Morgunblaðið - 19.05.1957, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.05.1957, Blaðsíða 2
2 MORGVNBLA&IÐ Sunmidagur 19. maí 1957. Á sLóð Lindberghs NÆSTU viku mun Sérstök þota í eigu bandaríska flughersins þjóta yfir Atlantshafið og fylgja leiðinni, sem Lindbergh flaug í lítilli flugvél með einum hreyfli fyrir 30 árum. I Lindbergh flaug vegalengdina, sem er um 5.760 km., á 33% tíma. Þotan af gerðinni F-IOOF mun fljúga sömu vegalengd á 6 tím- um og sýna þannig, hve gífurleg- um framförum flugtæknin hefur tekið á síðustu 30 árum. SAMA LEIÐ Flugmaðurinn verður Rob- inson Risner majór, 32 ára Fær aukna orn LONDON, 18. maí: — Landstjór- inn í Nígeríu, sir James Robert- son, er kominn til London til við- ræðna við brezku stjórnina um stjórnarskrá Nígeríu. Ráðstefnan hefst á fimmtudaginn og verður sett af Lennox Boyd nýlendu- málaráðherra. Tilgangur hennar er að auka sjálfstjórn Nígeríu- búa. Sir James sagði við komu sína tid London, að samskipti Breta og Nígeríumanna væru mjög góð og vinsamleg. Kvænist Hammar- NEW YORK, 18. maí: — A blaðamannafundi, sem Dag Hammarskjöld hélt eftir för sína til ísraels, spurði kín- verskur fréttamaður hann allt í einu og upp úr þurru: — Ætlið þér að fara að gifta yður? Ég spyr af því að ég hef heyrt orðróm um þetta. Þögn sló yfir salinn og full- trúar Hammarskjölds sátu sem rotaðar rjúpur. En Hamm arskjöld náði sér þó á strik og sagði vandræðalega: — Það er naumast þið ætl- ið að spyrja spennandi spurn- inga. Annar blaðamaður kom hon um til hjálpar og mælti: — Ef þér eigið að velja á milli þess að gifta yður eða vera framkvæmdastjóri S.Þ., þá vildu þeir, blaðamennirn- ir, heldiur, að þér yrðuð pipar sveinn áfram. — Þetta er nú ekki karl- mannleg yfirlýsing svaraði Hammarskjöld. gamall íbúi Tulsa í Oklahoma. Risner flýgur einn yfir hafið alveg eins og Lindbergh gerði forðum. Hann leggur upp 21. maí frá McGuire-flugvellinum í New Jersey og fylgir flugleið Lindberghs nákvæmiega. 50 ÁRA ÞRÓUN Hann mun lenda á Bourget- flugvellinum utan við París, þar sem Lindbergh kom niður fyrir 30 árum og var fagnað ákaflega af 200.000 Frökkum, sem tóku á móti honum. Þota Risners verður síðan til sýnis á alþjóðlegu flug- sýningunni fram til 2. júnt. Flug Risners verfiur liður í hátíðahöldum bandriska flug- hersins til að minnast 50 ára þró- unar flugsins í heiminum. Mikið mann- fall í Alsír París, 18. maí: ÚTVARPIÐ í Paris skýrði frá því, að 70 uppreisnarmenn í Alsír hafi verið drepnir í gær og 3 teknir til fanga í bardaga við hersveitir stjórnarinnar fyrir suð- vestan Algeirsborg. Fimm Frakk- ar létu lífið, en 19 særðust. I Algeirsborg sjálfri voru tveir fallhlífarhermen særðir. annar lézt síðar. 1 skothriðinni voru 26 uppreisnarmcnn drepnir og 11 særðir. Víðar í Alstr er skýrt frá bar- dögum við uppreisnarmenn, og segja frönsk stjórnarvöld, að fundizt hati orðsendingar, þar sem lagt er fyrir leiðtoga upp- reisnarmanna i Alsir að efla hermdarverkaherferð sína næstu vikum. r Aframhaldandi uppby^^ing nauðsynleg l I Ummæli Ingólfs Jónssonar silllí i rptMINN leggur nú höfuðáherzlu á að slíta ummæli Ingólfs A Jónssonar, er hann mælti á þingfundi í vetur, úr réttu á samhengi og leggja síðan út af hinum brengluðu ummælum. Af því tilefni þykir rétt að birta enn einu sinni ummæli ggllggi&jk,, Ingólfs eins og þau raunverulega voru. Þau voru á þessa leið: tírÆnSáii H|F „Hv. 8. þm. Reykvíkinga (E. OI.) var að tala um það hér IbÍIb1I[ Tjir áðan, að ég hefði hælzt um það, að litlar líkur væru til, • 1l Tiu • w 4 að lán fengjust til þess að kaupa togarana. Þetta er regin misskilningur hjá hv. þm. Ég vitanlega vildi óska þess, að rrr. ' það væri hægt að halda uppbyggingu atvinnuveganna og öll- 1 rr..i ’• 1 _ t um framkvæmdum hér áfram, þrátt fyrir það þótt við höfum lélega stjórn í landinu um sinn. AUir hv. þm. hljóta ijj.n r ' ", í . ! að skilja, að ef framkvæmdirnar stöðvast og ef atvinnuleysi ( Í ^,,, jjViT-,- § - _ heldur innreið hjá okkur, þá líða allir við það. Það verður að finna önnur ráð til þess að koma hæstv. ríkisstjórn frá I völdum heldur en þau ein, að hún fái hvergi lán. Hæstv. ]|_ 3 " _ h. ríkisstjórn fellur á sínum eigin verkum og súau eigin úr- |j t 'i £ sfii fc-" / tfk * ræðaleysL" TV 1 1T » A 1 haf sbandalagið vegna misskilnings K AUPMANN AHÖFN — Dönsk blöð skýra frá því, að Krúsjeff hafi í viðtali sínu við fréttamann New York Times á dögunum lát- ið í ljós þá skoðun sína að Dan- mörk hafi gengið í Atlantshafs- bandalagið vegna misskilnings. — En Danmörk var ekki eina landið, sem gerðist aðili að Atl- antshafsbandalaginu vegna mis- skilnings, að áliti Krúsjeffs. Hann segir m. a.: — T. d. er greinilegt, að Noreg- ur lenti í Atlantshafsbandalaginu vegna misskilnings. Mikill meiri hluti norsku þjóðarinnar, heldur Krúsjeff áfram, óskar eftir því, að Noregur segi sig úr bandalag- inu. Sama gildir um Danmörku, sem er lítið land og getur lítið aðhafzt, þó að þjóðin verði reið út í Sovétríkin. Sömu sögu er að segja um Holland. Og við lítum á Kanada sem friðelskandi land, * I er gekk í Atlantshafsbandalagið vegna þess, að það mat ekki rétt Leitað að kaíbáti sem enginn kannast við KAUPMANNAHÖFN, 18. maí: — Hollenzkur tunduspillir hefur fundið torkennilegan hlut, sem maraði í hálfu kafi í Norðursjón- um nálægt þeim stað þar sem skip eitt átti að hafa séð bauju, sem sendi frá sér ljósmerki og reyk. Tundurspillirinn fór á stað- inn eftir að skipið, sem er danskt, hafði gefið í skyn, að baujan kynni að vera neyðarmerki frá kafbáti í hættu. Ekki hefur enn verið gengið úr skugga um, hvaða hlutur það er, sem tundurspillirinn fann. Brezkt björgunarskip er nú á leið til svæðisins, þar sem baujan sást. í London sagði formælandi flotamálaráðuneytisins, að eng inn brezkur kafbátur hefði verið á þessum slóðum, og flotamálaráðuneyti Banda- ríkjanna, Frakklands og Hol- lands hafa lýst því yfir, að enginn kafbátur frá þeim sé týndur. aðstæðurnar, sem skapazt hafa á síðustu tímum. Hið fagra Mæðrablóm, sem bæj- arbúar munu bera í dag á götum bæjarins. ★ ÚtflutningssjóBur segir tekjur standast áœtlun samt vantar tucýmilljónir en í GÆR barst Mbl. tilkynning frá Útflutningssjóði, þar sem gefið er yfirlit yfir tekjur og gjöld sjóðs- ins frá áramótum til 15. maí. Samkvæmt yfirlit þessu hafa tekjur Útflutningssjóðs þetta tímabil (4% mán.) numið tæpum fjórðungi áætlaðra árstekna hans. Skýrir Útflutningssjóður þetta svo, að innflutningurinn sé ætíð minnstur á þessu tímabili. Segir í tilkynningu Útflutnings sjóðs, að tekjur hans hafi skv. þessu orðið nokkurn veginn eins miklar og búizt var við. Nú er það kunnugt að Utflutn- ingssjóður hefur ekki getað stað- ið við tugmilljóna króna skuld- bindingar sínar við framleiðend- ur. Ekkert er hins vegar talað um það í tilkynningunni, hvort það hafi einnig verið áætlað að vanefna þær skuldbindingar og valda framleiðslunni með því stórfelldum erfiðleikum. Yfirlitið yfir tekjur og gjöld sjóðsins tímabilið 1. jan. til 15» maí er sem hér segir: TEKJUR: í Útflutningssjóð kr. Innflutningsgjöld o. fl.......... 63.896.775.12 Yfirfærslugjald.................... 35.000.000.00 Skattur á innfl. bifreiðum, ferða- gjaldgeri o. fl..................... 4.890.217.80 í Framleiðslusjóð 1 dag er síðasta tækifæri til að skoða myndasýningu Alliance Franc- aise í bogasal Þjóðminjasafnsins. Þar eru til sýnis vandaðar eftir- myndir af málverkum 49 hinna frægustu meistara Frakka. Hér sést ein myndin á sýningunni, Konumynd eftir Modigliani. Árangurslausar samninga- umleitanir SEM kunnugt er, er kaup- og kjaradeila Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og vinnuveitenda, nýkomin til sáttasemjara. Hefur hann 1 ♦ dið tvo fundi með full- trúum deiluaðila. Þessar samningaumleitanir hafa engan árangur borið enn sem komið er og óvíst er með öllu hvenær næsti sáttafundur verð- ur boðaður. GJÖLD: A Vegna framleiðslu 1957 Ýmis framlög ......... Vegna framleiðslu 1956 (og 1955) Yfirtaka bátagjaldeyriskerfisins. B-leyfi upp í inn- flutningsgjöld .... 13.856.355.39 B-skírt. keypt af S.Í.B. og Sl.S. .. 14.999.827.05 kr. 103.786.992.92 7.550.991.50 111.337.984.42 62.153.753.63 Verðbætur Annað ...., síld 28.856.182.44 19.633.147.50 98.620.06 48.587.950.00 Vegna starfsemi útflutningssjóðs. Reksturskostnaður og áhöld Mbl. sér ástæðu til að vekja athygli á því, að útflutnings- sjóður hefur orðið að greiða háar fjárhæðir, sem hvíldu á fram- leiðslusjóði, er starfaði á árinu 1956. M. a. eru það allar verðupp- bæturnar á síld, röskar 19 millj. Þá eru kaup á B-skírteinum af framleiðendum tæpar 11 milljón- ir, sem voru kvöð á framleiðslu- sjóði. Einnig skal á það bent, að 13,8 millj. kr. liðurinn B-leyfi upp í innflutningsgj öld er greiðsla á B-skírteinum, sem voru í hönd- um innflytjenda, þegar lögin um útflutningssj óð voru sett. | Eins og yfirlitið ber með sér, 134.511.62 110.876.215.30 er aðeins tæp hálf mllljón kr, í sjóði. En Mbl. er kunnugt um að ógreiddar en gjaldkræfar skuldbindingar sjóðsins nema nú nokkrum tugura milljóna króna. Vekur það undrun, fyrst stjórnendur út- flutningssjóðs hafa gert sér grein fyrir því, að tekjur sjóðsins yrðu hlutfallslega minni fyrstu mánuði ársins, að þeir skyldu þá ekki gera sér- stakar ráðstafanir til þess að afla f jár, svo að sjóðurinn gætl staðið við sínar skuldbinding- ar. Sérstaklega er þetta tilfinn- anlegt fyrir framleiðendur nú eftir hina lélegu vetrarvertíð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.