tími til að semja mjög itarleg lög I þvi efni, þar sem reynslan væri svo litil og lög þaur er sett hafa verið í nágrannaiöndun-- um, eru i ýmsum greinum mjög frábrugðin hver öðrum í mörgum aðalatriðum, og því erfitt um að velja, hvað taka á til fyrirmyndar,, meðan engin eða lítil reynsla er fengin hér á landi. Hinsvegar var nefndinni það ljóst,. að hér er um þýðingarmikið mál að' ræða, sem ekki má dragast að setja lög um, er tryggi mönnum það að eiga kost á að geta snúið sér til einhvers þess manns, sem bæði er vaxinn þessum starfa og um leið viðurkendur valinkunnur sómamaður,- Nefndin bar þetta mál undir Verzlunarráð íslands og . . . álítur ráðið að . . . aðalatriðið sé, að hér verði kostur á starfshæfum skipa- miðlurum, sem trygging er fyiir að verði óvilhallir i starfi sinu og álit- ur raðið, að þvi takmarki megi ná með hér umræddu frumvarpi. Nefndin hefir því fallist á frum- varpið, en virðist það ekki nægilegt, að skipamiðill hifi óflekkað mann- orð, því að þvi skilyrði fullnægja hundruð eða þúsundir manna, sem þó eru óhæfir til starfsins, en aðal- atriðið er, að maðurinn sé, auk þess að hafa hæfileika td starfsins, al- þektur heiðursmaður, sem allir geti treyst. Nefndinni virðist og rétt, að drepa á það í frumvarpinu, að á miðlum hvili full skaðabótaskylda gagnvart viðskiftamönnum þeirra. Hringferð Hringsins verður á annan í hvitasunnu. -■ Skemtiskrá auglýst á morgun. —:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.