Morgunblaðið - 07.02.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.02.1919, Blaðsíða 1
Fðstudag 7 febr. 1919 6. argacgr 86 tðlöblaU Ritstjórnarsími nr. 500 j|' Íiítstjóri: Yilhjálmnr Finsen jj ii Afgr«iið»la«bæ.i nr 500 iri siírJ'regnir, Frá fréttaritara Morgunblaðsins Khöfn, 4. febr. Frá Berlín berast daglega nýjar fregnir af óeirðum Spartaeus- maiina. Búist er við uýrri bylting- artilraun {). 6. þ. m. (í gær, í til- efni af þingsetningunni). Danska stjórnin er að undirbúa nýja lántöku fyrir ríkissjóð. Lánið á að verða 120 miljónir og verður féð lagt fram af skipaeigendum og aðalbönkunum. Khöfn, 5. febr. Járnbrautarsamgöngur frá Kol- ding og suður á bóginn eru stöðvað- ar. Frá Vamdrup er sírnað, að bylt- ingaóeirðir séu byrjaðar í Suður- Jótlandi og Holstein. Norska stjórnin segir af sér. Frá Kristjaníu er símað, að ráðu- neyti Gunnars Kuudsens hafi sagt af sér. Er búist við þvi, 7FI1P steypustjóm verði mynduð. Sjálfstæði Finnlands. Frá Helsingfors er símað, að bandamenn hafi opinberlega viður- kent fullveldi Finnlands. Uppreistin í Portúgal. Frá París er símað, að nú sé á- litið að fregnin um gengi konungs- sinna í Oporto sé uppspuni einn. Lýðveldisherinn sækir fram og hef- ir umkringt borgina. Kafbátabann. Friðarráðstefnan hallast að því, að bannað verði að nota kafbáta í framtíðinni ( til hemaðar?). Grikkir heimta Miklagarð. Grikkir krefjast þess að fá Mikla- garð og öll þau héruð, þar sem grískir menn bíia. Frá Þjóðverjum. Frá Berlín er símað, að Ebert bafi sagt að það gæti koniið fyrir, að Þjóðverjar neituðu að skrifa undir nauðungarfrið. Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Hersveitir stjórnarinnar liafa uinkringt Bremen og tekið Weim- ar, þrátt fyrir hótanir hermartna- ráðsins. Frá Danmörk. Bandaríkin liafa sett á stofn miðstöð matvælaúthlutunar hér í Kaupmannahöfn. Ýmsar stofnanir og nefndir, sem settar hafa verið á laggirnar hér vegna hernaðarins, hafa nú verið lagðar niður. Bif- reiðaakstur hefir verið leyfðiu- aft- ur og lífið í Kaupmannahöfn er að komast í sitt fyrra horf. Her- fangaflutningunum er nú lokið. Eitt sjóslys enn Bátur ferst meö 5 mömium. Vestmannaeyjum, í gær. 1 gær fór héðan vélbátur upp undir Eyjafjallasand til þess að sækju þangað fólk. S.jö menu voru á vélbátnum, og er upp að sandin- um kom gengu fimm þeirra í róðr- arbátinn og fóru í land, en 2 urðu eftir um borð. Biðu þeir lengi fé- laga sinna, þeirra, er í land fóru, en seinna um kvöldið barst þeim sú fregn frá öðrum vélbáti, að róðr- arbáturinn hefði farist í lendingu og allir mennirnir druknað. Vita menn eigi gjörla, hvernig slysið hefir að borið, því að veður var hið bezta, en hyggja að dimt hafi verið orðið, þá er báturinn kom að landi, og þeir eigi séð til að lenda. Mennirnir, sem fórust, voru þess- ir: Halldór Árnason frá Norður- hvammi í Mýrdal, Páll Jónsson frá Kirkjulæk í Fljótshlíð (lætur eftir sig konu og 3 böru), Ágúst frá Heild í Fljótshlíð, Jónas Benedikts- son frá Reyðarfirði og Norðmaður nokkur, Harald Normanu að nafni. — Hér er bezta veður og góðar gæftir og mokafli daglega. Loílskeytastöð á Seyðisfirði. Seyðisfirði, í gær. Loftskeytastöng hefir nýlega verið reist hér í árhólmanum. Er Kaupirðu góSan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursaon. húu 79 feta há og verður nú farið að reyna, iivort hægt er að taka þar á móti loftskeytum. Logn og frost hefir verið hér að undanförnu og að eins föl á jörð. Willemoes sótttættolaus. Seyðisfirði, í gær. „Willemoes“ kom hingað seint í gærkvöldi. Voru allir menn heil- brigðir á skipinu og þótti óþarfi að setja það í sóttkví. Var því þeg- ar byrjað að afferma það. Úr loftinu London, 6. febr. Rússar svara. ' Loftskeyti frá Rússum, undir- skrifað af Teitcherin utanríkiser- indreka Bolzhewikka, samþykkir með skilyrðum að sendir séu full- trúar á ráðstefnu með bandamönn- um til Prins-eyjar. Segir þar, að Bolzhewikltar séu reiðubúnir til þess að komast að samkomulagi við bandamenn viðvíkjandi alþjóða- st, jó ri ibyl tingarf ortöliun (agita- tion), en að þeir vilji ekki hafa neiua íhlutun í innanríkismál Rússa. Friður og réttlæti. Hans Delbruck rithöfundur og sagnfræðingur í Berlín hefir sagt í viðræðu við fréttaritara „Associ- ated Press“ um friðarfundinn: „Það, sem færir frið og réttlætþsést bezt með'því að íhuga hinar sér- stöku kröfur, sem hver þjóð gerir, og athuga hvort þær eru til þess fallnar að kveikja aftur ófriðarbál- ið einhvern tíma í framtíðinni, eða hvort þær miða að því að tryggja varanlegan frið. Eg skal taka hér til dæmis þessa kröfu. Það er ráðgert að fella á Þýzkaland það ok, sem það getur ekki af sér hrist á skömmum tíma og mundi gera þjóðina að vinnuþræhun óvina sinna um marga mannsaldra. Þessu verður ekki komið í framkvæmd, Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. nema því að eins að þýzku þjóð- inni sé haldið ánauðugri með her- valdi allan þennan tíma.“ Dómsmálafréttir. Landsyfirdómur 27. janúar. Málið: Valdimar Árna- son gegn Árna Böðv- arssyni. Mál þetta höfðaði fyrir sjódómi Rvíkur áfrýjandi gegn stefnda.sem var útgerðarmaður og eigandi mót- orbátsins ,,Viola“. Var áfrýjandi háseti á bátnum um síldveiðarnar 1916 og er málið risið út af van- goldnu kaupi áfrýjanda og fjögra annara háseta, en kröfur þeirra hefir áfrýjandi fengið sér fram- seldar. Krafa áfrýjanda var upp- runalega kr. 2872.00, en síðan færði hann hana niður í kr. 2108.00. Lauk málinu fyrir sjódómi þaimig, að á- frýjandi fékk sér tildæmdar kr. 820.00, en málskostnaður skyldi falla niður. Dómi þessum skuta báðir aðiljar til yfirdómsins og gerðu þær sömu kröfur og fyrir sjódóminum. Eftir þeim upplýsing- um, sem fyrir lágu í málinu, komst yfirdómurinu að þeirri niðurstöðu, að stefndi ætti að greiða áfrýjanda kr. 878.56 ásamt 6 % ársöxtum frá stefnudegi til greiðsludags. Máls- kostnaður fyrir yfirdómi var lát- imi falla niður. Matbjörg Þýzkalands. Ágreiningur milli Wilsons og bandamanna. Enska blaðið „Morningpost“ skýrir frá því liiun 16. janúar, að Wilson forseti sé reiðubúinn til þeSs að fara heim af friðarfundin- um, ef eigi verði þegar í stað eða sem allra fyrst, gerðar ráðstafanir t.il þess að senda Þjóðverjum mat- björg. Fulltrúar Bandaríkjanna í Þýzkalandi fullyrða það, að mat- vælaskortur sé m jög mikill í Þýzka- landi og versni daglega, en það virðist svo, sem fulltrúar hinna annara bandamanna séu ekki á sama máli. En Wilson áleit þetta svo stór- kostlega þýðingarmikið málefni, að hann var einráðinn í því að ganga af friðarfundinum, ef eigi væri úr því bætt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.