Morgunblaðið - 19.05.1957, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.05.1957, Blaðsíða 13
Sunnudagur 19. maf 1957. MORCVNTiLAÐIÐ W 70 ára: Snœbiörn Jónsson skjalaþýðari SNÆBJÖRN JÓNSSON er sjö- tugur í dag. Á þeim heiðursdegi hans fæ ég, sem þessar linur rita, eigi orða bundizt, enda minnist ég nú um leið annarra tímamóta, þar sem liðin er hálf öld — og að vísu nokkrum mánuðum bet- ur — síðan er fundum okkar Snæbjarnar bar saman í fyrsta sinn. En þá hófust kynni, sem áratugir hafa ekki rofið, ásamt vináttu, sem mun vera jafn ein- læg af beggja hálfu nú, er horfzt er í augu við elli, eins og var á æskudögum. Hér verður eigi varið löngu máli til að rekja æviatriði og margh. störf Snæbjarnar um æv ina; aðeins drepið á fátt eitt er í hug kemur. Fæddur er Snæ- björn á Kalastöðum á Hvalfjarð- arströnd, en þar bjuggu um langa tíð foreldrar hans, Jón Þorsteins- son og Sesselja Jónsdóttir, mik- ilhæf merkishjón, eins og þau áttu kyn til, fastheldin á fornar dyggðir, en um leið næm fyrir gagnlegum nýjungum í verkleg- um og andlegum efnum. Er efa- laust, að hið trausta heimilislíf, þar sem ofin var saman forn menning og ný, hefir mótað mjög skapgerð Snæbjarnar og ákveðið viðhorf hans til málefna samtíðar sinnar. Tæplega tvítug- ur hleypti Snæbjörn heimdrag- anum, stundaði nám í Flensborg- arskóla í tvo vetur og lauk þar prófi vorið 1908. Síðar dvaldist hann um allmörg ár 1 Englandi og stundaði um skeið nám í Central Labour College í Lond- on. Varð hann þá gagnkunnugur enskum bókmenntum og menn- ingu, eins og raun hefir borið vitni um síðan. Eftir heimkom- una var hann um skeið starfs- maður í Stjórnarráðinu, en stofn- aði síðan bókaverzlun, sem enn ber nafn hans, þótt aðrir séu nú eigendur hennar. Löggiltur skjalaþýðari og dómtúlkur í ensku hefir hann verið um langa tíð. Vér, sem nú erum komin á efri ár, höfum lifað mikil tímamót. Má telja, að kynslóð vor hafi borizt óðfluga frá kyrrstöðu og einangrun fyrri alda út í straum beimslífsins, svo að jafnvel fjar- lægar þjóðir eru nú sem nú- grannar vorir. Boðar og blind- sker eru á þeirri leið, og hætt óvönum. Kann svo að fara, að fornir fjársjóðir, góðir og gildir, falli fyrir borð, um leið og aðrir nýir — eða ímyndaðir — eru dregnir úr djúpi. Þá er nauðsyn, að stafnbúar séu vökulir, kunn- ugir á hinum nýju leiðum og segi hispurslaust til um, hvers gæta þarf. Þó að vér íslendingar séum í fáum efnum á eitt sáttir allir, þá hygg ég, að því verði ekki hnekkt, að Snæbjörn Jóns- son hafi verið vökumaður með þjóð vorri, brennandi í andanum,- ótrauður að veita forgöngu eða leggja lið hverju því málefni, er hann taldi að mætti verða and- legri menningu þjóðar vorrar til eflingar og vegsauka. Hefir hann þá lagt jafna áherzlu á það hvort tveggja, að vér nýttum sem bezt fjársjóði menningar vorrar, forna og nýja, og að vér lærðum af öðrum þjóðum í þeim efnum, þar sem þær standa oss langtum framar. Þessa baráttu hefir Snæ- björn ekki háð undir merkjum neins flokks né í valdastóli. Hann í hendur, sáttir, hvað sem ágrein- ing um ýmis atriði líður. Þegar ég nú hugsa til Snæ- bjarnar Jónssonar sjötugs og kynna okkar um hálfa öld, þá eru það ekki störf hans og áhuga- mál, þau er hér hefir verið vikið að, sem ég met mest, þótt til- þrifamikil séu, heldur drengskap- ur hans og vinartryggð, sem ó- víða á sinn líka. Fyrir þessa eig- inleika, sem eru hans aðall, vil ég nú þakka og veit ég, að þar mæli ég um leið fyrir munn fjöl- margra vina hans. Ég minnist margra ánægjuríkra stunda á heimili hans og vona, að hann komi heill heim úr för sinni til Englands, þar sem hann dvelst nú sér til heilsubótar. Ég óska heimili hans, hans ágætu konu, frú Láru Árnadóttur, börnum og öðrum vandamönnum heilla ! og þakka liðna tíð. Jón Guðnason. Gerðaskóla slitið hefir aldrei leitað upphefðar að þeim leiðum, heldur verið óháð- ur, ekki viljað „eiga nokkru sinni málsverð undir embættum eða lýðhyllinni." Það er ekki tilvilj- un, að Snæbjörn, sem framar öðrum hefir kynnt þjóð vorri enskar bókmenntir, kostaði einn- ig fyrstu (og einu) heildarútgáf- ur af ljóðmælum Gríms Thom- sens og var forgöngumaður að stofnun Rímnafélagsins. Hér er ekki rúm til að geta útgáfustarfs Snæbjarnar nánar, né heldur greina hans og ritgerða um bók- menntaleg efni í blöðum og tíma- ritum, þar sem hann hefir jafn- an verið ómyrkur í máli. Ekki er ég þess umkominn að gerast dómari í þeim efnum, þar sem Snæbjörn hefir greint á við aðra bókmenntamenn, en af löngum og nánum kynnum veit ég, að afl- fjöðrin í penna hans er ást hans, næstum ofurást, á íslenzkum bókmenntum og þjóðlífsarfi. í þeirri ást geta vonandi allir sann- ir menntamenn mætzt og tekizt GERÐASKÓLA í Garði var slitið sunnudaginn 28. apríl s.l., að við- stöddum kennurum, nemendum og gestum. 1 Þorsteinn Gíslason skólastjóri talaði til nemenda og flutti skýrslu um starfsemi skólans á liðnum vetri. Skólinn starfaði í 7 bekkjum. Barnaskólinn í 5 og unglingaskólinn í 2. Nemendur voru 115. Við barnapróf hlaut hæstu einkunn Kristín Þóra Jóhannes dóttir og á unglingaprófi Þor steinn Árni Gíslason. Fulltrúar frá Rótary-klúbb Keflavíkur mættu við skólaslitin og veittu þeir verðlaun hæsta nemanda hvers bekkjar barna- skólans. Fjórir fastir kennarar starfa nú við skólann og auk þess tveir stundakennarar. Á vetrinum fóru nemendur tvær hópferðir til Reykjavíkur í fylgd kennara sinna. Heimsótt voru söfnin, og einnig fóru nem- endur unglingaskólans á starfs- fræðsludaginn og ræddu við hina ýmsu fulltrúa um starfsval o.fl. Skólaslitadaginn höfðu nem- endur sýningu á um 400 munum, sem unnir voru í handavinnu á vetrinum og fylltu þeir hinar þrjár kennslustofur skólans. En í vetur voru í fyrsta sinni kennd- ar smíðar við skólann. Þá héldu nemendur almenna skemmtun í samkomuhúsinu á 2. í páskum. Skólastjóri flutti ávarp og ræddi m. a. samstarf heimila og skóla. Nemendur endurtóku ýmis skemmtiatriði, sem flutt höfðu verið á skemmtunum skól- ans á vetrinum. Þá flutti Ingvar Ingólfsson íþróttakennari erindi: „Skólaíþróttir 100 ára“ og rakti sögu skólaíþrótta á íslandi. Að því loknu hófst fimleika- sýning pilta og stúlkna undir ágætri stjórn íþróttakennarans og jafnframt sýndu nemendur Vikivaka og þjóðdansa. Vakti skemmtun þessi mikla hrifningu og var mál manna, að frábærlega hefði til tekizt. Allur ágóði rann í ferðasjóð nemenda. 11. og 12. maí fóru svo nem- endur unglingaskólans í ferðalag undir leiðsögn kennara sinna. Heimsóttir voru sögu- og merkis- staðir austursveita, og gist að Laugarvatni. Ferðalaginu lauk svo með því, að nemendur fóru í Þjóðleikhúsið og sáu sjónleikinn dr. Knock. LESBÓK BARNANNA Strúturinn RASIVIUS „Komda og sjáðu, Bas- mus, tiitlu uegrarnir eru f knattspyrnu niðri á flöt innl“. Þegar Rasmus sá þá, sagtl hann, að sig langaði Ifka til að fara í knattspymu. „En ég á bara engan knött“. Litlu negrranir flýttu sér nú að sækja stóra, fallega vatnsmelónu. Þeir lögðu hana á miðja flöt- ina. Skömmu síðar gekk Rasmus þar fram hjá og sá þennan stóra og fallega knött. Hann tók langt til- hlaup og sparkaði. — „Bang“. Vatnsmelónan fór í þúsund mola og vökvinn úr henni spraut- aðist upp yfir höfuð á litlu negrunum. Ráðningar úr síðasta blaði Ferjað yfir á. VIÐ skulum kalla árbakk ann, sem þau eru stödd á A, og árbakkann sem þau ætla til B. Fyrst réri maðurinn með lambið til B, úlfur- inn og kálhöfuðið urðu eftir á A. Maðurinn rær til baka og sækir úlfinn, setur hann í land á B, en fer með lambið aftur til A, en þar tekur hann kál- höfuðið og flytur til B. Að síðustu fer hann og sækir lambið í þriðju ferðinni og hefur þá flutt allt til B, án þess að úlf- urinn hafi fengið færi á að éta lambið, eða lamb- ið kálhöfuðið. GÁTCR 1. Bær — 2. Ég sjálfur — 3. Þegar það er frosið — 4. Nafnið þitt. Ráðningar á gátum úr Póstinum í blaði nr. 12: 1. Ríðandi maður. — 2. Hinn helmingurinn. — 3. Sótarinn. — 4. Hey. Jftrf Skrítlur Móðirin fór með tvíbur ana sína inn í verzlun og keypti nákvæmlega eins föt á þá báða. Viljið þér ekki lofa þeim að sjá sig í speglin- um, spurði afgreiðslu- stúlkan. Alveg óþarft, svaraði móðirin, þeir geta horft hvor á annan. —o— — Af hverju reisir þú reiðhjólið upp við rúmið þitt? — Eg er orðinn svo voðalega þreyttur á að ganga í svefni. Kennarinn: Hvað er foss? Pétur: Það er vatn, sem er að flýta sér að detta. Ég les aldrei reyfara, því að ég veit alveg, hvað kemur á eftir fyrsta kafl- anum. Hvað er það? Annar kafli, auðvitað! Kennarinn: Hvort vild- ir þú heldur þriðjunginn eða fimmtunginn af sítrónu? Jónsi: Fimmtunginn. Kennarinn: Veiztu þá^ ekki, að þriðjungurinn er stærri? Jónsi: Jú, en eg veit líka, að sítrónur eru súr- ar. Ollum heimskari ÞETTA er gamalt ævin- týri um fátækan bónda og konu hans. Aleiga þeirra af þessa heims gæðum var hrörlegur kofi og ljómandi falleg hæna. Dag nokkurn ákvað bóndinn að senda konuna til bæjarins með hænuna til að selja hana. „Þú verður að fá gott verð fyrir hana“, sagði hann, „annars sveltum við til dauða“. „Hvað dýrt á ég að selja hana?“, spurði kon- an. „Farðu með hana á markaðinn og seldu hana eins dýrt og þú getur“, svaraði maðurinn. Konan lagði nú af stað. Þegar hún átti skammt eftir til bæjarins mætti hún kaupmanni nokkr- um. „Vilt þú kaupa hænu?“ kallaði konan. Kaupmaðurinn nam stað- ar, leit á konuna og hugs- aði með sér: „Þessi kona lítur út fyrir að vera heimsk. Ef til vill fæ ég hænuna fyrir lítið“. „Ég skal borga þér tíu aura, það er gott verð fyrir eina hænu, eða það finnst mér“, sagði kaup- maðurinn og brosti. „Fyrst það er gott verð fyrir eina hænu“, svar- aði konan, „þá færð þú þessa hænu fyrir tíu aura“. Og þar með voru kaupin gerð. Konan hélt nú hin á- nægðasta leiðar sinnar til bæjarins. Þar keypti hún sér lítinn poka fyrir tvo aura og seglgarnsspotta fyrir aðra tvo aura, setti svo afganginn af aurun- um í pokann og batt vand lega fyrir. Síðan hélt hún rakleiðis heim. Maðurinn hennar varð fokvondur, þegar hún færði honum pokann með sex aurunum í. „Þú ætt- ir skilið að fá duglega ráðningu fyrir alla heimskuna“, — hrópaði hann. „En nú ætla ég út í víða -veröld ,til að leita einhverra, sem eru enn þá heimskari en þú. Sé nokkur til, skaltu sleppa við refsingu". Að svo mæltu skellti hann eftir sér hurðinni og var far- inn. Ekki hafði hann lengi gengið, er leið hans lá fram hjá húsi, þar sem frúin stóð úti á svölunum og svipaðist um. Hann fór þá að hoppa upp í loftið og teygði hendurnar til himins. Frúin horfði undr andi á hann og loks gat hún ekki hamið forvitni sína, en sendi þjón til hans, að spyrja, hvað hann væri að gera. „Ég er á leiðinni upp til himna“, sagði bóndinn. Áðan lenti ég í rifrildi við einn af vinum mínum þar, svo hann hrinti már ofan. Og nú get ég ekki í svipinn fundið aftur gat ið, sem ég datt niður um“. Þjónninn sagði frúnni strax þessi merkilegu tíð- indi. Hún lét þegar kaUa bóndann fyrir sig. „Hefur þú verið á himnum“, spurði hún. „Já, víst var ég þar“,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.