Morgunblaðið - 27.01.1919, Blaðsíða 1
Mánudag
27
jan. 1919
LAÐIÐ
6 argangr
75,
tðlublaO
Ritstjómarsími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðsltuími nr. 500
Símfregnir.
Akureyri í dag.
Bæjarstjórnarkosning
fer hér fram á morgun. A þá
að kjósa ii menn. Listar eru þiír.
A listi (verkamenn) Lárus Thorar-
enser, Trausti Reykda), Björn As-
geirsson verkam., Sveinn Sigurjóns-
son kaupm., Erlingur Friðjónsson
kaupfél.stj., Gísli R. Magniisson
verzlm., Sigurður Sumarliðason skip-
stj., Sigurður Þ. Njarðvík sjóm.
B-listi (verkamenn og kaupfélags-
menn); Erlingur Friðjónsson, Böðvar
Bjarkan lögm., Ingimar Eydal ritstj.
Sveinn Sigurjónsson, Halldór Einars-
son HHð, verkam., Þorsteinn Þor-
steinsson verkam., Guðbj, Björnsson,
Scvi Halldórsson sjóm., Adolf Krrst-
jánsscn skipstj., Arni [óhannesson
búfræðingur.
C-listi: Otto Tulinius, Ragnar Ó
lafsson, Sig. E n. Hliðar ritsrj., Júlí-
us Havsteen lögfr., Sigurður Bjarna-
son timburmeistari, Fiiðjón Jensson
læknir, Jön Guðmundsson timburm.,
Páll V. Jónsson verzl.stj. Kristján
Sigurðsson kmpm., Bjarni Jónsson
bankastj., Jón Stefánsson ritstj.
Er kspp míkið í kosningunni og
flokkadráttur meiri en við flestar
aðrar kosningar.
Ebbe Kornerup
rithöfund r.
Hann kemui' hingað með Botníu
og ætlar að halda hér fjóra fvrir-
lestra, fjögur kvöld í röð, um Suð-
urhafseyjar og sýna þaðan skugga-
myndir. Átti fyrsti fyrirlesturinn
að vera í kvöld — eins og auglýst
var hér í blaðinu í gær, en vegna
þess hvað Botnía hefir tafist í Fær-
eyjum, getur það ckki orðið.
Eins og lesendur Morgunblaðs-
ins eflaust muna, kom Kornerup til
Austurlandsins í haust og hélt fyr-
irlestur á Seyðisfirði um Suður-
hafseyjar og' var ger að lionum góð-
Or rómur. Kornerup hefir ferðast
víða og kann frá mörgu að segja,
og er því sennilegt að Reykvíking-
ar, sem eru manna fi'óðleiksfúsast-
sæki vel þessa fyrirlestra hans.
Á inorgun verður nánar auglýst
flvenær fyrirlestrarnir hyrja.
^aupirðu góðan hlut,
mundu hvar þú fékst hann.
Sigurjón Pétursson.
nvarp.
Véi undirritaðir höfum verið til þess nefndir að gang-
ast tyrir samskotum meðal lærisveina, samverkamanna og
vina próf. dr. phil. & litt. Isl. Björns M. Ólsen til þess að
sýna minningu hans einhvern sóma. Hefir oss þótt tilhlýði-
legast, að máluð verði at honum vönduð olíumynd og gefin
Háskóla Islands til minningar um hinn mikla vísindamann,
ágæta kennara og lyrsta rektor hans. Því, sem kynni að
verða umfram það, sem myndin kostar, mun verða varið til
þess að heiðra minningu hans á einhvern annan hátt.
Samskotin má senda einhverjum af oss undirrituðum,
og mun síðar verða gerð opinber skilagrein fyrir því, sem
inn kemur.
Reykjavík 22. jan. 1919
t
Agúst H. Bjarnason. Sigurður Nordal,
F. b. heimspekisdeildar Háskóla íslands.
G T. Zoega. Þorleifur H. Bjarnason,
F. h. hÍDS almenna Mentaskóla.
Jón Jacobson,
F. h. Stúdentafélagsins i Reykjavík.
Önnur blöð eru vinsamlega beðin að birta þetta ávarp.
Fátæku konunDÍ kjálpað
Morgunblaðinu er það sönn á-
nægja að geta sagt frá því, að
Reykvíkingar liafa enn sem fyrri
oig'i brugðist því trausti, sem það
t)or til þeirra. Sama daginn, sem
vér vöktum athygli lesenda vorra
á fátæku konunni og börnunum
hennar tveimur, höfðu fleiri en
einn hoðist til þess að taka af
henni yngra barnið, og er því nú
fengið fóstur á góðu heimili. Þá
bárust henni og gjafir frá ýmsum
og j)ótt Morgunblaðið hefði ckki
mælzt til þess, bárust því samskot
til hennar:
Frá ónefndum .... ltr. 10.00
Frá H. E. ........ -- 25.00
Frá ónefndri konu . — 30.00
Frá N. N...........— 10.00
og hefir blaðið afliont henni þá pen-
inga.
Herklæði.
Það var almenn skoðun fyrir
stríðið, að hertýgi væru með öllu
þýðingarlaus lengur í hernaði. En
svo er ekki. Ófriðarþjóðirnar fundú
Kaupirðu góðan hlut,
þá mundu hvar þú fékst hann.
Sigurjón Pétursson.
það fljótt, að stálhjálmar gátu
hlíft hermönnunum mjög mikið og
forðað þeim frá dauða. Og síðast
liðið ár voru Þjóðvérjar einnig
farnir að láta framverðí sína bafa
brjósthlífar úr stáli, eins og sjá má
á þessari mynd. Reyndust þær vel
Kaupirðu góðan hlut,
þá mundu hvar þú fékst hann.
Sigurjón Pétursson.
og björguðu lífi fjölda manna, sér-
staklega Jiegar hinar illræmdu
flísakúlur voru á ferðinni.
§g PAGBOK p
Til Samverjans voru Morg-
unblaðinu færðar 8 kr. í gær frá
»Ketti«.
Gráðaostagérð. Jón A.
Guðmundsson kennir gráðaostagerð
í Sveinatungu á sumri komanda og
eiga þeir sem nema vilju að gefa
sig fram við hann sem fyrst.
Gráðaostagerðin er svo þýðing-
armikil í landbúnaði vorum að það
verður aldtei of oft brýnt fyrir bænd-
um að taka hana upp sem fyrst og
er þess óskandi að þess verði ekki
langt að bíða að sú kunnátta breið-
ist um alt land.
B o t n í a hefir tafist mjög í Fær-
eyjum. Hafði hún miklar vörur
þangað, en veður hefir tafið upp-
skipun. Hún lagði á stað hingað
kl. 2 í gær og er því ekki væntan-
leg fyr en á morgun í fyrsta lagi.
Ráðgjafarnefndin, sem
gert er ráð fyrir i milliríkjasamning
íslands og Danmerkur, mun nú vera
skipuð. Eiga isienzku nefndarmenn-
irnir Jób. Ióhannesson,Bjarni frá Vogi
og E nrr Arnórsson, sæti í henni en
ókunnugt er oss um fulltrúa Dana.
1000 krónur en ekki 100
eins og sagt er í blaðinu í gær,
ætlar U. M. F. Akureyrar að Ieggja
fram til stofuunar berklahælis á Norð-
urlandi.
Hjúkrunarnefnd. AUur kosn-
aður henvar mun nema um 80 þús.
krónum, en þess er vænzt að nokk-
uð af því fé heimtist inn hjá þeim
sem hjálpar urðu aðnjótandi.
H a f i s f j o r d danskt barkskip
fjórmastrað, er væntanlegt hingað
innan skams. Það kemur með kol,
um 3000 smálestir, til Landsverzlun-
arinnar.
S e g 1 s k i p i n Noah, Ruth og
Manecia eru á förum héðan.
P r e n t v i 11 a var í greininni
Minningarorð í blaðinn i gær, þar
sem þeir Ólafur og Stefán synir
Stefáns; heitins Ólafssonar á ísa-
firði ern taldir sjómenn. Þeir bræð-
ur eru skósmiðir og hafa vinnustofn
á ísafirði.
Söngskemtnn Benedikts
Arnasonar i gærkvöldi var fjölsótt
og söngvaranum óspart klappað lof
í lófa.