Morgunblaðið - 10.07.1955, Blaðsíða 1
16 síður og Lesbók
«. árganfwr
153. tbl. — Sunnudagur 10. júlí 1955
Prentsmlf Ja Morgnnblaðsúu
Atomöldin
HÁMARK ÓSVÍFNI BREZKRA
----- TOCARAEIGENDA
2500 sinnura öfluori en
Oirosbimasprengjan
LONDON, 9. júlí: — Möguleikar
eru á því að gera kjarnasprengju,
sem er 2500 sinnum öflugri held-
ur en atomsprengjan, sem eyddi
Hiroshima í Japan. Frá þessu
segir í ávarpi, sem 9 heimskunn-
ir vísindamenn hafa sent stjórn-
völdum fimm stórvelda, Bret-
lands, Bandaríkjanna, Frakk-
lands, Kanada og sovétríkjanna.
í ávarpjnu segir að almenning-
ur geri sér ekki grein fyrir tor-
tímingarmöguleikum kjarna-
styrjaldar, og jafnvel ekki held-
ur ráðandi menn í heiminum.
♦ Ef sprengdar verða marg-
ar vetnissprengjur í senn mun
minnihluti manna deyja þegar i
stað, en meirihlutinn mun eiga
yfir höfði sér hægan og þján-
ingarfullan dauðdaga. Kjarnorku
styrjöld mun hafa í för með sér
tortímingu mannkyns.
Til þess að koma í veg fyrir
kjarnorkustyrjöld verður að
finna leiðir til þess að stöðva hin
tröllauknu átök milli kommún-
isma og andkommúnisma, segir
í ávarpinu.
★
Meðal vísindamannanna, sem
ávarpið hafa undirritað er Albert
Einstein, frumkvöðull atomaldar.
— Hann undirritaði ávarpið
skömmu fyrir andlát sitt í april
síðastliðnum. Bertrand Russel
birti ávarpið á blaðamannafundi
í London í dag.
Auk Einsteins og Russels und-
irrita ávarpið 7 Nóbelsverðlauna-
höfundar. Meðal þeirra eru
Bridgeman, prófessor , Harvard,
Mollte, próf., Indiana, Rutledge,
próf. London, Powell próf. Bris-
tol, Joliot Curie, próf., Frakk-
land, japanskur prófessor og
pólskur prófessor. Engir sovétsk-
ir vísindamenn undirrita ávarpið,
en einn hefur lýst yfir skriflega,
1 að hann sé meðmæltur.
Russel lagði á það höfuð-
áherzlu á blaðamannafundinum
að ávarp þetta væri frábrugðið
kommúniskum friðaráróðri.
London í gær:
KOLAVERÐ hækkaði í Bretlandi
í morgun um 18 hundraðshluta
og kom þetta eins og reiðarslag
yfir brezkan iðnað. Búizt er við
að verð á rafmagni og gasi hækki
þegar í stað vegna hins háa kola
verðs. Hækkun eldsneytiskostn-
! aðar mun síðan hafa áhrif til
verðhækkunar í fiestum grein-
um brezks iðnaðar.
STÁLVERÐ í Bandaríkjunum
hækkaði uro mánaðamótin um
rúmlega 7%, vegna hækkaðs
kaugjalds til stáliðnaðarverka-
manna. Hlutu þeir 15 centa (kr.
2.45) hækkun á tímakaupi.
Hækkun stálverðs hefir áhrif á
verðlag frá títuprjónum upp í
túrbínur.
□-------------------------□
Stokkhólmur, 9. júlí. handtekinn og yfirheyrður. En
MILLJÓN KRÓNA málaferli eru íyrir nokkrum vikum var frá því
um það bil að hefjast milli söngv skýrt, að Adenby hefði verið
arans Gösta Nordgrens („Snodd- sýknaður af öllum ákærum.
aS“) annarsvegar, og auglýsinga- j
stjóra hans frá því á söngárun-' Nú hefir Adenby fyrir sitt leyti
um, Thorsten Adenby. hinsvegar. lagt fram stefnu. „Afton Tidning-
Báðir þessir heiðursmenn komu en“ skýrir frá því, aðAdenby ætli
til íslands hér um árið. jað krefja Snoddas um milljón
Fyrir aillöngu lagði „Snoddas" (sænskra) króna skaðabætur. —j
fram kæru í lögreglurétti Svíþjóð Þar á ófan gerir hann kröfu til j
ar á hendur Abenby fyrir að hafa j 100 þúsund sænskra króna, sem
dregið sér óheiðarlega allmiklar t hann telur að Snoddas eigi hon-
fjárfúlgur, sem Snoddas taldi um vangoldnar frá því á hljóm- j
sína réttmœtu eign Adenby var leikaferðunum.
BJARTARA er yfir heimsmál
unum og bjart er yfir þessum
heiðursmönnum, sem hér
sjást á mynd. Myndin var tek
in vestur við Kyrrahafs-
strönd í júní.
Menn þessir eru að undir-
búa Genfarfundinn, en á
þeim fundi er ætlunin að
ljúka „kalda stríðinu“. Menn
irnir, sem þarna eru að semja
í sól og hita, eru talið frá
vinstri: John Foster Dulles,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Harold MacMillan, ut-
anríkisráðherra Breta og
Antoine Pinay, utanríkisráð-
herra Frakka.
i»eir fara til Genf í lok þess
arar Viku.
Utanríkisráðherrarnir halda
morgunfundi á meðan á ráðstefn-
unni stendur í Genf, en „topparn-
ir“ halda síðdegisfundi.
Bjóða íslenzkum blöðum fé fyrir
birfingu óhróðurs og blekkinga um
hinn islenzka málstað i friðunarmálinu!
EINS og kunnugt er, hafa samtök brezkra togaraeigenda
undanfarið haldið uppi óhróðri og blekkingum um frið-
unaraðgerðir íslendinga í brezkum blöðum. Hafa mörg blöð
birt auglýsingu frá samtökunum, þar sem reynt er að gera
hinn íslenzka málstað tortryggilegan á alla lund. M. a. er þar
beinlínis látið að því liggja, að hin nýju friðunartakmörk eigi
sök á því, að brezkir togarar hafa farizt við íslandsstrendur.
Samtök brezkra togaraeigenda hafa nú bitið höfuðið
af skömminni með því, að snúa sér til Morgunblaðsins
og óska þess, að það birti þennan óhróður þeirra sem
auglýsingu, og taki fé fyrir. Má segja, að þar með
hafi ósvífni þeirra ®g frekja náð hámarki sínu. —
Hefur Morgunblaðið að sjálfsögðu neitað að birta
slíka „auglýsingu“. Hinsvegar telur það rétt, að ís-
lenzkur almenningur eigi kost á að kynnast efni
hennar, því vitanlega hafa íslenzk blöð enga ástæðu
til þess að dylja lesendur sína þess. Er það fyrst og
fremst samtökum brezkra togaraeigenda til háðungar
og áfellisdóms.
EFNI „AUGLÝSINGARINNAR“
í upphafi auglýsingarinnar eru
raktar nokkuð aðgerðir íslenzku
ríkisstjórnarinnar til verndunar
fiskimiðunum við strendur ís-
lands. Er hin nýja friðarlína þar
kölluð „refsimörk". Hafi þau ver-
ið sett upp á eindæmi íslendinga
og „án ráðaleitna“.
Þá segir að brezkir togarar hafi
verið „brautryðjendur á fiski-
miðunum umhverfis ísland“. Það
sé því ekki að furða þótt brezk-
ym skipstjórum, stýrimönnum og
áhöfn gremjist, þegar þeir séu
„sviftir hinum hefðbundnu svæð
um á svo gjörræðisleg'an hátt“.
Síðan er kvartað yfir því, að
íslenzkir línubátar skuli mega
fiska innan hinnar nýju friðunar-
línu, en ekkert á það minnzt, að
sama gengur yfir íslenzka togara
og erlend togveiðiskip.
Meginefni „auglýsingarinnar“
fer orðrétt hér á eftir í þýðingu
löggilts skjalaþýðanda:
VERKFALL TOGARASKIP-
STJÓRA
„Brezkir togaraskipstjórar
guldu líku líkt, og hótuðu verk-
falli, ef ísl. togarar lönduðu afla
sínum í Hull, Grimsby eða Fleet-
wood. Brezku fiskkaupmennirnir
og öll brezku togarafélögin
studdu mSl þeirra. Síðan þetta
var, hefur löndunarbann verið á
íslenzkum ferskum fiski í höfn-
um vorum, enda þótt íslendingar
landi enn saltfiski og frystum
fiski.
Á meðan deila þessi hefur
staðið yfir, skipaðist hliðistætt
staðið yfir, skipaðist hliðstætt
miðum umhverfis Færeyjar. —
Gagnstætt framkomu íslendinga,
var nýr brezkur samningur gerð-
ur við Danmörku og færeysku
landsstjórnina, sem allir aðilar
una, og öðlaðist hann gildi hinn
1. júlí 1955.
MARKAÐUR ÍSLENZKRA
SKIPA
íslendingar eru fornvinir vorir.
Brezku fjármagni hefur verið
veitt til byggingar íslenzka tog-
araflotans. Bretland hefur ævin
lega verið aðal markaður ís-
lenzkra skipa. Áður en deilan
hófst, námu íslenzkar landanir
um 5 af hundraði af þeim fiski,
sem barst á brezka markaðinn.
Með því að leggja hart að sér,
hafa brezkir, þýzkir og aðrir
erlendir togarar fyllt í skarðið.
Æ meiri fiski er nú landað í
brezkum höfnum, og verðinu
haldið mjög stöðugu. í raun og
veru er það stöðugra en á nokk-
urri annarri fæðu, og fiskur er
enn ódýrasta fyrsta flokks eggja-
hvítuefnafæðan, sem brezkar hús
mæður geta keypt.
Allir innan brezka fiskiðnað-
arins harma deiluna við ísland.
Ríkisstjórnin hefur gefið út grem
argerð, sem lögð hefur verið
fyrir Evrópuráðið, en í henni er
nákvæmlega skýrt frá brezka
málstaðnum. Æ ofan í æ hefur
af hálfu iðnaðarins verið boðist
til þess að semja við íslendinga,
en öllum tilraunum til samninga
hefur verið hafnað. Málið er enn
í sjálfheldu.
Frh. á bls. 2.
Norðmen vanlar
yyp sjviEKfisBi
K AUPMANN AHÖFN: — Norska
verzlunarflotann vantar skips-
hafnir. Norðmenn gera ráð fyrir
að sig muni vanta 6—7000 sjó-
menn innan nokkurra ára.
Nú hefir varaformaður norska
sjómannasambandsins, Gunvald
Hauge, gert Dönum opinbert til-
boð um að veita 2 þús. stórum
dönskum drengjum ókeypis sjó-
mannanám í Noregi, ef drengirn-
ir vilja ráða sig í norska flotann.
HITI
CHICAGO 8. júlí. — í austur-
hluta Bandaríkjanna gengur yfir
hitabylgja, hitinn hefur undan-
farna daga verið 35—40 gráður
á Celsius.
SNJÓR
BUENOS AIRES 8. júlí. Fyrsti
snjórinn sem hér hefur komið
undanfarin 37 ár féll hér í dag.
Snjókoman stóð í 40 mínútur. —■
Snjórinn bráðnaði jafnóðum af
götunum.
FLÓÐ
SKIPAFERÐIR um Dóná hafa
stöðvazt vegna flóðs af völdum
rigninga. Brýr hefur tekið aí
viða í Suður-Þýzkalandi og I
Austurríki vegna flóða.