Morgunblaðið - 30.03.1947, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.03.1947, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAöIiJ Sunnudagur 30. mars 1947 2%. o i guufeta&tfc Litg.. H.í. ArvaKur, Reykjavik F'ramkv.stj.: Sigfús Jónssor Rítstjorar Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrsrOMrrr- Frjettaritstjon Ivar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsia A.usturstræti 8. — Sími 1600 Askriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlaiida kr. 12,00 utan-lands. I lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók. HEKLUGOSID HEKLA er tekin að gjósa, eftir að hafa legið niðri í ná- lega 102 ár. Voru menn farnir að gera sjer vonir um, að Hekla væri búin að ljúka sjer af fyrir fullt og alt — hún væri útkulnuð. En þetta'Var aðeins tilgáta, eða máske öllu heldur von manna, sem studdist við það, að svo langt var um lidið frá síðasta stórgosi. Það er nú svo, að Hekla hefir á liðnum öldum meira en nokkuð annað vakið athygli á okkar landi í umheiminum. Hún er langfrægasta eldfjall á íslandi. Um hana spunnust hinar furðulegustu kynjasagnir, einkum í svartnætti mið- aldanna. Þessi einkennilega landkynning dró athygli að okkar landi, á sinn sjerkennilega hátt. En íslensk alþýða hafði önnur kynni af Heklu. Sú kynning var bundin við raunveruleikann. Heklugosin fluttu venjulega íneð sjer ógn óg eyðingu yfir bygð og ból. Þessvegna hafa íslending- ar verið að vona, að Hekla hefði lokið sjer af. Hún væri útkulnuð. ★ En Hekla gerði ekki boð á undan sjer nú fremur en endranær. Nú er Hekla tekin að gjósa. Og hún fer þannig af stað, að svo virðist sem hjer sje á ferðinni stórfenglegt gos. Þótt okkur þyki þetta m'ikil tíðindi og ill, er þetta stað- reynd sem við verðum að horfast í augu við. Og svo mikil eru þessi tíðindi, að allur heimurinn mænir til okkar með- an Heklugosið stendur yfir. ★ Nú reynir á íslensku náttúrufræðingana og jarðfræð- ingana. Aldrei hafa þeir fengið upp í hendurnar annað eins tækifæri. Sómi íslands er í veði, að þessum mönnum takist að vinna vel það verk, sem nú bíður þeirra. Það er ómetanlegt happ fyrir okkur Islendinga, að við eigum marga unga og efnilega vísindamenn á þessu sviði. Menn, sem hafa ætíð verið boðnir og búnir að leggja á sig erfitt og áhættusamt starf, til þess að kanna og rann- saka náttúruundur okkar lands. Þessir áhugasömu menn munu áreiðanlega ekki láta á sjer standa nú. Þeir eru boðnir og búnir til starfa. Að sjálfsögðu verður hið opinbera að láta vísindamönn- unum í tje alla þá aðstoð, sem þeir þarfnast. Hjer má engu til spara. Sæmd íslands er hjer í húfi. Hjer bíður vísindamannanna mikið og vandasamt starf. Sjálfsagt er að skipuleggja starfið strax í upphafi, svo að ekkert farist fyrir. Vísindamennirnir sjálfir eru færastir til að skipuleggja starfið. Virðist sjálfsagt að hið opinbera skipi ákveðna menn til að hafa á hendi stjórn og forystu rannsóknanna. ★ En þótt aðalátarfið í sambandi við þetta Heklugos komi að sjálfsögðu til að hvíla á vísindamönnunum, getur al- menningur orðið hjer að miklu liði, ef hann vinnur vel og skipulega. Og það er mjög áríðandi, að almenningur, hvar- \retna á landinu, sje ekki aðgerðalaus. Hjer skal geta nokkurra atriða, almenningi til leiðbein- ingar: Æskilegt er, að sem flestir haldi nákvæmar dagbækur meðan gosið stendur yfir, og skrái þar alt, sem þeir verða vísari. Afar áríðandi er, að slíkar dagbækur sjeu nákvæm- ar. Staður og stund nákvæmlega skráð og hvað fyrir augu eða eyra ber. Skrá skal jarðhræringar, ef þeirra verður vart, dunur, dynki eða bresti. Eitt atriði er ákaflega þýðingarmikið, en það er að sem flestir taki sýnishorn af öskufalli. Best að taka þau sýnis- horn á snjó, t. d. þannig að, hvolfa dós yfir snjóinn og senda dósina með öllu saman. Aldrei má gleyma stað og stund. Sjeu ljósmyndir teknar sem æskilegt er að sem fiestir geri, þarf nákvæmlega að tilgreina stað og stund. Gleymum ekki, að sæmd íslands er í húfi, ,að vel takist þetta þýðingarmikla starf. ÚR DAGLEGA LÍFINU Ömurleg aðkoma á I flugvöllunum. ÞAÐ mun óvíða í heiminum J vera ömurlegri aðkoma á nokkrum alþjóðaflugvöllum, en hjer á landi. Fyrir nærri tveimur árum, skömmu eftir að styrjöldinni lauk, var á það bent hjer í þessum dálkum, ajg við svo búið mætti ekki standa, ef við vildum teljast menn með mönnum og nú sje jeg það að • starfsbræðurnir sem hafa kynst ■ af eigin raun og sjón aðbún- aði á flugvöllum erlendis eru farnir að sjá þetta líka og dæma braggabyggingarnar á flugvöllunum okkar algjörlega óhæfar, eins og þær eru og hafa altaf verið. Það hefir kanski einhverjum þótt fengur í að fá þessa kofa á flugvöllunum, sem bygðir voru til bráðabirgða í styrjöldinni, en þáð mun koma á daginn, að þeir verða okkur dýrir í rekstri og kanski ennþá dýrari, en þó ráðist hefði vcrið í að byggja sæmilega manna- bústaði og skrifstofubygging- ar, sem nauðsynlegt er á hverj um flugvelli. • 10 þús. kr. kola- reikningur á mán. N ORÐURLANDABLAÐA- MENNIRNIR, sem bjuggu að Hótel Winston á Reykjavíkur- flug_vellinum á dögunum kvört uðu sáran er heim kom yfir kulda og vosbúð. Það lak inn á þá í rúmunum og þeir hríð- skulfu þótt þeir klæddu sig í yfirhafnir sínar áður en þeir gengu til sængur á kvöldin. — Og þeir, sem þekkja Winston og aðbúnaðinn þar vita að þetta eru engar ýkjur. Það eru 68 herbergi. í þessu gistihúsi, ef svo skyldi kalla og hvert og eitt einasta hriplekur. En ekki vantar að reynt sje að hita upp gistihúsið, því und anfarna tvo mánuði hefir kola- reikningurinn í Winston verið 10—11 þús. kr. á hverjum mánuði. Og það er ekki nóg, að reynt sje að hita upp með kolakyndingu, því stöðugt eru 30—40 rafmagnsofnar í notk- un, en ekkert dugar samt. ÞgJ er ráðalag að tarna. Margfaldur kostn- aðirr. FLESTAR raflagnir í Winst on hóteli munu vera ólöglegar að okkar reglugerðum. Hefir hópur rafmagrrsmanna unnið þar undanfarið til að kippa lögnunum í lag og má geta nærri hvað það kostar. En raf- magnsfræðingur, sem átti er- indi út á flugvöll og sá vinnu- i brögðin, undraðist stórum og • spurði hvort ekki hefði verið heppilegra. að nota straum- breyta til að lækka spennuna þannig að hægt hefði verið að notast við gömlu leiðslurrjar, eins og þær voru í þessu hrófa tildri. En þannig er stjórnin á þessu öllu saman. Það er fullyrt af sjerfróðum mönnum, að vegna þess hve öllu er óhaganlega fyrir komið hjer á Reykjavíkurflugvellin- um bá sje kostnaður við völlin stórum dýrart, en hann þyrfti að vera og með því að byggja upp á nýtt sarnkvæmt reynslu á öðrum flugvöllum, þá mætti lækka reksturskostnaðinn um einn þriðja. Það gæti hugsast, að einhver vakni við. þegar reikningurinn verður lagður fram eftir árið og það kemur kanski í ljós að það kostar um 4 miljónir króna, að reka þenna blessaða flugvöll okkar. Ætli það reki að minsta kosti ekki einhver upp stór augu. Nei, í flugvallarekstri okkar er visulega hönk nokkur á. Og nú má ekki lengur láta danka, heldur þegar taka til að bæta úr b.eim mistökum, sem þegar hafa átt sjer stað og girða fyr- ir, að fleiri komi fyrir í fram- ííðinni. • Þagað á stálþráð. ÞAÐ er vissulega góð hug- mynd, að taka upp á stálþráð lýsingar á íþróttakepnum hjer og þar, hvort sem er austur á Hellisheiði, eða í Sundhöllinni, eða á glímukepni. En það er sannast sagna hörmung að hlusta á þessar lýsingar á íþróttakeppnum, að minsta kosti sumar hverjar. Ráðnir eru menn, sem aldrei hafa kom ið nálægt hljóðnema og eru ekki dús við það verkfæri. — Menn, sem hafa enga æfingu í að tala og velja því oft þann betri kostinn að þegja. Þess- vegna verður það oft svo í þess um stálþráðslýsingum, að þeir, sem eiga að lýsa fyrir áheyr- endum, steinþegja, eða þeir stama út úr sjer hálfar setn- ingar, sem enginn botnar í. Það er rjett, að erfitt er að lýsa vel í útvarp því, sem fyr- ir augun ber, en það er hægt að læra það og æfa. — Það þurfa þeir að gera, sem fengn- ir eru til að lýsa íþróttamót- um. Geri þeir það ekki eiga þeir á hættu að verða skoðað- ir eins og hverjir aðrir aular og _bað er slæmt, því margir - eru þeir prýðisvel greindir menn og bestu þiltar. • Fjörugar kvöld- skemtanir. ÞAÐ eru fjörugar og skemti- lftgar kvöldskemtanir, sem fram hafa farið í Sjálfstæðis- húsinu núna í vikunni. Þau Lársu Ingólfsson Ieikari, Sig- ríður Armann listdansari og Pjetur Pjetursson þulur hafa skemt fyrir fullu húsi í fjögur kvöld. Það er eitthvað ljett og hressilegt yfir þessum skemti- kvöldum. Græskulaust gaman. fallr^.ir dansar, gamanvísur um stjórnmálamenn og aðra skrítna náunga. Hláturinn lengir l*fið, segir sagan. Það þurfti að gera meira að því að koma hjer upp skemti kvöldum sem þessum. Þær lyfta mönnum upp úr drunga daelciía lífsíns. Lárus Ingólfsson þekkja allir bæjarbúar, en ungfrú Ármann er tiltölulega nýr kraftur á leiksviði hjer í bænum. En þar er á_ ferðinni listakona, sem við eigum eftir að verða hreyk in af. Það sjest ekki betri dans, í höfuðborpum álfunnar, en hún sýnir okkur. Revýjurnar hafa löngum ver ið Reykvíkingum skemtileg upplyfting, en nú virðast grín istar dauðir úr öllum æðum og þá koma ,,hraðpressukvöldin“ að góðum notum. MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . Eftir James Whittaker London. í ÚTVARPSFYRIRLESTRI var nýlega skýrt frá hinni stór- merkilegu þróun, sem nú á sjer stað meðal fiskimanna í Hong Kong. Eftir að Japanir náðu eyj- unni á sitt vald, urðu tekjur fiskimanna þessara svo litlar, að þeir gátu með naumindum fleytt fram lífinu. Meðan á her námj. Jap>ana stóð, var illa með þessa sjómenn farið og marg- ir þeirra ljetu lífið. Fiskveið- ar þeirra og aðalatvinna lagð- ist alveg niður, en er banda- menn sigruðu Japani, var það eitt af því fyrsta. sem heryfir- völdin gerðu, að reyna að koma fótunum á ný undir þessa at- hafnasömu fiskimenn. Nú er svo kómið, vegna sameiginlegra átaka allra þeirra, sem hlut eiga að máli, að þeir hafa meir en nóg að gera, vinna sjer inn þeninga og vérslun þeirrá er að verða víðtækari en nokkru sinni áður í sÖgu Hong K.ong. Fengu lán. Eitt af því fyrsta, sem her- yfirvöldin gerðu, var að skifta 100,000 dollurum milli allra þeirra, <^r lifðu á fiskveiðum. Hver stjórnandi fiskifleytu hefði hann tíu menn á skipi sínu.. gat fengið 40 dollara að láni. Að þessu loknu var sjó- mönnunum boðið til kaups salt og olía við hagkvæmu verði. Er þetta hafði verið gert, voru samþykt lög, sem kváðu svo á, að komið skyldi upp heildsölumarkaði, þar sem all- ir fiskimenn áttu að selja vöru sína á uppboði. Það, sem mestu máli skifti og kom skriðu á fiskveiðarnar, voru enn önnur lög, sem gerðu fiskimönnum mögulegt, að fá afla sinn greiddan í peningum 48 klukustundum eftir að hann var veiddur. Heryfirvöldin lánuðu peninga til að koma fótunum undir þessa nýlundu Aukin viðskifti. Sjö djgum eftir að fyrir- komulagi þessu hafði verið komið á, var svo komið. að byrjað var að senda saltfisk til kínverska meginlandsins, en þaðan barst í staðinn svínakjöt, egg, alifuglar og landbúnaðar- vörur. Upphaf þessara framkvæmda hefur. nú haft það í för með sjer, að samvinnufjelag fiski- mapna er orðið eitt af megin atvinnugreinum eyjarinnar Hong Kong. Saltfiskur hefur þegar verið sendur til Ameríku og Ástralíu. Salt, en það fram- leiða sjómennirnir í Hong Kong einnig er flutt út til Kína, Malaya, Honolulu og jafnvel Californíu. í dag er svo komið, að fiski- menn Hong Kong hafa meira að gera en nokkru sinni áður Og vinna sjer inn meiri pen- inga með bættum vinnuskilyrð um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.