Morgunblaðið - 15.02.1920, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.02.1920, Blaðsíða 1
7. árg., 84. tbl. snmmdag 15 fv.brúar 1920 IsatoldiirpreatHiiaiOlM —— GAMLA BIO iinBi Sýning kl. 6 oa; 7 Tvo afarskemtilega gamanleika. sem ekkert gefa Ch plin eftir, og IsL kvikmyndirnar i síðasta sinn. kl. 8., og 91/* Leyedarmál systranna Áhrifam kill og afarspennandi nútímaskáldsrga 5 þáttum. Að- aihlntverkin sem Agnes og Láru leikur Páline Frederich sama laglega leikkonan sem lék Sappho, og leikur hún svo sem oftar af frabærri snild. Aðgm. seldir í Gamla Bíó kl. 2—4 siðd. Ekki tekið á móti pöntnnum. í heildsölu til kaupmanna og .kaupfélaga: iNBTJAGRN og FISKILlNUR, all- ar algengar tegundir, frá Linifi- cio e Canupificio Nazionale, Mil- ano, C. Castellini & Co., Milano, ■öommissionaria Liuo e Canape, Milano, er væntanlegt innan skamms. Þar eð örlítið er eftir óselt, eru kaupendur beðnir að gera pantanir sínar hið allra fyrsta. Einkasali a íslandi. G. EIRÍKSS, Reykjavík Fyrsta íimlenda rlkislaníð. —o— 3 miljónir boðnar út. Svo sem séð verður á auglýsingu stjórnarráðsins á öðrum stað í blað- inn, hefir stjórnin ákveðið að nota heimild sína til þess að taka lán til ýmsra nauðsynlegra fyrirtækja, sem mjög er æskilegt að komist í framkvæmd 'þegar á þessu ári. í fyrsta sinni í sögu laudsins hefir stjórnin ákveðið, að leita fyrir sér með lánið hjá landsmönnum sjálf- um, í stað þess að fara „út fyrir pollinn“ til framandi þjóða, með lánbeiðnina. Oss þykir líklegt að landsmenn kunni að meta þessa til- raun landstjómarinnar og sýni það að hugsunarháttur íslendinga sé eitthvað farinn að breytast til batn- aðar í því, að vér þurfum ekki ætíð að sækja fé til útlanda, held- ur séum oss sjálfir nógir að ein- hverjn leyti. Hér í landi eru nógir peningar ti‘1 þess að ávaxta í þarf- legum opinbernm fyrirtækjnm og vér trúum eigi öðru að óreyndu, €ii að þátttaka í láninu verði mikil, einkum og sérílagi þar sem kjörin ■virðast vera mjög aðgengileg. Viðtal við fjármálaráðherra. Vér hittum fjármálaráðherra í alþingishúsinu í gær og spurðum hann nm 'lántökuúthoðið. — Þegar við ákváðum að bjóða út þessa fjárupphæð, þá var það í fullum ski'lningi á því, að fram- kvæmdir á mörgu, sem landsjóður þarf að koma í kring, eigi mætti bíða. Flest af því þolir enga bið margra hluta vegna. Landsjóður hefir nægilegt fé til allra venju- legra útgjalda. Til þeirra þurfuin vér ekki að taka lán,ogþetta vil eg, segir ráðherrann, leggja sérstaka áherzlu á. Menn, sem taka þátt í láninu, styðja með því nauðsynleg opinber fyrirtæki, liafa fulla trygg- ingu fyrir upphæðinni og fá ágæta vexti af fé sínu. — Hvaða fyrirtæki á ráðherran við ? — Það þarf nauðsynlega að stækka Kleppsspítala. Það má ekki dragast lengur, því margir geðveik- ir menn bíða eftir rúmi á spítal- anum, sem orðinn er alt of líti'll. Þá mun vera nauðsyrilegt að byggja á Eiðum og- líklega á Hvanneyri. Þetta kostar mikið fé með því verði sem nú er á öllu byggingarefni og vinnulaunum. Og svo eru brýrnar. Ráðgert er að brúa Jökulsá á Sólheimasandi og Byjafjarðará. Og loks er Flóa- áveitan, sem er stórkostlega þarf- legt og nytsamt fyrirtæki, er ætti að geta gefið mikið í aðra hönd þegar fram líða stundir. — Til þessara framkvæmda er lánið tekið. Vér væntum þess, segir ráðherrann, að nndirtektir manna verði góðar. Er það og von vor að svo verði. Frá iAlþiiigi. —0— Fastanefndir nerði deildar hafa kosið sér formenn og skrifara og erú þeir þessir: Formaður í fjár- hagsnefnd Magnús Guðmundsson, skrifari Þórarinn Jónsson; fjárveit- inganefnd Pétur Jónsson formaður, Magnús Pétursson skrifari; sam- göngnmálanefnd Þórarinn Jónsson form., Gísli Sveinsson skrif.; land- liúnaðarnefnd Stefán Stefánsson form., Magnús Cuðmundsson 'skrif.; sjávarútvegsnefnd Magnús Krist- jánsson form., Pétur Ottesen skrif.; mientamálanefnd Gísli Sveinsson f orm., Eiríkur Einarsson skrif,; allsherjarnefnd Sveinn Björnsson form., Björn Hallsson skrif. Vatnalögin tekin út af dagskrá. Þrjú mál voru á dagskrá í neðri deild í gær, vatnálögin, sérleyfis- lögin og stimpilgjaldið. Voru þau Öll tekin út af dagskrá, en umræður um hið fyrsta urðu alllangar. Atvinumálaráðherra fyigdi frv. úr hlaði með nokkrum orðum. Skýrði frá því, að vatnamálunum hefði verið vísað til stjórnarinnar á síðasta þingi með rökstuddri dag- skrá, með þeim tilmælum, að stjórn in léti rannsaka málið. Það hefði henni ekki unnist tími til, en hún hefði öll getað fallist á frumvarp minni Mutans og að undanteknum f iármálaráðherra, gæti stjórnin einnig fallist á frv. Sv. Ólafssonar til sérleyfislaga og því þætti henni rétt að leggja frv. þessi fyrir þing- ið. Sig. Stefánsson, sem bar fram rökstuddu dagskrána á síðasta þingi, sagði að það hefði ekki ver- ið tilætlun sín, og dagskráin ekki þannig orðuð, að stjórnin færi að demba málinu órannsökuðu inn á þetta þing.Enda, mundn flestir hafa búist við því, að málið kæmi alls eigi fyrir þetta þing, sem aðeins á að sitja stutt og kvatt samantilþess að fjalla um stjórnarskrána og mynda nýja stjórn. Bar hann síð- an fram rökstudda dagskrá þess efnis, að í trausti þess, að stjórnin tæki málið aftur til mcðferðar, þar sem það sé ekki hlntverk þessa þings, þá taki deildin fyrir næsta mál á dagskrá. Bjarni frá Vogi: Stjóminni hef- ir ekki unnist tími til þess að sjá það, að frá meiri hluta fossanefnd- ar var fram komið frv. til samfeldr- ar vatnalöggjafar. Er undarlegt, að Ktjórninni skýldi ekki vinnast tími til að leggja fram frv. meiri hlutans um tryggingar og vatnatjón, sem eru alveg nauðsynleg. Og undar- legast þó, að stjórnin skyldi ekki leggja fyrir þingið frv. um rann- sókn Sogsfossanna. — Það er og einkennilegt, að stjórnin skyldi ekki velja frv. meiri hl., sem er miklu fyllra. Ef stjórninni var svo umhugað um það, að slá því föstu, að einstaklingar ætti alla vatns- orku, þá gat hún bætt þeim ákvæð- um inn í frv. með því að breyta 2—3 greinum. Réttast hefði verið fyrir stjórnina, að láta eignarrétar- spursmálið liggja milli hluta og fá fyrir því dóm,hver sé eigandi vatns orkunnar í landinu. Atvinumálaráðh.: Frv. eru lögð iram til þess að þingið geti tekið málin fyrir ef því sýndist svo. Hitt var ekki tilætlunin, að málin yrði útkljáð á þessu þingi. Fyrir mitt leyti hefi eg ekkert á móti frestun málsins. Óþarft var að leggja hin minni frv. fyrir þingið í upphafi, það mátti gera hvenær isem vildi. Sveinn Ólafsson: Það virðist svo, sem mönnnm hafi ekki enn skilist það, að frv. minni hluta fossanefnd- ór er samfeld fossalöggjöf, þar sem öll áður gildandi vatnaákvæði eru tekin upp í og einnig hin smærri frumv. rneiri hlntans. Erríkur Einarsson: Tel sjálfsagt að vísa máli þessu til nefndar til rannsóknar. Menn hafa óttast það, að mál þessi mundu kafna í skrif- finskn og ekkert gert vegna ein- tómra bolláleggina. Dagskráin rök- studda er ekkert annað en tilraun til að hnmma málið fram af sér, svo ekkert verði gert. Bjarni frá Vogi: Til eru þeir menn, sem endilega vilja hyrja á einhverju — til þess að eitthvað verði gert. En eg sé ekki að það þurfi að hrapa svo að þessu máli, að þjóðin bindi sér sjálf hengingar- ól með því. Og til þess að byrjun- in verði ekki til stórtjóns, vil eg að Sogið sé rannsakað. Hefir stjórnin lagt drög fyrir að fá hingað sér- fróðan mann t. d. frá Svíum, mann sem hefir margra ára þekkingu á vatnamálum ? Okkur hefir ekki enn tekist að koma mönnum í skilning um það, að það þurfi menn með viti og þekkingu til þess að stýra vatnamálunum. Þá þekkingn, sem til þess þarf, getnr enginn ætlast til að stjórnin hafi. Atvinnumálaráðh.: Okkur var það ljóst, að hér á landi vorn ekki þeir nienn, sem gátu aðstoðað stjórnina, við þá rannsókn, sem síð- asta þing ætlaðist til að færi fram f málinu. Vegna þess að vissa var fyrir stjórnarskiftnm, var ekki fenginn maður frá útlöndum, en til- raun hefir verið gerð til þess að fá hingað verkfræðing á næsta vori og ekki vonlaust að það takist. Gunnar Sigurðsson: Eg beini þeim tilmælum til flutningsm. dag- skrárinnar, að hann taki hana aftnr og geymi hana til þriðju umræðn málsins. Sig'. Stefánsson: Eg tek ekki dag- ■skrána aftur. Stjórnin hefir viður- kent, að hún hafi ekki haft tíma til að rannsaka málið og þá hefir þing- ið miklu síður tíma til þess, og alls eigi þau tök á að afla sér þeirra skýrsla og upplýsinga, sem stjórnin gat aflað. Gísli Sveinsson: Mér kom það á óvart, að stjórnin skyldi kasta mál- inu jafn óköruðu inn á þingið,. eins og það fór í hennar hendur. Þing- ið hefir eigi ástæðu til að grauta meira í því. Þá fyrst á málið að koma fyrir þingið, er hægt er að taka fullnaðarákvörðun í því. Verði kosin nefnd í málið, verður hún að taka tillit til alls, sem fram hefir komið í því, alt verður að prentast og útbýtast og þá verður komið fram á sumar. En ekkert vinst við það. Nefndin getur ekkert gert af því, sem þarf að gera í málinu. Eiríkur Einarsson: Mér finst það skylda þingsins við vatnahéruðin, Árnessýslu og Rangárvallasýslu, sem nú hafa algerlega skift um þingmenn, að þetta þing taki mál- ið fyrir. Pétur Jónsson: Eg er á sama máli og þm. Norður-ísf. að það hafi ekki verið. ástæða fyrir stjórnina að koma með málið inn á þetta þing, heldur hefði hún átt að kryf ja það til mergjar og taka afstöðn í því. En eg er ekki með því að það sé felt frá nefnd. Nýir menn geta kom- ist í nefndina og þá áttað sig á mál- inu. Sveinn Bjömsson: Það mnndi verða til þess, að tefja málið enn meir, ef það væri sett í nefnd. Og ekki mundi skriffinskan minka við það. Það mundi ef til vill heppileg- ast, til þess að kjósendur geti átt- að sig á málinu, að gerður væri út- dráttur úr nefndarálitunum, en slíkt er stjórnar en ekki þings. Þess ■er ekki að vænta, að þing né stjórn geti tekið afstöðu til málsins fyr en það liggur upplýst fyrir, sérstak- lega hin „praktiska" hlið þess. Það ! Miljðnamær vil þvoff. Amerísknr gamanleikur, afar- skemtilegur, i 4 þáttum, tek- inn af »Triangle«-félaginu. Aðalhlutverkið, miljónamær- ina, sem send er í háskóla og tekur þar npp á því fá- heyrða og ósæmilega fram- feiði að gerast þvottakona, leikur hin fagra og fræga leikkona Enid Bennett Sýning í kvöld kl. 6, 7, 8 og9. ______ Nýkomið: ESTEY heimsfrægu piano, flygel jo gig-iðA 'ousid ipuupdsjtuCs So hið sama og áður og hljóðfærin hafa veraldar-nafn og reynsln að baki sér, enda munn þau hljóð- færi, sem hér eru á boðstólum. með lægra verði, ekki jafnast við ESTEY að endingu, smíði og ytra frágangi. — Til sýnis hjá G. EIRÍKSS, Reykjavík Einkasali á íslandi. væri vei, ef flýtt væri þeim rann- sóknum, sem síðasta alþing vildi láta gera. En eg sé enga ástæðn til þess að kjósa nefnd með einhverj- um nýjum þingmönnum, ef það ætti að vera til þess, að þeir geti kynt sér málið, því að slíkt yrði ekki ann að en nokkurs konar upplestur fyr- ir þá á nefndarálitum þeim,erliggja íyrir. Gísli Sveinsson: Eg mótmæli því, að hin svo köllnðu vatnahéruð (Árn. og Rangárvallasýsla) hafi nokkurn sérrétt til að heimta það, að málið verði tekið fyrir og þing- ið þar með lengt. Eg veit líka, að meiri hluti þingmanna úr þeim sýslum bjóst ekki við að málið kæmi fyrir þetta þing og að þeir vildn, ef það kæmi fyrir, að það færi jafnharðan út. (Eir. Ein.: Þingmaður Skaftfellinga veit ekk- ert um þetta). Eg hefi ekki talað við háttv. 1. þm. Árnesinga, en skil- góðir menn hafa sagt mér það eftir honum og við hina hefi eg talað 'Suma. Jón Auðunn Jónsson: Mér skilst, að hér sé um það að ræða, hvort málið hafi betra af því að koma fyrir þingið nú eða bíða. Dylst mér þá ekki, að betra er að það bíði. Þorl. Guðmundsson: Fyrst er um það að ræða, hvort við viljum hafa langt þing eða skamt. Eg býst við, að allir hafi nú gert ráð fyrir stuttu þingi, og það gerði eg áöur en eg fór að beiman. Þórarinn Jónsson: Það mega aðr ir en eg samþykkja það, að skipa nefnd í þetta mál. Þingið kostar á 4. þús. kr. á dag og að setja málið í nefnd, sem lengja mundi þingið um mánuð, eða lengur, það get eg ekki fallist á. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.