Morgunblaðið - 28.03.1937, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.03.1937, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 28. mars 1937, Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavtk. Ritstjðrar: J6n Kjartansson og Valtýr Stefánsson — ábyrgSarmaSur. Ritstjórn og afgreiösla: Austurstræti 8. — Stmi 1600. Heimastmar: Já’i Kjartansson, nr. J742 valtýr Stefánsson, nr. 4220. Árni Óla, nr. 3045. Áskrfftagjald: kr. 3.00 á mánuttl. í lausasölu: 15 aura eintakiti. 25 aura meB Lesbök. Verksmiðjuleyfið. Þegar Hjeðiðnn Yaldimarsson hafði velt sjer yfir Framsóknar- ráðherrana og Framsóknarflokk- inn j; útvarpsumræðunum á núð- vikudaginn var, og nefnt þá Framsóknarmenn siðleysingja og svindlara, ef þeir litu við tilboði Kveldúlfs _ um skuldatryggingar og leyíðii , fjelaginu að starfa stundinni lengur, svöruðu þeir Ey steinn Jónsson og Hermann Jónas son því samhljóða, að að þeirra dómi væri ekkert vit í því fyrir bankana að hafna tilboði Kveld- úlfs, Það voru fá orð í fullri mein- •<>tq tngu. í samningum .þeim, sem li.f. Kveldúlfur hefir átt í við Lands- bankann á þessum vetri, setti bankinn í öndverðu tvenn skil- yrði. Annað var skuldatrygging- in, sem fengin er. Hitt var, að fjelagið kæmi rekstri sínum á arðvænlegri grundvöll, en verið hefir hin síðustu ár. Þessú skilyrði hefir Kveldúlf- tir f ulíþfægtj1 méð því að afla sjer lánsfjáf til að reisa síldarverk- smiðju á Hjalteyri við Eyjafjörð. Eh skuldátryggingin, sem Thor Jensen’ eða h.f. Kveldúlfur hefir boðið fram, er því skilyrði bund- in, að fjelagið fái óhindrað leyfi ríkisstjórnarinnar til að reisa síidarverksmiðjuna. Framsóknarráðherrarnir voru í útvarpsumræðunum sammála um, að ekkert vit væri í öðru en að ríkisstjórnin veitti þetta bygging- arleyfi. Þeir skýrðu ennfremur alveg hiklaust frá því, sem að vísu var kunnugt áður, að samstarfsmaður þeirra, núverandi atvinnumálaráð herra Haraldur Guðmundsson hefði: í raun rjettri veitt þetta byggingarleyfi — enda þótt hann hefði síðar tekið það aftur. Fyrir Harald Guðmundsson er því ekkert undanfæri lengur. Hann verður að sjá til þess, að gert verði „það eina, sem vit ,r v‘‘ í þessu máli, að h.f. Kveldúlf- ur fái refjalaust þetta byggingar- Ieyfi. Þessu getur hann komið fram á tvennan hátt. Með því sjálfur að endumýja leyfisveitingu sína, ell- egar með því að segja af sjer ráð- herradómi tafarlaust, svo einhver annar ráðherra geti veitt þetta leyfi, bankarnir fái byggingarnar, sjómenn og verkamenn fái aukna atvinnu við síldveiðar í sumar og þjóðarbúið fái auknar útflutnings- vörur og erlendan gjaldeyri, fyrir síldarafurðir hinnar nýju verk- smiðju. BORGARASTYRJÖLDm A SPAYI SÍFELDAR KÆRÖR UM BROT Á HLUTLEYSINU Italir segjast hafa haldið sjálf- boðaliðabannið. ASpáni hafa verið háðar nokkrar orustur á flest- um vígstöðvum um bænadag- ana. En engar merkilegar or- ustur hafa verið háðar. Valen- cia-stjórnin heldur áfram að til- kynna sigra við Madrid, en Franco mótmælir jafnharðan eins og áður. Átök hafa orðið innan hlut- leysisnefndarinnar milli full- trúa ítala og Þjóðverja ann- arsvegar og fulltrúa Rússa hinsvegar. Bera hvorir öðrum á brýn, að þjóðir þeirra hafi ekki haldið hlutleysissamning- inn. Fátt frjetta barst frá Spáni í gær, en eftirfarandi er eftir breska útvarpinu í gærkveldi (samkv. F. Ú.) : Stjórnin á Spáni tilkynnir, að enn þá miði hersveitum hennar áfram á vígstöðvunum norðaustan við Madrid, og að þær hafi sótt fram meðfram Saragossa-veginum í áttina til Siguenza og sjeu nú aðeins 7 mílur frá þeirri borg. Stjórnin í Valencia tilkynn- ir ennfremur í dag, að í und- anfarnar 2 vikur hafi verið barist um kolanámurnar og kvikasilfursnámurnar í Cordo- bahjeraðinu. Segir hún, að upp reistarmenn hafi gert harðvít- ugar árásir á stjórnarherinn í því skyni að ná námunum á sitt vald, og hafi stjórnarher- inn átt í vök að verjast, þar til þann 13. þ. m., að honum barst liðsauki frá Madrid. Síðan, segir stjórnin, hafa uppreistar- menn verið hraktir á bak aftur með miklu mannfalli, en nú sje þeim að berast liðsauki, og megi búast við áköfum orust- um á þessum slóðum næstu dagana. í opinberri tilkynningu, sem gefin er út í Róm, segir, að ítalska stjórnin hafi haldið lof- orð sitt um að leyfa engum sjálfboðaliðum að fara til Spán- ar, síðan 20. febrúar — og muni hún halda áfram hlýðni sinni við það ákvæði hlutleysia- samningsins. Nýjar kærur um brot gegn hlutleysissáttmálanum berast úr ýmsum áttum. Volkischer Beobachter birtir þá frjett í dag, að 55 rússneskir Iiðsfor- ingjar hafi komið til Madrid í gær frá Moskva, ásamt nokkru liði. En spánska stjórn- in segir frá því, að tvö þýsk beitiskip hafi farið frá Alge- ciras til Malaga með vopna- farm fyrir uppreistarmenn. Eftir orustu I grend við Madrid. Myndin er tekin af um íbúunum í smábæ einnm norðan við Madrid, sem eru að revna að b.jarga leyfun- af búslóð sinni eftir að skotárás hefir verið gerð á bæinn. — Parfsarlögregl- an stóraukin. Fær öll nýtísku vopn. Berlín í gær. F.Ú. Eftir því sem þýska blaðið „Berliner Tageblatt“ seg- ir frá, hefir verið ákveðið að fjölga í Parísarlögreglunni úr 12.000 upp í 20.000 manns. — Einnig verður tala lögreglufor- ingja aukin. Lögreglan á að fá til afnota táragassprengjur og vjelbyssur, sem skjóta „cellu- loid“ kúlum, er geta veitt ljetta áverka, en ekki drepið. Enn- fremur fær lögreglan tæki til að dæla óskaðlegu litarefni yf- ir óeirðahópa. Stúlka verður fyrir áverka á næturgðngu. Ibúðarhús brennur i Miðnesi. Sandgerði í gær. Ibúðarhúsið á Hólum á Miðnesi brann til kaldra kola í gærdag um hádegisbilið. Ábúandi á jörðinni er Eiríkur Jónsson, oddviti. Var kona hans ekki heima er eldurinn braust út. Húsið er vátrygt, en innbú óvá- trygt. íbúðarhúsið brann niður að grunni, en það tókst að verja fjós og hlöðu, sem var sambygt íbúðar- húsinu. Eldsupptök eru óbunn. — (FÚ.). Um kl. 4 aðfaranótt fj>3tu- dags heyrði fólk á Sel- landsstíg neyðaróp kvenmanns af götunni. Sást til ferða stúlku einnar, þar sem hún drógst áfram eftir stígnum. Var hringt til lögreglunnar á augabragði, en lögregluvarð- menn náðu í skyndi í nætur- lækni og óku þangað vestur eftir. Var stúlkan flutt á Lands- spítalann. Reyndist hún að hafa sár blæðandi, og hafði orðið fyrir allmiklum blóð- missi. En sár hennar er ekki talið hættulegt. Er lögreglan tók að rann- saka, hvernig stúlkan hefði fengið áverka þenna, reyndist það vafningasamt. Er lögregl- an hitti hana um nóttina, var hún undir áhrifum víns. Hún skýrði frá, að hún hefði haft samferðafólk þarna á stígnum, er farið hafði inn í hús, en hún ætlað að bíða fyrir utan. Þá hafi tveir menn komið til sín, og hún ætlað ásamt þeim að klifra yfir girðingu. En ýmis- legt af því, sem hún hefir sagt um ferðalag sitt og samferða- fólk, getur lögreglan naumlega lagt trúnað á. Líklegast var talið í gærkvöldi, að hún hefði fengið áverkann af því að klifra yfir gaddavírsgirðingu, sem er skamt þaðan, sem hún var, er sást til ferða hennar. Fádæma snjókoma í Danmörku. Kalundborg 27. mars. F.Ú. í dag er fádæma snjókoma í Danmörku. Samgöngur hafa tepst bæði á sjó og landi. Sam- komum hefir verið aflýst víða um land, og símalínur hafa slitnað. Enskt skip á ytri höfninni í Kaupmannahöfn sleit landfest- ar sínar. SEX KOMMÚNISTAR DÆMDIR FYRIR LANDRÁÐ. Ármenmngar fara í skíðaferð að skála sínum í Jósefsdal í fyrra- málið (annan páskadag) kl. 9 árd. frá Iþróttahúsinu. Farmiðar seldir í skrifstofu fjelagsins í íþrótta- húsinu í dag frá kí. 5—7. Berlín í gær. F.Ú. í borginni Luck í Póllandi hafa 6 kommúnistar verið handteknir og dæmdir í 6—10 ára þrælkunarvinnu fyrir starf- semi fjandsamlega ríkinu. STJÓRNIN í KATAIÁ)NÍU SEGIR AF SJER. Berlín í gær. F.Ú. Kataloníustjórn í Barcelona hefir sagt af sjer, og er ástæð- an sögð ósamkomulag, sem fólgið sje í því, að hinir vinstri vilji þegar hefja stórfelda sókn af hálfu Kataloníu á hendur uppreisnarmönnum á Spáni, ea hægri mennirnir hafa beitt sjer gegn þessu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.