Morgunblaðið - 09.03.1944, Blaðsíða 1
1
LÝÐVELDISSTJÓRIMRSKRÁIN SAMÞYKT
EINRÓMA Á ALÞINGI
Alþingi
frestað
á morgnn
ALÞINGI verður sennilega
frestað á morgun (föstudag).
Fundur er boðaður 1 Ed. á
venjulegum tíma í dag og eru
þar mörg mál á dagskrá. Ekki
hefir enn verið boðaður fund-
ur í Nd.; er beðið eftir úrslit-
um mála í Ed.
Eftir er að ræða ýmsar til-
lögur, sem liggja fyrir samein-
uðu þingi, en fundur ekki boð-
aður þar ennþá. Verði tími til,
verður fundur í Sþ. síðdegis í
dag; ánnars ekki fyr en á
morgun.
PoloSsk
London í gærkveldi.
í TILKYNNINGU sinni í
kvöld segja Rússar, að þeir
hafi haldið áfram sókn sinni
vestur af Schepetovka og tekið
þar bæinn Kamenetsk-Fol-
otsk, en hann er rjett við rúm-
I ensku landamærin.
Einnig
Bretar fylgja dætni
Bandaríkjamanna
• EDEN, utanríkisráðherra
Breta, var í dag spurður um
afstöðu bresku stjórnarinnar
til hinnar nýju stjórnar Farrols
Argentínuforseta. Sagði Eden,
að síðan Ramirez hefði látið af
forsetatign, hefðu Bretar ekki
staðið i neinu sambandi við
Argentínustjórn, nema um
minniháttar, dagleg mál, og
myndu fylgja dærni Bandaríkja
manna á þessu sviði, en ástand
ið væri mjög óljóst. — Reuter.
segjast Rússar hafa tekið bæinn
Cherny-Ostrov, en hann er
nokkru norðar.
Fregnritarar í Moskva segja,
að gagnáhlaup Þjóðverja á þess
um slóðum hafi stöðugt farið
harðnandi í dag, og bardagar
verið ofsalegir. Virðist svo,
sem Mannstein marskálkur
ætli að gera alt sem hann get-
ur, til þess að stöðva sókn
Rússa þarna.
Þjóðverjar ræða um harða
sókn Rússa á því nær öllum
suðurvígstöðvunum, bæði við
Krivoi-Rog, Kirovograd og
Svenigorodka, svo út lítur fyr-
ir að Rússar ætli að hefja meg-
insókn gegn öllum suðurvíg-
stöðvum Þjóðverja. — Rússar
hafa náð enn meiru af Oaessa-
Lwow járnbrautinni á sitt
vald.
Þjóðverjar segja enn frá
bardögum norður við Narva,
og einnig á veginum frá Smo-
lensk til Orsha.
3000 flugvjelar börð
ust yfir Berlín
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Mbl.
EKKI hefir enn verið tilkynt,
hve margar þýskar orustuflug-
vjelar hafi verið skotnar niður
yfir Þýskalandi í hinni stór-
feldu árás Bandaríkjaflugvjela
á úthverfi Berlínar í dag, en
Þjóðverjar segjast hafa grand-
að um 70 amerískum flugvjel-
um. — Álitið er, að 3000 flug-
vjelar hafi barist yfir Berlín
í dag.
\ Sprengjuflugvjelum Banda-
ríkjamanna, sem voru færri en
á mánudaginn, fylgdu um 1000
orustuflugvjelar, bæði amer-
ískar og breskar. Þjóðverjar
greina frá miklum loforustum,
sem geisað hafi alla þá leið, er
árásarflugvjelarnar fóru.
i í nótt sem leið, fóru bresk-
ar sprengjuflugvjelar til árásar
á miklar járnbrautarstöðvar í
Frakklandi og komu aftur all-
ar með tölu. Járnbrautarstöðv-
arnar munu hafa orðið fyrir
miklu tjóni af sprengjum og
eldi.
I dag rjeðust amerískar Mar-
auderflugvjelar og breskar or-
ustu og sprengjuflugvjelar á
flugvelli i Hollandi og hinar
margumræddu herstöðvar í N.-
Frakklandi.
Engin flugvjel fórst.
Bandaríkjamenn hafa til-
kynt, að orustuflugvjelar
þeirra hafi eyðilagt 83 þýskar
orustuflugvjelar, en mist 11
sjálfir. Ekki er vitað, hve marg
ar orustuflugvjelar flugvirkin
skutu niður, en af þeim vant-
ar 38. Sagt er, að árásinni hafi
einkum verið beint gegn kúlu-
leguverksmiðju einni í úthverf-
um Berlínar og framleiði hún
meirihluta af þeim kúlulegum,
sem Þjóðverjar búa til. Ekki
hefir þessarar ’ kúluleguverk-
smiðju í Berlín fyrr verið get-
ið. —
Eflirmaður Monf-
SÁ, SEM tók við stjórn hins
fræga áttunda hers, er Montgo-
mery fór til Bretlands að hugsa
um innrás, sjest hjer á mynd-
inni að ofan. Nafn hans er Oliver
Leese og barðist hann með átt-
unda hernum bæði í Afríku og á
Sikiley. Stjórnaði hann einni
deild hans í þeim viðureignum.
Finnar nera
Frá norska blaða-
fulltrúanum:
FREGNIR frá Stokkhólmi
herma, að Finnar hafi sent
menn til Moskva, og býst
breska blaðið ,,Times“ við því,
að þessir menn fari til þess að
gera fyrirspurnir um ýmislegt
viðvíkjandi friðarskilmálum
Rússa. Yms sænsk blöð láta svo
um mælt, að óskandi væri, að
saman drægi með Finnum og
Rússum.
Eldspúandi flugvjelar.
London: — Eftir því sem
japönsk blöð segja, eru banda-
menn teknir að nota flugvjel-
ar, sem útbúnar eru með eld-
slöngum. Að því er blöðin segja
eru þessar flugvjelar notaðar
yfir Kyrrahafi. Þetta er nokkuð
ótrúlegt, því ekki er gott að
giska á það, hvaðan helst væri
hægt að spúa eldi úr flugvjel
á flugi.
Neðri deild gekk
inn á breytingu
efri deildar
LYÐVELDISSTJÓRNARSKRÁIN var samþykt til
fullnustu í neðri deild Alþingis í gær með samhljóða at-
kvæðum allra viðstaddra deildarmanna, alls 33 þing-
mönnum; en tveir þingmenn voru f jarverandi. Neðri deild
samþykti stjórnarskrána óbreytta, eins og efri deild hafði
gengið frá henni.
Hefir þá niðurstaðan orðið sú, að Alþingi stendur sem
einn maður að samþykt lýðveldisstjórnarskrárinnar. Eru
þetta mikil og gleðileg tíðindi, sem gefur fyrirheit um
samstilta og einhuga þjóð á úrslitastund sjálfstæðisbar-
áttunnar. Því að þess er vænta, að þjóðin sýni sömu ein-
ingu í málinu og ríkti á Alþingi.
„Stðlin fær
ekki kristilegf
fordæmi"
London í gærkvöldi. —
Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
BRUNTISFIELD lávarður
taldi að sumar setningar í
ræðu friðarsinnans hertogans af
Bedford, gengju landráðum
næst, er hann svaraði ræðunni
í lávarðadeildinni í dag. Voru
umræðurnar um fascismann.
Bedford sagði, að fasisminn,
sem Bretar væru að reyna að
ganga milli bols og höfuðs á
í öðrum löndum, væri einnig í
Bretlandi, og valdamikill, eins
og sæist á því, að hægt væri
að skylda menn til hernaðar og
vinnu, gera eigur manna upp-
tækar fyrir ríkið, og' setja menn
í fangelsi án rannsóknar og
dóms.
Hertog'inn sagði, að Stalin
sæi, að Bretar lifðu ekki á frið-
artimum samkvæmt hugsjón-
um sínum á ófriðartímum, og
fyndist honum hann því ekki
hafa neina ástæðu til þess að
hafa samvisku af örlögum smá
þjóðanna. ,,Hann tileinkar sjer
ekki hinar kristnu hugsjónir“,
sagði hertoginn, ,,og Bretar og
Bandaríkjamenn, sem hefðu átt
að gefa honum fordæmið að
því er -snerti göfuga framkomu
og háleitar grundvallarreglur,
en þetta hefir þeim láðst að
! gera.“
Brúntisfield svaraði á þá leið
að ekki einungis væri slík
j ræða algerlega ósæmileg, held
iur nálgaðist landráð.
Síðasta meðferð málsins
á Alþingi.
Lýðveldisstjórnarskráin var
á dagskrá neðri deildar í gær
og var það ein umræða.
Eins og frá hefir verið skýrt
áður, gerði Ed. breytingu á 26.
gr. frumvarpsins (varðandi
synjunarvald forsetans). —
Færði Ed. greinina í sama horf
og milliþinganefndin gekk frá
henni, þannig að lagafrumvarp
sem forseti synjar staðfesting-
ar og skotið er undir þjóðar-
atkvæði, öðlast strax lagagildi;
en lögin falla úr gildi, ef meiri
hluti kjósenda snýst gegn lög-
unum. Vegna þessarar breyt-
ingar þurfti málið að fara aft-
ur til Nd.
Þrjár breytingartillögur komu
fram við 26. gr., við lokaaf-
greiðslu málsins í Nd. í gær.
Ein breytingartillagan var
frá forsætisráðherra, hin sama
og hann flutti við fyrri með-
ferð málsins í deildinni og sem
náði þá samþykki með 19.11
atkv. Samkvæmt tillögu for-
sætisráðherra skyldi lagafrum-
varp, er forseti synjaði stað-
festingar fyrst öðlast gildi, er
þjóðin hefði goldið því já-
kvæði.
Önnur brtt. var frá Jakob
Möller, þess efnis, að forseti
skyldi hafa nákvæmlega sama
synjunarvald og konungur
hafði (þ. e. algert synjunar-
vald), en burtu felt ákvæðið
um málskot til þjóðarinnar.
Þriðja brtt. var frá J. Pálma-
syni og Jóh. Jósefssyni, þess
efnis, að lagafrv. er forseti
synjar staðfestingar skyldi lagt
fyrir sameinað Alþingi og ef %
þingmanna samþyktu frv.,
skyldi það öðlast lagagildi. •—
Hjer var þvi ekkert málskot til
þjóðarinnar.
Framh. á 2. síðu.