Morgunblaðið - 19.05.1957, Blaðsíða 16
1«
MORCVNBLÁÐ1Ð
Sunnudagur 19. maf 1957.
I
I
A
ustan
Edens
eftir
John
Steinbeck
38 •
= I
— komst yfir landamæri Georgiu.
Stal fötum úr verzlun og sendi
þér skeytið“
„Ég trúi þér ekki!“, sagði
Charles. — „Jú, annars. Ég trúi
þér. Þú lýgur ekki, hefur aldrei
gert það. Auðvitað trúi ég þér.
Hvers vegna sagðirðu mér þetta
ekki strax?“
JCannske skammaðist ég mín
fyrir það. En ég skammast mín
samt enn meira fyrir að hafa
ekki borgað þér“
„O, hugsaðu ekki um það!“,
sagði Charles. — lrÉg veit ekki
hvers vegna ég var að nefna
það“
„Ég skal borga þér strax á
morgun. Það skal ekki bregðast!"
„Til fjandans með allar borg-
anir!“, sagði Charles æstur. —
„Að hugsa sér það, að bróðir
manns skuli vera tugthúslimur!"
„Þú þarft ekki að láta sem það
gleðji þig mjög!“
„Ég skil það ekki sjálfur“,
sagði Charles. — „En það gerir
mig einhvern veginn hreykinn.
Bróðir minn tugthúsfangi.
D-
—□
Þýðing
Sverrir Haraldsson
□-------------------Q
En segðu mér eitt, Adam. —
Hvers vegna beiðstu með að
strjúka þangað til ekki voru eftir
nema þrír dagar?“
Adam brosti. — „Það gerði ég
af tveimur, eða öllu heldur þrem-
ur ástæðum“, sagði hann. — „Ég
var hræddur um að þeir myndu
ná mér strax aftur, ef ég yrði
út allan tímann. Og svo fannst
mér ekki líklegt, að þeir myndu
gruna mig um strok, þegar
svona væri langt liðið á hegn-
ingartímann“
„Nei, það skil ég“, sagði Char-
les. — „En hver var svo þriðja
ástæðan?"
„Ég held að hún sé sú mikil-
vægasta", sagði Adam. — „En það
er erfiðast að útskýra hana —
Mér fannst ég skulda ríkinu
Foreldrar! Látið bömin hafa bókina
VINIR DÝRANIMA
6UÐLAUGUR
GUÐMUNDSSQN
með sér í sveitina. Hún opnar augu þeirra fyrir fegurð og
fjölbreytni sveitalífsins.
„Sögurnar eru allar hver
) annarri fallegri. Þær lýsa
| veiðiferð inn í óbyggðir og úr-
l| ræðagóðum strákum, sem
aldrei drápust ráðalausir. —
Þarna eru líka fallegar dýra-
sögur. Skemmtileg frásögn um
hina heimsfrægu hryssu Tulle,
1 sem fyrir skömmu var felld í
Danmörku, elzt allra hrossa,
eða 42—45 ára gömul".
Mbl., 16. des. 1956.
„Fáar bækur eru betur til
þess fallnar en þessi að vekja
ást og skilning barna á dýrum
og það er góð bók sem er þess
umkomin".
Tíminn, 12. des. 1956.
„Eins og nafnið bendir til eru þetta dýrasögur, 9 talsins, og
þær eru í senn fullar hlýju og mannúðar og skemmtilegur
og því hverju barni hollur lestur".
Þjóðviljinn, 16. des. 195C.
ÚTGEFANDI
þessa sex mánuði. Það var dóm-
urinn. Þess vegna vildi ég ekki
hafa af þeim fleiri daga“
Charles rak upp skellihlátur:
-— „Þú ert nú meiri karlinn!“,
sagði hann vingjarnlega. — „En
þú ságðist hafa stolið úr einhverri
verzlun!“
„Ég sendi greiðsluna aftur
ásamt 10% vöxturn", sagði Adam.
Charles hallaði sér fram á borð-
ið: — „Segðu mér eitthvað um
hina fangana og lífið þarna úti
á þjóðvegunum, Adam“
„Já, það skal ég gera, Charles",
sagði Adam. — „Það skal ég
áreiðanlega gera, einhvern tím-
ann“.
II. KAFLI
1.
Charles bar meiri virðingu fyr-
ir Adam, er hann fékk vitneskju
um fangavist hans. Hann bar
hlýjan huga til bróður síns, sem
maður getur aðeins borið til þess
einstaklings sem ekki er full-
kominn og þess vegna ekki neinn
skotspónn fyrir hatur manns og
öfund. Adam notfærði sér þetta
líka eins og frekast gat. Hann
freistaði Charles:
„Hefurðu nokkurn tíma g'ert
þér fullkomna grein fyrir því,
Charles, að við erum svo rikir,
að við getum gert allt sem okkur
lystir — allt sem okkur langar
til að gera?"
„Nú og hvað langar okkur
sosum að gera?“
„Við gætum ferðazt til Evrópu.
Við gætum skemmt okkur í París“
„Hvað var þetta?"
„Hv..ð var hvað?"
„Mér fannst ég heyra einhvem
umgang úti á tröppunum".
„Sennilega einhver flækingskött
urinn".
„Já, ég býst við því. Ég neyð-
ist vist til að drepa eitthvað af
þeim á næstunni".
„Charles, við gætum farið til
Egyptalands og skoðað Sfixinn".
„Og við gætum líka verið kyrr-
ir hér heima og notað peningana
til einhvers gagns. Og við gætum
unnið eitthvað nytsamlegt í stað
þess að flækjast um. — Bölvaðir
kettirnir þeir ama....! Charles
hljóp til dyranna, opnaði þær
með snöggum rykk og hrópaði:
„Farið þið til .... !“ Svo þagnaði
hann skyndilega og Adam sá að
hann starði niður fyrir sig og
undrunarsvipur kom á andlit hans
Adam stóð á fætur og gekk út
til bróður síns.
Einhver mannvera, í ötuðum og
rifnum fatagörmum, var að reyna
að skríða upp tröppurnar. Önnur
hendin, mögur og beinaber, fálm-
aði máttleysislega eftir einhverju
haldi á þrepbrúnunum. Hin dróst
algerlega aflvana, að því er séð
varð. Bræðurnir sáu blóðstokkið
andlit með sprungnum, flakandi
vörum og augum, sem rétt grillti
í milli blárra og bólginna hvarma.
Á enninu var stórt, gapandi sár
og hárið var allt ein blóðstorka.
Adam flýtti sér niður tröppurn
ar og laut niður að hinni illa
leiknu stúlku.
„Hjálpaðu mér, Charles!" sagði
hann. „Komdu! Við verðum að
bera hana inn. Hérna, passaðu að
handleggurinn rekist ekki í! Hann
virðist vera brotinn".
Hún missti meðvitundina á leið-
inni inn í húsið.
„Legðu hana í rúmið mitt“
sagði Adam. „Og svo er bezt að þú
sækir lækni strax".
„Heldurðu að við ættum ekki
heldur að aka henni þangað?"
„Aka henni? Nei! Ertu alveg
genginn af vitinu?“
„Ekki samt eins og þú. Hugsaöu
þig betur um eitt andartak,
Adam!“
„Hvað áttu við? Hugsa mig bet-
ur um hvað?“
Svartar gallabuxur
I j j Nankinsbuxur
I j f
í ! j barna- og unglinga, margir liti
| i I Verð frá kr. 40.00
Austurstræti 12
i h mm kb na ■ Bk rh /ST Aðeins 3 dagar eftir. Verzlunin flytur í Vesturver. — Allar 78 snún. plötur 10” á aðeins kr. 10,00 eða kr. 15,00. —
R YMINGARS iAI. íslenzkar og erlendar. — Einstakt tækifæri!
jHljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur s.f. Lækjargötu 2
^♦♦l^^1^^^^^^'^~^~-"^^-^-“^*^^^“'***“***‘**%,*M,**,**,,*'*,**',",**’-',J*:**:**'“^'**:**'*>*”^*~w^^',^^^^**,**>*‘W‘*>*“*^‘^W*^W*W^^**^******>^*^*^***>**>>*,*‘*<***^>‘*>***‘<^H'*^^<a
M A R K Ú S Eftir Ed Dodd
1) Jæja, hvernig smakkaðist | vingjarnleg, að hafa svona mikiS
maturinn.
Dásamlega. Mikið ertu annars
fyrir mér, Peta.
Við skulum ekki tala meira
um það. Nú ætla ég að sækja
Anda. Og varaðu þig á honum
Hann verður svo kátur að hann
kastar sér yfir þig .
3) Andi hrópar Peta. — Þetta
er undarlegt, Andi er hvergi.
Þeir eru báðir horfnir, Andi
og pabbi.
„Hvaða afleiðingar heldurðu að
það geti haft fyrir tvo karlmenn,
sem búa einir í húsi, að fá allt í
einu svona gest á heimilið?"
Adam varð sem þrumu lostinn:
„Þér getur ekki verið alvara,
Charles!“
„Jú, fyllsta alvara. Ég held að
við ættum að koma henni héðan
sem allra fyrst. Að tveimur klukku
stundum liðnum verður fréttin um
þetta komin um allt héraðið.
Hvemig veizt þú hver hún raun-
verulega er? Hvernig komst hún
hingað? Hvað kom fyrir hana?
Adam, þú ert að voga miklu!"
Adam sagði kuldalega: „Ef þú
ferð ekki strax, þá fer ég og skil
þig hér eftir".
„Ég held að þú sért að gera
mikið glappaskot! Ég skal fara,
en sannaðu til — við eigum eftir
að líða fyrir þetta!“
„Það bitnar þá fyrst og fremst
á mér einum", sagði Adam. —
„Reyndu þá að koma þér af stað!"
Er Charles var farinn, gekk
Adam fram í eldhúsið og hellti
heitu vatni úr katlinum í þvotta-
skál. Inni í svefnherbergi sínu
bleytti hann handklæði í heita
vatninu og þvoði blóðklessurnar
og óhreinindin af andliti stúlkunn
ar. Innan stundar komst hún aft-
ur til meðvitundar og blá augu
hennar störðu með ótta og spurn
á hann. Löngu liðið atvik kom
fram í huga hans. — Þetta var
hans herbergi, rúmið hans. Stjúp-
móðir hans stóð yfir honum með
votan klút í hendinni og hann gat
enn fundið sársaukann, þegar hún
þvoði áverkana. Og hún hafði sagt
eitthvað, aftur og aftur. Hann
heyrði það, en hann gat ekki mun-
að hvað það var.
„Þetta batnar fljótt aftur",
sagði hann við stúlkuna. „Það er
verið að sælcja lækni. Hann kemur
innan skamms".
Varir hennar bærðust örlítið.
„Ekki að reyna að tala", sagði
SUUtvarpiö
Sunnudagtir 19. maí:
Fastir liðir eins og venjulega.
11,00 Messa í Dómkirkjunni —
(Prestur: Séra Árelíus Níelsson.
Organleikari: Helgi Þorláksson).
15,00 Miðdegistónleikar (plötur).
16.30 Veðurfregnir. — Færeysk
guðsþjónusta (Hljóðritað í Þórs-
höfn). 17,30 Hljómplötuklúbbur-
inn. — Gunnar Guðmundsson við
grammófóninn. 18,30 Bamatím-
inn (Skeggi Ásbjarnarson kenn-
ari). 19,30 Tónleikar (plötur). —■
20,20 Erindi: Á eldflaug til ann-
arra hnatta; III. (Gísli Halldórs-
son verkfræðingur). 20,50 Einsöng
ur: Ezio Pinzá" syngur (plötur).
21,10 Upplestur: Þorsteinn 0.
Stephensen les kvæði eftir Sigurð
B. Gröndal. 21,20 Islenzku dægur-
lögin: Maíþáttur S.K.T. — Hljóm
sveit Carls Billich leikur. Söngv-
arar: Sigurður Ólafsson og Skafti
Ólafsson. Kynnir þáttarins Gunn-
ar Pálsson. 22,05 Danslög: Ólafur
Stephensen kynnir lögin. — 23,30
Dagskrárlok.
Mánudagur 20. maí t
Fastir liðir eins og venjulega.
13,15 Búnaðarþáttur: Fjórðungs-
mót hestamanna í Egilsstaðaskógi
í sumar (Gunnar Bjarnason ráðu-
nautur). 19,00 Þingfréttir. 19,30
Lög úr kvikmyndum (plötur). —■
20.30 Útvarpshljómsveitin; Þórar
inn Guðmundsson stjórnar. 20.50
Um daginn og veginn (Sigurður
Magnússon fulltrúi). 21,10 Ein-
söngur: Nanna Egilsdóttir syng-
ur; Fritz Weisshappel leikur und-
ir á píanó. 21,30 Útvarpssagan:
„Synir trúboðanna" eftir Pearl S,
Buck; XX. (Séra Sveinn Víking-
ur). 22,10 íþróttir (Sigurður Sig-
urðsson). 22,30 Kammertónleikar:
a) Barnalagaflokkur eftir Leif
Þórarinsson (Rögnvaldur Sigur-
jónsson leikur á píanó). b) Tríó
fyrir flautu, Klarínettu og horn
eftir Leif Þðrarinsson (Ernst
Normann, Egill Jónsson og Her-
bert Hriberschek leika). c) Sónata
fyrir fagott og píanð eftir Hei-bert
Hriberschek (Hans Ploder og dr.
Victor Urbancic leika). — 23,00
Dagskráriok.