Morgunblaðið - 31.03.1954, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.03.1954, Blaðsíða 1
16 síður * 41. árgangur. 75. tbl. — Miðvikudagur 31. marz 1954 Prentsmiðja Morgunblaðsins Vísindamenn kjarnorkumálastofnunar Bandaríkjanna gera tilraun með kjarnorkugeislun til geymslu matvæla. Á myndinni sést starfs- maður stofnunarinnar athuga hylki með geislavirku efni, sem not- að hefir verið við tilraunir þessar. Geislun þessi kemur í veg fyrir að matvæli skemmist við geymslu. Hylkinu er komið fyrir í kerið (framan til á myndinni), sem í eru matvæli. Nokkrar ámóta til- raunastöðvar eru til í landinu. Forsætisráðhern hvarf inn í frumskógana fi! ai hugsa ÞAÐ er fágætt, að forsætis- ráðherra hverfi algerlega dög- um saman, svo að enginn viti,1 hvert hann fer. Þetta bar við á Gullströndinni nú fyrir skömmu, en landið er í þann veginn að fá sjálfstæði. For- sætisráðherrann Kwame Nkrumah dró sig út úr skark ala heimsins, inn í frumskóg- ana, til að hugsa málefni lands síns í einveru og næði, og þar ráðgaðist hann við guði sína um væntanlegar kosningar og framtíð landsins. Minnir þetta dálitið á atburð úr íslendinga- sögunni. KOM RAKLEITT ÍI’. FANGELSI Gullströndin hefur unnið stjórnarfarsfrelsi sitt furðan- Iega hávaðalítið. Að vísu var nokkur ókyrrð með verkföll- um í landinu 1948 auk þess sem stjórnmálaforingjar þjóð- arinnar hafa setið í svartholi við og við, en 1949 var sctt á stofn löggjafarsamkunda, þar sem flestir fulltrúanna voru þjóðkjörnir. Forsætisráðherr- ann Kwame Nkrumah kom rakleitt úr fangelsi upp í ráð- herrastólinn. LAUT BRETUM FRÁ 1871 Innan skamms verður kosið til stjórnlagaþings á Gull- ströndinni, og úr því verður landið sjálfstætt. Portúgalar fundu Gull- ströndina eða Kakó-Iand á 13. öld, og á næstu öldum stofn- uðd þeir þar verzlunarstöðvar ásamt Englendingum og Döu- um. Um skeið laut landið IIol- lendingum, en 1871 náðu Bret- ar því undir sig. Jókst seinna meir við landið, m. a. þýzka nýlendan Togo eftir fyrri heimstyrjöld. Er Kakó-land nú 238 þús. ferkm. að flatar- máli, en íbúar 4,4 milljónir. Um 4000 Bretar eru í landinu. KAKÓLAND Ekkert land í víðri vcröld framleiðir svo mikið af kakó sem Gullströndin eða yfir þriðjung alls kakós, sem neytt er í heiminum. Einnig er fíutt út ógrynni gulls, gimsteina, mangans og alúmíns. — Lofts- lag er ekki betra en svo, að landið hefur oft verið kallað „gröf hvítra manna“. Reyna að felia Hc CaiHiy frá þing- mennsku WASHINGTON, 30. marz: — Kjósendur í Wisconsin-ríki, sem McCarthy er fulltrúi fyrir í Öld- ungadeildinni, vinna að því að „fá hann heim“. Einn af leiðtogum repúblikana í ríkinu sagði í dag, að hann mundi bjóða sig fram, ef takast mætti að fella McCarthy frá þing setu. Andróður gegn þingmanninum í kjördæmi hans hefir staðið nokkrar vikur og fengið góðar undirtektir. Vetnisprengja sprengd í Kyrrahafi s.l. föstudag Vopn, sem frekar en nokk- uð annað kemur í veg fyr- ir 3. heimsstyrjöldina LUNDÚNUM, 30. marz. — Einkaskeyti frá Reuter-NTB VETNISPRENGJAN er nú aftur á hvers manns vörum. Það var tilkynnt í Washington í gær, að önnur tilraun með þetta ægi- lega vopn hefði verið gerð í Kyrrahafi föstudaginn 26. marz. Tókst sú tilraun vel, og er ekki kunnugt um nein spjöll af völdum henn- ar á borð við þau, sem sprengingin olli 1. marz s. 1. Áður en vetm- sprengjan var sprengd leituðu flug- og flotadeildir kirfilega um hættusvæðið og notuðu m. a. ratsjá til að ganga úr skugga um, að enginn lifandi sála væri svo Stérkosflepr gull- hindur í Rússaveldi TOKÍÓ 30. marz — Japanzkir stríðsfangar, sem komnir eru heim frá Síberíu, segja frá gull- æði rússneska ríkisins við Kol- ymba-fljót, þar sem þýzkir og japanskir stríðsfangar fundu ó- hemjumiklar gulllendur eftir stríð. Fangarnir segja gulllendur þess ar feikna víðáttumiklar, og telja þeir, að þar séu stórar og smáar gullnámur reknar hundruðum saman. Vinnuaflið er ekki ýkja dýrt, því að fangar eru látnir þræla í námunum. Fangar þessir eru frá Eystrasaltslöndum, Rúmeníu, Tékkó-Slovakíu, Þýzkalandi, Kína, Ítalíu og Norður-Kóreu. 7. umferðin varð biðskák MCSKVU — 7. umferðin í heimsmeistarakeppninni í skák var tefld í dag, og fór hún í bið eftir 41 leik. — Skák in verður tefld í dag en 8. umferð á morgun. — NTB. nærri, að hlotið gæti tjón af. 'AFSKIPTI BRETA ÓHYGGILEG Vetnisprengjan var á dagskrá í brezka þinginu í dag. Churchill, forsætisráðherra, komst svo að orði, að það væri hvorki viturlegt né rétt af Bret- um, að þeir legðu að Bandaríkj- unum að hætta tilraunum sínum með vetnisprengjur. ENGIN BETRI VÖRN Hann sagði m. a.: „Við myndum gera hinum frjálsu þjóðum hinn rnesta óleik, ef við á nokkurn hátt reyndum að tálma bandamönnum okk- ar í Vesturheimi, er þeir vinna að endurbótum þessa stórkostlega vopns. Ekkert er betri vörn gegn því, að þriðja heimstyrjöldin skelli á en þetta vopn.“ VÍSINDAMENN ÞEKKJA ÁHRIF SPRENGJUNNAR Að sjálfsögðu sagði ráðherr- ann, að vitneskja Breta um þess- ar tilraunir Bandaríkjamanna hlytu að vera af skornum skammti. Churchill sagði líka Breta vita af eigin reynslu, að það væri úr lausu lofti gripið, þegar því væri haldið fram, að þeir, sem tilraunir þessar hefðu með höndum gætu engin tak- mörk sett krafti sprengjunnar og vissu ekki fyrirfram, hver áhrif hennar yrðu. Hundrað Danir skilja við konur sínar á brúðkaupsdaginn Um 200 þúsund manns flýja fléðin BAGDAD 30. marz — Höfuðborg Iraks er enn í mikilli hættu vegna flóða. Verkfræðingar, her- menn og sjálfboðaliðar vinna að því nótt og dag að treysta flóð- garða kringum borgina. Læknar og hjákrunarkonur hafa ærinn starfa með höndum, hafa 200 þús. flóttamenn þyrpzt til borgarinn frá nærliggjandi hér uðum, sem liggja undir vatni. Flóð í Tigris er enn í vexi. Vatn ið sjatnaði lítillega á mánudag, og vonuðu menn, að hættan væri liðin hjá, en það fór á aðra lund. Tjón af völdum flóða er metið á 2000 milljónir króna. Ýmis iðju ver landsins eru stórkemmd. Sífellt er unnið með jarðýtum við flóðgarðana, og sandsekkjum er slyndrulaust hlaðið upp þar, sem helzt þykir hætta á ferðum. — Reuter-NTB r r 4rás Israelsmanna á þorp í Jórdaníu LUNDÚNUM, 30. marz: — Vopna hlésnefnd S.Þ., sem fjallar um mál ísraels og Jórdaníu, hefir slegið föstu, að Israelsmenn beri ábyrgð á árás þeirri, sem gerð var á þorp í Jórdaníu s. 1. sunnu- dag. Er sagt, að þar hafi 9 manns látið lífið. Nefndin harmar, að þarna hef- ir saklaust fólk orðið illum ör- lögum að bráð og skorar á ísraels menn, að þeir líti slíka atburði ekki henda öðru sinni. Diskó í árekstri KAUPMANNAHÖFN — Nýlega lenti danska Grænlandsfarið Diskó í árekstri í Sagerak. Skipið var á leið til Grænlands, en varð ekki fyrir miklum skemmdum. ★ KAUPMANNAHÖFN, 30. ’marz: — Ókvæntir ríkisstafs- menn í Danmörku hafa heldur en ekki nýstárlega ráðagerð á prjónunum til að fá kaup- hækkun. 4r Þeim gazt ekki að því fyrir- komulagi, að kvæntir menn skuli fá hærri laun en stöðu- nautar þeirra, sem ókvæmtir eru. Því hafa þeir einsett sér að efna til fjöldabrúðkaups; ætla hundrað þeirra að ganga í það heilaga í einu. -Ar Brúðirnar vita fyrirfram, að þær mundu ekki hreppa rétt- indi né skyldur eiginkonunn- ar, því að gengið verður frá skilnaði, þegar hjónavígslan er um garð gengin. ★ Enn er ekki fullráðið, hve nær þetta athyglisverða fjöldabrúðkaup verður látið fram fara, en fógeti hefir þeg ar tjáð sig fúsan til að vígja. ★ í staðinn fyrir brúðkaups- söngva giftingardaginn verður útbýtt skilnaðarskilríkjum, engar Tobiasarnætur, engin brúðkaupsferð. ★ Eftir skilnaðinn geta brúð- * gumarnir tekið laun, eins og þeir eigi fyrir konu að sjá. Gripið hefir verið til þessa tiltækis í andmælaskyni, svo að yfirvöldum megi eftirminni legt verða, hve launafyrir- komulag þetta er vafasamt. ★ Potturinn og pannan í þess ári giftíingarsögu er mikils metinn ríkisstarfsmaður, sem ekki vill láta nafns síns getið að sinni. — NTB. NÝJAR SPRENGINGAR í APRÍL Þá vék ráðherrann máli sínu tíl þeirra manna, sem vilja, að frek- ari tilraunir séu undir alþjóð- legu eftirliti. Sagði hann, að bandarísk lög gerðu slíkt ófram- kvæmanlegt. En jafnvel þótt svo væri ekki, mundi hann fyrir sitt leyti ekki vera því hlynntur. Frekari tilraunir sagði ráð- herrann, að yrðu gerðar í apríl. Vonaði hann, að Bretar fengju að fylgjast með þeim veigamiklu tilraunum að því leyti, sem það samrýmdist bandarískum lög- um. ÞÁTTUR ALLSHERJAR- AFVOPNUNAR Churchill sagði það út í blá- inn að tala um að takmarka hagnýting kjarnorkuvopna einna. Aftur á móti kæmi takmörkun kjarnorkuvopna til greina, ef leitað yrði samkomulags um alls- her j araf vopnun. Vestrænar þjóðir hafa oftsinn- is reynt að fá afvopnun fram- gengt, en það væri barnalegt að ætla, að verulegur árangur næð- ist fyrr en þjóðirnar bæru meira traust hver til annarrar en nú er.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.