Morgunblaðið - 30.05.1956, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.05.1956, Blaðsíða 1
43. árgangur 119. tbl. — Miðvikudagur 30. maí 1956 Prentsmiðja Morgunblaðsins Rússneskur ráðherra tekinn af lífi Sakaður um landráð ingar með valdbeitingu eða hót- unum. London í gær. TILKYNNT hefur verið að Bagirov, maður sem verið hefur for- maður kommúnistaflokksins og forsætisráðherra í Sovétríkinu Adsjerbadjan um tuttugu ára skeið, hafi verið tekinn af lífi, ásamt þrem liðsforingjum. Káðherrann hafði notið hinnar mestu virð- ingar í Sovétríkjunum og m. a. verið sæmdur Lenin orðunni fimm sinnum og orðu hins rauða fána, einnig fimm sinnum. Æðsta ráðið hvatt saman MOSKVA í gærkvöldi: — Æðsta ráð sovétríkjanna hefir verið kvatt saman 11 júlí n.k. Ekkert er sagt um af hvaða tilefni ráð- ið er kvatt saman. Rómaborg í gærkvöldi. TALSMENN miðflokkanna á ítaliu hafa látið svo uni mælt að úrslit kosninganna til bæjar- og sveitastjórna í landinu um síð- ustu helgi, hafi verið greinilegur sigur fyrir utanaríkisstefnu ítölsku stjórnarinnar, en hún hef- ur eindregið fylgt vesturveldun- um að málum, og fyrir þátttöku ítala í Atlantshafsbandalaginu. Úrslit kosninganna verða ekki endanlega kunn fyrr en á mið- vikudagskvöld. En sýnilegt er nú þegar, að miðflokkarnir hafa náð miklu kjörfylgi frá flokkunum lengst til hægri, og vinstri sósíal- istaflokkur Nennis hefur hlotið mestan hluta þeirra atkvæða, sem kommúnistar hafa tapað. Flokkur Nennis hefur unnið allverulega á og er talið að Nenni muni nú beina allri orku flokks síns að því, að vinna enn frekar fylgi frá kommúnistum, svo að flokkur hans geti haft úrslita- áhrif á stefnu vinstri flokkanna í landinu. Þrátt fyrir aukið kjörfylgi miðflokkanna í Ítalíu, getur farið svo, vegna breyttra kosninga- laga, að þeir missi meirihluta í sumum stærstu borgum Ítalíu. í Rómaborg munu miðflokkarnir sennilega fá aðeins 35 sæti af 80 í bæjarstjórninni. Heyrzt hefur að páfinn beri nokkurn kvíðboga fyrir því að næsti borgarstjóri í Róm verði kommúnisti. Þessir tveir ungu járnsmiðir e.-u að vinna með logsuðutækjum við handrið stigans í Morgunblaðshúsinu. Þar þarf ennþá að vinna mörg handtök, áður en húsakynni blaðsins eru komin í viðundandi horf. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M. „Óvæntra tíðinda" beðið trá járntjalds- löndum Belgrad í gærkvöldi. FRÉTTARITARAR handan járn tjalds síma að stórpólitískra atburða sé að vænta þar austur- frá á næstu vikum. Hin væntanlega ferð Titos marskálks til Sovétríkjanna er mikið auglýst, en hann er vænt- anlegur til Moskvu 2. júní n.k. í fyrstu heimsókn sína þangað frá því honum var úthýst árið 1948. Tito hefur undanfarið rætt við ýmsa leiðtoga í Evrópu og m. a. Efnahagsmál valda Adenauer örðugleikum BONN i gær: — Svo getur enn farið að átökin um efnahagsmálin í V.-Þýzkalandi leiði til stjórnar- kreppu. Á morgun fer fram í þýzka Sambandsþinginu umræða og er búizt við að dr. Adenauer viki þar að þessum málum. Efnahagsmálaráðherrarnir, dr. Erhardt og Schafer halda fast við þá fyrirætlun sína að lækka tolla, draga úr verzlunarhöftum og minnka fjárfestingu hins opin- bera, en ráðstafanir þessar eiga að koma í veg fyrir verðbólgu í landinu. Áður höfðu forvextir verið hækkaðir upp í 5%% og er það þriðja forvaxtahækkunin, sem gerð er í Þýzkalandi á einu ári. Erhardt og Schafer eru taldir eiga heiðurinn af hinni undra- verðu efnahagslegu viðreisn Þýzkalands eftir stríðið. — Svo fast sækja þessir ráðherrar að hinum nýju efnahagsráðstöfuu- um verði framfylgt, að þeir hafa báðir boðizt til að segja af sér, ef Adenauer treystir sér ekki til þess að fylgja þeim að málum. En dr. Adenauer og meirihluti flokks hans, kristilega demókrata flokksins, óttast að ráðstafanir þessar muni verða óvinsælar í landinu og þar af leiðandi hafa skaðleg áhrif á kosningafylgi stjórnarinnar en kosningar eiga að fara fram á næsta ári. ADENAUER BEYGIR SIG í fyrstu atrennu hefur dr. Ad- enauer beygt sig fyrir dr. Er- hardt. Hann flutti ræðu fyrir nokkrum dögum og sagði í ræð- unni, að dr. Erhardt hefði stjórn- að efnahagsmálum V.-Þýzkalands betur en nokkur annar hefði getað gert. Þrátt fyrir þessi um- mæli er enn ólga ístjórnarher- búðum Adenauers kanslara og má enn vænta tíðinda þaðan. hefur honum tekizt að koma á sambandi milli kommúnista- flokksins í Júgóslafíu og sósíal- demokrata í V-Þýzkalandi. Eitt af málum þeim, sem hann er sagður ætla að ræða í Moskvu er sameining Þýzkalands. Fyrst í stað mun Tito hafa farið varlega í það að trúa hinum nýju Sovétleiðtogum og hinni bros- mildu utanríkisstefnu þeirra, en síðustu vikurnar hefur hann gert sér far um að halda því á lofti, að með dauða 'Stalins hafi byrjað heimssöguleg breyting. í dag hefur Tito marskálkur setið á löngum ráðstefnum með Togliatti, foringja ítalskra komm únista, en hann er öflugasti leið- togi kommúnista vestan járn- tjalds. Þeir hafa ekki x-æðst við fyrr en nú frá því á árinu 1948. Samtölin í dag eru sögð miða að því að efla aðstöðu Titos, er hann semur við Rússa. Fulltrúaráð \ Heimdallar ÁRÍÐANDI fundur verður hald- inn í fulltrúaráði Heimdallar í dag kl. 6 e.h. í Valhöll, Suður- götu 39. Rætt veröur um kosning- arnar og kosningaundirbúning- Kurteisisheiiiisóknir VVASHINGTON í gærkvöldi: — Talsmaður sendiráðs Sovétríkj- anna hefir stungið upp á því að herskip Sovétríkjanna fari í kurteisis heimsókn til Bandarikj- anna og bandarísk herskip til Sovétríkjanna. Kommúnistnr tnpn ú Ítalíu Stefna vestur- veldanna sigrar Ráðherrann var rekinn úr starfi í júlí 1955, skömmu eftir að Bería var tekinn af lífi. Bagir- ov og Bería höfðu verið sam- starfsmenn um langt skeið, og er Bería var gerður öryggismála- ráðherra Sovétríkjanna eftir dauða Stalins, var Bagirov tek- inn sem kandidat í æðsta ráð Sovétríkjanna. Þegar Bagirov var rekinn úr embætti árið 1953 var honum (hurchill efslur á lisfa NEW YORK: — Fyrsta bindið — „Birth of Britain'1 — af hinu mikla riti Winstons Churchills um enskumælandi þjóðir, er efst á lista yfir metsölubækur (aðrar en skáldsögur) í Bandaríkjunum um þessar mundir. Bókin kom út fyrir 6 vikum og er þegar komin efst á listarn. gefið að sök að hafa verið linur í starfi, en nú , eftir aftöku hans, er hann sakaður um landráð. Aftakan fór fram í lok apríl sl., en einhverra hluta vegna hef- ur sovétstjórnin ekki treyst sér til að segja frá henni opinber- lega fyrr en í dag. „Baku Verkamananblaðið" skýrir frá því í dag, að réttar- höldin yfir Bagirov hafi farið fram opinberlega og að þau hafi staðið í hálfan mánuð. En allan þennan hálfa mánuð minntist ekkert blað í Baku á réttarhöld- DEILT Á VISHINSKY. MOSKVU í gærkvöldi: — Tíma- rit kommúnistaflokksins í Sovét- ríkjunum deilir í dag hastarlega á Vishinsky, og sakar hann um að hafa beitt fráleitum aöferöum í réttarhöldunum miklu á árun- um 1934—1938. Einkum er deilt á hann fyrir að lxafa látið nægja játningu sakbornings til þess að sakfella hann um landráð. Tímaritið bendir í þessu sam- bandi á að bannað sé í lögum Sovétrikjanna að knýja fram játn Hrœöslubandalagið hefir fengið á sig ótvírœðan svindl- stimpil ÞAÐ er nú orðið alþjóð ljóst, að Hræðslubandalagið hefur gerzt bert að stórfelldu svindli. Það byggir allar sigurvonir sínar á því, að það fái fleiri uppbót- arþingsæti en því raunverulega ber samkvæmt at- kvæðamagni þess. FÖLSUNARÁFORMIN afhjúpuð Það sem gerðist fyrir Landskjörstjórn var fyrst og fremst það, að meiri hluti hennar, þeir Jón Ásbjörnsson, Einar B. Guðmundsson og Vil- mundur Jónsson lýstu yfir, að atkvæðaverzlun Hræðslubandalagsins sé tvímælalaust í andstöðu við anda kosningalaganna. Ilins vegar sé lnm ekkl bönnuð berum orðum í lögunum. Þess vegna taldi Jón Ásbjörnsson ekki heimilt að ákveða að Framsókn og Alþýðuflokknum skyldi úthlutað uppbótarþingsætum sem einum flokki. Sjálfstæðisflokkurinn hefur því unnið greiní- legan siðferðilegan sigur með kæru sinni fyrir Landskjörstjóm. öll þjóðin hefur séð svindl og fölsunaráform Hræðslubandalagsins afhjúpuð. EKKI GOTT VEGANESTI Þetta e rekki gott veganesti fyrir Framsókn og Al- þýðuflokkinn út í kosningabaráttuna. Yfirgnæfandi nieiri hluti Islendinga fyrirlítur atkvæðaverzlunina og svindlið með uppbótarþingsætin. Dómur fólksins mun reynast Hræðslubandalagsmönnum þungur í skautL 1 forystu greln blaðslns f dag er rætt nánar um úrskurð Landskjörstjórnar og atkvæðaheildsölu Hræðslubandalagsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.