Morgunblaðið - 05.03.1944, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.03.1944, Blaðsíða 1
I >» 'nfiii Dagárás f lugvirkja á Berlí Einnig ráðistá Austur- Þýskaland London í gærkvöldi. — Eiiíkasktyti til Morg- unblaðsins frá Reuter. Tilkynt hefir verið frá aðalstöðvum ameríska flughers- ins í Englandi, að amerískar sprengjuflugvjelar hefðu ráðist á skotmörk í Austur-Þýskalandi. Einn hópur flug- vjelanna rjeðist á skotmörk í Berlín. Árásirnar voru gerð- ar í mjög erfiðu veðri. Þýska frjettastofan segir í þessu sambandi, að amerísk- ar flugvjelar hafi gert árás á Berlín. Er þetta fyrsta árás amerískra sprengjuflugvjela á höfuðborg Þýskalands. Segja hinar þýsku fregnir, að nokkrum sprengjuflugvjelum hafi tekist að komast gegnum ■varnir Berlínarborgar, en þær hafi ekki verið nema fáar, og sprengjunum hafi verið varp- að áf handahófi á borgina. Segjast Þjóðverjar hafa skotið niður allmargar flugvjelanna með löftvarnabyssum. Banda- ríkjamenn tilkynna að 14 sprengjuflugvjelar og 26 or- ustuflugvjelar hafi farist. Fregnritarar á Bretlandseyj- um segja, að sjaldan hafi sjest eins mikill fjöldi flugvjela fljúga yfir Ermarsund og í dag. Byrjuðu flugvjelaflokkarnir að fara yfir sundið þegar eftir dög un, og voru að koma og fara þar til alt fram undir kvöld. Þýska frjettastofan hefir til- kynt, að nýtt kerfi verði fram- vegis notað til þess að tilkynna komu óvinaflugvjela inn yfir Þýskaland. Verður þá útvarp- að stefnu flugvjelanna á hverj- um tíma, sagt frá fjölda þeirra og hvert þær stefna, þannig að fólk geti fyrr komist í loft- varnabyrgi, ef það frjettir af útvarpinu ,^að flugvjelarnar stefndu á borg þá er það á heima í. London í gærkveldi. Flugvjel ar bandamanna hafa gert árás- ir á járnbrautarstöðvar í Róma borg, og hefir páfinn mótmælt árásum þessum, þar sem í þeim fórst fólk frá Páfaríkinu. Engar breytingar hafa orðið á neinum hlutum Ítalíuvígstöðv anna í dag eða í gær, enda hafa veður heldur farið versnandi á Anziossvæðinu. Gerðu Þjóðverj ar aðeins eitt smávægilegt á- hlaup þar um slóðir. I rústum Cassino hefir nú verið barist í mánuð, og hafa þar engar breytingar orðið — Annars eru nú allar ár í svo miklum vexti og flóð hvarvetna slík á suðurhluta Italíuvígstöðv anna, að varla er hægt að heyja þar nokkra bardaga, sem stend ur. — Reuter. Sprengjukast LONDON —: Sjö sprengjur sprungu næfri innflytjenda- skrifstofunum í Jerúsalem kvöld eitt fyrir skemstu. All- miklar skemdir urðu, en manntjón ekkert, svo getið sje. Myndin hjer að ofan sýnir stefnið á Bandaríkjabeitiskip- inu Duluth, sem nýlega var hleypt af stokkunum, og er það rennilcgt, enda verður skipið mjög hraðskreitt. Þetta er sjötta skipið, sem hieypt er af stokk- unum á þessum sama stað, sið- an Bandaríkin fóru í stríðið. RáSterw fyrir rjclti London í gærkveldi. FYRVERANDI innanríkis- ráðherra Vichystj órnarinnar, Pucheu að nafni, var leiddur fyrir rjett í Algiers í dag, á- kærður fyrir að hafa látið fang elsa og taka af lífi fjölda landa sinna, meðan hann gegndi em- bætti, einnig fyrir að hafa myndað lögreglulið með þýslt- um hætti. Níu Norðmenn líflátnir Frá norska blaðafulltrúan- um: Undanfarna daga hafa als 9 Norðmenn verið dæmdir til dauða og teknir af lífi af Þjóð- verjum, en allmargir voru við sama tækifæri dæmdir til langr ar fangelsisvistar. Hinir líflátnu eru þessir: J. D. Sömme, magister, fæddur í Valdres árið 1898. Var honum gefið að sök að hafa starfað fyrir óvinaríki, þar sem hann í meira en tvö ár hefði komið fregnum frá Noregi til breskra yfirvalda. O. Brönnum, fæddur í Sandar við Sandefjord 1907. Hann var dæmdur til dauða vegna þess að hann reyndi að flýja land, og einnig vegna þess að hann hefir haldið áfram kommúnist- iskri starfsemi eftir að Þjóðverj ar bönnuðu alla stjórnmála- flokka í Noregi árið 1940. Ter- boven neitaði að náða þessa Framh. á 8. síðu. Pucheu sagði fyrir rjettin- um, að hann viðurkendi ekki g'ildi málssóknar af öðrum op- inberum aðilum en Vichy- stjórninni. Hvað ákærunum gegn honum viðvjek, sagði Puchcu, að mikið ímyndunar- afl þyrfti til þess að ljúga upp slíkum fjclda af glæpum. Skipafjelög taka upp flugferðir. LONDON —: Allmörg bresk skipafjelög, þar á meðal hið þekta Cunard-eimskipafjelag, hafa íengið leyfi til þess að hafa flugsamgöngur eftir strið, og þá einnig til þess að bygg'ja flugvelli og setja á stofn flug- vjelaverksmiðjur. — Reuter. Mokafli i Vest- mannaeyjum Frá frjettaritara vorum í Vestmannaeyjum. VIKUNA sem leið var róið alla daga vikunnar, að undan- teknum miðvikudeginum, en þá varð ekki á sjó komist vegna frosthörku og norðanroks. Afli hefir verið mjög góður, en náði þó hámarki á föstudaginn, er hæstu bátar fengu um 20 tonn og sumir bátar urðu að hausa fiskinn jafnóðum, og dregin var línan, til þess að koma sem mestu fyrir og urðu þó að skilja eftir af siðustu bjóðunum. Afli hjá togbátum hefir að undan- förnu heldur tregur, en bátar, sem komu inn í morgun, voru með heldur góðan afla. Klukkunni var flýll í nólt MUNDUÐ þjer eftir að flýta klukkunni í nótt. Klukkan 1 í nótt átti að flytja klukkuna fram um eina klukkustund, svo hún yrði tvö. Hafið þjer gleymt þessu í nótt, skuluð þjer færa klukkuna fram um eina klukku stund nú þegar. Sonur Harry Hopkins fallinn. WASHINGTON —: Roose- velt forseti varð fyrir nokkru að tilkynna vini sínum og per- sónulegum ráðgjafa, Harry Hopkins, að sonur hans, Step- hen, 18 ára að aldri, hefði fall- ið í orustu á Marshalleyjum. — Stephen var yngstur af þrem sonum Hopkins af fyrra hjóna- bandi. Hinir tveir eru einnig báðir í stríðinu. Atþingi samþykkir að senda hinum Norðurlöndunum bróðurkveðju SKILNAÐARNEFND flytur í sameinuðu Alþingi tillögu til Þingsályktunar um þátttöku Is- lands í norrænni samvinnu. Þingsályktunartillagan er svohljóðandi: ,,Um leið og Alþingi gerir ráðstafanir til þess, að aldagöm ul frelsishugsjón þjóðarinnar um stofnun íslensks lýðveldis rætist, ályktar þingið: að senda hinum Norðurlanda þjóðunum bróðurkveðjur og óska þeim frelsis og farsældar og að lýsa yfir því, að það telur sjálfsagt, að íslenska þjóðin kappkosti að halda hinum fornu frændsemis- og menningarbönd um, er tengt hafa saman þjóðir Norðurlanda, enda er það vilji íslendinga að eiga þátt í nor- rænni samvinnu að ófriði lokn- um“. Verkföli á Norður- Íialíu London í gærkveldi. Fregnir frá Sviss herma í kvöld, að flutningaverkamenn víðsvegar um Norður-Italíu, einkum í Milano, hafi lagt nið- ur vinnu, og valdi þetta Þjóð- verjum allmiklum erfiðleikum. Þýskar fregnir segja í þessu sambandi, að þýskar hersveitir, varðsveitir fasista og hermenn úr hinum nýstofnaða her Musso linis, hafi tekið samgöngutækin í sínar hendur, þar sem verk- föllin sjeu háð. — Reuter. Varnir Þjóðverja harðna frá Narva til Vitebsk London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. Varnir Þjóðverja fara nú hraðnandi alt frá Narvasvæð- inu niður til Vitebsk, og segja Rússar ekki frá eins hraðri framsókn um þessar slóðir, eins og að undanförnu. Við Narva segjast Rússar aðeins hafa hald ið uppi sóknarorustum í þeim tilgangi að víkka landssvæði sitt fyrir vestan ána, en Þjóð- verjar segja að þýskar hersveit ir, studdar hollenskum, eist- lenskum, norskum og dönskum S. S.-sveitum, hafi hrundið öll- um áhlaupum Rússa þarna í hörðum bardögum. Þá segjast Rússar hafa átt í hörðum bardögum fyrir aust- an Ostrov og geta ekki að þessu sinni um orustur á Pskovsvæð- inu, en þar segja Þjóðverjar bardaga hafa minkað mjög að undanförnu. í fyrsta skifti um langan tíma Framh. á 8. síðu. í.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.