Morgunblaðið - 29.01.1949, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.01.1949, Blaðsíða 10
10 iHORGUNBLAÐIÐ r.augardagur 29. janúar 1949. .. ÍS*SléMIE .. Sátlasemjari ♦ Handknattleiksmót ísiands ÍSLANDSMÓTIÐ í handknatt- léik hjelt áfram s. 1. miðviku- dag. Þá fóru leikar þannig, að KR vann ÍBH með 20:16 og Valur vann Fram með 17:12. Staðan er nú þannig: L U Ármann. . 3 3 Valur . . 4 3 í. R.....3 2 Fram .... 5 2 K. R. .... 5 2 Víkingur 3 1 í. B. H. . . 5 1 T Mörk St. 0 56: 38 6 1 59: 43 6 1 56: 45 4 3 82: 92 4 3 78:102 4 2 58: 53 2 4 74:90 2 Enn verður þessi klausa að fylgja: Þess ber að gæta, að KR er talinn unninn leikurinn við Val, en cú leikur var kærður og endanlegur úrskurður er ekki enn fenginn. Móíið heldur áfram n. k. mánudag. Þá keppa Ármann og ÍR og KR og Víkingur. Handknattleiksmót skólanrta: Kvennaskólinn vann í kven'iskki, en í fyrri hálfleik naut Nordahl sín alls ekki, vegna þess, hve margir fjelagar hans ljeku lje- legan leik. í öðrum hálfleik breyttist þetta. Nordahl fór meira að treysta á sjálfan sig og skoraði í byrjun hálfleiksins óverjandi mark algerlega á eig in spýtur. Eftir það fóru Patria- mennirnir að gæta hans alveg sjerstaklega, en það var til þess að aðrir ljeku lausir og Milano sigraði. — Reuter. Yfir 23 þús. mcðlimir í íþróftahreyfing- unni NÝ sambandsfjelög Ungmennasamband Vestur- Skaftfellinga (U. V. S.) hefur nýlega gengið í Í.S.Í. Formaður sambandsins er Estra Pjeturs- son, hjeraðslæknir. Þessi fjelög eru í U. V. S.: Umf. Meðallend- inga, Meðallandi, Umf. Ósk, Hörgslandshreppi, Umf. Óðinn Hörglandshreppi, Umf. Ármann Kirkjubæjarhreppi, Umf. Blá- fell, Skaftártungu, Umf. Svan- urinn, Álftaveri. Fjelagatala U. V. S. er um 130 f jelagsmenn. Nú eru í í. S. í. 22 hjeraðssam- bönd, með um 23150 íjelags- menn. Menlaskólinn í B-fl. í HANDKNATTLEIKSMÓTI skólanna hafa úrslit orðið þau, að Kvénnaskólinn vann í kven flokki og Mentaskólinn í B- flokki karla. í dag kl. 2,30 held ur mótið áfram og fara þá fram úrslitaleikirnir í A- og C-flokki karla. í A-flokki keppa Mentaskól- inn og Háskólinn í þriðia sinn. Mentaskólinn vann fyrst, þeg- ar þeir rnættirst, með, 5:3, en Háskólinr í annað sinn, með 13:6. Þetta er útsláttarkeppni, þannig, að það lið, sem tapar tveimur leikjum, fellur úr. — Þessir skólar hafa til þessa hvorugur tapað nema einum leik. í C-flokki eigast við Menta- skólinn og Gagnfræðaskóli Austurbæjar. Þetta er einnig í þriðja sinn, sem þeir eiagst við. Ferðir að Hálogalandi eru frá Ferðaskrifstofunni. Aðgang ur er ókeypis. Gunnar Kordahl leikur fyrsla leik sinn sem atvinnu- maSur Staðfest íjdandsmet í sundi 200 m. bringusund 3:17,7 mín. Anna Ólafsdóttir (Áj, sett 18/3 1948. 200 m. skriðsund 2:23,0 mín. Ari Guðmundsson (Ægir), sett 18/3 1948. 100 m. bringusund 1:16,9 mín. Sigurður Jónsson (HSÞ,), sett 18/3 1948. 400 m. bringusund 6:56,6 mín. Anna Ólafsdóttir (Á), sett 17/11 1948. 500 m. bringusund 8:42,2, Anna Ólafsdóttir (Á), sett 17/11 1948. 200 m. baksund 3:38,6 mín., Anna Ólafsdóttir (Á), sett 18/11 1948. 400 m. baksund 7:27,5 mín., Anna Ólafsdóttir (Á), sett 18/11 1948. 200 m. skriðsund 3:21 0 mín. Kolbrún Ólafsdóttir (Á), sett 18/11 1948. 300 m. skriðsund 5:10,9 mín. Kolbrún Ólafsdóttir (Á), sett 18/11 1948. 400 m. skriðsund 6:53,5 mín. Kolbrún Ólafsdóttir (Á), sett 18/11 1948. 3x50 m. boðsund kvenna 1:58,8 mín. sundsveit Ármanns sett 17/11 1948. 4x100 m. boðsund karla 4:29,5 mín, sundsveit í. R., sett 17/11 1948. Milano, fimtudag. GUNNAR NORDAHL, hinn Keimsfrægi sænski miðfram- herji, ljek fyrsta leik sinn sem atvinnumaður með Knatt- sþyrnufjelagi Milanó-borgar í dag. 30 þús. áhorfendur fögn- u honum innilega, er hann m út á völlinn í búningi Milanó-fjelagsins. Nordahl sýndi fyllilegá þá leikni, sem áhorfendur höfðu búist við af honum og .bar höf- uð og herðar yfir aðra í liðinu. Milano-íjelagið ljek á móti st'erku atvinnuliði, Patria, og; sígraði með 3 2. Norræna róðrarmótið Í.S.Í. hefur nýlega borist boð frá Finska Róðrarsambandinu á Norræna róðrarmótið 1949, sem háð-verður 6. ágúst í Ábo í Finn landi. Breytingar á almennum reglurn ÍSÍ nm handknattleik. Í.S.Í. hefur nýlega gert nokkra breytingu á 2. gr. í Al- mennum reglum ÍSÍ um hand- knattleik, og hefur sú breytjng verið send út til hjeraðssam- bandanna og viðkomandi hand- knattleiksráða. TEH PRINS, foringi þjóð- ernissinna í innri Mongólíu, hefir verið nefndur sem vænt- anlcgur sáttasemjari milli kom- múnista og þjóðernissinna í Kína. Teh prins, sem einnig er kallaður Tch Wang er afkom- andi Djingie-Khan í beinan karllegg. Ahnælissöngskemt- un Halfbjargar Bjarnadóflur HALLBJÖRG Bjarnadóttir söngkona ætlar að halda söng- skemmtun í Austurbæjarbíó næstkomandi þriðjudagskvöld með aðstoð hljómsveitar Einars M.arkússonar píanóleikara. — Verður þetta um leið 10 ára afmælissöngskemmtun, því er Hallbjörg kom frá Danmörku 1939 hóf hún svonefnda mið- nætursöngskemmtanir sem ekki höfðu þekst hjer .áður. Meðan á styrjöldinni stóð söng Hall- björg víðsvegar um landið, en eftir stríð hjelt hún söngskemt- anir í Danmörku, Frakklandi og Englandi. Hjelt söngkonan tónleika í Oddfellowsalnum i Kaupmannahöfn, söng í Parísar útvarpið og BBC í London, kom fram í sjónvarpi í London og fyrir forgöngu British Press Association söng Hallbjörg í Albert Hall. Á söngskemmtuninni á þriðju daginn ætlar Hallbjörg að ryfja upp gömul lög, sem hún hefur sungið undanfarin ár og enn- fremur syngja ný lög. Á þessari söngskemtun verð- ur sú nýung, að hraðteiknari kemur fram, en það þykir hin besta skemtun víða erlendis að sjá slíka menn leika listir sínar. Samkomulagsvið- ræður Balkanlanda fyrirfiugaðar Lake Success í gær. TRYGVE LIE, aðalritari Sam- einuðu þjóðanna, skýrði frjetta mönnum frá því í gær, að sam- komulagsviðræður milli Grikkja og nágrannaþjóða þeirra í norðri mundu hefjast á ný 1. apríl næstkomandi, er allsherjarþing S. Þ. kemur aft- ur saman til funda. Viðræður milli Grikkja og Albana, Búlgara og Júgóslava hófust á síðasta allsherjarþingi í París, en viðstaddir voru sem áheyrnarfulltrúar Evatt (Ástra lía), Spaak (Belgía), Harper (Tyrkland) og Lie. OEíuskipið komið fram í GÆR lýsti Slysavarnafjelag íslands eftir þýsku olíuflutn- ingaskipí, sem ekkert hefir spurst um í vikutíma. Tilkynning þessi var lesin bæði á íslensku og ensku í há- degisútvarpið. Skip það, sem hjer um ræð- ir, heitir Júlíus Rutgers frá Hamborg. Það er um 1000 lest- ir DW., og áhöfn þess- eru 15 eða 16 menn. Hjer átti skipið að taka hvallýsi í hvalveiðistöð inni í Hvalfirði og flytja það til Hollands og Danmerkur. Olíuskipið fór frá Færeyjum áleiðis hingað, um miðnætti föstudagsins 21. þ. m. Var því væntanlegt hingað á mánudags morgun. Skipstjórinn hafði fengið fyrirskipun um, að til- kynna umboðsmanni sínum hjer, Harald Faaberg, um komu skipsins, tveim dögum áður en það kæmi til Reykja- víkur. í gærkvöldi var frá því skýrt að skipið væri komið til Trangis vog í Færeyjum. Hafði það snú- ið þangað aftur, en loftskeyta- tæki þess biluð og fleira í ólagi. Skálar efna III fjöl- breytfra skemtana á sunnudaglnn Á MORGUN gangast skátar fyrir skemmtunum í skátaheim ilinu við Snorrabraut, er þeir nefna ,,Skáta-Cirkus“. Til skemmtunar verður „sirk- us“-sýning. Þar koma m. a. alls konar galdramenn fram, eins og t. d. „Ali-baba“, „aflrauna- maðurinn“ Herkules Don Atlas del Amazonas“, „hugalesarinn Marianti“, „búktalarinn John Dee“, „Fakírinn“ og „slöngu- temjarinn Ben Hussein“, „dýra temjarinn Leo Dýragarður von Ljónsöskur“, „yngingarlæknir- inn dr. X“, fjöldi „fífla“ og annarra „listamanna“. Auk þess geta menn fengiö að kynnast ýmsu með því að ganga í gegnum „Draugagang- inn“ og fengist við alls kyns þrautir og gátur, hitt „spákonu' eða horft á smá-kvikrnyndir. — Veitingar verða á staðnum. Skemmtanirnar byrja kl. 1.30 á sunnudag og standa fram á kvöld. „Cirkus“-sýningarnar byrja kl. 1,30, kl. 3,00, kl. 4,40, kl. 6 og kl. 9, en síðan vérður dansað. Þýsku kommúnisla- ráðsfefnunni lokið Berlín í gærkveldi. RÁÐSTEFNU sameiningar- flokks sósíalista í Þýskalandi, sem er undir stjórn kommún- ista, lauk í dag. Á ráðstefn- unni voru gerðar ýmsar sam- þyktir, og þess meðal annars krafist, að hernámsliðin yrðu flutt á brott frá Þýskalandi. Lokaorð forseta ráðstefnunn ar til þeirra 550 fulltrúa, sem hana sátu, voru: Áfram undir hinu ósigrandi merki Mafx, Engels, Lenins og Stalins. — Reuter. Brýn nauðsyn á feppa fyrir jijóð- garðínn á Þingvöll- um FRUMVARP Sigurðar Kris-t- jánssonar um heimild til að flytja inn jeppabifreið handa gæslumanni þjóðgarðsins á Þingvöllum var til 2. umræðu í neðri delid í gær. Sig. Kristjánsson benti á, að ef halda ætti uppi viðunandi gæslustarfi á Þingvöllum, þá væri gæslumanninum brýn nauðsyn á að fá jeppabifreið til þessa starfa. Innflutningsyf- irvöldin hefðu synjað þessa leyfis og því væri frumvarp þetta fram borið. Ásgeir Ásgeirsson lagði til að málinu yrði vísað til ríkis- stjórnarinnar og var það sam- þykkt með 11:7 atkv. Emil Jónsson ráðherra benti á, að á þessu ári væru ætlaðar 3 milj. kr. til kaupa á jeppum, svo að væntanlega yrði hægt að koma þessu máli fram þá. Einnig lýsti Bjarni Ásgeirs- son, landbúnaðarráðherra, því yfir, að hann mundi beita sjer fyrir því, að þjóðgarðurinn fengi jeppa, ef það kæmi tjl sinna kasta að ráða einhverju um úthlutunina. r Aslandíð á Malakka- skaga enn ahrariegt Kuala Lumpur í gær. YFIRHERSHÖFÐINGI bresku herjanna á Malakkaskaga skýrði frá því í dag, að ástand- ið þar væri ennþá alvarlegt, enda þótt nokkuð hefði dregið úr aðgerðum ofbeldismanna að undanförnu. Hann lagði áherslu á ,að ekki þyrfti að senda fleiri hermenn til Malakkaskaga, heldur yrðu íbúarnir þar að taka höndum saman um að sigrast á ofbeldisseggjunum og hafa samvinnu við stjórnar- völdin. — Reuter. Tjekkneskur hers- höfðingi dæmdur III dauða Prag gærkvöldi. TJEKKNESKUR hershöfð- ingi, sem um skeið var aðstoð- aryfirmaður herforingjaráðs Tjekkóslóvakíu og formaður hernaðarsendinefndar í Sovjet- rikjunum, var í dag dæmdur til dauða í Prag fyrir „landráð“. ITershöfðingjanum var meðal annars gefið það að sök að hafa unnið gegn vináttu Rússa og Tjekka. — Reuter. r ástralía ákveður að viðutk >rm fsrael Canberrn í gærkveldi. CHIEFLEY, forsætisráðherra Ástralíu, skýrði frá því í dag, að stjórn sín hefði ákveðið að veita Ísraelsríki algera viður- kenningu. Segir í tilkynningu forsætisráðhrra, að sýnilegt: sje, að sjáffstætt Gyðingaríki sje nú orðið að veruleika. Ástralía rrmn einnig styðja inntökubeiðni Ísraelsríkis í Sam einuðu Þjóðirnar. —- Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.