Morgunblaðið - 15.01.1955, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.01.1955, Blaðsíða 1
16 síður 42. árgangur 11. tbl. — Laugardagur 15. jar.úar 1955 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ráðstjórnin samþykkir samstarf við vestrænar þjóðir um kjarnorkumál Eftir frostin undanfarna daga eru nú Elliðaárvogur, og Grafar- vogur fagðir samfelldum ísi, — og nokkur hluti Kleppsvíkur er og lagður. ísskarirnar skaga út á víkina, i áttina að gömlu togurun- um, sem þar Iiggja. Myndin er tekin inn við Klepp í gærdag. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M. Mendes-France og Adenauer ræðast við Vinna he? ötnllegn nð vnrnnr- snmstnrfi vestrænnn þjöðo Baden-Baden 14. jan. — Reuter-NTB. MENDES-FRANCE, forsætisráðherra Frakka, og Adenauer, for- sætisráðherra Þýzkalands, hófu í dag umræður sínar um hagsmuna- og vandamál Frakklands og Þýzkalands. Ráðstefna þessi fer fram í borginni Baden-Baden í V.-Þýzkalandi. PARÍS, 14. jan. — Urmull heilla- óskaskeyta hefur borizt Nóbels- verðlaunahöfundinum og mann- vininum, Albert Sehweitzer, á átt ræðisafmæli hans í dag. Sjálfur eyddi hann deginum í kyrrð og ró á sjúkrahúsi sínu í Lambar- ene í frönsku Mið-Afríku með konu sinni og afríkönskum vin- um. □ Öll blöð í Frakklandi fluttu ! langar myndskreyttar greinar um Schweitzer, en Frakkar eru sem ! von er mjög stoltir af þessum landa sínum. □ Á morgun munu merkir tón listarmenn og rithöfundar koma saman í París, meðal þeirra Art- hur Honegger, til að hylla Albert Schweitzer á áttræðisafmæli hans. — Vonandi getur Albert Schweitzer enn um langt skeið haldið áfram störfum sínum. Undirbúningsnefnd alþjóða kjarnorku- ráðstefnunnar tekur til starfa Moskva, 14. jan. — Reuter-NTB. RÁÐSTJÓRNARRÍKIN tilkynntu í dag, að þau séu reiðubúin til samstarfs við vestrænar þjóðir í kjarnorkumálum og til að deila með öðrum þjóðum þeirri reynslu, er þau hafa aflað sér um friðsamlega hagnýtingu kjarnorku, einkum með tilliti til reksturs raforkuvers, er knúið er kjarnorku og hafin var bygging á í júní s.l. Höfðu vestrænar þjóðir boðið Ráðstjórnarríkjunum þátttöku í alþjóða ráðstefnu um kjarnorkumál, er rædd var á síðasta og níunda allsherjarþingi S.Þ. Ákveðið var þá, að ráðstefnan skyldi haldin síðar á þessu ári. Talsmaður rússnesku utanrík- isþjónustunnar tjáði blaðamönn- um í Moskvu í dag, að vísinda- leg og tæknileg þekking Ráð- stjórnarríkjanna í þessum efnum yrði gerð kunnug í skýrslu til kjarnorkunefndar Sameinuðu þjóðanna. Chaplin og einkaritarinn VEVEY, Svisslandi. — Charlie Chaplin var nýlega dæmdur til að borga einkaritaranum sínum 226 franka eftir að hafa rekið einkaritarann, frú Izobel Deluz. Höfðu þau lent í mikilli deilu út af flísunum í sundlaug Chaplins. Fór frúin fram á 2,800 franka í skaðabætur fyrir að hafa verið rekin frá starfi að ástæðulausu. ★ SAMVINNA TIL LANGS TÍMA Meðan forsætisráðherrarnir ræðast við, munu franskir og þýzkir viðskiptafræðingar leggja á ráðin um nánari samvinnu til langs tíma milli þjóðanna í efna- hagsmálum. Talsmenn vestur-þýzku stjórn- arinnar telja, að viðræður þessar muni að mestu snúast um þátt- töku Þjóðverja í stofnsetningu iðnfyrirtækja í frönsku N.-Af- ríku og einnig um fyrirhugaðan skipaskurð úr fljótinu Mósel, er tengi kolahéruð V.-Þýzkalands við stáliðnaðarsvæðin í Elsass- Lothringen. Varð það að samkomulagi með forsætisráðherrunum að herða eftir föngum á samþykkt Parísar- samninganna og vinna ötullega að varnarsamstarfi vestrænna þjóða, en reyna jafnframt að bæta sambúð vesturveldanna og Ráðstj órnarríkj anna. Önnur viðfangsefni forsætis- ráðherranna verða Saar-málið og tillögur Mendes-France um sam- eiginlega hergagnastofnun V.- Evrópubandalagsins. Lét Mendes France þess getið, að slík stofnun muni ekki geta annað eftirliti með framleiðslu alls konar vopna ' en lagði áherzlu á, að tilgangur stofnunarinnar væri, að vestræn lönd gætu hervæðzt- í flýti og með sem minstum kostnaði. Efnahagsmálaráðherra V.- Þýzkalands Ludwig Erhard, lagði fram breytingartillögur. Ekki er enn kunnugt um efni þeirra í smáatriðum, en fulltrúi vestur- þýzku stjórnarinnar upplýsti, að þær yrðu lagðar fyrir fulltrúa- fund V.-Evrópubandalagsins, er kemur saman í París n.k. mánu- dag til að ræða tillögur Mendes- France. Utanríkisráðherra ítala, Mar- tino, tjáði blaðamönnum í kvöld, að ítalska stjórnin styddi tillögur Mendes-France. Álit nefndar Ameríkubandalagsins ' Istnrás, ekki upp- j reisn í Costa Rica Washington, 14. jan. — Reuter-NTB. NEFND sú, er bandalag Ameríku-ríkjanna skipaði til að rann- saka óeirðirnar á landamærum Costa Rica og Nicaragua, lýsti yfir því í dag, að um innrás erlendra herja í Costa Rica væri að ræða. í áliti nefndarinnar var sagt, að flugvélar erlends hers hefðu I flogið yfir Costa Rica og hefðu skotið á höfuðborg Costa Rica, San Jose, og aðra staði. ★ SKIPA FULLTRÚA í UNDIRBÚNINGSNEFNDINA Sagði talsmaðurinn, að Ráð- stjórnin tæki þetta skref, þar eð henni væri ljós nauðsyn þess að beita kjamorkunni í þágu friðar Framh. ó bls. 12 Davíð frá Fa«ra- skógi boðið lii»«að á sextugsafnsæli haus Dag Hammarskjöld: Viðræiurnar við Chou En-lai mjög gagnlegar New York, 14. jan. — Reuter-NTB. DAG HAMMARSKJÖLD, framkvæmdastjóri S.Þ., lagði áherzlu á það í blaðaviðtali í dag, að viðræður hans í Peking við Chou En-lai, forsætis- og utanríkisráðherra kínverska alþýðulýðveldis- ins, hefðu verið mjög gagnlegar, þar sem þær hefðu orðið til þess að ryðja úr vegi misskilningi, sem orsakist af skorti á þekkingu á stefnu alþýðulýðveldisins. ★ ENGIN „HROSSAKAUP“ Framkvæmdastjórinn full- yrti, að ekki hefðu verið gerð nein „hrossakaup" og viðræðun- um um lausn bandarísku flug- mannanna hefði á engan hátt ver ið blandað saman við önnur vandamál stjórnmálalegs eðlis, er rædd hefði verið í Pöking. EKKERT SERSTAKT RÍKI NEFNT Vopn og skotfæri hefðu verið fengin í hendur uppreisnarmönn- um í Costa Rica af erlendu ríki. Nefndarálitið nafngreindi ekkert sérstakt ríki. I Stjórn Costa Rica hefir haldið j því fram, að ráðist hafi verið inn í landið frá Nicargua, og séu innrásarherirnir studdir af stjórn Venezúela og einnig af banda- I rískum auðhringum. j Nefndin sendi skýrsiu sína til aðalstöðva bandalagsins í Washington, og er þar sagt, að bardagar haldi enn áfram í Costa Rica, nálægt landamærum Nicara gua. Nefndin heldur áfram rann- sóknum sínum. Talsmaður sendiráðs Costa Rica í Washington sagði í dag, að brotnar hefðu verið á bak aftur árásir innrásarsveitanna og væri nú unnið að því að uppræta þær, taka til fanga eða hrekja þær yfir landamærin til Nicaragua. Áleit hann, að aðeins 100—200 hermenn væru eftir af innrásar- liðinu. Síðdegis í dag unnu hersveitir Costa Rica borg nokkra úr hönd- um óvinanna og héldu áfram að umkringja borgir í óvinahöndum við landamærin. Stjórnmálamönnum í Washing- ton ber saman um, að sigur Costa Rica muni bjarga bæði Ameríku- bandalaginu og Bandaríkjunum úr slæmri klípu. Hammarskjöld kvaðst ekki álíta, að hann þyrfti að takast aðra ferð á hendur til Peking. Hann sagðist álíta, að sú samn- ingaleið, sem nú hefði verið opnuð, gæti haldizt opin, án þess að hann eða Chou En-lai tækjust ferðalög á hendur. lorsb stjórnin biðst lausnar Einar Gerhardsen falið að mynda stjórn Ósló, 14. jan. — Reuter-NTB. OSKAR TORP, forsætisráðherra Noregs, baðst lausnar fyrir sig og ríkisstjórn sina í dag. Leiðtoga verkamannaflokksins, Einar Gerhardsen, var falið að mynda nýja stjórn. Hin nýja stjórn verður skipuð n.k. föstudag og ekki er líklegt, að nöfn ríkisstjórn- armeðlima verði kunngerð fyrr en þá. Miðstjórn verkamannaflokksins og þingmenn hans ræddu stjórnarmyndun í dag. Embætti forsætisráðherra nmn skipa Einar Gerhardsen, utanríkisráðherra, Halvard Lange, eins og nú, dómsmálaráðherra, Jens Cristian Hauge, hæstaréttarmálaflutnings- maður. Kirkjumálaráðherra, atvinnumálaráðherra og þjóðfélags- málaráðherra sitja áfram í embættum sínum. NOKKRIR vinir Davíðs Stefáns- sonar frá Fagraskógi, hafa boðið honum að koma hingað til Reykjavíkur í tilefni af sextugs- afmæli hans, en hann verður sex- tugur hinn 21. janúar, þ. e. á föstudaginn í næstu viku. Þann dag verður hann viðstaddur sýn- ingu Þjóðleikhússins á „Gullna hliðinu“, sem fer fram í heiðurs- skyni við hann á afmælisdaginn. En þetta leikrit hans heíur sem kunnugt er átt vaxandi vin- sældum að fagna og farið sigur- för á undanförnum árum, bæði um ísland og nágrannalöndin og hlotið hinar ágætustu viðtökur og ritdóma frægra bókmennta- fræðinga. Vinir Davíðs og aðdáendur gangast fyrir því, að á laugar- daginn 22. janúar verði efnt til almennrar kvöldveizlu fyrir hann í Sjálfstæðishúsinu, en um nán- ari tilhögun hennar verður síðar getið í dagblöðum bæjarins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.