Morgunblaðið - 12.01.1926, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.01.1926, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Viðskifti.___________ Reykjarpípur í meira úrvali en nokkurstaðar annarstaðar í Tó- bakshúsinu, Austurstræti 17. Góðar og ódýrar bílferðir: Til Keflavíkur, Garðs og Sandgerðis. Nýja Bifreiðastöðin í Kolasundi. Sími 1529. Átsúkkulaðið, sem flestir lofa, fæst í Tóbakshúsinu, Austurstræti 17. Mastapípur og munnstykki í þær, fæst í Cremona, Lækjar- gölu 2. Nýtt skyr frá Arnarholti, fæst í M'atardeild Sláturfjelagsins, — súftj 211. ________________________ Egg 25 aura. Isl. smjör nýkom- ið, Hannes Jónsson, Laugaveg 28. Tómir kassar til sölu, ódýrt. — Hannes Jónsson, Laugaveg 28. Skemdar kartöflur, — nokkrir pokar til sölu, ódýrt. Hannes Jónsson, Laugaveg 28. Nokkrar vættir af príma verk- uðnm línufiski, Saltkjöt, rúllu- pylsur, gulrófur og íslenskar kartöflur, til sölu á Grundarstíg 11. Sími 432. Epli, Vínber og Appelsínur fást í Cremona, Lækjargötu 2. Tvö rúm sajnstæð, með fjaðra- madressum, fást keypt með tæki- færisverði. Upplýsingar á Óðins- < dtu 1, frá kl. 12—1 og 6—8 e. niiðd. LaDBraraHHHHHHHB Tilkynningar. trarararaHraBrarararararararara Knöllin í Cremona eru í ótelj- andi litum og gæðum. Kapptef lið. 1. borð. Hvítt. Svart. feland. Noregur. 2$. b 3—b 4. c 5Xb 4. 30. f 2—f 3. Hjer með tilkynnist, að frá 1. jan. þ. á. hefi jeg leigt gosdrykkja verksmiðjuna Mímir, Nýlendu- götu 3, herra Skafta Gunnarssyni, sem verið hefir forstjóri hennar undanfarandi. Verksmiðjan verð- ur því rekin, meðan þeir samn- ingar standa, fyrir hans reikning og á hans ábyrgð. Reykjavík, 6. jan. 1926. Jón Laxdal. Vinna. Næstu 3 mánuði, tek jeg alls- konar pressanir og viðgerðir á hreinlegum karlmannafötum og kvenkápum. Vönduð vinna. Lægst fáanlegt verð. Guðm. B. Vikar, Laugaveg 21. 2. borð. Hvítt Svart. Noregur, ísland. 29. Hal—gl. e5—e 4. | D A G B Ó K. □ Edda 59261127—1 I. 0. 0. F. — H. — 1071118. — K. n. Sigurður Þórðarson, fyrrum sýslumaður, biður þess getið, að athugasemdir frá honum við brjef . bæjarfógetá, sem prentað var í Mbl. 9 þ. m., muni verða birtar að fám dögum liðnum. Til Barnavina fjel. Sumargjöf- in: Áheit kr. 10, frá frú V. B., og gjöf frá ungfrú E. I. Kosningin í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Upptalning atkv. fer fram í dag í Hafnarfirði og á að hefjast kl. 12 á hádegi. Mbl. mun hafa samband við Hafnar- fjörð við og við og láta bæjar- búa hjer vita hjer vita hvernig atkvæðatölunum er komið í það og það skiftið. Munu þær verða til sýnis í gluggum blaðsins og á Laugaveg 15. Sennilegt er, að upptalning at- kvæða standi til kl. 8 um kvöld- ið. v Norðlendingamót. Áfeveðið er nú að það skuli verða á fimtu- dagskvöldið kl. 8á Hótel ís- land. Gengst heilsuhælisnefnd Norðlendinga fyrir því, eins og kunnugt er, og er það háldið tíl eflingar hellsuhæli á Norður- laridi. Mótið á að hefjast með kaffi drykkju, og til skemtunar verða ræðuhöld, sungnar gaman- vísur og kvæði flutt. Aðgöngu- miðar fást í skrautgripaverslun Guðna Jónssonar, Austurstræti 1 og í Laugavegs apóteki. — Áreiðanlega er vissara fyrir þá, sem hafa í hjrggju að sitja mót- ið, afla sjer aðgöng-umiða í tíma. Til Strandarkirkju frá Diddu kr. 5. Frá Englandi hafa komið tog- ararnir .Slþúli fógeti og Ari. Af veiðum kom Draupnir í gær með 1200 kassa. Júpiter fór á veiðar í gær. Heiðursfjelagar glímu fjelags Áfmann voru þeir gerðir á 20 ára afmæli fjelagsins 7. þ. m.: Hall- dór Hansen læknir, Mattliías Ein- arsson læknir, Hallgrímur Bene- diktsson stórkaupm., Jónatan Þor- steinsson stórikaupm., Sigurjón Pjetursson forstjóri, Guðmundur Stefánsson, Guðmundur Guð- mundsson, Eyrarbakka, og Guð- mundur Þorbjarnarson Vallarnési. Hafa þeir allir verið í glímufje- laginu. Jólatrjesskemtun Iðnaðarmanna- fjelagsins byrjar kl. 4y2 í dag — Fjelagið biður að sækja aðgöngu- miða í Iðnó milli 10—12 í dag. Fyrirlestra fyrir almenning, um þjóðfjelagsmál, byrjar prófessor Ág. H. Bjarnason að flytja í Há- skólanum, miðvikudaginn 13. jan. kl. 6—7 síðdegis. Til Elliheimilisins frá konu kr. 26. „Broadway" heitir skemtileg mynd, sem Gamla Bíó sýnir nú. Er það fjölbreytt lýsing af því helsta, sem gerist í skemtilífi stór borganna. GENGIÐ. Rvík í gær. Sterlingspund............. 22.15 Danslkar krónur...........113.59 Norskar krónur............ 93.14 Sænskar krónur............122.45 Dollar.................... 4.57% Franskir frankar.......... 17.72 Nn geta alllr eignast góðan sjálfblekung. Ágcetir sjálffyllandi sjálfblek* ungar á einar 10 krónur komnir aftur. Bókaverslnn Sigfúsar Eymuudssonar. S1 ó a n s er lang út- N breiddasta ,Liniment‘ ^ í heimi, og þúsundir manna reiða sig á § það. Hitar strax og linar verki.Er borið á án núnings. — Selt í öllum lyfjabúðum. Nákvæmar notkunar- reglur fylgja hverri \ I flösku. • j SLOANS LINIMENT H. l M. Smilh, Limited, Aberdeen, Scotland. Storbritanniens störste Klip- & Saltfisk Köber — Fiskaktionarius & Fiskdampermægler. — Tel. Adr.: Amsmith, Aberdeen. Korrespondance paa dansk. f nEnnið A. S. I. Sími 700 VÍKINGURINN. Hann fór með Ogle, ásamt fleirum að þrem öft- wstu fallbyssunum. pær stóðu út úr opunum, nálkvæm- lega eins og spánski fallbyssustjórinn hafði skilið við þær. — Hjer er starf fyrir þig, Ogle, sagði Blood. Risavaxni maðurinn gekk fram. Látið draga þessa fallbyssu inn, bætti Blood við. Þegar því var lokið, gaf Blood þeim, sem gættu Don Diego, merki. — Bindið Jípánverjann fyrir fallbyssukjaftinn, .sagði Blood. Sækið þið síðan spönsku fangana. Og þú, Dyke, farðu upp á þilfar, og láttu hefðja spánska fánann við hún. Don Diego var nú bnndinn í kufung fyrir fall- byssukjaftinn, og hendur hans og fætur reirðar beggja megin á hlaupið. Hann horfði á Blood í tryllings- hræðslu. Sá maður, sem elkki hræðist sjálfan dauðan, getur þó orðið skelfdur við að sjá hann í þessari mynd. Hann helti bölbænum og fordæmingum yfir Blood og fjelaga hans. En skipsforinginn virti hann ekki svars, heldur sneri sjer að spönsku föngunum, sem nú *tóðu hlekkjaðir frammi fyrir honum. Þeir höfðu heyrt bölbænir Don Diegos, og sáu nú, hvernig komið var fyrir honuin. Ungur maður í hópnum, með dökt andlit, ruddist úr hópnum og æpti í andistarrómi: — Faðir minn! Hann barðist um til þess að losna. Hann grát- bændi Blood um að sýna miskunsemi. En skipsforing- inn athuga hann með hinni mestu ánægju. Það leit út fyrir, að liann hefði til að bera hina rjettu, fórn- fúsu sonarást. En þó hikaði hann um stund að framfkjvæma áform sitt. En þá mintist hann, hvernig þessir menn hefðu hagað sjer í Bridgétown. Þar höfðu þeir komið fram eins og grimm, tilfinningarlaus dýr. Blood skipaðí því Ogle að lyfta blýhettunni, sem var ýfir kveikiopi fallbyssunnar, og hafa tundrið til. Sonur Don Diegos hóf fyrirbænir sínar að nýju fyrir föður sínum. Þá tók Blood fram í fyrir honum, og var fastmæltur: — pegið! mælti hann. Það er ekki tilgangur minn að hlása föður yðar í reyk og.púðri til Yítis, þó ekki eigi hann betra skilið, Það eru svik föður yðar, sem komið hafa dk'kur á kaldan klaka. Hann hefir, þrátt fyrir drengskaparorð sitt, farið með okkur beint í ppið dauðans djúp. Faðir yðar hefir þekt skip bróður síns, herforingjans spánska, og hann mun sjálfsagt þekkja „Cinco Llagas.“ Og þegar hann kemur nær, mun hann sjá, að ekki er alt með feldu hjer, og þá byrjar fallbyssnahríðin á dkkur. Við erum ekki svo> búnir, að við getum barist. Það vissi faðir yðar, þeg- ar hann sveik okkur. Og nú verðið þjer að skilja mig: Um leið og fyrsta skotið kemur frá „Encarnacion“, þá svörum við með þessari fallbyssu. Blood benti á þá, sem Don Diego var bundinn við. Espinosa starði náfölur á Blood. — Jeg skil yður, stamaði hann. En hvernig get jeg varnað því, að „Encarnacion“ skjóti á okkur. Ef þjer getið sjeð einhverja leið, þá er jeg fús til alls. — Það væri hægt að losna við bardaga, ef faðir yðar færi í skip bróður hans, og fullvissaði hann um, að þar væri alt einst og vera ætti. En vitanlega getur hann það ekki, því hann er í önnum, eins og þjer sjáið. Eða er veikur af hitasótt, það er betra. En þjer, sonur hans, getið farið, og borið aðmírálnum kveðju hans. Þjer farið í bát ásamt sex Spánverjum, og mjer, spöndkum aðalsmanni, sem þjer hafið náð úr fangelsi 'í Barbadoes. Jeg ætla að hafa eftirlit með því, að þjer svíkið mig ekki. Ef við sleppum lifandi fram hjá aðmírálsskipinu, þá skal jeg gefa yður og öllum Spánverjunum líf. En hendi okkur eitthvert óhapp^ hvort sem það er vegna svika eða annars, þá fellur fyrsta skotið úr þessari byssu. Faðir yðar verður fyrst fórnin í bardaganum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.