Morgunblaðið - 03.03.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.03.1957, Blaðsíða 1
r 16 síður og Lesbók 44. árgangur 52. tbl. — Sunnudagur 3. marz 1957 Prentsmiðja morgunblaðsins Listkynning Mbl. Jón Þorleifsson ÞESSA viku verða myndir eftir Jón Þorleifsson listmálara til sýnis í sýningarglugga Morgun- blaðsins. Hann er Austur-Skaft- fellingur að ætt, sonur Þorleifs alþingismanns í Hólum. Jón Þorleifsson hóf ungur list- nám og stundaði m.a. nám í Dan- mörku og Frakklandi. Byrjaði hann nám sitt í Kaupmannahöfn. Hann hefur haldið málverkasýn- ingar á Norðurlöndum, m.a. tekið þátt í mörgum sýningum á Char- lottenborg. Einnig hefur hann haldið sjálfstæða sýningu í Kaup mannahöfn. Fyrstu sýningu sína hér í Reykjavík hélt hann árið 1931. Það ár hafði hann áður haldið sýningar á Seyðisfirði, Akureyri og ísafirði. Síðan hefur hann haldið hér fjölda sýninga. Jón Þorleifsson hefur skrifað mikið um myndlist. M. a. var hann myndlistargagnrýnandi Morgunblaðsins í mörg ár. Hann er einn af þekktustu og mest metnu listmálurum landsins. Málverkin, sem eru til sýnls í sýningarglugga Morgunblaðs- ins eru þessi: „Fjallið Þorbjörn", málað 1953, „Frá Þingvöllum“, málað 1956 og tvær blómamyndir málaðar sama ár. Öll þessi málverk eru til sölu hjá listamanninum. Heilsuverndarstöð Reykjavikur vígð Norskir blaðamenn votta Ungverjum somúð ÓSLÓ: — Stjórn norska blaða- mannafélagsins hélt á dögunum fund — þar sem eftirfarandi sam- þykkt var gerð: „Norskir blaða- Vpprelsn JAKARTA 3. marz. — Upp- reisn hefur brotizt út í Austur Indónesíu — og hefur her- stjórnin í þessum hluta eyja- sambandsins tekið stjórnina í sínar hendur. Til Austur-Indó nesiu teljast mörg hundruð eyjar, en Celebes er stærst þeirra. Krefjast uppreisnarforingj- arnir þess, að 70% af opin- berum gjöldum íbúanna renni beint til viðreisnar þar á eyjunum, en 30% renni til stjórnarinnar í Jakarta til ráð stöfunar. Hingað til hafa um 96% af gjöldium íbúanna á þessum eyjum runnið til stjórn arinnar. Fréttaritarar telja, að upp- reisn þessi geti haft afdrifa- rikar afleiðingar í stjórnmál- um Indónesiu — og geti meira að segja orðið til þess, að Sok- arno endurskoði fyrirætlun sína um að taka kommúnista í stjórn. MONACO, 2. marz: — Karolina, prinsessa af Monaco, kom í dag í fyrsta skipti opinberlega fram, en á morgun mun hún verða formlega skýrð við hátíðlega at- höfn í dómkirkjunni í Monacö. Um tvær þúsundir Monacobúa voru viðstaddar auk fjölda er- lendra blaðamanna og ljósmynd- ara. Var Karolina sveipuð ullar- klæði, og hélt móðir hennar á henni. Borgarstjórinn 1 Monaco bar fram heillaóskir. Mælti Raini- er að lokum: Guð verndi land okkar og barn okkar. menn hafa með aðdáun fylgzt með þáttöku ungverskra blaða- manna í frelsisbaráttu þjóðarinn- ar. Við höfum orðið vitni að því, að nú verða hafnar á ný ofsóknir gegn þeim blaðamönn- um, sem krafizt hafa málfrelsis og ritfrelsis — og það veldur okkur djúpum áhyggjum. Stjórn „Norsk Presseforbund“ mótmælir harðlega kúgun þessari og beinir þeim tilmælum til blaðamanna- félaga annarra landa, að styðja ungverska blaðamenn í baráttu þeirra“. Síðan ákvað stjórnin að veita fé úr sjóði félagsins til Ung- ver j alandshj álparinnar. Stoinun hennai var sogulegur viðburður í heilbrigðismólum þjóðarinnar í GÆR FÓR fram vígsluathöfn Heilsuverndarstöðvar Reykja- Barónsstíg saman kominn mikill fjöldi gesta auk yfirstjórnar stofn- unarinnar, heilbrigðismálaráðherra og yfirmanna Reykjavíkur- bæjar. — Athöfnin hófst með því að gestum öllum var boðið til kaffidrykkju en því næst voru ræður fluttar og að síðustu gafst þeim er vildu tækifæri til þess að skoða bygginguna og var starfseminni lýst af forstöðumönnum stofnunarinnar. Dr. Sigurður Sigurðsson, yfir- læknir, formaður stjórnar stöðv- arinnar stjórnaði þessari vígslu- athöfn. Flutti hann langa og ýtar lega ræðu, þar sem hann rakti sögu stofnunarinnar og tildrög þess, að þetta mikla og glæsilega hús er risið af grunni og hefir þegar starfað í nokkur ár, eða sumar deildir hennar. Dr. Sig- Frá vinstri: dr. Sigurður Sigurðsson yfirlæknir, Sigríður Eiriks- dóttir hjúkrunarkona og Guimar Thoroddsen borgarstjóri. Israelsmenn hika við heimfiuining hersins Fundi Dayan og Burris frestað - Ben Gurion bíður frekari skýringa Jerúsalem og London, 2. marz. 4KVEÐIÐ hafði verið, að þeir Moshe Dayan, yfirhershöfðingi fsraelshers, og Burns, yfirherforingi hers S. Þ., skyldu eiga fund saman í dag til þess að ræða brottflutning ísraelshers frá Gaza-svæðinu og egypzku landi við Akaba-flóa. Á seinustu stundu var fundinum frestað að beiðni ísraelsmanna, en talið er, að Ben Gurion eigi einhvem þátt í því. Almennrar óánægju virðist gæta í ísrael vegna þeirrar ákvörðunar stjórnarinnar að flytja herinn úr Egyptalandi án þess að áreiðanleg trygging hafi fengizt fyrir frjálsum siglingum Israelsmanna um Súez-skurðinn og Akaba-flóann. Hefur stjórnin setið á nær látlausum fundum síðan ákvörðunin var tekin, en flokkar stjórnarandstöðunnar hafa boðað til mótmælafunda um gervallt landið. Talsmaour ísraelska utanríkis- ráðuneytisins í Jerúsalem lét svo um mælt í dag, að yfirlýsing sú, er Lodge, fulltrúi Bandaríkjanna hjá S. Þ., flutti í Allsherjar- þinginu í gær — að lokinni ræðu Goidu Meier, hefði hneykslað ísraelsmenn. Engin fullyrðing hefði falizt í yfirlýsingunni um, að Bandaríkin og S. Þ. mundu tryggja ísrael frjálsar siglingar. Talsmaðurinn kvað stjórn- ina bíða eftir frekari skýring- lun á yfirlýsingu þessari frá I Washington — og er senní- legt, að dráttur sá, er verður á viðræðum Dayan og Burns stafi af því. Þó er Lodge einnig fundið það Framh. á bls. 15 urður bauð í upphafi ræðu sinnar gesti alla velkomna. Kvað hann alla aðalþætti heilsuverndarstarf semi bæjarins nú komna í hin nýju húsakynni. Því væri ástæða til þess að fagna og þess vegna væri efnt til þessa kaffiboðs. Gerði dr. Sigurður síðan grein fyrir tildrögum byggingarinnar og lýsti henni í aðaldráttum, stjórn hennar og starfsháttum. Dr. Sigurður Sigurðsson rakti síðan sögu líknarstarfsemi hér í bænum og lét hugann reika 40 ár aftur í tímann til þess tíma, er frú Christophine Bjarnhéðins- son beitti sér fyrir stofnun Hjúkr unarkvennafélagsins Líknar, sem stofnsett var 1915. Fór hann mjög lofsamlegum orðum um brautryðj andastarf þessarar stofnunar. Þá gat hann annarrar forustukonu þessa félagsskapar, frú Sigríðar Eiríksdóttur, er veitt hefur fé- laginu forstöðu frá því 1931 og þar til í janúar sl., en þá var félagið leyst upp á þeim forsend- um að stefnumál þess væri nú framkvæmt og framtíðardraum- ar þess rættir. Fór hann mörgum þakkarorðum um baráttu og brautryðjendastarf Líknar. „ALDREI MAT HANN TIL FJÁR LÆKNING SÍNA“ Þá sagði ræðumaður, að tæp- lega hefði heilsufar þjóðarinnar nokkru sinni staðið fastari fótum en í dag. Þó væri enn að nægum verkefnum að vinna. Hann lauk ræðu sinni með þess um orðum: „Ef ég að lokum mætti velja kjörorð þessarar stofnunar, þá myndi ég taka þau úr sögu fyrsta lærða læknis landsins, sem kunn- ur er, Hrafns Sveinbjarnarsonar frá Eyri í Arnarfirði, er tekinn var af lífi árið 1213. Virðast mér þau að ýmsu leyti vera einkenn- andi fyrir þá heilsuverndarstarf- semi, sem rekin hefir verið hér undanfarið undir umsjá Hjúkr- unarfélagsins Líknar, og lýst hef- ur verið hér að framan. I sögu Hrafns segir svo: „Til einkis var honum svo títt, hvorki til svefns né matar, ef sjúkir menn kvámu á fund hans, at eigi mundi hann þeim fyrst nokkra miskunn veita, aldrei mat hann til fjár lækning sína“. Að sá andi, sem felst í þess- um orðum megi ávallt fylgja stofnuninni, er ósk mín og von“. „HEILBRIGÐ SÁL í HEIL- BRIGÐUM LÍKAMA“ Næstur tók Gunnar Thorodd- Framh. á bls. 2. Úr barnadeild Heilsuverndarstöövariiuiat Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.