Morgunblaðið - 15.05.1957, Blaðsíða 1
44. árgangur
107. tbl. — Miðvikudagur 15. maí 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
Borgaralegur sigur í dönsku kosningunum
Líklegt, oð jaínaðarmannas'ióinin iari ird
Kommúnistar biðu mikinn ósigur
Kaupmannahöfn, 14. maí.
KOSNINGAÞÁTTTAKAN í Danmörku hefur verið meiri i dag
en við þingkosningarnar 1953, þegar 14 milljón kjósenda sat
heima. í dag var kosningaþátttakan yfir 80%. — Talning í sveitun-
um hófst strax að afloknum kosningum kl. 20 eftir dönskum
tíma, en í bæjum og borgum var byrjað að telja kl. 21. — Frétta-
maður NTB símaði í kvöld, að- H. C. Hansen forsætisráðherra og
Erik Eriksen fyrrum forsætisráðherra hefðu sett mestan svip á
kosningabaráttuna og hefði athygli manna einkum beinzt að ræð-
um þeirra. Eins og kunnugt er, er Hansen leiðtogi Jafnaðarmanna,
en Eriksen Vinstri-manna. Sagði fréttaritarinn, að það væri álit
manna í Danmörku, að aðrir kæmu varla til greina sem vænt-
anlegir forsætisráðherrar.
Kommúnistar um 72 þús. atkv.,
3.1% (4.3%).
Óháðir fengu um 52 þús. atkv.,
en engan þingmann og Slesvíkur-
flokkurinn fékk 1 þingmann, eins
og áður.
Kosningaúrslitin
í NÓTT kl. 1.30 eftir íslenzkum
tíma voru kunn úrslitin í kosning
unum í Danmörku. Þegar at-
kvæðatölur fóru að berast í gær-
kvöldi, mátti sjá, að Vinstri, sem
er borgaralegur bændaflokkur,
undir forystu Eriks Eriksens,
mundi verða sigurvegari í kosn-
jngunum. Flokkurinn vann mikið
á og jók atkvæðamagn sitt til
muna, hlaut nú 25.1% atkvæða,
en í síðustu kosningum fékk
hann 23.1%. — Þó kom kosninga-
sigur Retsforbundets meira á ó-
vart, því að flestir töldu, að vafa-
samt væri, hvort flokkurinn fengi
þingmann í þessum kosningum.
Það fór þó á annan veg, því að
fiokkurinn fékk 9 þingmenn og
bætti við sig 3. Vinstri bætti einn
ig við sig þremur þingsætum,
hlaut nú 45 þingmenn kosna.
— Jafnaðarmannaflokkurinn,
sem farið hefir með stjórn í Dan-
mörku undanfarið, undir forystu
H. C. Hansens forsætisráðherra,
beið nokkurn ósigur í kosning-
unum, en er þó langstærsti flokk-
ur Danmerkur. Þá hefir það vak-
ið athygli, að kommúnistar töp-
uðu fylgi, fengu aðeins 3.1%
greiddra atkvæða.
Eins og fyrr segir, var kosn-
ingaþátttaka meiri nú en í síð-
ustu kosningum (1953). Nú
greiddu um 2.309.000 manna at-
kvæði, en 1953 2.166.000.
Atkvæði skiptust svo:
Jafnaðarmenn um 910 þús. at-
kvæði, 39.4% (41.3%).
Radíkalir um 189 þús. atkv.,
7.8% (7.8%).
íhaldsmenn um 383 þús. atkv.,
16.6% (16.8%).
Vinstri um 578 þús. atkv., 25.1%
(23.1%).
Retsforbundet um 122 þús. at-
kvæði, 5.3% (3.5%).
ötullega að því að hjálpa þeim
við að brjóta á bak aftur vald
jafnaðarmanna. Þá sagði hann,
að þjóðin hefði undirstrikað það
í þessum kosningum, að hún vildi
nýja stjórnarstefnu.
Erik Eriksen sagði, að Vinstri
menn væru ánægðir með kosn-
ingaúrslitin og þann sigur, sem
þeir hefðu unnið. Kosningarnar
eru ósigur fyrir stjónina, sagði
hann ennfremur — og þær munu
hafa í för með sér stjórnarskipti.
Axel Larsen leiðtogi kommúa-
ista sagði, að kommúnistar hefðu
tapað vegna atburða í fjarlæg-
um löndum.
Erik Eriksen
Verður hann næsti
forsætisráðherra Dana?
Þingmenn hins nýja þings
skittast á flokka, eins og hér Retsforbundet unnið mikið á. Að
segir (tölurnar í svigum eru
frá síðustu kosningum): Jafn-
aðarmenn fengu 70 þingmenn
(74); Radíkalir 14 (14); íhalds
menn 30 (30); Vinstri 45 (42);
Retsforbundet 9 (6); Komm-
únistar 6 (8) og Slesvíkur-
flokkurinn 1 (1), eins og fyrr
segir.
★
Ummœli stjórnmála-
leiðtoganna
Þegar talningu var lokið, sögðu
forystumenn flokkanna nokkur
orð um kosningaúrslitin í danska
útvarpið.
H. C. Hansen sagði, að kosn-
ingaúrslitin væru vonbrigði fyr-
ir jafnaðarmenn, en það væri þó
huggun, að þeir hefðu bætt við
sig 15 þús. atkv., þó að hundraðs-
tala þeirra hefði lækkað, og þeir
hefðu tapað 4 þingsætum. Hann
sagði, að úrslitin væru mikill sig-
ur fyrir Vinstri, sem hefðu alls
staðar unnið á, en einnig hefði
lokum sagði H. C. Hansen: Þessa
nýja þings bíða meiri erfiðleikar
en áður.
Aksel Möller, leiðtogi íhalds-
manna sagði, að þetta hefði verið
dapurlegur kosningadagur fyrir
jafnaðarmenn og stjórn þeirra.
Kosningaúrslitin mundu hafa
för með sér stjórnarskipti, hjá
því væri ekki hægt að komast.
Hann sagði, að Vinstri væri sig-
urvegari í kosningunum, en bætti
við, að íhaldsmenn hefðu unnið
Stassen:
Mö tjuleikar á tak-
markaðri aivopnun
Lundúnum, 14. maí.
HAROLD STASSEN, fulltrúi Bandaríkjastjórnar í afvopnunar-
nefndinni, sagði í dag, að likur bentu til, að stórveldin gerðu
með sér samkomulag um takmarkaða afvopnun. — Mundi það
hafa hina mestu þýðingu.
ATHUGUN ÚR LOFTI
Stassen sagði, að öll stórveld-
in hefðu áhuga á því, að koma
á takmarðaðri afvopnun í
Evrópu og Austurlöndum. Þá
Ræðasf við á Ífalíu
LUNDÚNUM, 14. maí. — Egypzk
yfirvöld hafa tilkynnt, að þeir
muni senda nefnd manna til
Ítalíu að ræða við fulltrúa
brezku stjórnarinnar um innstæð-
urnar, sem stjórn Edens „frysti
inni“ í brezkum bönkum, þegar
Egyptar þjóðnýttu Súezskurð.
Dulles:
r
I Alaska og Síberíu er auðvelt
að undirbúa kjarnorkustyrjöld
WASHINGTON, 14. maí —
Dulles sagði á vikulegum
blaðamannafundi sínum í dag,
Frakkar og þjóðernissínnar
deila kálið
Frakkar gjalda afhroð
Alsír, 14. maí.
rpiLKYNNT hefur verið, að 12 þúsund Frakkar, borgarar
og hermenn, hafi verið drepnir í Alsír síðan óöldin
byrjaði þar 1954. Af þessum 12 þús. mönnum eru 8000
Múhameðstrúarmenn. — Ekki er vitað með vissu, hve
margir þjóðernissinnar taka þátt í baráttunni gegn Frökkum
í Alsír, en menn gera því skóna, að þeir séu að minnsta
kosti 20 þúsund. Hafa þeir yfir að ráða góðum vopnum og
nægum. Aðallega er þeim smyglað frá Túnis og Marokkó.
Rugluðust ■ rlminu og
sáu ofsjónir
Fjósakona á ferð — með lukf sína!
Amiens, 14. maí.
IJLÖÐUM í Frakklandi hefur orðið mjög tíðrætt um nýjar frá-
sagnir af fljúgandi diski. Nokkrir íbúar í þorpinu Beaucourt-
sur-l’André hafa tilkynnt lögreglunni, að þeir hafi séð áhöfn fljúg-
andi disks. Voru mennirnir fjórir að tölu og allir mjög smávaxnir.
í HÁLOFTSFÖTUM
Ungverski flóttamaðurinn
Michel Sekete, 29 ára gamall,
var næst þessum fljúgandi diski.
Hjólaði hann að kvöldlagi fram-
hjá járnbrautarstöðinni í þorp-
inu. Vissi hann þá ekki fyrri til
en sterkum ljóskastara var beint
að honum, svo að hann blindaðist
í bili. En litlu síðar sá hann
mennina fjóra. Þeir voru, að því
er hann segir, um 120 cm. á hæð
og voru í „gegnsæjum, gráum
háloftsfötum“. Þá hefur einn af
starfsmönnum járnbrautarstöðv-
arinnar lýst yfir, að hann hafi
séð menn þessa, kona hans einnig
öll hafa séð, þegar fljúgandi disk-
urinn hvarf upp í loftið.
að Bandaríkjastjórn mundi
ekki fallast á neinar afvopn-
unartillögur, sem gerðu ráð
fyrir áframhaldandi skipt-
ingu Þýzkalands í tvö ríki.
Þá sagði utanríkisráðherrann,
að Bandaríkjastjórn væri því
ekki mótfallin, að fsraelsmenn
sendu „reynsluskip“ til Súez, sem
kanna ætti möguleika á sigling-
um fsraelsmanna um skurðinn.
Sagði hann, að hér væri um
einkamál ísraelsmanna að ræða.
Þá sagði Dulles, að vel gæti kom-
ið til mála, að afmarkað yrði
ákveðið landsvæði í Evrópu, sem
heimilt væri að athuga úr lofti,
en hægast yrði þó að hefja
slíkar athuganir á norðlæg-
um slóðum, t. d. Alaska og
Síberíu. Benti hann á, að á
þcssum slóðum væri auðvelt
að undirbúa kjarnorkustyrj-
öld.
ÓTTINN ÁSTÆÐULAUS
Lögreglustjórinn í næsta bæ,
sem hefur fengið málið til at-
hugunar. hefur gefið út svohljóð-
andi tilkynningu: Ótti er ástæðu-
laus. Marzbúar hafa ekki enn
gengið á land!
Lögreglustjórinn heldur áfram:
Sagan um mennina fjóra og fljúg-
andi diskinn eigi rætur að rekja
til þess, að sveitakona nokkur
átti leið þarna um í myrkrinu
með fjóslukt sína. Fimmmenning-
arnir rugluðust í ríminu og sáu
ofsjónir.
mætti einnig segja, að stórveld-
in væru öll þeirrar skoðunar að
hefja bæri athugun úr lofti, en
ekki væri enn ákveðið, hvaða
svæði ættu að heyra undir slíka
athugun.
SS-foringjar dæmdir
MUNCHEN, 14. maí — Fyrrver-
andi SS-foringi Sepp Dietrich
var í dag dæmdur í 18 mánaða
fangelsi fyrir þátttöku í morði
sex SA-liðsforingja á nótt hinna
löngu hnífa, sem svo hefur ver-
ið nefnd í fréttum. Nótt hinna
löngu hnífa var 30. júní 1934. —
Þá var annar SS-foringi, Michael
Lippert, dæmdur í 18 mánaða
fangelsi fyrir þátttöku í morði
SA-foringjans Ernst Röhms, sem
Hitler sagði, að undirbúið hefði
stjórnarbyltingu og samsæri gegn
flokknum. — Röhm var keppi-
nautur Hitlers og ákvað ríkis-
kanslarinn því að stinga rýtingn-
um í bakið á honum.
Miller fyrir
rétti
WASHINGTON, 14. maí —
Bandaríski leikritahöfundurinn
frægi, Arthur Miller (Sölumað-
ur deyr) er um þessar mundir
aðalpersónan í miklum mála-
ferlum, sem fjalla aðallega um
það, hvort hann hafi sýnt Banda-
ríkjaþingi fyrirlitningu sína eða
ekki. Svo er mál með vexti, að
„óameríska nefndin" svokallaða,
sem skipuð er af fulltrúadeild
Bandaríkjaþings og rannsaka á
starfsemi kommúnista, fór þess
á leit við Arthur Miller s. L
sumar, að hann gæfi upplýsing-
ar um stjórnmálaskoðanir ákveð-
inna manna, sem hann hafði um-
gengizt. Hann neitaði því sam-
vizku sinnar vegna, eins og hann
komst að orði og var hann þá
sakaður um að hafa sýnt þing-
inu fyrirlitningu.
Nefnarmenn fullyrða, að Miller
hafi tekið þátt í ráðstefnu banda-
rískra kommúnista ásamt fyrr-
nefndum mönnum árið 1947.
Miller hefur neitað því, að
hann hafi sýnt þinginu fyrirlitn-
ingu. Gert verður út um málið
innan fárra daga. Þess má geta að
lokum, að Arthur Miller ar
kvæntur Marilyn Monroe.