Morgunblaðið - 14.07.1918, Blaðsíða 1
Sunnudag
14
júlí 1918
HORGIINBLAOID
5. argangr
247.
tOiuhlaö
Ritstjrtmarsisr-i nr. 'joo
Ritstióri: Viihiálmnr Finsen
íssfold
arprer t ■ r iðja
Afgreifslusimi nr. 500
Gamla Bió
Kátur
lautenant
Afarspennandi dinskur gaman-
leikur í þrem þáttum.
Aðalhlutverkið leikur
Carl Alstrup
(uppihaldsleikari Dana)
ennfremur leika hinir þektu
(eikarar: Chr. Schröder, Erna
Schröder, Viggo Lindström og
Rich. Christensen.
1
Tvö til þrjú herbergi og eld-
hús óskast lil leigu r. okr. nk.
%eytiir Gíslason. Sími 50
Fyrsta flokks bifreiðar
ávalt til leigu.
St. Elnarsson. Gr, Sigurðsson.
Simi 127. Sími 581.
£r(. sfmfregnlr
(Frá fréttaritara Morguníil.).
Khöfn, 12. jdH.
>Berlingske Tidende« segja, að
spanska veikin (Grippe) sé mönnum
áhyggjuefni á íslandi.
^ Fréttaritara yðar hefir eigi þótt
það þess vert, að geta veikinnar í
símskeytum, sökum þess, að læknar
telja hana uppvakning fávísra blaða-
manna. Læknar telja hana einaöngu
venjulega »catarrh-inflúenzuc, sem
menn séu eigi veikir af lengur en
3—4 daga og hafi engin eftirköst.
»Hospitalstidende« segja frá því í
gær i fréttum frá Kristiania, að þar
hafi orðið vart við inflúenzu.
í dag fréttist það, að prófessor
Schuermann við háskólann í Halle
haldi því fram, að hann hafi fundið
venjulegar inflúenzu sóttkveikjur í
mönnum, sem höfðu hina svököll-
uðu spönsku veiki.
»Serum« stofnunin er nú að leita
að sóttkveikjunni. Engir hafa dáið
hér úr veikinni og hún er ekki sér-
lega útbreidd.
Khöfn, 12. júlí.
Ríkiskanzlarinn þýzki iýsti yfir
því í ríkisþinginu, að persónulegar
ástæður hefði valdið því, að Kiihl-
mann fór frá, en eigi ágreiningur
um stjórnmál.
Hintze hefir iofað þvl að feta i
fótspor fyrirrennara sinna.
Það virðist svo, sem meiri hluti
þingsins vilji styðja stjórnina.
ítalir hafa handtekið 1690 menn
i Albaniu.
Khöfn 12. júlí,
»Politiken« og »Berlingske Tid-
inde« flytja bæði ritstjórnargreinar
um hina ranglátu afstöðu, sem sum
blöð i Noregi hafa tekið í sambands-
rnáli íslands og Danmerkur, og
segja að það sé eigi í fyrsta skifti,
sem »Tidens Tegn« sletti sér fram
í dönsk innanríkismál á óvingjarn-
legan hátt. Segjast þau efast um
að íslendingar mundu meta mikils
loforð »TidensTegn« um stuðning,
ef þeir vissu undan hvaða rótum
þau væru runnin. Allir, sem óska
þess í einlægni að bæði Danmörku
og íslandi farnist vel, og þar með
að Norðurlönd blómgist, láti samn-
ingaumleitanirnar . afskiftalausar og
biði árangurs, án þess að sletta sér
fram í málið með óþörfu og óvið-
urkvæmilegu hjali.
»Berlingske Tidende* segja: Af
fréttum þeim, sem oss hafa borist
frá íslandi þessa síðustu daga, höf-
um vér þvi miður veitt því eftirtekt
að utanaðkomandi áhrif virðast hafa
náð tökum á almenningsálitinu á
íslandi og tvöfaldað fylgi hinna
svæsnustu sjálfstæðismanna. Helstu
blöð i Danmörku, Noregi og Svi-
þjóð hafa sýnt þann skilning að
ræða ekki um málið né það sem á
milli ber, en i Noregi eru til blöð
sem ekki eru jafn orðvör sem
skyldi, enda þótt þau hafi ef til
vill engan ákveðinn tilgang með
því.
En vegna þess að islenzku skiln-
aðarmennirnir vilja fá það skýrt fram,
hvert sé takmarkið, getur þetta orð-
ið til þess að vekja sundurlyndi.
Þess vegna getum vér þegar og
hiklaust svarað því fyrir Dana hönd,
að þeir vilja eigi Hta á sfstöðu ís-
lands og framtið eingöngu frá dönsku
sjónarmiði. Eu þar sem beztu
menn beggia þjóða reyna nú
í alvötu og einlægui að jafna
deilumálin, þá krefjumst vér þess,
að eigi sé gert erfiðara fyrir af
af þeim, sem ekki eru málsaðiljar.
Og vér krefjumst þessa eigi ein-
göngu vegna Danmerkur og íslands
heldur í augljósa þágu sameigin-
legrar menningar allra Norðurlanda.
Þegar iitið er á fjögra ófriðar-ára
samvinnu Norðurlanda getum vér
tæplega trúað því um nokkurn þann
er ábyrgðartilfinningu hefir, að hann
vilji hætta á það, að slíta góðri sam-
vinnu og samkomulagi, sem hvað
eftir annað hefir komið í ljós og
því trausti er hvorir hafa borið til
annara.
Erl. símfregnir
Opinber tilkynning frá brezku utan-
rikisstjórninni í London.
Yfirflotaráðherra Breta skýrði frá
pví hinn rr. júlí, að það kæmi tæp-
lega fyrir að sá dagur eða sú nótt,
að brezki flotinn heimsækli eigi
Helgolandsflóa, annaðhvort ofan- eða
neðansjávar. Með sprengiduflum og
djúpsprengjum (depthcharges) hefði
nú skiftst svo um, að í staðinn fyrir
það að kafbátarnir hefðu áður verið
á veiðum væru þeir nú veiddir.
Væru Bretar smám saman að ná
betra tangarhaldi á þeim og þeir
fengju æ minna svigrúm og fækk-
aði nú óðum.
í júnímánuði fóru bresklr flug-
menn 74 árásarferðir inn í Þýzka-
land og vörpuðu þar niður rúmlega
6r smálest af sprengjum. Áður hafði
kveðið mest að flugárásum í maí-
mánuði, en þá var varpað niður 48
smálestum af sprengjum í Þýzkalandi.
A vesturvígstöðvunum var lofthern-
aðurinn með ailra ákafasta móti og
á mánuði skaut einn brezkur flug-
maður niður 25 óvinaflugvélar á
norðanverðum vígstöðvunum og hafði
þá alls unnið sigur i 75 loftorust-
um. Hinn frægi brezki flugmaður,
majór Macudden, sem hlotið hafði
Viktoríu-krossinn og mörg önnur
fremdarmerki og skotið niður 54
óvinaflugvélar, beið bana af slysi.
Nýja Biö.
Djarft telff
Sjónleikur i tveim þáttum um
ástir og pólitlk og fl. Tekinn
af hinu ágæta filmfélagi
Vitagraph Co.
Óheppinn leiguþjónn
Ákaflega hlæálegur sjónleikur.
Thedor Hardy, herprestur Breta,
53 ára að aldri, áður skólakennari
norður í landi, hefir verið sæmdur
Viktoríu-krossinum fyrir framúrskar-
andi fiamgöngu á vestnrvígstöðv-
unum, þar sem hann hefir hvað eft-
ir annað bjargað særðum mönnum
undan ákafri stórskotahríð.
Eftirmaður Rhondda lávarðar sem
matvælaráðherra hefir verið kjörinn
Clynes þingmaður og verkamanna-
fulltrúi. Hafði hann áður getið sér
góðan orðstír meðan hann var full-
trúi matvælaráðuneytisins í þinginu.
Mirbach, sendiherra Þjóðverja í
Moskva var myrtur hinn 8. júlí.
Kuhlmann hefir sagt af sér utan-
ríkisráðherraembættinu í Þýzkalandi
og heíir Hintze flotaforingi tekið
við af honuœ.
Hinn 12. júli var hátiðlegur hald-
inn um alt Bretaveldi sem »Frakk-
lands-dagur*. Var þá stórfé safnað
fyrir sjóð franska »rauðakrossins.
Hin nýja sönnunfyrirhinu grimdar-
fulla framferði Þjóðverja þá er þeir
skutu kanadiska spítalaskipið »Lland-
overy Castle« í kaf og drápu flesta
farþega og skipverja, hefir orðið
fyrir hinum hörðustu dómum i
brezkum blöðum og hlutlausum blöð-
um og kemur öllum saman um það,
að þetta sé verstur glæpur af öllum
grimdarverkum Þjóðverja.
Up'pástungum stjórnarinnar um
það, að koma á fót lýðsljórn (con-
stitutional government) i Indlandi
hefir verið vel tekið af blöðum í
Bretiandi og öðrum löndum. í hlut-
lausum blöðum er það viðurkent að
að eins það ríki, sem er fullvist þess
að sigra í ófriðnum, hefði getað ráð-
ist i sdkt á þessum timum.
Hinn .nafnfrægi friðarvinur H.
Wells hefir ritað grein þar sem hann
býst við því að stöðugt muni eflast
sú þýðingarmikla ákvörðun brezkra
sjómanna, að útiloka Þjóðverja að
ófriðnum loknum þangað til þeir
hafi að fullu bætt fyrir hin óteljandi
afbrot gegn mannúðinni. Wells bend-
ir á það, að þessi fyrirætlun sé óháð
Kaupiröu góðan hlut
bá mundu hvar þú fekst hann.
Srnurningsolia: Cylinder- & Lager- og 0xulfeit|
eru áreiðanlega ódýrastar og beztar hiá Slgur jénl
Hafnarstræti 18
Simi 137.
Jlreiðanlegur og óugíagur érengur ósRasi, strax tíl að^JBera^út lÆorgunBlaðið.