Morgunblaðið - 13.06.1918, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.06.1918, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Knattspyrnumót íslands Annar kappleikur. Hann var háður á íþróttavellin- um i fyrrakvöld og fór svo að »Fram« sigraði »Reykjavikur* með 6: i. Veður var hráslagalegt, vindur þó eigi svo mikill að hans gætti að nein- um mun, en hellirigning með köfl- um, svo að keppendur urðu hold- votir. En hvorki þeir né áhorfendur létu það hið minsta á sig fá og fylgdi sérstaklega æskulýður bæjar- ins leiknum með miklum áhuga. Varð maður þess fljótt var á and- anum í áhorfendum, að hér áttust við tveir gamlir keppinautar, sem báðir eiga sér marga vfldarvini i bænum. Mun það og hafa átt sinn þátt í því hve margt fólk kom suð- ur á völlinn þrátt fyrir illviðrið. Fyrri hálfleikurinn fór mjög vel fram og voru félögin þá svo jöfn, að eigi mátti í milli sjá. En i síðari hálfleiknum skifti skjótt um. Fatlaðist þá bezti maður »Reykjavíkur«, Guðmundur Guð- mundsson og gekk til fulls lir leikn- um. Annar fatlaðist og um hríð og hinn þriðji naut sin alls eigi, Ingvar Olafsson. Hann meiddist i knatt- spyrnu fyrir skemstu og var nú ný- staðinn upp úr legu eftir áfallið. Varð hann þvi að draga mjög af sér og því meir sem lengra leið á leik- inn. Mátti þvi svo heita sem »Reykjavikur« vantaði tvo menn allan síðari hálfleikinn, enda settu »Fram«-menn knöttinn i mark hvað eftir annað. Má þó segja það mark- manni »Reykjavikur« til verðugs lofs, að hann varði markið frækilega og launuðu áhorfendur honum það hvað eftir annað með fagnaðarópum þá er knötturinn kom á mark eins og kólfi væri skotið, en fékk þar þær viðtökur að hann þeyttist í öfuga átt með engu minni hraða. En enginn má við margnum. Þess má geta, að dómari ónýtti eitt skorað mark hjá »Fram«, og sögðu oss fróðir menn, að slikt hefði tæplega getað talist rétt. Einn af >Fram«-mönnum sparn knettinum á mark, en var rangstæður. Markmað- ur hendi knöttiun á lofti og skaut honum út á völlinn en þar var ann- ar »Fram«-maður fyrir og var sá ekki rangstæður. Skaut hann knett- inum til marks og hæfði svo að markmaðnr fékk eigi varist og lenti knötturinn i netinu. Gerðist þetta alt með svo skjótri svipan, að dóm- ari, sem sá að fyrri tilræðismaður »Frams« var rangstæður, mun eigi hafa getað veitt því eftirtekt, eða eigi orðið nógu fljóttur að pípa. Annað mark var dæmt ógilt fyrir »Fram«. Var það i leikslok. Gerðn »Fram«-menn harða hríð að »Reykja- víkur« og skutu knettinum til marks og lenti hann að vísu í netinu en var eigi kominn nógu langt, er dóm- ari pípti til merkis um að leiknum væri lokið. ísland og Danmörk í »Dansk Islandsk Samfund« flutti Thor E. Tulinius stórkaupmaður nýlega fyrirlestur um samband ís- lands og Danmerkur. Fór hann mörgum orðum um það, að Dani skorti algerlega skilning á því hve miklar auðsuppsprettur væru á ís- landi og hversu mörg framtíðar- skilyrði þar væru. Hann gat þess, að ísland nyti að visu nokkurs styrks úr rikissjóði Dana, en árið 1913 hefðu Danir grætt 3 miljónir króna á verzluninni við ísland. Siðan Iýsti hann helztu auðsuppsprettum ís- lands og tók það skýrt fram að akur- yrkja, kvikfjárrækt og fiskveiðar gætu gefið mörgum sinnum meiri arð, heldur en til þessa og hið mikla fossaafl Islands mætti nota til iðn- aðar- og járnbrautareksturs. Og það væru miklar likur til þess að Reykja- vik yrði miðstöð kornvöruflutninga frá Kanada til Evrópu. Því að þeg- ar járnbrautin, sem nú er í smíðum milli Manitoba og Port Nelson væri fullger, væri það 10.000 sjómilum skemra að flytja hveitið til íslands heldur en annara landa Norðurálfu. PAGBOK § Gangverð erlendrar myntar. Bankar Pó*th&l Doll. U.S.A. &Canada 3,35 8,60 Frankl franskur 59,00 62,00 Snnsk króna ... 112,00 110,00 Norsk króna „ 103,00 103,00 Sterlingspund ™ 15,50 15,70 Mark ... „ 6500 67,00 Holl. Florín „ 1,55 Storling fór héðan í gærmorgun, fyrst til Viðeyjar og bvo til Hafnar- fjarðar og þaðan suður og austur um Iand. Farþegar voru margir með skip- inu, þar á meðal: Jón Sveinsson stud. jur., Haraldur Níelsson pró- fesaor, Tryggvi Guðmundsson frá Seyðisfirði, þorst. Jónsson kaupm., jungfrúrnar Asta og Jakobína Sig- hvatsdætur bankastjóra, Heba Geirs prófasts Sæmundssonar, Auður Jóns- dóttir, Olga þórhallsdóttir, stúdönt- arnir Jónas Jónsson og Jónas Jónas- son, Friðrik Jónsson póstur á Helga- stöðum, Jón þórðarson prentari, Hans Eide verzlunarm., þórhallur Daníels- son kaupmaður, frú Wathne, frú Smith, Stefán Th. Jónsson konsúll o. m. fi. Sigurður I. fór til Borgarness í gær og með honum nokkrir farþegar. Lagarfoss fer héðan í dag vestur um haf. Með honum fer skipshöfnin af Francis Hyde. Botnia mun að öllum líkindum fara frá Kaupmannahöfn á morgun, áleiðis hingað. Huginn, skip Kveldúlfsfélagsins, er búið að vera í Barcelona og af- ferma fiskinn þar. Mótorbátnr til sölu. Mótorbátur, 8—10 tonn, bygður úr eik, í ágætu standi er til sölu. Upplýsingar hjá Guðm. Sveins- syni, Laugaveg 18 b. Snyrpinætur og Snyrpibátar til sölu. — Upplýsingar hjá Nathan & Olsen. Þeir sem veikir eru af meltingarsjúkdómum eða lang- varandi sjúkdómum og þurfa þessvegna aukina sykurskamt, geta leitað álits héraðslæknis (Lauga- vegi 40 uppi) um viðbótarskamt. Aðrir fá ekki viðbótarskamt. Matvælanefndin. eða gömul söðulklæði, verða keypt háu verði. Formaður og hásetar óskast á nýtt 4 manna far. í sima 604. UppU R. v. á. íbúð óskast 1. október n. k. R. P. Levi. Reglur og leiðbeiningar um söla og titflutning á óþurkað- nm saltfíski. (Tilkynning nr. 1 frá Útflutningsnefndinni.) 1. gr. Samkvæmt samningi á milli stjórna Bandamanna og islenzku stjórn-- arinnar er skylt, að bjóða fulltrúa Bandamanna hjer i Reykjavik allar Is- lenskar afurðir til kaups, jafnóðum og þær eru tilbúnar til útflntnings, að þvl leyti sem þær eigi verða notaðar í landinu sjálfu. Öll sala fer fram gegnum landsstjórnina, og annast útflutningsnefnd- in allar verklegar framkvæmdir á henni, samkvæmt auglýsingu stjórnar- ráðsins, dags. 4. þ. m. og ennfremur reglugjörð stjórnarráðsins dag- settri i dag. í 2. gr. Samkvæmt samningnum ber að afhenda fiskinn á þessum höfnum;: Reykjavik, ísafirði, Akureyri, Seyðisfirði og Vestmannaeyjum. En full- trúi Bandamanna hefir fallist á við nefndina, að kaupa óþurkaðan saltfisk fyrst um sinn til 31. júlí, einnig á þessum stöðum: Keflavik, Hafnar- firði, Stykkishólmi, Patreksfirði, Þingeyri, Siglufirði og Norðfirði. Er þess þó krafist um Keflavik, að þar verði á boðstólum minst 200 smá-- lestir og Stykkishólm minst 100 smálestir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.