Morgunblaðið - 30.03.1954, Blaðsíða 1
16 sáður
41. árgangur.
74. tbl. — ÞriSjudagur 30. marz 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ijfrás Frakka úr Dion
kcnQBBtiÉnistum að óvörasm
N
1§IS teiiiúsistar félks í skyndiérás.
SAIGON 29. marz. Einkaskeyti frá REUTER
IBIRTINGU í morgun sneru hersveitir Frakka í Dien Bien Phu
skyndilega vörn upp í sókn. GerSu þær útrás úr borginni, svo
skyndilega að það kom kommúnistum algerlega á óvart og biðu
þeir mikið tjón.
KOMMUNISTAR
ÓVIÐBÚNIR
Herstjórn Frakka segir að árás-
in hafi komið kommúnistum al-
gerlega í opna skjöldu. Réðust
útrásarsveitir Frakka inn í tva
þorp, skammt fyrir vestan borg-
ina. Vissu kommúnistar ekki
hvaðan á þá stóð veðrið. Komust
Frakkar auðveldlega gegnum
víglínu þeirra og síðan inn í
þorpin.
MIKIE1 TJÓN
UMSÁTURSHERSINS
Áðnr én lauk höfðu Frakk-
ar feílt að því er áætlað er,
meir en 1000 kommúnista, tek
ið nokkra til fanga og allmik-
ið herfang, þar á meðal
nokkrar fallbyssur. Þá fyrst
rumskuðu kommúnistar við
sér og tókst harður bardagi.
Frönsku sveitirnar sneru þá
aftur til baka inn í virkis-
borgina og komust þangað án
nokkurs tjóns.
AFRAMHALD LOFTARASA
Samtímis þessu var haldið á-
fram loftárásum bæði á umsát-
ursher og flutningaleiðir komm-
únista.
jén fiofuðsmaður verst
í Dien Bien Phu
HETJULEG vörn franska hersins í Dien Bien Phu gegn þreföldu
eða fjórföldu ofurefli kommúnista er nú farin að vekja heims-
athygli. Er álitið að vörnin hafi reynzt svo styrk, einkum fyrir
frábæra herstjórn yfirmanns franska setuliðsins í borginni. Hann
er af gömlum frönskum aðalsættum og heitir Christian de Castries.
Er hann höfuðsmaður að tign og hefur getið sér mikinn orðstír
fyrir hugrekki.
BYRJADI SEM OBREYTTUR *
HERMADUR
Kristján höfuðsmaður er af að-
alsættum úr nágrenni Parísar. —
Ferill hans í hernum hefur verið
óvenjulegur, þar sem hann gekk
elcki í herforingjaskólann í St.
Cyr, sem venja er, heldur lét
hann innriía sig sem óbreyttan
hann handtekinn af Þjóðverjum,
en flúði úr fangabúðum og gekk
í lið með frjálsum Frökkum .
ALLT í LAGI MEÐAN
IIANN TÓRIR
Árið 1946 fór hann til Indó-
Kína og hefur staðið í bardögum
þar síðan. Hækkaði hann í tign
undir herstjórn Tassignys 1950,
var gerður höfuðsmaður og hefur
Framh. á b.s. í.
Varnarliðið í Ðien Bien Phu hefur hrundið hverri atlögu kommúnisía á fætur annarri. Borgin er
nú algjörlega umkringd af umsátursliðinu, svo að birgðir koma aðeins flugleiðis. Myndin, sem
er tekin í hléi milii bardaga sýnir franska hermenn í skotgröfum. Allt í kringum þá eru böggl-
ar, sem kastað hefur verið niður til þeirra í falliilífum.
* •
Oíigþveifið í Egypfal£mii
ABgei* kúvendin
Eagíbs
Ekkja Cordells Hulls látin.
WASHINGTON — Frú Hull,
ekkja Cordells Hull, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjana á tímum
Rossevelts er nýlega látin.
Kristján höfuðsmaður.
hermann 1921. Vann hann sig
brátt upp og var sendur á riddara
liðsskólann franska í Saumur.
GÓÐUR RIDDARI
Hann varð frægur riddaraliðs-
maður fvrir íþróttir sínar og setti
það einstaka heimsmet að
stökkva á hestbaki yfir hæðina
2,35 metrar. í styrjöldinni var
lásabet heilsaði eng-
nm með haxidabaneli
PERTH, 29. marz frá Reuter.
ÞEGAR Elísabet drottning lcom til Perth, höfuðborgar Vestur
Ástralíu heilsaði hún ekki nokkrum einasta manni með
handabandi. Er það mikil tilbreyting fyrir drottninguna, sem hef-
ur orðið að taka í hendina á hundruðum og þúsundum þegna
sinna á hverjum degi. Hefur hún oft verið lúin í hægri hendi eftir
allt það erfiði.
BANNAÐ AD TAKA
í HENDI
En þetta hefur orðið allt
öðru vísi í Vestur Ástralíu.
Þannig stendur á því að í þvi
héraði er mænuveiki landlæg
og eru það lög til að forðast
smitun, að fólki er stranglega
bannað að lieilsast með handa
bandi og skipað að snerta
hvort annað scm minnst.
MÓTTÖKUNEFNDIN
Þegar flugvél drottningar lenti
á flugvellinum var þar saman
komið allt hefðarfólk, forsætis-
ráðherra og borgarstjóri. Stóðu
þeir í ofvæni við flugbrautina
og bjuggust að sjálfsögðu við að
drottningin rétti fram hendina í
kveðjuskyni. — Jæja, hugsuðu
þeir, við verðum víst að brjóta
lögin þegar drottningin vill
heilsa okkur.
KINKAÐI KOLLI
Elísabet steig niður úr flug-
vélinni. Þegar hún nálgaðist
móttökunefndina, kinkaði hún
aðeins kolli til þeirra og sagði:
— Sælir og bless. — En þungu
fargi var létt af ráðherrunum,
— þeir þurftu þá ekki að brjóta
lögin. Síðan heilsar drottningin
engum með handabandi.
Skriyrekar
stá
KAIRÓ, 29. marz. Einkaskeyti frá Reuter.
ÞEGAR fundi byltingarráðsins egypzka lauk í dag var Móhameð
Nagíb eim bæði forseti og forsætisráðherra. En tilkynning
var gefin út um að yfiriýsingar Nagíbs á fimmtudag um lýðræðis-
legar kosningar og afnám byltingarráðsins væru ógildar. Þar
með er taiíð að Nagib hafi um sinn orðið að lúta í lægra haldi
fyrir Nasser.
IIERLIÐ I BORGUNUM
Jafnfrrmt lýsti byltingarráðið
yfir hernaðarástandi í öllu Egypta
landi og herlið með stálhjálma
tók sér varðstöðu á öllum þýð-
ingarmeiri stöðnm í Kairó og
Alexandriu. Skiiðdrekar óku um
götur og gættu allra þýðingar-
mikilla opinberra bygginga.
LOFORÐ NAGIBS
AFTURKÖLLUÐ
í tilkvnningn bvltingarráðs-
ins segir að loíorð Nagibs sim
kosningar í sumar sé aftur-
kailað, Ritskoðnn blaða, sem
var afnumin fyrir nokkrum
dögum er aftur setí á og bylt-
ingarráðið verður við völd
þangað til 1956.
SaJah Salem upplýsinga-
málaráðherra sagði á blaða-
mannafundi að byltingarráðið
hefði ákveðið að setja á stofn
rágefandi þjóðarráð, sem í
eigi sæti fulltrúar allra hags-
munasamtaka.
NAGIB HEILSUTÆPUR
Nagíb forseti fékk aðsvif
snemma í morgun, er hann
kvaddi Saud el Saud Arabíukon-
ung á flugvellinum við Kairo.
Hann sat samt fund byltingar-
ráðsins í dag, en mun hafa feng-
ið annað aðsvif á fundinum. Þjá-
ist hann af æðakölkun og háum
blóðþrýstingi, sem taugaveiklun
fylgir. Hefur hin harðvítuga
'valdabarátta að undanförnu
mjög rist rúnir sínar á hamv
Gengur nú orðrómur um það að
hann muni segja af sér starfi
sökum vanheilsu.
MÚGÆSINGAR
Veíkföll hafa verið í ýmsum
Framh. á bls. 2.