Morgunblaðið - 03.11.1950, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.11.1950, Blaðsíða 1
16 síður Sorgarbúningur við sænsku hirðina I/OUISE Svíadrottning og Sibylla prinsessa, sem er ekkja stjúp- sonar drottningar, Gustafs Adolfs, leiða Carl Gustaf krónprins á milli sín, en Sibylla prinsessa er móðir hans. Frúrnar eru Idæddar sorgarbúning þeim, sem fyrirskipaður er við sænsku liirðina, sem er svartur kjóll og hvítar svuntur. — Myndin var tekin er þær gengu úr salnum, þar sem hinn nýi konungur liafði svarið hollustueið sinn. GEORGE BERNAZID SHAW LJEST I GÆR Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. LONDON, 2. nóvember. — George Bernard Shaw, leikritahöf- undurinn heimskunni, ljest að ^ieimili sínu snemma í morgun. Hann varð 94 ára. Fyrir skömmu varð Shaw fyrir því óhappi að mjaðmar- brotna, en síðan fór heilsu hans mjög hrakandi, og síðustu 24 klukkustundirnar fyrir andlát- ið komst hann ekki til með- vitundar, GEYMIST í SÖGUNNI Forystumenn um allan heim hafa í dag minnst skáldsins og vottað því virðingu sína. — Birt var opinber tilkynning á vegum Sameinuðu þjóðanna, þar sem meðal annars var kom- ist svo að orði, að framlag Shaw- til heimsbókmenntanna mundi geymast í sögunni. FÆDDUR í DUBLIN Á Broadway í New York voru ljósin slökkt í hinum frægu aug lýsingum og skrautsýningum heimsstrætisins í virðingarskyni við Shaw. í Delhi var stjórnarfundi frestað á meðan lesin var upp fregnin um lát hans. Shaw var íri, fæddur í Dubl- .in. — (Sjá grein á bls. 9), 4,400 fallnir J WASIIINGTON, 2. nóv. — Op- inberlega var skýrt frá því í; dag, að 27,000 Bandaríkjamenn hefðu fallið, særst eða týnst í Kóreustyijöldinni. Um 4,400 bandarískir her- menn hafa beðið bana í Kóeru. —Reuter. Gríska sfjérnin segir af sjer AÞENA, 2. nóv. — Venizelos, forsætisráðherra Gikklands, sagði í kvöld af sjer fyrir sína hönd og ráðuneytis síns. Paul konungur fól honum sam stundis að gera tilraun til nýrr- ar stjórnarmyndunar. Stjórnarkreppan er til komin vegna ágreinings milli leiðtoga þeirra þriggja flokka, sem að stjórninni stóðu. ■— Reuter. Herir S.Þ. hörfa i Bandarískl herllð Frá dúfnavígslöðvunum: Kóreu umkring! ,Heljuleg SÓkn Kínverskar hersveitir Inn j Tihef' sennilega þar að verki Einkaskeyti frá Reuter. LONDON,' 2. NÓV. — Frjetta- stofa kínverskra kommúnista tilkynnti í kvöld frá Chung- king, Mið-Kína, að „kínverski þjóðfrelsisherinn“ sigrist nú ,,á hinum hetjulegasta hátt á erfiðleikunum, sem hann á við að etja í sókn sinni inn í Tíbet.“ ~k TILKYNNINGU frjettastof- unnar er lögð áhersla á, að ,,þjóðfrelsisherinn“ hafi aldr- ei fyrr át.t við jafn mikla „landfræðilega örðugleika" að glíma. Kommúnislar með ný þungavopn og skriðdreka. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. TOKYO, 2. nóvember. — Hersveitir Sameinuðu þjóðanna eiga í kvöld í hörðum orustum í norðvestur Kóreu. Reyna þær eftir megni að treysta víglínu sína á þessum slóðum, en þar hefur kommúnistum tekist að umkringja allstórt bandari: kt herlið riokkuð fyrir sunnan borgina Unsan. Hefur Bandaríkjamönn- um ekki tekist að koma þessu herliði til hjálpar, þráft fyrir margendurteknar tilraunir. Ekki er vitað, hve stórt hið um- kringda lið er, en giskað er á eina til tvær herdeildir. Það hefur nú fengið fyrirskipun um að reyna að brjótast út úr umsátrinu af eigin rammleik. ★ HERINN, SEGIR ENN í frjett- inni, verður að flytja allar vistir sínar á áburðardýrum og bifreiðum yfir „snævi þak in fjöll og ægilegar ár“. ★ TÍBETBÚAR, fullyrðir frjetta- stofan og, taka innrásarhern um með miklum fögnuði. — Lamarnir (prestarnir) koma til mót s við hermennina við borgarhliðin. Á einum stað afhentu þeir foringja komm- únistahermannanna meir að segja silkifána, en það er mikið virðingarmerki í Tíbet, Báðu prestarnir herforingj- ann að bera Mao Tse-tung, leiðtoga kínverskra kommún ista, bestu kveðjur sínar. ★ í NÝRRI ORÐSENDINGU, sem stjórnin í Delhi í dag sendi kínversku kommúnistastjórn inni, segir hún meðal annars, að aðgerðir kommúnista í j Kína hafi stórum aukið stríðs hættuna í heiminum. LONDON — Ástralska stjórn- in pantaði nýlega 400 tilbúin hús frá verksmiðju einni í Lin- coln, Bretlandi. Hershöfðingi Ástralíu- manna í Kóreu fallinn CANBERRA, 2. nóv. — Opin- beiflega var 'skýrt frá því í Ástralíu í dag, að yfirmaður áströlsku hersveitanna, sem berjast með herjum S. Þ. í Kór- eu, hefði látist af sárum, er hani\ hlaut í bardaga. — Reuter. Bráðabirgðaforingi franska lepp- flokksins PARÍS, 2. nóv. — Miðstjórn franska komúnistaflokksins til- kynti í dag, að Jacues Duclos mundi taka við störfum aðal- ritara flokksins í fjarveru for- ingjans, Maurice Thorez. Thorez er nú rúmfastur í heimili sínu í einu af úthverfum Parísar. Duclos hefur verið meðlimur franska kommúnistaflokksins frá stoinun hans. —Reuter. „Smáborgaraleg þjóð- ernisstefna“ og „komm- únistisk árvekni“ NÝ VOPN Hermenn kommúnista beita nýjum vopnum, þar á meðal skriðdrekum og öðrum þunga- vopnum. Berjast þeir ákaflega og hafa herir Sameinuðu þjóð- anna á einum stað orðið að hörfa undan um allt að 14 kílómetra. LOFTÁRÁSIR Flugvjelar S. Þ. hafa haft sig mjög í frammi í dag. Hafa þær aðstoðað lýðræðisherina eftir mætti, en um skeið leit út fyr- ir, að kommúnistum mundi tak- ast að innikróa allt að þrjár her deildir S. Þ. ÖFLUGUR HER Fregnir frá vígstöðvunum herma annars, að andstaða kommúnista sje nú mun þrótt- meiri en undanfarnar vikur. — Virðast þeir enn ráða yfir öfl- ugum her. Óstaðfestar fregnir, sem bor- ist hafa hingað til Tokyo, herma, að mikiil fjöldi kín- verskra hermanna hafi tekið þátt í bardögum síðastliðna nótt. Er fullyrt, að kínverskar herdeildir hafi meðal annars tekið þátt í aðgerðunum, sem höfðu það í för með sjer, að bandaríska Iiðið var umkringt við Unsan. Robert Gay, hershöfðingi, yf- irmaður fyrsta bandaríska her- fylkisins í Kóreu, skýrði frjetta mönnum svo frá í dag, að at- burðirnir við Unsan hefðu ver- ið „mjög þungt áfall“. STOKKIIOLMUR, 2. nóv. — Samkv. útvarpinu í Riga, hefur þremur ráðherrum í Lithauen verið vikið úr stöðum sínum fyrir „smá- borgaralega þjóðernisstefnu“ Menn þessir eru: Vales- kalns, utanríkisráðherra, Strazdins menntamálaráð- herra og Saks skógarmála- ráðherra. Forseti landsins hefur sloppið með opinbera á- minningu, fyrir að sýna ekki nógu mikla „kommúnistiska árvekni“. Flóttamenn frá Eystra- saltslöndum, sem búsettir eru hjer í Stokkhólmi, telja, að hin „smáborgaralega þjóðemisstefna“ boði vax- andi aðgerðir gegn rúss- nesku landaránsmönnunum. Allir ráðherrar í Estlandi voru reknir úr embættum fyrr í ár fyrir sama „glæp- inn“. Eystrasalstlöndin vorn sjálfstæð. fullvalda ríki, þar til Rússar lögðu þau undir sig í lieimsstyrjöldinni síð- ari. Þjóðernissinnar í Puerio Rico senda Lie orðsendingu LAKE SUCCESS. 2. nóv. — í Þjóðernissinnar í Puerto Rico lýstu yfir í dag', að atburðirnir í landinu undanfarna dag'a, gætu ekki talist innanlandsmál, þar sem heimsfriðnum gæti stafað hætta af þeim. Fóru þeir fram á það við Tryge Lie, að hann legði málið fyrir Samein- uðu þjóðirnar. —Reuter. j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.