Morgunblaðið - 27.10.1940, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 27.10.1940, Blaðsíða 3
Sunnudagur 27. okt. 1940. M 0 R G IJ N B L A Ð 1 Ð O U Rúmlega 20 ára svika- miðilsstarfsemi upplyst Lára Ágústsdóttir í gæsluvarðhaldi Likamningarnir voru (PZé-slasður' RANNSÓKNARLÖGREGLAN hefir komið upp um einhver stórkostlegustu miðilssvik, sem þekst hafa hjer á landi og þó víðar væri leit- að. Hefir Ingibjörg Lára Ágústsdóttir, Hverfisgötu 83 játað að hafa haft í frammi svik á miðilsfundum í fjölda mörg ár. Svik Láru miðils, en svo hefir hún venjulega verið nefnd í daglegu tali, eru aðallega fólgin T því, að hún hef- ir notað „gaze“-slæðu, andlits-líkön (grímur) og annað þessháttar á svonefndum líkamningafundum. Hinsvegar heldur Lára því fram, að á fundunum hafi hún talað ó- sjálfrátt og ennfremur heldur hún því fram, að hún sje skygn. Það var Sigurður Magnússon löggæsluraaður, sem kom upp um svikin. Var það á fundi hjá Láru fyrri föstudag. Var miðillinn hand- tekin og sett í gæsluvarðhald. Játaði hún við rjettarhöld svo að segja. strax svik sín með „líkamninga“. Þá kom og í Ijós við rjettarhöldin, að þremur mönnum var-kunn- ugt um svik hennar. Það eru þeir Þorbergur Gunnarsspn, Tjarnar- götu 3 A, sem hún var gift á árunum 1927—1937, Óskar Þórir Guð- mundsson, Bergstaðastræti 21B, unglingspiltur, sem hún hefir búið með síðastliðin 2 ár, og Kristján Ingvar Kristjánsson húsgagnabólstr- ari, Seljalandi, sem fór með henni til London haustið 1937. Ljósmyndir teknar af' „líkamningum", við blossaljos á heimili LániÁgústsdóttnr. Lára sjálf er standandi hjá ,,líkamningnum“, som er dóttir honnar. Höfðu þau Lára og Þorbergur maður hennar mólað telpuna í fram- an með vatnslitum. — Takið eftir að fundarmenn halda höndum saman. Andlit fundarmanna eru tekin út af myndinni með vilja. Þessar myndir h (fa birst í erlendum sál£ræðitímarit-um og þóttu merkilegar. Þeir Þorbergur og Kristján hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan s.l. þriðjudag, en var slept út í gær. Óskar hefir hinsvegar ekki verið settur í gæsluvarðhald. Lára hef- ir verið og er enn í gæsluvarð- haldi á Landsspítalanum. Ingibjörg Lára Ágústsdóttir er fædd árið 1899 og er því 41 árs að aldri. Hún segir svo frá, að 18 ára gömul hafi hún farið að fást við miðilsstarfsemi. Hefir hún því haft þesskonar starfsemi með höndnm í rúmlega 20 ár. Árið 1927 giftist hún Þorbergi Gunnarssyni, sem nú er til heiin- ilis í Tjarnargötu 3B. Bjuggu þau saman í 10 ár. Undanfarin tvö ár hefir Lára búið með Óskari Þóri Guðmundssyni, nú til heimilis á Bergstaðastræti 21 B. 290 stúdentar í Háskólanum „Dularfullu“ fyrirbrigðin. Þau „dularfullu“ fyrirbrigði, sem gerst hafa á fundunum hjá Láru, eru bæði sýnileg og heyr- anleg. Þau sýnilegu fyrirbrigði eru „líkamningar“ eða útfrymi, þá eru afholdgunarfyrirbrigði svo- nefnd, sem eru í því fólgin, að andlit miðilsins afmyndast og tek- ur á sig annarlega svipi, fingur kreppast og útlimir hverfa eða hlutar af líkamanum. Heyranlegu fyrirhrigðin eru ýmsar annarlegar raddir fólks af báðnm kynjum, bæði á íslensku og erlendum tungumálum. Eru þetta raddir fólks á öllum aldri, jafnvel. hjal ómálgra barna. Per- sónur, sem fram koma hjá miðl- inum, nefna sig ýmsum nöfnum, inníendum og útlendum. Loks hefir Lára borið fyrir FRAMH. Á SJÖTTU 8ÍÐU haust hafa verið skrásettir í Háskólann 84 nýir stú- ! dentar, og skiftast í deildir eins og hjer segir: Guðfræðideild 8, Lækna- deild 26, Lagadeild 30, Heim- spekideild 14, og í verkfræði sex. Auk þessara stúdenta í verk- fræði munu 4 stúdentar, sem eru skrásettir í öðrum deildum, stunda nám í verkfræði að nokkru leyti. Nokkrir þeirra, er hafa verið skrásettir í laga- deild, lesa viðskiftafræði í við- skiftaháskólanum, og 8 stúd- entar, sem flestir eru skrásett- ir í heimspekideild, lesa tungu- mál (ensku, þýsku, frönsku, ítölsku) með framhaldsnám erlendis fyrir augum. »• Tungumálakensla er hafin, 1 og er öllum heimilt að njóta Jhennar. í sænsku eru nú þeg- ar 16 nemendut og í spænsku og ítölsku, um 15. Kensla í þýsku, frönsku og ensku mun hefjast næstu daga. í Háskólanum eru nú skrá- settir 290 stúdentar, og skift- ast þannig á deildir: x Guðfræðideild 23, Læknaó deild 108, Lagadeild 109, Heimspekideild 44 og Verk^ fræði 6. vc Sýnings Jóns Þorleifssonar . í vinnustofu hans í Blátúni verðu? opin í dag og næstu daga. Mikil áðsókn hefir verið að sýningunni og eru þegar seldar þar 6 myndir. Katfi- og sykur- skamlurinn aukinn Jólaskamtur og úthlut- an fyrir 3 mánuði Kaffi- og sykurskamturinn verður talsvert aukinn nú við næstu úthlutun skömtunar- seðla og er það gert með tilliti til jólanna. Einnig verður sú breyting gerð, að úthlutað verður til þriggja mánaða. Eins og kunnugt er, var sú ákvörðun tekin í haust, að út- hluta skömtunarseðlum mat- væla fyrir fimm mánuði. Var þetta gert með tilliti til þess, að menn gætu fengið sjer nokkurn matarforða fyrir veturinn. — Kaffi og sykur var hinsvegar skamtað til tveggja mánaða, eins og áður. En nú verður gerð sú breyt- ing við næstu úthlutun skömt- unárseðla, að kaffi- og sykur- skömtuninni verður úthlutað til þriggja mánaða (desember — febrúar) og koma þá þessar vörur inn í skömtun matvör- unnar, sem næði til febrúar- loka. Og með tilliti til þess, að jólin koma inn í þessa skömt- lín, en þá er venjulega meira notað af kaffi og sykri, hefir Dagsbrún hefir fengið alt sitt fje Fer fram á að Einari Björnssyni og Marteini Gísla- syni verði ekki . refsað Bæfarlánið ) • Sama eftirspurnin eftir skuldabrjefunum O ala skuldabrjefa í bæjarlán- ^ inu gekk vel í gær, eins og tvo hina fyrri daga. Eigi lágu fvrir í gærkvöldi töl- ur yfir kaup skuldabrjefanna, vegna þess hve snemma bæjar- skrifstofunum var lokað. En sýni- legt var á eftirspurninni eftir skuldabrjefunum, að þau yrðu keýpt upp á skömmum tíma. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. < TJÓRN „Dagsbrúnar1- hefir fyrir hönd fjelagsins skrifað sakadómara og farið fram á, að ekki verði höfðað sakamál á hendur þeim Einari Björnssjuii og Marteini Gíslasyni fyrir sjóðþurð þeirra hjá fjelaginu, þar sem "báðir þessir menn hafa að fullu greitt fjelaginu alt það fje, sem þeir á ólögleg- an hátt höfðu dregið sjer. BRJEF stjórnar Dagsbrúnar er á þessa leið: „Með því að lierra Einar Björnsson, fyrverandi foi'maður Dagsbrúnar, hefir í dag greitt Verkamannafjelaginu Dagsbrfin að fullu og öllu fje það, sem upplýst er með sakamálsrann- sókn, að hann hefir ólöglega dregið sjer frá fjelaginu, ásamt* vöxtum og öllum kostnaði, þá lýsir undirrituð stjórn Dags- brúnar því hjer með yfir, fyrir hönd fjelagsins, að hún fellur frá öllum kröfum á hendur Ein- ari og óskar eftir að allar op- Tilkynning frá útgáfu- fjelaginu landnáma Stofnun útgáfufjelagsins Land- náma hefir þegar vakið meStu athygli. Fjöldi manna fagnar því að eiga kost jafn glæsilegrar út- gáfu. Sýna undirtektirnar fyrst o’g fremst, hve sterk eru ítök Gunú- ars Gumiarssonar í hugum íslend- inga. ’ Menn eru þakklátir þeim sam- tokum, sem hjer hafa verið mynd- uð til þess að sýna þessu stór- [skáldi íslendinga verðugan sóma. Hafa stjórn fjelagsins þegar bor- ist svör frá fjölda af þeim mönn- um, sem boðið hefir verið að ger- ast fjelagar í Landnámu og þar með einu eigendurnir að heildar- útgáfunni á ritum Gtmnars. Ennþá eru þó ókomin svör frá FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. FRAMH. Á BJÖUNDU SÉÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.