Morgunblaðið - 28.10.1918, Blaðsíða 1
Mánudag
28.
okt. Í9Í8
5. argsnp
351.
tðlnto^ftð
R tstjóri: VUhjiln Finseu
tssfo daiprentsmiðja
SSB-----------------------------
K. tstjórnarsÍH nr 500
Samningur Dana
við Bandaríkin.
Síðast í septembermánuði varsamn-
ingur milli Danmerkur og Bandarikj-
anna undirskrifaður í Washington.
Gekk sá samningur i gildi i miðjum
siðastliðnum mánuði og er Dönum
með honum fengin full vissa fyrir
þvi, að bandammnaþjóðirnar skamta
þeim nægilegt af þeim vörnm, sem
Dani sjerstakiega vanhagar um, bæði
matvörur og iðnaðarvörnr.
Það er nógu fróðlegt að sjá, hvað
og hve mikið Dönum hefir verið
lofað útflutningsleyfi á. Þeir eiga
m. a. að fá 33 þús. smál. af áburð-
arefni, 16 þús. smál. af kaffi, 600
smál. af te, 2000 smál. af kókó, 80
þús. smál. af steinolíu og smurn-
ingsolíu, 400 smál. af sápu, 3500
smái. af kopar, 150 þús. smál. af
járni og stálvörum til skipasmíði,
70 smál. af rafmagnstækjum, 7000
smál. af ávöxtum, afarmiklar birgðir
af vefnaðarvöru, bómull og ull óunn-
inni, 3700 srrál. af tóbaki o. s. frv.
o.s.frv. Meðöðrumorðum: Danirhafa
fengið alt sem þeir þarfnast, en verða
að skuldbinda síg til þess, að fiytja
ekkert af þessurn vörum til annara
landa. Dönsk skip, sem nú eru í
siglingum fyrir aðrar þjóðir, verða
leyst frá öllum skuldbindingum, til
þess að Danir geti sjálfir flutt vör-
nrnar heim, en það sem afgangs
verður skipastóls Dma fá bandamenn
á leigu gegn ákveðuu gjáldi.
Þegar Dönum var það Ijóst, að
þeir komust ekki af án þess að
semja við bandamenn um aðflutn-
inga, þá völdu þeir ötulustu og
reyndustu menn sina í verzlunar-
málum, og sendu þá til London og
Washington. Þeir dvöldu að eins
skamma stund í borgum þessum,
en þeir komn heim með þann árang-
ar, sem algerlega hefir komið Dön-
um úr þeim vandræðum, sem þar
voru að verða i iandi. Að eins beztu
mennirnir voru nógu góðir og þeir
gerðu sér far um að semja, en láta
ekki þröngva sér til neins.
Þegar maður sér þann árangur,
sem orðið hefir af samningaumleit-
unum Dana við bandamannaþjóðirn-
ar, verður manni ósjálfrátt á, að bera
þeirra samning saman við þann samn-
ing, sem íslendingat gerðu við Breta,
Maður getur ekki að þvi geit, að
maður spyr sjálfan sig að því, hvort
ekki mundi hafa verið hyggilegra
að biðja Dani að semja fyrir okkar
hönd, í stað þess að vera að pukra
með samninga sjálfir.
Það þarf enginn maður að skamm-
ast sin fyrir það, að biðja annan að
komast að samningum við einhvern
fyrir sig, ef likindi eru til þess að
samingurinn vcrði hagkvæmari við
það. Og maður getur ekki komist
hjá því að ætla, að það hefði verið
hagkvæmara fyrir íslendinga, ef
ástæður þeirra hefðu verið teknar til
athugunar um leið og Danir og hin-
ar Norðurlandaþjóðirnar gerðu samn-
inginn við bandamenn.
Erl simfregnir.
Austurríkismenn leggja
niður vopn.
Khöfn 26. okt.
Frá Vínarborg er símað, að und-
irbúningur hafi nú verið gerður til
þess að afvopna allan herinn. Aust-
urrikiskeisari og keisarafrúin eru flutt
til Budapest.
Kroatia s]41fstæð.
Khöfn 26. ckt.
' Kroatar hafV ’lýst yfír sjáífstæði
sínu og hafa látið.lansa alla serbneska
fanga.
] [ Stjðrn Pólverja.
" ' ~ Khöfa 26. okt.
Ný frjálslynd stjórn er komin til
valda í Póllandi.^*
2000 fangar enn.
Khöfn 26. okt.
Bretar hafa enn tekið 2000 Þjóð-
verja höndum á vesturvígstöðvunum.
Nýtt svar
væntanlegt frá Þjóðverjum.
Berlín 26. okt.
Þó að Wilson forseti hafi ákveðið
að leggja fiiðarumleitanirnar þessu
næst fyrir bandamenn sína, þá telur
þýzka stjórnin þó nauðsynlegt nú
þegar að skora á hann að láta uppi
vopnahlésskilmálana. Orðalag svars-
ns er enn óákveðið.
Fnllkomið þingræði 1 þýzkalandi.
Kanslarinn á aS bera ábyrgB á öllum
8tjórnarathöfnum þirgsins.
Berlín 26. okt.
Vorwaerts skýrir frá efni frum-
varpa þeirra, sem fyrir þinginu liggja,
um breytingar á stjórnarskipunarlög-
um ríkisins, og þar á meðal eru
ákvæði um, að ríkiskanslarinn skuli
hafa traust þingsins og bera ábyrgð
gagnvart þinginu á öllum stjórnarat-
höfnum keisarans. Kanslarinn og
umboðsmenn hans bera ábyrgð á
öllum stjórnarathöfnum sínum gagn-
vart sambandsráðinu og þinginu.
Kanslarinn skal meðundirrita skipun
og afsetoingu ailra sjóliðsforingja og
annara embættiímanna flotans. Her-
málaráðherrann meðundirritar á sama
hátt skipun allra embættismanna
landhersius og ber ábyrgð gagnvart
þingi og sambandsráði.
Verður þannig alt framkvæmda-
vald ríkisins í höndum stjórnar, sem
ber fulla ábyrgð, og þar með einnig
skipan og afsetning æðstu herfor-
ingja.
Sókn bandamanna.
London 26. okt.
Her Breta hefir umkriogt Valen-
ciennes að norðan og sunnan. Þar
fyrir sunnan hafa Bretar náð járn-
brautinni milli Valenciennes og Aves-
nes á sitt vald á 8 mílna kafla. I
miðvikudags- og fimtudagsorustun-
um tóku Bretar 9000 fanga.
Frakkar hófu í gær áhlaup gegn
fleyg þýzka hersins milli Oise og
Serre. Þeir sóttu fram á 8 mílna
svæði við Souche og 17 mílna svæði
við Aisne og tóku 3500 fanga og
ruddu sér braut inn í Hundinglínu
Þjóðverja á ýmsum þýðingarmiklum
stöðum. Milli Sissonne og Chateau
Porcien var barist alla nóttina og
náðu Frakkar þar öflugum stöðvum,
sem Þjóðverjar gerðu 1917 og sóttu
fram um 3 kílómetra á 7 kílómetra
svæði. Þar fyrir austan hafa Frakk-
ar einnig sótt talsvert fram.
þjóóverjar tilkynna.
Berlín í gær.
Viðvikjandi ítölskum fregnum um
að flugmenn hafi ráðist á kafbát
Austurríkismanna, tilkynnir flota-
málastjórnin, að henni sé ókunnugt
um atvik það. 20. okt. voru nokkrir
óvinatundurspillar á sveimi við
Dvina-ósa. Einn þeirra nálgaðist
mjög hafnarmynnið í Medua, skaut
3—4 skotum og einu tundurskeyti,
en varð siðán að hverfa á burt vegna
skothríðar úr landi. Tjón varð bók-
staflega ekkert.
þýzka herstjórnin á fondi.
Berlín i gær.
Herstjórnin hélt fund í gærkvöldi
í Berlín. Var þar rætt um svar
Þjóðverja til Wilsons og hið vænt-
anlega svar frá honum.
Frakkar tiikynna.
París í gær.
Frakkar hafa ’sótl nokkuð fram
milli Oise og Serre. Þjóðverjar
veita mjög öflugt viðnám, en hafa
samt orðið að hörfa úr mjög ram-
gerðum varnarstöðvum. Frakkar
hafa tekið mörg þorp.
Afgreiðslnsimi nr. 500
Eri. símfregnir
Opinber tilkynning frá brezku utan-
ríkisstjórninni i London.
Londons ódagsett.
Svari Wilsons hefir verið tekið
með mikilli ánægjn meðal banda-
manna. Brezku blöðin skoða það
sem »siðasta orðið« til Þjóðverja,
Wilson segir þýzku þjóðinni hrein-
skílnislega, að hann trúi forystumönn-
um hennar svo iHa, að hann og
bandamenn Bandarikjanna muni ekki
semja vopnahlé nema svo sé full-
vist, að Þjóðverjar geti aldrei gripið
til vopna aftur.
Balfour talaði í London 23. okt.
og sagði, að undir engum kringum-
stæðum væri það samrýmanlegt ör-
yggi og sameiningu brezka rikisins,
að Þjóðverjum væri skilað aftur ný-
lendum þeirra. Þetta spursmál snerti
jafnt ailan hinn mentaða heim sem
hagsmuni Bretaveldis. Hér væri um
tvent að velja: að heimsþjóðirnar
tengdust æ betur í verzlun, sam-
göngum og viðskiftum, eða eiga yfir
sér vofandi vald þjóða, sem ekki
væri neinum samningum bundin,
léti sér ekkert fyrir brjósti brenna
og virti að engu loforð sín né mann-
úðarreglur í 'ófriði.
Skipatjön.
Skipatjón I september var minna
heldur en í júní, en þann mánuð
hafði það verið minst á þessu ári
og minna heldur en meðaltjón á
mánuði árið 1916. Bretar místu
skip, sem báru samtals 151.393 smá-
lestir. í ágúst mistu þeir 176.434
smál., i júli 182.524 smál. og í júní
165.550 smál. Bandamenn Breta
og hlutleysingjar mistu 239.600 smál.
i september, 328.172 smál. í ágúst,
374.000 smál. í júli og 200.799
smál. í júni.
LofthernaQur.
Ósigur Þjóðverja í Belgiu hefir
breytt mjög hernaðarstöðu þeirra í
loftinu til hins verra. Nýlega drógu
Þjóðverjar mikinn flugher saman í
EIsass-Lothringen til þess að verjast
árásnm bandamanna, en höfðu lítið
upp úr þvi. Þessu flugliði var ætlað
að verja Essen, Elberfeld, Krefeld,
Barmen og Berlin, sem hafa til
þessa komist hjá flugárásum banda-
manna að mestu levti. En með
framsókuinni í Belgiu hafa banda-
menn tekið rúmlega tylft af þýzk-
um flugstöðvum, þar sem voru 942
flugvélaskýli og margar stórar flug-
stöðvar- umhverfis Ghent eru einnig
í hættu. Árangurinn af sigrum
bandamanna er sá, að þeir geta gert
árásir á nýjan hluta Rinarlanda og
þýfoingarmiklar hergagnaverks miðj ur.
í septemberlok höfðu Bretar einir