Morgunblaðið - 11.03.1944, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.03.1944, Blaðsíða 1
31. árgangur. 56. tbl. — Laugaxdagur 11. marz 1944 Ísafoldarprentsmíðja h.f. Kröfur um lokun þýskra og japanskra stofnana London í gærkveldi. i Bandaríkjastjórn hefir bor- • ið iram .við írsku stjórnina mjög ákveðin tilmæli þess j efnis, að hún láti loka ræð- ' ismannsskrifstofum Þjóð- . verja í Dublin og einnig . skrifstofum sendifulltrúa . Japana þar. Ekki er vitað hvað írska stjórnin gerir, en fuilvíst er talið, að Bretar muni styðja þessar mála- leitanir Bandaríkjamanna. Fregnritarar telja, að þetta sje gert vegna þess. að nú fari að líða að því, að inn - rásin verði gerð, og muni Þjóðverjum síður berast njósnir um hana, sje fyrr- nefndum stofnunum lokað. —Reuter. Verkfalismönnum við bresku nám- urnar London í gærkveldi. NOKKUÐ hefir verkfalls- mönnum í kolanámuverkfall- inu fjölgað enn, sjerstaklega í Skotlandi. Er talið, að vegna verkfallsins tapist kolafram- leiðslumagn, sem svarar um hálfri miljón smálesta á dag. Viðræður fara stöðugt fram milli stjórnarinnar og fulltrúa námumanna og mun stjórnin gera tilboð um kauphækkun bráðlega, og skuli hækkunin, sem þar er gerð, gilda þar til frekari samningar eru gerðir, en námumenn hverfa þegar til vinnu. — Reuter. Rússar í sókn á öllum Suðurvígstöðvunum Taka Uman, berjast í Tarnopol Rússlandsvígstöðvarnar Verðlaunabikar til skíðakeppni VÁTRYGGINGARSKRIF- STOFA Sigfúsar Sighvatssonar hefir gefið silfurbikar til þess að keppa um á skíðamóti ReykjaVíkur. Bikarinn heitir Laugarhólsbikarinn eftir staðn um, þar sem skíðaskáli Iþrótta fjelags kvenna stendur. Verð- ur kept um hann í svigi kvenna og vinnur hann sú fjelagssveit með þrem keppendum, er nær skemstum rástíma samanlagt. Verður kept um bikarinn í fyrsta sinn á sunnudaginn, en til þess að vinna bikarinn til eignar þarf að vinna hann þrisvar sinnum í röð eða fimm sinnum alls. Breyting á öldu- lengd íslenska út- varpsíns frá London SÚ BREYTING'verður gerð á íslenska útvarpinu frá Lond- on á sunnudögum, að varpað verður út á öldulengd 25.15 metrum frá 19. mars að telja, en áður hefir verið útvarpað á 31 metra. Á sunnudaginn kemur verð- ur útvarpað á 31 metra í síð- asta sinn, þar til öðruvísi kann að verða ákveðið. Frá London verður nú útvarpað kl. 3.15— 3.30 eftir íslenskum tíma, vegna þess að klukkunni hefir verið flýtt um eina klukku- stund hjer á landi. Giftar konur kenn- arar í London í gærkveldi. SAMÞYKT var í breska þing- inu í gær, að kenslukonum skyldi heimilt að halda áfram kenslu, þótt þær giftust, en svo hefir ekki verið áður. Urðu um þetta miklar umræður, og sögðu margir þingmenn, að það væri ekki allskostar heppi legt fyrirkomulag, að „pipar- meyjar einar önnuðust kenslu, einkanlega þar kem svo margir piparsveinar gegndu kenslu í enskum skólum“. — Reuter. London í gærkvöldi. — Einkaskiyti til Morg- unblaðsins frá Router. RÚSSAR eru nú í sókn á öllum suðurhluta Austurvíg- stöðvanna, frá Shepetovka og suður að Nikolajev við Svartahaf, að því er tilkynt var í Moskva í gærkvöldi. Gaf Stalin út dagskipan þess efnis, að herir Rússa á Mið- Dnieprersvæðinu, þeir er Koniev marskálkur stjórnar, hefðu nú einnig býrjað sókn, og tekið bæinn Uman, en Þjóðverjar kváðust hafa yfirgefið hann í bardögum í gær. Á syðsta hluta Dniepre- bugsins sækja hersveitir Mereskovskis hershöfðingja fram, og kveður tilkynning Rússa þær hafa ná enn all- miklu landrými á sitt vald í gær, og nálgast Nikola- jevsk við Svartahaf. Segja Þjóðverjar að gífurlega harðir bardagar sjeu háðir á þessum hiuta vígstöðv- anna. Þjóðverjar hafa nokkra undanfarna daga greint frá áhlaupum Rússa á þeirn slóðum, þar sem sókn Koni- evs er nú tilkynt. Segjast þeir eiga þar í mikilli varn- arbaráttu og hafa orðið að yfirgefa Uman. — Rússar segjast hafa tekið af Þióð- verjum óhemju kynstur her gagna á þessum slóðum. Herir Zukovs eru einnig sagðir sækja fram, þó hæg- ar en áður og er enn barist í Tarnopol, og skiftast þar á áhlaup og gagnáhlaup á göt um bæjarins. Nokkur þorp segjast Rússar hafa tekið um þessar slóðir. Norðar er yfirleitt ekki mikið barist, þannig berast engar fregnir um áframhald andi bardaga á Narvasvæð- inu, en nokkurar viðureign- ir eru enn háðar hjá Pskov, þótt mikið hafi úr þeim dregið. LofSárás á Tallinn London í gærkveldi. RUSSNESKAR aprengjuflug vjelar gerðu í nótt sem leið mikla árás á Tallin (Reval) höfuðborg Eistlands. Sagt er að eldar hafi sjest alla leið til Ilelsinki. — Þjóðverjar kveða orustuflugvjelar sínar og loftvarnalið hafa skotið niður 21 af liinum rússnesku flugvjehtm. Akureyr- arbœr vill fá skip frá Svíþjóð Frá frjettaritara vorum BÆJARSTJÓRN Akureyrar kaus nýlega á fundi útvegs- málanefnd til athugunar á at- vinnumálum bæjarins í fram- tíðinni. Hefir nefndin skilað á- liti sínu, eftir að hafa aflað sjer víðtækra upplýsinga um væntanleg skipakaup frá Sví- þjóð. Gerir nefndin ráð fyrir, að stofnað verði hlutafjelag, til útgerðaf, og lagði til, að bæj- arstjórnin samþykti svofelda ályktun: „Bæjarstjórn Akureyrar ósk ar eftir að hið háa atvinnu- málaráðuneyti útvegi fyrir bæ- inn tilboð í 1 skip, 75 smálestir, 1 skip hundrað smál og 1 hundr að og fimtíu smálestir, og sjeu þessi skip með útbúnaði og innrjettingu fyrir tog og síld- veiðar. Ganghraði 11 mílur“. Bæjarstjórn samþykti álykt- un þessa einróma. Vatnsskortur í London. BORGARSTJÓIIINN í Lon- don hefir skorað á borgarbúa að fara sparlega með vatn, þar eð mjög hafi lækkað í Thames- á. Er búist við að óvenju- mikill vatnsskortur verði í borginni í sumar. Erlendir sjómenn ráðast á lögregluna UM MIÐNÆTTI í nótt rjeð ust 10—15 erlendir sjómenn á fjóra lögreglumenn. Nánari tildrög eru þau að kvörtun hafði komið frá Kaffihúsinu Heitt og Kalt, um að sjómenn er þar væru inni, ljetu ófrið- lega, og að þeir hefðu brotið, þar ýmislegt. Fjórir lögreglumenn fóru þegar á staðinn, en er þeir komu að dyrum kaffihússins var þar hópur manna, 10—15, er flestir virtust veni sjómenn, og voru nokkrir þeirra í stimp ingum. — Lögreglan tók þrjá þeirra höndum og lagði af stað með þá áleiðis á lögreglustöð- ina. Skifti nú engum togum, að mennirnir, sem eftir vom, rjeðust á lögreglumennina og var tveim þeirra veittur áverki. Sló nú í bardaga, en fleiri lögreglumenn komu hin- um fjórum til aðstoðar, og tók lögreglan sex sjóm. höndum, þar á meðal forsprakka þeirra. Aílir vont ærslabelgir þessir undir áhrifum áfengis. Fimm sinnum fimm. London: — Formaður United Airlines, sem þektur er fyrir spádóma, er rætast, sagði ný- lega, að fimm árum eftir ófrið- arlokin yrðu flugsamgöngur og flugferðir í Bandaríkjunum fimm sinnum meiri en besta ár- Reuter. ið fyrir 1941. Neðanjarðarverk- sntiðjur í Svíþjóð STOKKHOLMI: — Eins og áður hafa borist fregnir um, hafa verksmiðjur verið bygðar í Sviþjóð neðanjarðar, höggn- ar í berg. Nýlega hefir ein neð- anjarðarverksmiðja enn tekið til starfa, og var sænska ríkis- erfingjanum nýlega sýnd hún, ásamt mörgum háttsettum mönnum hersins, svo og iðnað- arfrömuðum. AGA-fjelagið á verksmiðju þessa og á að fram leiða þar allskonar rannsókna- tæki og önnur fíngerð og ná- kvæm verkfæri. Verksmiðjan er um' 15—25 metra undir yfirborði jarðar, höggin í berg. Eru þar stórir salir, en veggir allir steyptir. Loftræsting er í besta lagi. —- Byggingarkostnaður hefir ver- ið um 25% hærri en við svip- raða byggingu ofanjarðar, en álitið er, að viðhaldskostnaður verði mjög lítill og minna þurfi að kosta til hitunar en í verk- smiðjum ofanjarðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.