Morgunblaðið - 18.01.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.01.1919, Blaðsíða 1
6. argai' gr Xaugardag 18 {an. 1919 66 tölutolfví Ritstjómarsími nr. 500 Ritstjóri: Yilhjálnmr Finsen ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslnjsími nr. 500 Nýr íátækrafulltrúi. Erl simfregnir. Frá fréttaritara Morgunblaðsins , Khöfn, 16. jan. Konungur heimsæKir Island. Það ci' búist við því, að Kristján 10. konungur vor muni takast ferð á hendur til íslands í júlímánuði í sumar. Liebknecht skotinn. Herrétturinn í Berlín hefir dæmt Iáebknecht til (lauða og hefir hann vcrið skotinn. Hersveitir stjórnarinnar ganga með oddi og egg- að því að gjöreyða Sþartacus-flokknum í Berlín. Blöðin í Berlín eru farin að koma út aftur. Maximalistar á friðarfundinum. Bretar og Bandaríkjamenn vþlja leyfa Maximalistum í Rússlandi að senda fulltrúa á friðarfundinn. BæjarstiorRarkosrijng í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjmn, í gærmorgun. Hér fóru fram í gær fyrstu bæj- . arstjórnarkosningar í sögu Vest- mannaeyja. Höfðu eyjaskegg'jar •lengi þráð það að fá bæjarstjúrn, enda var mikið kapp í þeim við þessar kosningar, eins og’ bezt. má sjá á því, að sjö listar komu fram og 556 menn af 864, sem á kjör- skra voru, ueyttu kosniiigarréttar síns. Efstir á listunum. voru þessir nienn: A-listi: Jóhann Jósefssou kaupm. B-listi: Jón Einarsson kaupm. C-listi: Gísli Johusen konsúll. Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. D-list.i: Karl Bjarnason. E-listi: Jón Hinriksson verzl.stj. F-listi: Jón Hinriksson verzl.stj. G-listi: A. F. Petersen símstjóri. f Taluingu atkvæða var okki lok- ið fyr en kl. 12 á miðnætti. Var þá sýnt hverjir listarnir mundu koma mönnum að, en nafnaröð mun lík- lega breytast eitthvað og verður )vví enn eigi nm það sagt með vissu, hverjir kosnir eru. Atkvæði féllu þannig á listana: A-listi fékk 131 atkv. B-listi — 31 — O-listi -— 163 — D-listi — 22 — E-listi — 114 — F-listi — 25 — G-listi — 15 — A-listi kemur að 3 mönnum, C- listi fjórmn og E-listi tveimur. Hin- ir ehgum. Ónýt urðu 55 atkvæði, þar af 20 á C-lista einum. Bæjarsijórnarfuadur 16. þ. mán. — Sigurður Jónsson stýrði fundi. Er það þriðji fundurinn, sem haim stjórnar í fjærveru forsefa, Sighv. og varaforseta, Ben. Sveinssonar, er ekki hefir mætt. G-eymsluskúr úr steini var samþ. að leyfa G. Zoega kaupm. að byggja á lóð hans við Tryggvagötu. Aður hafði hon- um verið synjað uni að byg'gja þar úr timbri og járni. Veiðirétt í Elliðaánum næsta sumar var ákveðið að bjóða út bæði í Bretlandi og innanlands, og skyldu tilboðin vera komin til borgarstjóra fyrir 15. apríl. Dýrtíðarkol. lTm 117 toun eru enn eftir af' dýrtíðarkolum síðan í fyrra. Samþ. llð selja þau fyrir 160 kv. tonnið í 50 kg. skömtum (á 8 kr. 50 aur. hvern), en engri einstakri fjöl- skyldu þó selt meira en 200 kg. I sanibandi við það skýrði borg- arstjóri frá því, að ekkert ákveðið tilboð hafi enn fengist um kola- farm fyrir bæinn, sem auglýst hafi verið eftir, að öðru leyti en því, að í sambandi við kaup á gaskolum, væri ákveðið að fá 600 tonn af kolum, et' hægt verður að fá þau með sama skipi. Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. J stað Jóhannesar sál. Magnússon- ar, var samþ. að skipa Jón Jóhann- esson ökumann, Laugavegi 69, fyr- ir fátækrafulltrúa, samkvæmt til- lögu fátækranefndar. Farsóttasjúkrahús. Lesið var bréf frá héraðslækni Jóni llj. Sigurðssyni viðvíkjandi vankvæðum á einangrun sjúklinga, er fengju taugaveild, skarlatssótt, barnaveiki og' aðra smitandi sjúk- dóma. Franski spítalinn, er undan- farið hafi verið notaður fyrir þessa sjúklinga, muni ekki fáanlegur lengur, því Frakkar komi til með að þurfa háns sjálfir, og þær 2 stofúr á lofti Landakotsspítalans, er hafðar hafi verið fyrir tauga- veika, væru óuógar og óhentugar. Fyrir það skorar hann á bæjar- stjórnina að koma upp faisótta- sjúkrahúsi fyrir bæinn á næsta sumri. Því án þess mun tæplega hægt að fylgja fyrirskipunum laga um einangrun smitnæmra sjúk- dóma. Var sárnþ. að skipa þriggja manna nefnd til að íliuga og koma fram með tillögur í þessu málJ, og í hana kosnir: borgarstjóri, Ágúst Jósefsson og Þorv. Þorvarðsson. Kola-einokunin Kolaverðið hefir nýlega verið lækkað um 23 af hundraði hjá Landsverzluninni og H.f. Kol og Salt. Rétt á eftir var reglugerð um innfiutning á vöruin til landsins numin úr gildi og dýrtíðarráðstaf- anahelmildin notuð til þess að lcoma á ríkiseinokun A kolum. Alt eru þetta tíðindi svo mikils- verð, að ókurteisi væri að taka þeim með þögn, og að sumu leyti svo athugaverð, að órétt væri að láta þau fara fyrir ofan garð og neðan og beiðast eigi skýringa. Það er erfitt óviðkomandi mönn- um stjórninni að fá svo greinilegar upplýsingar um kolasölumálið, að hægt sé að gera sér glöggar hug- myndir um það, eins og það er. „Tíminn“, málgagn atvinnumála- ráðherrans, hefir þó verið svo vel- viijaður landslýðnum að flytja upplýsingar „frá fyrstu heudi* ‘, að því er sjá má í blaðinu sjálfu, og eru þær auðvitað góð heimild, )>að sem þær ná. En þær ná ekki nógu langt. Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Eftir upplýsingum „Tímans“ á verð á enskum kolum kojnnuin hingað, að hafa verið kr. 321.20 pi*. tonu, að meðaltali fyrir 16 skips- farma, en söluverð kr. 325.00, og eftir því álagningin kr. 3.80 á smá- lest. Tilfærir blaðið þessar tölur til þess að ósanna iunmæli „Vísis“ um það, að gífurlega hafa verið lagt á kolin. Blaðið getui' þess um leið, að „Kol og Salt“ hafi eigi séð sér fært að sel ja kol þessu verði (svona lágu verði!), og því fært saman kví- arnar. Vér skulum eigi draga í efa sann- leiltsgikli ýmsra lofsamlegra um- mæla stjórnarblaðsins um dugnað og ráðdeild landsverzlunarforstjór- aima. En leyfilegt mun þó að spyrja hverju það sæti, að kolin hafa orð- ið oss svo miklu dýrari en Dönum og Norðmönnum. Vegalengdin er að vísu önnur og samningarnir ekki eins, sem þeir hafa við Breta og við. en verðmunurinn gerir þó miklu meira en vega þetta upp. Og ummæli „Tímáns“ um „Kol og Salt“ eru ekkert hrós félaginu, ef sönn eru. En sú hugsun flökrai* víst að mörgum, að eigi sé það a£ Iandsverzlunarsamkeppninni einni saman. sem „Kol og Salt“ hefir fært saman kvíarnar, heldur ef til vill af hinu, að ekki hefir verið notað nema lítið brot af venjulegri kolaeyðslu síðustu árin, vegna dýr- leikans. Og ekki óeðlilegt að það Iiafi haft áhrif á viðskiftaveltu stærstu kolaverzlunarínjiar í land- inu. Nýr keppinautur þarf ekki að koma þar til greina. En fyrst sannvirði kola þeirra, sem laiidsverzlunin á nú, er yfir 32þ kr., þá mun hallinn, sem verð- ur á sölu kolanna, eiga að vinnast upp á þeim kolum, sem hún kaupir hér eftir, og þess vegna er gripið til einokunarinnar, því landsverzl- unin hefði beðið tjón af frjálsri samkeppni. Einokunin þurfti ekki að koma á óvart, því stefna stjórn- arinnar í verzlunarmálum liefir seilst í þá áttina frá öndverðu, Og það er i’ull ástæða til að ætla, að livenær sem verðfall verður á vöru- tegund, sem landsverzlimin befir birgðir af, þá komi ríkiseinokun á þeirri vöru, svo leng'i sem núver- andi stjórn fer með völdin. Einokunarleiðin er ein leiðin a£ mörgum til þess, að bjarga lands- verzluninni frá hruni. En ýmsir þeir,. sem veitt hafa athygli verzhmarrekstri landstjórnarinnar, myndu fremur hafa óskað þess, að honum lyki með ófriðnum, eu að landsmemi fengju einokun í upp- Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.