Morgunblaðið - 14.12.1943, Blaðsíða 1
30. árgangur
283. tbl. — Þriðjudagur 14. desember 1943
Isafoldarprentsmiðja h.f.
LTGERÐARMEIMN OG SJÓMEIMIM
ATTABRJÁLÆÐIIMU
Altundi herinrírasiíÉ'is?
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
ATTUNDI herinn hefir enn
íUnnið á meðfram Adriahafs-
ströndinni, en bardagar hafa,
yerið heldur minni en und-
anfarna daga. Er aðallega
barist fyrir norðan veginn,
sem liggur milli Ortona og
Orzoina, og er það mjög þýð-
ingarmikið fyrir saingöngur
áttunda hersins að hafa náð
þessum vegi. Kanadahermenn
náðu um þessar slóðir hæð
einni, sem var snarplega bar-
ist um.
Á vígstöðvum fimta hersins
hafa engar breytingar orðið,
og vinnur herinn enn að því
að tryggja aðstöðu sína í ný-
unnum stöðvum. Þjóðverjar
gerðu nokkur gagnáhlaup á
einum stað, en þeim var hrund'
ið. Var það skamt frá v-gein-
um til Róm.
Yeður hafa verið fremur
slæm og hafa stórar sprengju-
flug'vjelar orðið að halda
kyrru fyrir. En meðalstórar
flugvjelar og orustUflugvjel-
ar hafa gert árásir á stöðvar
Þjóðverja, og orustuflugvjel-
ar Þjóðverja hafa látið nokk-
uð meira til sín taka, en að
undanfornu. —
London í gærkveldi.
Allmargir brasiliskir liðs-
foringjar eru komnir tl Norð
ur-Afríku, og £r sagt, að ]ieir
sjeu þangað komnir til þess að
undirbúa komu mikils hers
Brasiliumanna til landanna
við Miðjarðarhafið. Eigi er
enn kunnugt, hverju hlutverki
her þessi á að gegna. Brásiliu
menn hafa aldrei fyr sent her
austur um Atlantshaf, og' er
talið að her þessi verði afar
fjölmennur, sumir telja hann
munu verða alt að 400.000
manns, en á því hefir engin
staðfesting' fengist enn sem|
komið er. -— Reuter.
Kalbálar við Síberíu
ÞÝSKA frjettastofan hefir
þær fregnir að færa í kvöld,.
að þýskir kafbátar hei’.ji nú
á siglingaleiðum Rússa við
strendur Siberíu og hafa þegar
einu lcafbáturinn sökt, skipum
sem voru 9000 smálesir að
stærð. Segir frjettastofan að
hernaður þarna norður frá
sje mikil þolraun, vegna ill-
viðra, kulda og ísreks.
Reuter.
Rússar hafo byrjað
gagnsókn við Kiev
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá-Reuter.
RÚSSAR hafa unnið aftur
nokkurt landsvæði í gagnsókn
þeirri, er þeir hafa byrjað fyr-
ir vestan Kiev, og eru orustur
þar með fádæmum harðar.
Hafa Þjóðverjar viðurkent, að
þeir hafi orðið að hopa nokkuð
fyrir Rússum þarna. Báðir að-
ilar beita nú flugherjum sín-
um mjög mikið, og eru loftor-
Ustur háðar allan daginn. Þjóð-
verjar segja, að Rússar tefli
fram nýju liði og óþreyttu og
sje sóknin með eindæmum hörð,
en eins og kunnugt er, hafa
það verið Þjóðverjar, sem ver-
ið hafa í sókn á þessum slóðum
að undanförnu. Það er fyrir
suðvestan bæinn Malin, sem
harðast er nú barist.
Þjóðverjar greina einnig frá
hörðum varnarorustum fyrir
suðvestan Kremenchug og einn
ig hjá Cherkassi. Ennfremur
segjast þeir hafa gert nokkur
vel hepnuð áhlaup fyrir sunn-
an Ilmenvatn.
Rússar segja í tilkynningu
sinni, að þeim hafi orðið nokk-
uð ágéngt við Kirovograd, og
nálgist nú þá borg hægt og síg-
andi. Fyrir suðvestan Kremen-
chug telja þeir sig hafa tekið
nokkur steinsteypuvirki af
Þjóðverjum. Alls segjast Rúss-
ar í gær hafa eyðilagt 35 skrið-
dreka og 24 flugvjelar þýskar.
SÓKN Á HUAN-
SKAGA.
Londop í gærkveldi. - Ástralíu
menn halda áfram sókn sinni
á Huanskaganum, eftir töku
virkisins Vairo, og verður all-
vél ágengt. Sækja þeir nú
fram um frumskóga, áleiðis að
næsta virki Japana. — Reuter.
Senda Alþingi rök-
studd álit
ÚTGERÐARMENN OG SJÓMENN hafa sent Alþingi
mótmæli gegn skattafrumvörpum „vinstri" flokkanna. —
Fjelag ísl. botnvörpuskipaeigenda og stjórn Formanna-
og fiskimannasambands íslands hafa sent þinginu rök-
studdar álitsgerðir um þessi mál og birtast mótmæb út-
gerðarmanna hjer, en sjómanna í blaðinu á morgun.
MOTMÆLI UTGERÐ-
ARMANNA.
Á almennum fundi í Fjelagi
ísl. botnvörpuskipaeigenda,
sem haldinn var í dag, var sam
þykt í einu hljóði að mótmæla
harðlega frumvarpi því um
eignaraukaskatt, sem nð liggur
fyrir Alþingi, og ennfremur á-
kvæðum 1. gr. frumvarps til
laga um breytingu á lögum um
tekju- og eignaskatt, eins og
það nú liggur fyrir eftir 3. umr.
í Nd.. en ákvæði 1. gr. þessa
frumvarps miða að því, að tak-
marka . rjett útgerðarfyrir-
tækja, ennþá meira en hingað
til, um framlag í nýbyggingar-
og varasjóði.
Fyrir þessari áskorun vorri
leyfum vjer oss að færa eftir-
taldar ástæður:
Með frumvarpinu um eign-
araukaskatt er farið inn á nýja
braut í skattamálum, hreint og
beint eignarán, þar sem gert er
ráð fyrir að taka til ríkisins 20
til 30% af eignaaukningu yfir
100 þúsund krónur á tímabil-
inu 1940 til 1943, að báðum ár-
um meðtöldum.
Teljum 'vjer slíka lagasetn-
ingu tvímælalaust brot á
stjórnarskránni.
Það er viðurkent í sameigin-
legu áliti milliþinganefndar í
skattamálum, árið 1943, að í
Reykjavík komi 2/3 hlutar
eignaraukaskattsins niður á út-
gerðinni, og færi svo, að skatt-
urinn yrði lagður á og útgerð-
arfyrirtækin dæmd til að greiða
hann, þó er ekki til annara fjár
muna að taka, til greiðslu ó
skattinum, en varasjóði útgerð
arfyrirtækjanna.
Það er vitanlegt, að varasjóð
ir útgerðarfyrirtækjanna eru
þau verðmæti, sem fólgin eru
í eignum fyrirtækjanna, skip-
um, fasteignum, fiskverkunar-
stöðvum, verksmiðjum, ýmis-
konar vörubirgðum o. s. frv., en
varasjóðirnir eru að mjög litlu
leyti handbært fje.
Af þessu leiðir, að útgerðar-
fyrirtækin yrðu annaðhvort að
.selja eignir sínar eða að taka
'lán, ef það fengist, til greiðslu
á eignaraukaskattinum. Sala á
eignum útgerðarfyrirtækjanna
myndi undir ýmsum kringum-
Framh. á 2. siðu.
Clark fær heiðurs-
merki
Mark Clark
hershöfðingi.
Fregii frá Norður-Afríku
hermir, að Roosevelt forseti
hafi nýlega sænit Clark 'hers-
höfðingja. stjórnanda fimta
hersins, háu hgiðursmerki fyr-
ir framúrskarandi frækilega
framgöngu og snjalla her-
stjórn í orustunni við Salerno.
Var Clark þar oft í fremstu
víglínu, er ástandið var senr
hættulegast og gaf mönnum
sínum gott fordæmi.
41 málverk hafa selsl
hjá Jóni Engilberfs
MÁLVERKASÝNING Jóns
Engilberts hefir nú verið opin
í 5 daga og hafa selst hjá hon-
um 41 málverk, en um 100 sýn-
ingargestir hafa skoðað sýning-
una. ^
Meðal gesta á sýningunni
hafa verið Sveinn Björnsson
ríkisstjóri og ríkisstjórafrúin,
de Fontenay sendiherra og frú,
alþingismenn og margir aðrar
forystumenn þjóðarinnar. Sýn-
ingin er opin daglega frá kl. 1
—10.
Ráðist á Norðveslur-
Þýskaland
London í gærkveldi.
Amerísk flukvirki og Lib-
erator-sprengjuflugvjelar
gerðu árás á staði í norðvest-
ur Þýskalandi í gær björtu,
fylgdu orustuflugvjelar þeim.
Varnir voru harðar, og skutu
amerísku fiugvjelamar niður
15 þýskar orustuflugvjelar,
en 9 amerískar komu ekki aft
ur, bæði úr þessarri fcrð og
prásinni á Shipkol-flugvöll-
inn við Amsterdam. Voru 5
af flugvjelunum sem fórust,
stórar.
Þjóðverjar segja mauntjón
allmikið af árásinni í dag, en,
mótmæla opinberlega, að þeir
hafi mist 138 orustuflugvjel
ar í árásinni á Emnden á
laugardag. Segjast hafa mist
15. — Reuter.
I , ♦
Særðum manni
varpað úr flugvjel
London í gærkveldi.
í ÁRÁS amerískra flug-
virkja á Hannover fyrir all-
löngu síðan, rjeðust þýskar or-
ustuflugvjelar á eitt flugvirk-
ið með þeim árangri, að einn
af áhöfninni fjell, en handlegg-
urinn fór af öðrum uppi við
öxl, og voru ekki tök á að binda
I um sárið með þeim útbúnaði,
; sem í flugvjelinni var, nema
aðeins rjett til bráðabirgða. Tók
þá flugforinginn það ráð, að
varpa manninum útbyrðis í
fallhlíf, ef vera mætti, að Þjóð-
verjar kynnu að bjarga hon-
um, og hjelt flugvjelin síðan á-
fram til árásarinnar.
Nú hafa borist fregnir um
það, að manninum var í raun
og veru bjargað og er hann nú
fangi í Þýskalandi og líður vel.
— Reuter.
Rooseveil heim-
sækir Sikiley
London í gærkveldi.
Roosevelt foi'lueti hefir kom-
ið við í Sikiley og litast þai-
um. Ilaun vaí meðal annars
viðstaddur hersýningu her-
deildar, sem þörðust á Sikil-
ey. Einnig afhenti hann 6;
heiðursmerki, . og var einn
þeirra Clark, hershöfðingi
fimta hersins. Hlutu þessir
menn „Heiðursmerkið fyrir
frábæra þjónustu". — Reuter.
MANNTJÓN í BRET-
LANDI í NÓV.
London í gærkveldi. — Tilkynt
hefir verið í Bretlandi, að
manntjón þar í landi af völd-
um loftárása í nóvember hafi
numið 119 manns látnum, en
238 særðum. — Reuter.