Morgunblaðið - 14.06.1936, Blaðsíða 5
'Sunnudaginn 14. júnx 1936.
MORGUNBLAÐIÐ
5
Garðar Gíslason
sextugur*
Garðar Gíslason er sextugur
í dag.
Það er ákaflega misjafnt,
hvenær á æfinni menn byrja
að eldast. Mun skapgerðin
valda miklu um það.
Þeir sem framtakssamir eru,
»djarfhuga og starfsamir áhuga-
menn, þeir eru ungir í anda
langt fram eftir æfi.
Ekki veit jeg hvernig Garð-
ar Gíslason var í viðkynningu
fyrir 35 árum, er hann hóf
sjálfstæða verslun. En mjer er
nær að halda, að hann hafi
breyst mjög lítið síðan,, nema
hvað mikil og margþætt versl-
unar- og lífsreynsla hefir
kent honum mikið og margt
og gert honum marga hluti auð
veldari.
Þá hóf hann verslun með
ríka starfsþrá og alveg ó-
venjulega hugkvæmni við að
finna og ryðja nýjar viðskifta-
leiðir. Þeir sem nú eru að alast
upp og ungir eru að árum,
•eiga erfitt með að átta sig á
því, hve æfintýralegt það þótti
um síðustu aldamót, að fjelítill
þingeyskur bóndasonur skyldi
ávo að segja alt í einu vera
-orðinn heildsali í Englandi,
nærri því utanvið þann við-
skiftaheim, sem við Islendingar
þektum, meðan þvínær öll okk-
ar verslun var einskorðuð við
Danmörku.
Höfuðeinkenni í skapgerð
'Garðars kemur einmitt fram í
því, að hann ílendist ekki í
Danmörku, á þeim slóðum, þar
sem íslensk verslun var stað-
gróin, heldur byrjar frá upp-
hafi á því að reyna nýjar leið-
ir.
Fyrir núverandi valdhafa á
íslandi er Garðar Gíslason of
frjálshuga maður. Hann trúir á
mátt sjálfsbjargar og hollustu.
Þannig er lund hans, og þetta
hefir lífið kent honum æ betur.
En fjarri fer því, að einstakl-
ingshyggja hans sje meiri en
góðu hófi gegnir. Garðar er
maður þjóðhollur á besta máta,
og leggur í hvívetna kapp á að
vera þjóðnýtur í starfi sínu.
Ungur sá hann og skildi,
hvílík nauðsyn okkur væri á
frjálsri og framtakssamri versl-
unarstjett. Frjáls verslun varð
honum hjartans mál, ekki
sjálfs hans vegna, heldur vegna
þjóðarinnar.
Með skapfestu sinni hefir
hann hvenær sem er og hvar
sem er verið boðinn og búinn
til málsvarnar fyrir verslunar-
stjett landsins, þegar á hana er
ráðist.
Eftir 35 ára starf og marg-
víslega erfiðleika í viðskiftum
landsmanna, stendur verslun
hans í blóma.
En verslunarsaga Islands
mun geyma nafn hans sem eins
af þeim fáu fyrstu, er um síð-
ustu aldamót lögðu grundvöll
að alíslenskri verslun, og stóðu
af sjer fyrstu árásirnar, er öf-
undsjúkir menn og illa siðaðir
gerðu að nýgræðingi þeim í
atvinnulífi þjóðarinnar.
'‘-V^SúMíulaSi
Alla tíð síðan hefir þetta
verið höfuðeinkenni á starfi
hans.
hefir hlotið
besfn mefSmæli
Askoranir
Verslunarþingsins til rikis-
stjórnarinnar um innllutn-
ings- og gjaldeyrismðl.
E
FTIRFARANDI ályktanir voru sam-
Jjyktar með samhljóða atkvæðum
á Verslunarþmginu í gær:
Um gjaldeyris- og innflutningsnefnd.
Verslunarþingið ályktar að skora á ríkisstjórn ís-
lands:
1. Að breyta 3. gr. starfsreglna gjaldeyris- og inn-
flutningsnefndar á þann veg, áð efndin hafi ótvíræð fyr-
irmæli um að veita öllum verslunarfyrirtækjum innflutn-
ingsleyfi eftir föstum kvota, sem miðist eingöngu við inn-
flutning þessara fyrirtækja ákveðið ár eða árabil, svo að
kaupmenn og kaupfjelög geti útvegað viðskiftamönnum
sínum vörur í sama hlutfalli og var áður en innflutnings-
höftin voru sett.
2. Að fela gjaldeyris- og innflutningsnefnd að birta
þegar í byrjun hvers árs áætlun yfir innflutning þann, sem
veita á á árinu, og ennfremur að leggja fyrir gjaldeyris-
og innflutningsnefnd að hafa áætlun þessa svo greinilega,
að hver innflytjandi geti sjeð sjálfur, hve mikinn inn-
flutning hann á að fá á því tímabili, sem áætlunin nær
yfir, samkvæmt skýrslu sinni til gjaldeyris- og innflutn-
ingsnefndar yfir fyrri innflutning.
3. Að fela gjaldeyris- og innflutningsnefnd, við samn-
ingu áætlunarinnar, að taka tillit til vöruflokkaskiftingu
innflutningsins undanfarin 10 ár, og ennfremur að leita
álits Verslunarráðs íslads á henni áður en hún verður birt
og kemur til framkvæmda.
4. Að fallast á skipun sjerstakrar trúnaðarnefndar
kaupsýslumanna, sem hafi það verksvið að taka við og
athuga kærur innflytjenda yfir úthlutun innflutningsleyfa
og að tryggja þessari nefnd aðgang að öllum gögnum og
upplýsingum gjaldeyris- og innflutningsnefndar, varðandi
úthlutunina.
5. Að leggja fyrir gjaldeyris- og innflutningsnefnd
að fella niður leyfisveitingar til einstaklinga, sem ekki
hafa verslun að atvinnu og ekki eiga heimtingu á inn-
flutningi samkv. reglum gjaldeyrisnefndar.
Um stefnuleysi bankanna.
Verslunarþingið lýsir óánægju sinni yfir því stefnu-
leysi, sem bankarnir hafa sýnt um afgreiðslu og meðferð
gjaldeyrisleyfa, þar sem fulltrúar þeirra afgreiða daglega
í nefndinni gjaldeyrisleyfi, sem svo er synjað um yfir-
færslu fyrir. Virðist og engri ákveðinni reglu fylgt um
það, hvaða Ieyfi hljóta afgreiðslu í bönkunum og hver
ekki, og að leyfum er haldið hjá þeim mánuðum saman,
án þess að nokkurt svar fáist.
Fyrir því skorar Verslunarþingið á bankana, að öll
gjaldeyrisleyfi, sem út eru gefin, fái afgreiðslu hjá þeim,
nema ófyrirsjáanlegir erfiðleikar valdi hindrun yfirfæ*"slu,
en ef svo atvikast, verður gjaldeyrisafgreiðsla bankanna
að framkvæmast eftir föstum reglum og með fullri sam-
kvæmni, þannig að jafnt gangi yfir þá innflytjendur, sem
leyfi hafa fengið.
Kaldársel.
Tekið verður á móti drengjum til lengri eða skemri
dvalar í Kaidárseli.
Nánari upplýsingar gefur Jóel Ingvarsson,
Strandgötu 21. — Sími 9095.
LeiðsSgnfólk f erðanaanna.
Þeir, sem óska að láta skrásetja sig sem leiðsögumenn
erlendra ferðamanna í sumar, geta fengið eyðublöð til
útfyllingar, og nánari upplýsingar hjá
!Ferðfl»krtfs(ofa ríkisins.
Trýggvagötu 28.
Ódýrar vörur:
Matskeiðar, ialum. 0,25
Do. krómað 0,75
Matgafflar, ,alum. 0,25
Do. krómað 0,75
Teskeiðar, alum. 0,15
Do. krómað 0,40
Vatnsglös, þykk 0,30
Do. slípuð 0,50
Vínglös 0,50
Desertdiskar, postulín 0,35
Undirskálar, postulín 0,15
Tannburstar í liulstri 0,50
Höfuðkambar frá 0,35
Hárgreiður 0,75
Flugnaveið ar ar 0,15
Skálasett, 5 st. 4,25
Blómavasar frá 1,00
Kúlukassar fyrir börn 0,25
K. Einarsson & Björnsson.
Bankastræti 11.
1ÍÁLAFLUTNINGSSKRÍFST0FA
Pjetur Magnússon
Einar B. Gnðmnndsson
Gnðlangnr Þorláksson
Fímar 3602, 3202, 2002
Ansturstræti 7.
Skri'fstofutími kl. 10—12 og 1—6.
Nýr lax
Nýtt bögglasmjör.
Kjðtbúðin Herðobreið.
Tafnarstræti 18. Sími 1575.