Morgunblaðið - 06.09.1945, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.09.1945, Blaðsíða 12
12 '1 "TP|'ir*f llafnarferð Catalina- bátsins í dag EF VEÐUR leyfir, mun Catalina-flugbátur Flugfjelags ístands fara í aðra reynsluferð sína í dag til Kaupmannahafn- ar. með viðkomu í Largs á Skotlandi. Mun flugbáturinn teggja upp um klukkan 9.30 fyrir hádegi. Farþegar verða 11, 9 tii Largs og 2 til Kaup- mannahafnar. Áhöfn mun verða hin sama, ívemá , hvað Smári Karlsson ftugrnaður fer í stað Magnús- ar Guðmundssonar. Farþegar til Largs eru þets- »r Ólafur R. Ólafs, Valgerð- ur Bjarnadóttir, Gunnar Guð- tnundsson, Gunnar Ásgeirsson, Guðrún Watson og þrjú börn hennar, og Friðrik Magnússon. Til Kaupmannahafnar fara: Agnar Johnsen og Jóhannes Mortensen. Frá Kaupmannahöfn til Rvík ur verða 14 farþegar. Síra Friðrik Hall- grímsson fær lausn KIRKJUMÁLARÁÐUNEYT- ÍÐ veitti í gær síra Friðrik Hallgrímssyni dómprófasti og presti við Dómkirkjuna í Keykjavík lausn frá embætti, samkvæmt ósk hans, frá 1. des. þfcssa árs að telja. Jafnframt hbfir svo biskup auglýst em- bætti hans við Dómkirkjuna laust til umsóknar, með um- eóknarfresti til 20. okt. næstk. 6éður afli á rek- nelabála Frá frjettaritara vorum á Siglufirði, miðvikudag. HJEÐAN stunda nú um 55 skip reknetaveiði og hefir afli verið sæmilegur. Nær allur afli þeirra er saltaður, en nokkuð er sett í íshús. Aflahæsta skip í gær, . var „Anna“ frá Ólafsfirði, með 133 tunnur í róðri. í dag var afli nokkuð trégari, en í gær, þó fengu nokkrir bátar dágóðan afla Fyrsti saltsíldarfarmurinn fór hjeðan í gær til Svíþjóðar. — Voru það 8.725 tunnur, er s.s. Margol flytur. Veður hefir verið mjög gott hjer undanfarin dægur. Judy Gariand giftir sig. KVIKMYNDALEIKKONAN JUDY GARLAND var að gifta sig fyrir skömniu. Hjer sjest hún með manni sínum í hrúðkaups- iorinni. 764 verslanir eru í Beykjavík I SIÐUSTU Hagtíðindum er ; birt yfirlit yfir verslanir hjer. . í bænum. Reyndust þær vera j samtals 764 um síðustu áramót, j 607 smásöluverslanir og 157 heildsöluverslanir. Hafði versl- unum fjölgað um 76 á árinu, því um áramót 1943 voru hjer í bæ 136 heildverslanir og 552 smásöluverslanir. Smásöluverslanir skiftust þannig í árslok 1944, eftir því með hvaða vörur var verslað: Matvörur 134. Vefnaðarvörur 148. Skófatnaður 20. Bækur og pappír 27. Smávörur, silfur- munir, úr o. fl. 65. Járnvörur, ög byggingarvörur 18. Ymsar vörur 122. Nærri 2000 manns á íslandi utan trúarfjelaga Níu Gyðingatrúarmenn voru hjer á landi 1940. VIÐ MANNTALIÐ 1940 töldust 2859 manns hjer á landi utan safnaða hinnar evangelisk-lúthersku kirkju (þjóðkirkju og frí- kirkjusafnaða). Er þetta 23.5 af hverju þúsundi landsmanna. Er þetta miklu hærri tala en nokkru sinni fyr síðan farið var að taka manntal hjer. Af þessum nærri 3000 mönnum, sem ekki játuðu evangelisk-lútherska trú voru 1857 utan trúarfjelaga, en 1002 1 öðrum trúarfjelögum. í skýrslu, sem birtist í síð-/an 7 karlar, 2 konur, alls 9 (,,). Sjd tnyndir seldar é sýningu Snorra Arinbjarnar GÓÐ AÐHÖivN hefir" vcrið að sýningu Snorra Arinbjarn- ar listmálara í Listamanna- skálanum undanfarna daga. Ilafa þegar selst 7 rnyndir á sýningunui. Ilún er opin. daglega kl. 1(L—22 þar til 12. J?essa inánaðar. ustu Hagtíðindum, er grein hvernig menn skiftast í hina ýmsu trúarflokka og sjest á því meðal annars, að 1940 voru 9 manns, 6 karlmenn og 3 konur Gyðingatrúar, en við manntalið 1930 taldist enginn til þess trú- arflokks hjer á landi. Síðan um aldamót hefir því fólki stöðugt fjölgað, sem ekki telst til evangelisk-lúthersku safnaðanna. Við manntalið 1901 voru 152 utan trúarfjelaga, þar af aðeins 61 utan allra trúar- íjelaga. Meðal þeirra, sem teljast til annara trúarfjelaga en‘ evan- gelisk-lúthersku kirkjunnar eru konur í miklum meirihluta, en meðal þeirra, sem eru utan allra trúarfjelaga, eru karlmenn í meirihluta. I öðrum trúarfjelögum voru 1940 alls 611 konur og 391 karlmaður, en utan trúarfje- lag'a 1116 karlrnenn og 741 kona. Þeir, sem töldust til annara trúfjelaga 1940. skiftust þannig á einstök trúfjelög. Til saman- burðar eru settar tölur frá 1930 (í svigum). Aðventistar 176 karlar, 323 konur, alls 499 (429). Hvíta- sunnusöfnuður 33 karlar, 43 konur, alls 76 (7). Sjónarhæð- arsöfnuður 16 karlar, 39 kon- ur, alls 55 (70). Enska kirkj- Kristnir bræður 1 karlmaður, 2 konur, alls 3 (12). Kvekarar 2 karlar, 2 konur, alls 4 (,,). Baptistar ,, karlar, 1 kona, alls 1 (5). Aðrir mótmæl.mdur 7 karlar, 4 konur, alls 11 (7). Kaþólskir 143 karlar, 192 kon- ur, alls 335 (191). Gyðingar 6 kárlar, 3 konui, alls 9 („). Af þeim, sem töldust til þess- ara trúfjelaga, voru 520, eða rúmlega helmingur, í Reykja- víkf en af þeim, sém töldust utan trúfjelaga, voru 1258, cða um % í Reykjavík Gísli og Jakob keppa lil úrsliia NÆST SÍÐASTA umf'erð í meistaraflokkskeppni Gol f- klúbbsins var kepþt í gær. ■ - Gísli Óíafssön -keppti við Þor- vald Ásgeirsson og Jakob llaf- stein við Jóhannés Ilelgason. Leikar fóru svo, að Gísli vann Þorvald, með 10 holum, þegar 9 voru ef'tir. Jakob.vann Jóhannes með-5 holum, er 4 voru eftir. Enn á ný keppa þeir Jakob og Gísli um ineistaratitilinn, en sú keppni mun fara frain n.k. föstudag. Óður Bernadetlu verður sýndur í Nýja Bíó NÝJA BÍO liefir fengið stór- mjTidin.a „Óður Bernadettu“, sem gerð er eftir hinni frægu og yinsælu sögu Franz Werfels sem kom úf í íslenskri þýðingu fyrir skömmu. Kvikmynd þessi hefir fengið niikið lof erlendis og hlotið fjölda verðlauna og aðalleik- arinn, Jennifer Jones, lilaut „Oscar“-verðlamiin fyrir sinn í þessari kvikmynd. Kvikmyndin er. eins og ,sag- an, mjög áhrifamikil. IIúii er vel tekin og valdir leikarar eru í hverju hlutverki. Ekki mun ennþá ákveðið hvenær Nýja Bíó tekur mynd þessa til sýninga, en það mmi verða bráðlega. Fimtuclagur 6. sept. 1945 Söltir togar- anna í SÍÐASTLIÐINNI viku seldu 18 íslenskir togarar og vjelskip afla sinn í Englandi fyrir sam- tals 150.120 sterlingspund. — Þess hefir áður verið getið hjer í blaðinu, að hæst seldi togav- inn Júpíter, 3883 kit af Bjarn- areyjarfiski, fyrir 14.744 sierl- ingspund. Skaftfellingur seldi 996 Vz vætt fyrir 2.503 sterlingspund. Kópanes 3021 vætt fyrir 7.561. Skinfaxi 3288 vættir fyrir 7.885. Vörður 3715 vættir fyr- ir 7.502. Júní 2870 kits fyrir 7.686. Baldur 2969 kits fyrir 8.378. Gyllir 3212 kits fyrir 8.715. Sindri 1810 kits fyrir 6.188. Karlsefni 2598 kits fyrir 8.968. Sæfell 2019 vættir fyrir 6.507. Helgi 1253% vætt fyrir 3.379. Júpíter 3883 kits fyrir 14.744. Óli Garða 2247 kits fyr ir 9.358. Tryggvi Gamli. 2975 vættir fyrir 8.353. Faxi 2872 kits fyrir 9.556. Haukanes 2644 fyrir 9.238. Drangey 3114 vætt ir fyrir 8.765. Kári 3235 vætt- ir fyrir 8.144 og Surprise 3455 vættir fyrir 9.730 sterlingspund, Skipverjar af Hauk lagðir af sfað SKIPVERJAR af ms. Hauk, sem dvalið hafa í Færeyjum síð an þeim var bjargað, sennilega 3 til 4 daga, fóru þaðan í gær. Skip það, er flytur þá hingað, er væntanlegt til Norðfjárðar n.k. föstudag eða laugardag. —• Framkvæmdastjóra skipsins, Pjétri Bóassyni, barst skeyti um þetta í gær. Vierlinger í London. LONDON: — Hingað er kom inn Vierlinger forsætisráðherra Tjekkóslóvakíu, ásamt utan- ríkisráðherra sínum, til samn- inga við bresku stjórnina. Hef- ir hann þegar rætt bæði við Attlee og Morrison. Aldraður maður bíður bana í um- ferðaslysi Krisfján Helgason verkamaður, Hringbraul 1S8. í GÆR vildi til eitt umferðarslysið enn hjer í 'bænum; það hörmulega slys, að Kristján Helgason, verkamaður, til heimilis á Hringbraut 158, varð fyrir bifreið og beið bana af. Slysið varð á gatnamótum Hofsvallagötu og Sólvallagötu um kl. 2 e. h. Bifreiðinni R-2482 sem er jeppa-bíll, eign rúss- nesku sendisveitarinnar, var ekið norður Hofsvallagötu. Er bifreiðin kom á gatnamót Hofs vallagötú og Sólvallagötu, mun Kristján hafa komið vestur Sól- vallagötu, en hann var á reið- hjóli. Rakst reiðhjólið á hægri hlið bifreiðarinnar. Við árekst- urinn kastaðist Kristján í loft upp og fjell á götuna. •—• Var hann meðvitunarlaus ,og hafði fengið skurði á hnakka og enni, Kristján var þegar fluttur í sjúkrahús. Ljest hann þar 10— 15 mínútum síðar. Bifreioinni mun hafa verið ekið með 30—40 km hraða, en bifreiðarstjórinn stöðvaði hana ekki fyr, en um það bil 50 m, frá slysstaðnum. Kristján Helgason var fædd- ur 7. desember 1878, og var því 67 ára gamall. Hann var faðir Einars óperusöngvara og þeirra systkina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.