Morgunblaðið - 01.05.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.05.1957, Blaðsíða 1
24 síður 44. árgangur 96. tbl. — Miðvikudagur 1. maí 1957. Prentsmiðja Morgunblaðsins 7. maí ávarp verkalýðsfélaganna í Rvík. ■^INS OG ALÞÝÐA annarra landa, hefur íslenzk alþýða helgað *-J sér 1. maí, sem hátíðis- og baráttudag. Um gjörvallan frjálsan heim fylkir verkalýðurinn liði í dag, og fagnar því er áunnizt hefur til bættra kjara og aukinna rétt- inda. Hann minnist jafnframt þess er miður hefur farið i starfi, festir sér í minni mistökin og lærir af fenginni reynzlu, en fyrst og fremst fylkir verkalýðurinn liði undir merkjum samtaka sinna, til sóknar og nýrra sigra, til baráttu fyrir brauði, friði og f r e 1 s i. íslenzk alþýða mun ákveðið taka þátt í þeirri baráttu. Af einlægni óskar hún þess, að allir hafi nóg til fæðis og klæðis og enginn þurfi að líða skort. Af heilum hug tekur hún undir kröfuna um frið og leggur ríka áherzlu á, að bönnuð verði framleiðsla og notkun vetnis- og kjarn- orkuvopna og krefst þess að kjamorkan verði notuð öllu mannkyni til heilla og blessunar. íslenzk alþýða krefst þess, að hver einstök þjóð fái að lifa frjáls í landi sínu og neitar því að nokkur þjóð hafi rétt til þess að undiroka aðra. í því sambandi vottar íslenzk alþýða ungverskum verkalýði sér- staka samúð sína vegna ofbeldisárásar hins rússneska herveldis og jafnframt verkalýði annarra land, sem enn býr við ófrelsi og kúgun. Um leið og íslenzk alþýða fagnar því í dag, sem áunnizt hefur á liðnum árum til bættra kjara, aukinna réttinda, menningar og öryggis, strengir hún þess heit að efla samtök sín og sækja fram til nýrra og stærri sigra. í»ótt stór skref hafi verið stigin og mikið áunnizt, er langt frá því að markinu sé náð. Enn eru heUsuspiIlandi íbúðir og enn er húsnæðisleysi. Enn má auka öryggi gegn slysum og enn er ekki fullkomið at- vinnuöryggi. Enn eykst dýrtiðin og enn er þjóðartekjunum óréttlátlega skipt. Alþýða Rekjavíkur! Þótt svo sé í dag vegna óbilgirni og annarlegra sjónarmiða kommúnista í reykvískum verkalýðssamtökum, að verkalýðssam- tökin sem heild standa ekki að hátíðahöldum dagsins, munum við áfram halda fram kröfum okkar til bættrar afkomu og betra lífs, gegn dýrtíð og kjaraskerðingu, fyrir auknum kaupmætti launa, fyrir atvinnuöryggi. Við gerum kröfu til að landhelgislinan verði færð út, svo sem hagsmunir íslenzku fiskimannanna og þjóðarinnar allrar krefjast og að takmarkið sé að landgrunnið verði fyrir íslendinga eina. Við gerum kröfu til að leyst verði húsnæðisvandræðin og að útrýmt verði herskálum og öðru heilsuspillandi húsnæði. Við gerum kröfu til að vinnuvikan verði stytt, án þess að skerða laun. Við gerum kröfu til sömu launa fyrir sömu störf, hvort sem unnin eru af körlum eða konum. Við gerum kröfu til stærri hluta af þjóðartekjunum til hinna vinnandi stétta. í dag eru kjörorðin þessi: Stöðvun og síðar niðurfærsla dýrtiðar. Aukin kaupmáttur Uuna. Atvinnuöryggi. Sömu laun fyrir sömu vinnu. 40 stunda vinnuviku með óskertu kaupi. Aukið öryggi á sjó og á landi. Skattfríðindi fyrir fiskimenn og lífeyrissjóð fyrir alla sjómenn. Sérsköttun hjóna og tollaívilnanir á heimilistækjum. Auknar húsnæðisbyggingar. Útrýming heilsuspillandi íbúða. Auknar tryggingar. Hækkun ellilífeyris. Réttlátari skiptingu þjóðarteknanna. íslenzk verkalýðssamtök lifi og eflist. Avarp Önnu Kéthly til ísienzkin veiknmnnna 1. maí 1957 A ÞESSUM alþjóðlega hátíðis- degi verkamanna sendi ég ís- lenzkum verkamönnum kveðju mína og hylli það lýðræði og sjálfstæði, sem þeir hafa lagt svo ríkan skerf til. fslenzka þjóðin hefur átt því láni að fagna að geta öðlazt og notið sjálfstæðis og lýðræðis með friðsamlegum hætti og að samskipti hennar við aðrar þjóðir geta byggzt og byggj ast á gagnkvæmum hagsmunum ©g frjálsum menningarsamskipt- um. Ég er viss um, að íslenzkir verkamenn skilja, að ungverskir verkamenn óska eftir slíku lýð- ræði, sjálfstæði og frjálsri vin- áttu við friðelskandi þjóðir, ekki síður en þeir sjálfir. Þrátt fyrir þær ógnir afturhalds, fasisma og kommúnisma, sem hafa verið bölvun þjóðar minnar síðustu ár, gerðu ungverskir verkamenn það ljóst haustið 1956, að yfirgnæf- andi meirihluti þeirra er hollur hugsjónum lýðræðis-jafnaðar- stefnunnar. Hin sviksamlega árás skriðdreka og þrýstiloftsflugvéla Sovétríkjanna kom ein í veg fyr- ir, að hugsjónir þessar birtust í jafn ágætu þjóðskipulagi og því, sem íslenzkir verkamenn og ís- lenzka þjóðin hafa komið á. Skriðdrekar og flugvélar geta þó ekki hrotið á bak aftur anda ungversku þjóðarinnar. 1 .maí ikora ég á íslenzka verkamenn, »ð þeir muni bræður sína og félaga í Ungverjalandi og heiti sínum bezta stuðningi við bar- éttuna fyrir frelsun þeirra. Anna Kéthly (sign) Stjórn Trésmiðafélags Reykjavíkur: Guðni H. Árnason, form. Guðmundur Guðnason, meðstj. Karl Þorvaldsson, varaform. Guðmundur Magnússon, ritari. Sigmundur Sigurgeirss., gjaldk. Stjórn Vörubílstjórafélagsins Þróttar: Friðleifur I. Friðleifsson, form. Pétur Guðfinnsson, varaform. Pétur Hannesson, ritari. Stefán Hannesson, féhirðir. Helgi Kristjánsson, meðstj. Stjórn Félags framreiðslumanna: Theodór Ólafsson, form. Gestur Benediktsson, varaform. Jón Maríasson, Páll Arnljótsson, Sig. E. Pálsson, Janus Halldórsson, Wilhelm Schröder. Stjórn Félags prentmyndasmiða: Sverrir M. Gíslason, form. Jón A. Stefánsson, ritari, Árni I. Magnússon, féhirðir. Stjórn Félags rakarasveina: Vilhelm Ingólfsson, form. Matthías Karelsson, ritari, Jón Þórhallsson, gjaldk. Félag garðyrkjumanna: Baldur Maríusson, fulltr. í 1. maí-nefnd. Stjórn Bifreiðastjórafélagsins Hreyfils: Bergsteinn Guðjónsson, form. Bergur Magnússon, Andrés Sverrisson, Kári Sigurjónsson, Pétur Guðmundsson, Óli Lúthersson. t stjórn Félags íslenzkra hljómlistarmanna: Þorvaldur Steingrímsson, varaform. Svavar Gests, meðstj. í stjórn Bókbindarafélags fslands: Einar Helgason, varaform. Guðmundur Gíslason. gjaldk. í stjórn Félags sýningar- manna í kvikmyndahúsum: Óskar Steindórsson, form. Jóhann V. Sigurjónsson, fulltr. í 1. maí-nefnd. F.h. stjórnar Múrarafélags Reykjavíkur: Eggert G. Þorsteinsson, form. Ásmundur J. Jóhannss., ritari. Stjórn og trúnaðarráð Iðju, félags verksmiðjufólks: Guðjón Sigurðsson, form. Ingimundur Erlendss., v.form. Jóna Magnúsdóttir, gjaldk. Þorvaldur Ólafsson, ritari, Steinn Ingi Jóhannesson, Ragnheiður Sigurðardóttir, Ingibjörg Arnórsdóttir, Auður Jónsdóttir, Ingólfur Jónsson, Lifi Alþýðusamband íslands. Lifi Alþjóðasamband frjálsra Jenný Ólafsdóttir, Magnús Pétursson. í stjórn Félags ísl. kjötiðnaðarmanna: Jóhann Kristjánsson, ritari, Jens Klein, gjaldk. í stjórn Sveinafélags húsgagnabólstrara: Samúel Valberg. í stjórn Félags ísl. rafvirkja: Sveinn Lýðsson, ritari, Magnús K. Geirsson, gjaldk. í stjórn Matsveinafélags S.M.F. Magnús Guðmundsson, form. Þórður Arason, varaform. Bjarni Jónsson, gjaldk. Bergþór Sigfússon, ritari. Stjórn Félags íslenzkra sjúkra- leikfimis- og nuddkvenna: Vivan Svavarsson, form. Kristín H. Halldórsd., v.form. Kristín F. Fenger, ritari, Sigríður Gísladóttir, gjaldk. Ingunn J. Thorsteinsson. Stjórn Verkakvennafélagsins Framsókn: Jóhanna Egilsdóttir, form. Jónína M. Guðjónsd., varaform. Guðbjörg Þorsteinsd., ritari, Guðrún Þorgeirsdóttir, gjaldk. Þórunn Valdemarsdóttir, fjár- málaritari. f stjórn Starfsstúlknafél. Sókn: Steinunn Þórarinsd., varaform. verkalýðssamtaka. Guðrún S. Ólafsdóttir, gjaldk. Þórunn H. Guðmundsd., ritari. F.h. stjórnar Bakarasveinafélags fslands: Guðmundur Hersir, form. F.h. stjórnar Sjómannafélags Reykjavíkur: Garðar Jónsson, form. Jón Sigurðsson, ritari m F. h. stjórnar Sveinafélags pípulagningamanna: Kristinn Breiðfjörð, form. f stjórn Sambands matreiðslu- og framleiðslumanna: Sveinn Símonarson, form. Sig. E. Pálsson, varaform. Magnús Guðmundsson, gjaldk. Theodór Ólafsson, Janus Halldórsson, Elís Árnason, Borgþór Sigfússon. f stjórn Félags matreiðslumanna: Elís Árnason, gjaldkeri, Tryggvi Jónsson, Guðmundur Júlíusson. Stjórn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur: Guðmundur H. Garðarss., form. Pétur Sæmundsen, varaform. Ingvar N. Pálsson, Gunnlaugur J. Briem, Hannes Sigurðsson, Októ Þorgrímsson, Ottó Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.