Morgunblaðið - 24.07.1929, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.07.1929, Blaðsíða 2
2 HTrK'G TT N B L A Ð I Ð 1. Steffensens Fabrikker, Haupm.höfn. í \ Pylsur, soðnar og reyktar. do. niðursoðnar. Flesk, saltað og reykt. Rúlluskinkur. Lifrarkæfa í dósum. Grísahlaup, uxatungur o. fl. Alt viðurkendar fyrsta flokks vörur. Afgreiðsla beint til kaupenda fyrir milligöngu okkar. fírc$tottc FOOTWEAR COMFANY Egta gúmmivinnuskór mcð hvihim sölum. Egta gúmrnisjóstígvjel med hví'urn sólum. Utanyfirstfgyjel, Skóhlífar ogfl. Aðalumboðsmaður á íslandi. Ó. Benjamfnsson Pósthússtræti 7 — Reykjavík. Birgðir í Kaupmannahöfn hjá Bernhard Kjœr Gothersgade 49, Möntergaarden Köbenhavn K. Símnefni: Holmstrom. Vígsla Landakotskirkjn. Reynið hinn endurbætta islenska FÁLKA kaffibæti Ö bláum umbúðum) með þessu merki: B 6A gSPMOVIN. II Kafflb?Hrinn er jsfnaðarlega rannsakvóur af hmaTrausta Oiafssyni efnafraJingi rikisíns. | Mtö FYISR HVERJUM PAKKA | Gæðin eru óviðjafnanleg! Umbúðir kaffibætisins eru tvöfald «r, o ; þess vegoa mikið betri en á öðrum kaffibælistegundum. Ath. Hverjum pakka af FALKA-k.tffibætinum fylgir faileg loftblaðra (ballón), sem allir ungir sem gamlir skemta sjer við. Klippið og geymið m°rkið af hverjum pakka. Fyrirliggjandi: Nýjar Kartðflnr í 50 kg. pokmr. Eggert Kristjánsson B Co. Símar 1317 og 1400. Mnnið A. S. I. Skrúðfylking kemur út úr Landakotskirkju. Fremst á myndinni er heiðurshliðið, með skjaldarmerkjum páfa og Rossum kardinála. Til beggja hliða stendur fjöldi áhorfenda. Klukkan 8V2 í gærmorgun hófst helgisiðaathöfn í Landakoti. — Gekk þá kardínáli tij hinnar gömlu kirkju kaþólskra manna og var þar haldin stutt „pontifical“- messa. Að því búnu voru helgir dómar kirkjminar (sacramenta) borin út úr gömlu kirkjunni og til hinnar nýju kirkju. Bar þá Meulenberg prefekt og var gengið með þá einn hring í kringum nýju kirkjuna í skrúðfylkingu. Síðan var gengið inn i kirkjuna og hófst nú sjerstök viðhöfn: vígsla altar- isins. Fór hún fram með mikilli viðhöfn, reykelsisbrenslu og ýms- um hefgisiðum. Er hin gamla kirkja þar með lögð niður, sem guðshús, og helgi hennar flutt til nýju kirkjunnar. Fyrir háaltarinu í nýju kirkjunni er sjerstök þró fyrir helgidómana. Voru þeir nú lagðir þar niður eftir sið og regl- um kaþólskra, og altarið síðan vígt með reykelsisbrenslu og messu söng, og gekk kardínáli oft uin- hverfis altarið og stráði á það eim af vígðu reykelsi á allar liliðar. Vígsla kirkjunnar. Um ld. 10 í gærmorgun söfnuð- ust boðsgestir Meulenbergs bisk- upsefnis upp í Landakotskirkju. Þar voru ráðherrarnir allir, sendi- menn erlendra ríkja, og velflestir æðstu embættismenn bæjarins o. m. fl., sem of langt væri upp að telja. Eru engin tök á því hjer, að lýsa hinni löngu og afar-marg- þættu vígsluathöfn, sem kardínál- inn v. Rossum framkvæmdi, ásamt prestum kirkjunnar og fylgdarliði sínu. — Gekk kardínáli siðau með fylgd sinni og vígði veggsúlurnar tólf, sem á voru dregin krossmörk. Var hin sama athöfn við súlu hverja. En að því búnu var hinni eiginlegu kirkjuvígslu lokið. Þá byrjaði liin eiginiega messa. Söng Riehard kórsbróðir messu með að- stoð sjera JóhanUesar Gunnarsson- ar og dr. Húpperts. Meðan á mess- unni stóð, sat kardináli í hásæti sem sett heflr verið í kirkjuna fyrir ]>etta tækifæri. Sjera Dreesen flutti ræðu. Var fyrri hluti hennar á hol^nsku, þar sem hann sneri máli sínu til kardmála, en síðari blut’nn á ís- lcnsku. Lýsti h inu í fám dráttuni sögu kirkjubyggingarinnar, og þakkaði ])eim sem stutt hefðu liana, fyrst og fremst kardínála, fyrir frumkvæði byggingarinnar, og Meulenberg fyrir starf hans síðar. Lofaði hann guð fyrir, hve vel alt hefði vel farið með byggingu þ<^ssa, og lýsti að lokum vígslunni, áhrifum hennar og þýðingu. Þá var sungið messu-credo. Siðan söng Sig. Skagfield Ave Maria. Eftir bænahald og organslátt söng hann enn Benedictus 0. fl. Messugerðin endaði með því, að kardínáli söng Te deum úr hásæti sínu, en söfnuður og aðkomufólk stóð upp. Gengu klerkar síðan með kór- drengjum fyrir í skrúðgöngu úr kirkjunni. Miuua erfiði þvottadaginn. Húsmæður! Notið Sunlight sápuna til að hjálpa yður, því að hrein og mjúk froða hennar nær burt öllum ö- hreinindum. Sunlight sápan gerir þvott- inn hvítan sem mjöll, án nokkurs erf- iðis. Hún er óviðjafnanleg til að þvo úr henni lök nærfatnað og gluggatjöld. Með e.s. ,Selioss‘ feng- nm við hollenskan „Gonda“ og „Edammor“ ost. Mamis IL S. SIHalil D.f. Sími 2358. |a 0.8. Botnia fer í dag klukkan 8 síðdegis til Leith (um Vestmannaeyj- ar og Thorshavn.) Farþegar sæki farseðla fyrir hádegi í dag. C. Zimsen. Var öll athöfn þessi hin hátíð- lcgasta. Biskupsvígsla. G-jafir handa Meulenberg biskupsefni. A morgun ætlar Rossum kar- dínáli sjálfur að vígja Meulenberg prefekt til biskups. — í til- efni af vígslunni hefir páfi sent. Meulenberg að gjöf biskupskross, gimsteinum settan. Kardínálinn hefir gefið honum biskupshring, V. Richard, yfirmaður Maríureglunn- ar liet'ir gefið honum bagal (bisk- upsstaf) og dr. Kjelstrup, hinn norski, er kom með „Mercur“ í gær, færði lionum að gjöf frá skáldkonunni Rigrid Undset mál- verk af Guðmundi biskupi Arasyni hinum góða. ------' —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.