Morgunblaðið - 28.03.1950, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.03.1950, Blaðsíða 1
16 síðar 37. árgangu> 72. tbl. — ÞrifSjudagur 28. mars 1950. Prentsmi8]a Morgunblaðsin* AIJSTRÆIVAR RJETT- ARFARSHUGIUYINIDIR í SKRIFUM kommúnistablaðsins um dóm þeirra manna, scm hafa verið fundnir sekir um ofbeldi og árás á Alþingi, löggæslumenn og friðsama borgara þann 30. mars s. 1. koma greinilega 1 ljós hinar aust- rænu rjeítarfarshugmyndir kommúnista. Þar er því haldið fram að dómar þessir eigi rót sína að rekja til stefnu núverandi ríkisstjórnarH! Kjarni þessa máls er auðvitað sá, að í lýðræðis- þjóðfjelagi hafa sakamál sinn gang án tillits til þess, hvaða rikisstjórn er við völd. Stjómarskipti valda því að sjálfsögðu ekki að mál sjeu látín niður falla á hendur sakamönnum, sem þverbrotið hafa lög og velsæmi. Hið „austræna rjettaröryggi“ felst hins- vegar í því að ríkisvaldið framkvæmir þá „stefnu“, að ofsækja^ólitíska andstæðinga fyrir það eitt að vera á öndverðu máli, vera í síjórnarandstöðu. Þá stefnu hafa íslenskir kommúnistar lofsungið eins og skoðanabræður þeirra í öðrum löndum. Ef menn eru hinsvegar dæmdir fyrir að grýta lög- gjafarstofnun þjóðarinnar, brjóta hús, limlesta menn og stofna fjölda mannslífa í hættu, þá ætla komm- únistar að ærast. Þá er reynt að gera sökudólgana að píslarvottum. Þannig eru hinar austrænu rjettarfars- hugmyndir!!! Svívirðingum kommúnistablaðsins um Bjarna Benediktsson dómsmálaráðherra, tekur ekki að svara. Hin tryllta heift kommúnista gegn honum er að áíiti allra heiðarlegra manna sönnun þess að hann vinnur störf sín af skyldurækni og trúnaði við þjóð sína. Annacs væri það áreiðanlega heppilegast fyrir þá ólánssömu menn, sem kommúnistar tefldu fram til óhæfuverka þann 30. mars árið 1949, að blað þeirra hefði vit á að skammast sín og þegja um verknað þeirra. hm einaí sýndarkosíiingar fara fram i Júgóslavíu Einkaskeyti til Mbl. írá Reuter. BELGRAD, 27. mars. — í gær fóru fram kosningar í Júgó- slavíu. Um 9 milljón manns neytti atkvæðisrjettar síns. Þó fullnaðartölur verði ekki til fyrr en í lok þessarar viku, kemur það samt í ljós af þeim tölum, sem þegar hafa- komið fram, að Tító og flokksmenn hans hafa fengið 92% greiddra atkvæða. Þó það sje að vísu óvenjulegt í kommúnistaríki, að viður- kenna, að 8% þjóðarinnar greiði atkvæði á móti kommúnista- stjórninni, er því ekki hjer fyr- ir að fara frekar en í öðrum löndum austan járntjaldsins að kosningarnar hafi verið lýð- ræðislegar nje frjálsar. í kosningum. þessum fjekk enginn flokkur nema kommún- istar að bjóða fram. Urðu ménn annaðhvort að kjósa þann flokk eða skila auðu. Auk þess er ekkert í vegi fyrir, að kommún- istarnir geti lagað atkvæðatöl- urnar til eins og þeim líst. Gæti þá verið að þeir hafi gefið upp þær töíur að 8% kjósendanna væri á móti stjórninni til þess að láta líta út fyrir, að kosn- ingarnar væru frjálsar. Tító sjálfur var í kjöri á sex stöð- um. Hið nýja gengi rúbl- tmnar fjarri veru- leikanum WASHINGTON, 27. mars — Bandaríska stjórnin sendi rússneskutn yfiivöidum í dag orðsendingu. þar sem hinu nýja gengi rúblunnar er mótmælt. Segir í orð'sendingunni, að það nái ekki nokkurrj átt að ákveða opinbert gengi á rúblunni fjór- ar á móti einum dollara, þegar raunverulegt verðgildi rúblunn -ar sje mörgum sinnum iægra. Segja Bandaríkjamenn m. a. að jafnvel hið gamla gengi átta rúblur gegn einum dollara, sje langt frá því að vera raunveru- leikanum samkvæmt. Talið er rjett, að 15 rúblur hafi líkt kaupgildi og einn dollar. —Reuter. Kínverskir þjóðernissinnnr gern innrns ú megininndið Baráffan gegn kommúnlstum heldur áfrsm sem áSur Forsætisrádherra í Finnlandi DR. URHO KEKKONEN, for- maður t'innska bændaflokksins, sem nýlega myndaði stjórn í Finnlandi. Frjeftir af öffugum mótspyrnuhreyfingum TAIPEH, Formosa, 27. mars. Þjóðernissinna-stjórnin kínverska, sem nú hefur aðsetur sitt á Formosa, hefur lýst því yfir, að það sje fjarri sanni, að baráttunni í Kína sje lokið. í tilkynn- ingu frá stjórninni í dag segir, að baráttan gegn kommúnism- anum í Kína sje nú fyrst að hefjast fyrir alvöru. Landgöngu- sveitir þjóðernissinna hafa gert tvær smáinnrásir á meginland Kína og ráða þegar yfir nokkrum borgum þar. Þá hafa og borist fregnir víða úr Kína um stöðuga mótspyrnu við komm- únistastjórnina, bæði mótspyrnu hersveita þjóðernissinna, sem enn verjast þar og leynilega baráttu mótstöðuflokka, sem vex nú mjög kraftur. Slór-vínsali handfekinn í Haygasundi HAUGASUND, 27. mars. — Fyrir nokkru var handtekinn í Haugasundi óvenjulega stór- tækur leynivínsali. Maður þessi hafði nýlega keypt bx’ennivín í útibúi áfengisverslunarinnar norsku í Bergen fyrir 7 þús. kr. Flutti hann vínið síðan til Haugasunds, þar sem hann seldi það leynilega með 100 % * álagningu. Maðurinn var dæmd ur í 45 daga fangelsi.rHjálpar- maður hans einn fjekk 500 kr. sekt. NTB. Meirihluli verka- mannafi. í h®ttu LONDON, 27. rnars. — Breski verkamannaflokk- Urinn hefur nú aðeins Þtíggja atkvæða meiri- hluta í neðri málstofunni, þar sem einn þingmaður hans ljest í dag. Fyrir dyrum standa aukakosn- ingar í þremur kjördæm- um Oakshire, Dumbartons hire og Slieffield. í öll- um þessum kjördæmum hafði verkamannaflokk- urinn mjög tæpan meiri- hluta. — Reuter. áfnám diylarefii Bayernskf flokkurinn vill halda henni Einkaskeyti til Mbl. frá NTB BONN, 27. mars. — Á þýska þinginu fara nú fram umræður um afnám dauðarefsinga. Foringi Bayernska flokksins, Her- mann Etzel, lýsti því yfir í rseðu sinni í dag, að flokkur hans væri einhuga á móti afnámi dauðarefsinga. ^Landganga þjóðernissinna í dag gengu landgöngusveitir þjóðernissinna á land við borg- ina Sung-men um þrjú hundruð kílómetra suður af Shanghai. Varnir kommúnista voru þarna litlar og ráða þjóð'ernissinnar, sem stendur yfir Sung-men og nokkrum smábæjum öðrum. Gefa ekki upp vörn í kínverska fylkinu Si-kang, sem liggur næst Tibet standa en yfir harðir bardagar. Þar er um 20,000 manna 113 þjóðernis- sinna, sem verst með miklum dugnaði gegn ofureíl' liðs. Hvor ir um sig þykjast r ? i yfir höf- uðboi'g fylkisins, Ka' g-ting. Leynifjelög færast í .ukana Þá berast stöðugt fregnir af aukinni og öflug. i starfsemi leynlegra mótspyrr, uflokka í Mið- og Norður-H a. Virðist sem almenningi í K ir-. a sje farið að verða það ijósar; > n áður, að kommúnistar ætla ; gera Kína að leppríki Rússa. I sem þjóð erniskennd Kinvei er sterk getur þetta leitt til V. ma mestu atburða og ekki goi’ að segja um hversu örugg st n komm- únista verður yfir 1. iinu. Flugvjelar frá Rúsí Aðrar fregnir er Framh. hinsvegar bls. 12. Frumvarp dómsmálaráðherra. <&- Umræðurnar hafa fjallað um afnám 102. gr. þýsku borgara- lögbókarinnar, sem heimilar dauðarefsingu. Kom frumvarp- ið um afnám dauðarefsinga fram fyrir tilstilli dr. Derle, dómsmálaráðherra. Aukin andstaða. í upphafi virtust þingmenn vera sammála um afnám dauða refsingarinnar, en þar sem bor- Framh. á bls. 12. Bjarni Benedikisson uianríkisrálÍK ra situr ráðherranefndariimd Evrópai? tsins BJARNI BENEDIKTSSON, ut- anríkisráðherra, flýgur í dag á- leiðis til Strassburg, en þar mun hann sitja fund ráðherranefnd- ar Evrópuráðsins. í för með honum verður Hans Andersen, þjóðrjettarfræðing- ur utanríkisráðuneytisins. Fundur ráðherranefndarinn- ar hefst n. k. fimmtudag og mun standa' yfir í J, rjá daga. Er gert.ráð fyrir, að utanríkis- ráðherra verði rúma /iku í för þessari. Eins og kunnugt er, sam- þykkti Alþingi það. sem nú stendur yfir, að Í:U. nd skyldi þiggja boð um að g rast aðili að þessum samtökx.m hinna vestrænu lýðræðisþjóða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.