Morgunblaðið - 01.09.1943, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.09.1943, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagtir 1. sept. 1943 GLÆSILEG SUNDLAUG I HAFNARFIRÐI SUNDLAUG Hafnar- r- A \ . • .. p . , • A ■ • fjarðar var vígð síðastliðinn hrá víqsluathötninni a sunnudaqinn sunnudag. Kl. 2 söfnuðust gestir þeir er sundlaugarnefndin' hafði boðið til vígslunnar saman við sundlaugina og sk-oðuðu hana. Kl. 2,30 e. m. hófst vígsluhtíðin > í fallegum hvammi fyrir vestan sund- laugina. Loftur Bjarnason, útgerðarmaður setti hátíð- ina með eftirfarandi ræðu: Ræða Lofts Bjarnasonar. „Góðir tilheyrendur! Jeg leyfi mjer fyrir hönd sundlaugarnefndarinnar, að bjóða yður öll hjartanlega velkomin. Um leið viljum vjer þakka fyrir þá velvild og aðstoð, sem þjer hafið veitt sund- laugarmálinu, með fjár- framlögum, sjerstaklega miklum vinnuafköstum við byggingu laugarinnar, og á ýmsan annan hátt. Hinn langþráði dagur um opnun sundlaugar hjer í Hafnarfirði, er nú orðinn að veruleika. Vjer höfum að vísu orðið að bíða lengi eftir þessum degi, en nú þegar hann er runninn upp, bjartur og fagur, lofar góðu, getum vjer verið ánægð, því að laugin er að öllu levti fullkomnari, en til var ætl- ast í fyrstu. Það eru þrjá óskir, sem Hafnfirðingar eiga nú að fá uppfyltar með opnum þess- arar laugar. í fyrsta lagi, nú eiga bæði ungir og ‘garnlir Hafnfirð- ingar að fá aðstöðu tii að læra sund. Nýja sundlaugin í Hafnarfirði. Myndina tók Guðbjartur Ásgeirsson þegar laugin var vígð s. 1. sunnudag. í öðru lagi, laugin er heilsulind fyrir þá, sem í hana fara, hvort sem þeir eru syndir eða ekki. í þriðja lagi. íþróttaæska Hafnaríjarðar, fær nú að- stöðu til að iðka sund við eins góð skilyrði, og best eru annarstaðar á landinu. Þegar lauginn var valinn staður, var það gert meðal annars, með það fyrir aug- um, að hún yrði sem næst væntanlegu íþróttasvæði Hafnfirðinga, sem er hjer rjett fyrir norðan. Hafnfirskir íþróttamenn hafa átt við mjög erfið skil- yrði áð búa hjer í bæ. Hjer hefir ekki verið nein sund- laug, og aðeins einn maiar- völlur til úti íþróttaiðk- oooooooooooooooooooooooooooooooo Klæðskerasveinar og stúlkur helst vanar karlmannafatasaumi, óskast nu þegar. i - G. BJARNASON & FJELDSTED e. m. Aðalstræti 6. óooooooooooooooooooooooooooooooo Verksmiðjuhús þrjár hæðir og kjallari við Höfðatún, er til sölu. Nánari uppl. gefur. GUÐLAUGUR ÞORLÁKSSON Austurstræti 7. — Sími 2002. Ágætt steinhús við miðbæinn til sölu nú þegar. Lausar íbúð- ir. Upplýsingar gefur GUNNÁR ÞORSTEINSSON, Hrl. Sími 1535. ana. Fyrst þegar væntan- legt íþróttasvæði verður tekið til notkunar, með gras völlum og hlaupabraut, og nú með opnun þessarar laug ar, höfum vjer veitt íþrótta mönnum vorum góð skil- yrði til íþróttaiðkana, og þá fyrsl getum vjer vænst, að þeir verði jafn gildir bestu íþróttamönnum þessa lands. Þeir hafa þegar á íþrótta- mótum staðið sig mikið bet- ur en vjer hefðum getað vænst, þegar tekið er tillit til allra aðstæðna. Þegar sundlaugin var bygð, var hún að ráði íþróttamanna, höfð það löng, að hægt væri að fá staðfest í henni sund- met, og vonandi verða, þeg- ar tíma líða, sett í henni mörg met, að hafnfirskum íþróttamönnum. Þeir kostir, sem þessi laug hefir fram yfir flestar aðrar sundl. hjer á landi, er að hún er hituð sjólaug, og er óyfirbygð, svo sólar- ljósið getur leikið um sjó- inn í lauginni, og hlaðið hann ýmsum bætiefnum, er hafa undursamleg áhrif á heilsu manna. Þá er einnig gufubaðstofa þar sem hægt er að fá ís- lenskt gufubað, sem eru mjög holl, ef þau eru not'uð á rjettan hátt. „Reykvíkingar velkomnir“. Þó . að Hafnfirðingar fyrst og fremst hyggi gott til að njóta þeirra gæða, er þessi sundlaug veitir, þá er hún það stór, að gott rúm ætti að vera fyrir utanbæj- armenn, og þá fyrst og fremst bjóðurk' vjer Revk- víkinga velkomna, því í þeirra laug hafa margir Hafnfirðingar notið sund- kenslu og hollra ánægju- stunda, fyrst þegar Páll Er- lingsson, kendi í sundlaug- unum, og síðan hjá sonum hans í sundlaugunum og Sundhöllinni. Jeg vil svo að' lokum segja hátíð þessa setta, og bjóða yður aftur hjartan- lega velkomin.“ Á eftir setningarræðunni söng karlakórinn Þrestir 2 lög. ★ Sðan fluttu ræður G'uð- mundur Gissurarson bæjar- fulltrúi, formaður sundlaug arnefndar. Hallsteinn Hin- riksson þróttakennari. Guð mundur Kr. Guðmundsson, skrifstofustjóri. Þorsteinn Einarsson, þróttafulltrúi. Benedikt G. Waage, forseti í. S. í. Milli ræðanna sungu karlakórinn Þrestir, undir stjórn Friðriks Bjarnasonar tónskálds og lúðrasveitin Svanur ljek undir stjórn Árna Björnssonar. ★ Kl. 3,45 gengu menn til laugarinnar og var hún opn uð með því að nokkrar stúlkur og drengir köstuðu sjer til sunds í laugina. — Skoðaði fólk síðan laugina og mun það hafa verið um 2000 manns. Veður var hið fegursta, glaða sólskin og skemtu menn sjer hið besta. ★ Kl. 5 e. h. söfnuðust gest- ir sundlaugarnefndar sam- an á ,,Birninum“ til kaffi- drykkju. Þar fluttu ræður Hermann Guðmundsson, Sigurjón Pjetursson frá Ála fossi og gaf hann Álafoss- værðarvoð, sem átti að vera 1. verðlaun fyrir það barn, sem fengi flest stig í björg- unarsundi og lífgunartil- raunum við næsta vorpróf í lauginn. Þá töluðu þeir Erlingur Pálsson yfirlögregluþjónn, Guðm. Gissurarson, Þorleif ur Jónssons sem afhenti sundlaugarráði 500 krónur í peningum til þess að kaupa fyrir verðlaunagrip, fyrir öldungakepni, sem karlmenn 40 ára og eldri, ættu að keppa um. Þvrfti að vinna hann þrisvar í röð til að eignast hann. — Þá töluðu Bjarni Snæbjörns- son læknir, Þorsteinn Ein- arsson íþróttafulltrúi, Emil Jónsson vitamálastjóri og Bened. G. Waage, forseti í. S.í. Sundlaugarnefnd barst heillaóskaskeyti frá Bjarna Bjarnasyni sk’ólastjóra á Laugarvatni, en hann er eins og'kunnugt er, gamall íþróttafr'öúiuðúr frá Hafh- arfirðil óg hafði verið boÓ- inn á hátíðina, en gat því miður ekki mætt. Lýsing á sundlauginni. Kl. 7 var staðið upp frá borðum og hátíðinni slitið. Sundlaugin er sjólaug og er við Krosseyrarmalir í kvos suðvestan undir hraun brúninni. Sjónum er dælt í laugina með rafmagns- dælu, hitaður upp með kol- um og rafmagni og hreins- aður í fullkomnum hreins- Bnartækjum, sem Vjelsm. „Hamar“ hefir smíðað og sett upp. Laugarþróin sjálf er 25 X 8,5 metrar að stærð. Dýpt 90 cm. við grynnri enda og 3 m. við dýpri end- ann. Laugin er bygð fyrir fjár framlög úr bæjarsjóði og ríkissjóði. Ennfremur fyrir samskotafje frá fjelögum og almenningi. Bygging laug- arinnar hófst á árinu 1940, en seinkaði vegna vöntunar á nægum vinnukrafti og erfiðleikum með að fá efni. Undifbúning, fjársöfnun og umsjón með sundlaugar- byggingunni hefir sundlaug arnefndin haft á hendi, en hana skipa: Loftur Bjarna- son, frá skipstjóra- og stýri- mannafjelaginu Kári, Hall- steinn Hinriksson, frá barnaskóla Hafnarfjarðar, Grímur Kr. Andrjesson, frá V. M. F. Hlíf. Jóngeir Da- víðsson frá sjómannafjelag- inu, Hermann Guðmunds- son, frá íþróttafjelögunum, Guðmundur Gissurarson, frá Hafnarfjarðarbæ, og er hann formaður nefndarinn- ar. Ennfremur fól bæjar- stjórn Hafnarfjarðar við síð ustu áramót þeim bæjarfull trúnunum, Ásgeir G. Stef- ánssyni, Lofti Bjarnasyni og Guðmundi Gissurarsyni, að sjá um daglegar fram- kvæmdir verksins fyrir hönd bæjarstjórnar, þareð bæjarsjóður ásamt ríkis- sjóði kostaði þá orðið bygg- inguna að mestu leyti. Ger& og • fyrirkomulag sundlaugarbyggingarinnar var ákveðið í samráði við húsameistara ríkisins, í- þróttafullj;rúa og íþrótta- nefnd ríkisins, og annaðist húsameistari teikningar og hafði yfirumsjón með verk- inu. Benedikt Gröndal ann- aðist teikningu hitalagna og hreinsunartækja. Valgard Thoroddsen teiknaði raf- lagnir. Verslunin Ljósafoss útbjó gufubaðstækin. Trje- smíðameistari var Tryggvi Stefánsson, múrarameistari var Ingólfur Stefánsson, uppsetningu hreinsunar- tækja, hitunartækja fvrir laugina og dælur, annaðist vjelsmiðjan Hamar, Bror Westerlund lagði miðstöð í bygginguna og hreinlæta- tækin, Böðvar Grímsson dnnaðistfraflaghir. : Ásþeir Einarsson hafðí á hendi um sjón með málingu. Grmur Kr. Andrjesson var verk- stjóri við gröft og hefir unn- ið við bygginguna frá byrj- un. Sundlaugin verður rekin af Hafnarfjarðarbæ og hefst kensla þar bæði fyrir skóla- börn og almenning nú þeg- ar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.