Morgunblaðið - 29.05.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.05.1957, Blaðsíða 1
24 síðuf 44. árgangur 119. tbl. — Miðvikudagur 29. maí 1957 Prentsmiðja Morgunblaðsi* Ríkisstjórnin hefur hækkað byggingakostnað um 70-/5% Varnarmálin gerð að verzlimarvöru Ríkisstjórnm á stöðugu undan- haldi í eldhúsumræðunum HEILDARMYNDIN af eldhúsdagsumræðunum var sú, að ríkis- stjórnin og flokkar hennar voru á hröðu undanhaldi bæði kvöldin. Ráðherrarnir og aðstoðarmenn þeirra héldu áfram að af- saka öll svik sín við gefin fyrirheit stjórnarinnar með því, að allt sem aflaga færi í þjóðfélaginu væri fyrrverandi ríkisstjórnum að kenna. Kommúnistar lýstu því enn einu sinni yfir að dýrtíð hefði ekki vaxið undanfarna mánuði og annar ræðumaður Alþýðuflokks- lns komst að þeirri snjöllu niðurstöðu, að almenningl væri skilað aftur öllum þeim nýju sköttum og tolium, sem stjórnin lagði á hann um síðustu áramót!! Ræðumenn Sjálfstæðisflokkslns í gærkvöldl voru þeir Bjarni Benediktsson, Ingólfur Jónsson og Gunnar Thoroddsen. Héldu þeir uppl harðri sókn á hendur vinstri stjórninnl, sukki hennar og ráðleysl. kostnaður í landinu hækkað um 10—15%. Þýddi það 25—35 þús. kr. hækkun ,á meðalíbúð. Almenningur myndi dæma verk stjórnarinnar á prófinu • og hún myndi falla. Verst væri að engin von væri um það að stjórninni færi fram. Þess vegna bæri henni að viðurkenna að hún væri ófær um að stjórna landinu. Af hálfu stjórnarliðsins töluðu þeir Gylfi Þ. Gíslason, Eysteinn Jónsson, Benedikt Gröndal, Ágúst Þorvaldsson og Lúðvík Jósefs son._____________________________ Eisenhower og Adenauer ræðast við. LAN SEM BORGUN FYRIR V ARNARLIÐIÐ Bjarni Benediktsson var fyrsti ræðumaður umræðnanna í gær- kvöldi. Deildi hann m.a. á stjórn- ina fyrir að hafa gert varnarmál- in að verzlunarvöru. Það lægi nú fyrir sanr.að, að pau lán, sem rík- isstjórnin hefði fengið hjá Banda- rikjunum væru veitt sem bein borgun fyrir það að ríkisstjórnin hefði samið um áframhaldandi dvöl varnarliðsins og svikið með því eitt aðalkosningaloforð flokka sinna. Þá ræddi Bjarni Benediktsson «PPgjöf stjórnarinnar í efnahags- málum og olíuokur og brask kommúnista og SÍS. Ræðumaður lauk máli sínu með þeim orðum, að Sjálfstæðis- flokkurinn hefði átt meiri þátt en nokkur annar flokkur í mesta framfaratímabili íslenzku þjóð- arinnar af því að þeir væru mál- svarar gróandans í þjóðlífinu, lífs kraftarins, hugkvæmninnar, framkvæmdarinnar og frelsisins. BLEKKINGIN l)M ÁLAGNINGUNA Ingólfur Jónsson talaði í ann- arri ræðuumferð fyrir Sjálfstæð- isflokkinn. Ræddi hann m. a. verðlagsmál og þá staðhæfingu stjórnarliðsins, að verðlagi væri haldið í skefjum með lækkaðri álagningu. Þetta væri hin mesta För Adenauers árangursrik blekking. Nefndi Ingólfur Jóns- son mörg dæmi um þær gífur- legu verðhækkanir, sem orðið hefðu á fjölmörgum nauðsynja- vörum. Lækkun álagningarinnar næmi hins vegar aðeins örlitlu broti af þeim. Ríkisstjórnin væri því vitandi vits að blekkja almenning með raupi sínu um að verðlaginu væri haldið niðri með lækkaðri álagn- ingu. Hann kvað hina vaxandi dýrtíð einnig bitna mjög á bænd- um. M. a. hefði Framsóknarbóndi á Norðurlandi nýlega lýst því yfir, að útgjaldaauki vegna auk- innar dýrtíðar næmi hjá meðal- búi um 10—15 þús. kr. á ári. RÍKISSTJÓRNIN FÉLLI A LANDSPRÓFI Gunnar Thoroddsen talaði í síðustu umferð fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Hann sagði m. a. að nú stæði yfir landspróf í skólum landsins. Vel færi því á því að kjósendur gæfu ríkisstjórninni einkunnir í nokkrum greinum starfa hennar. Nefndi hánn síð- an nokkra málaflokka og ræddi afrek stjórnarinnar í þeim. Og niðurstaðan var sú að stjórnin hefði staðið sig herfilega. Það ætti m. a. við um störf hennar í utanríkismálum, húsnæðismál- um, atvinnumálum og efnahags- málum. Síðan stjórnin hefði tek- ið við völdum hefði byggingar- Washington, 28. maí. Frá Reuter-NTB. Eisenhower Bandaríkjafor- seti og Adenauer kanslari Vest- ur-Þýzkalands gáfu í dag út sam- eiginlega yfirlýsingu að afiokn- um 3 daga viðræðum, og segir þar m.a., að v'andamálið um sam- einingu Þýzkalands verði að leys ast, áður en hægt sé að gera nokkra samninga um afvopnun við Sovétríkin. Adenaiuer benti forsetanum á, að það kynni að leiða til góðs, ef stórveldin héldu ráðstefnu um þýzka vandamálið, þegar náðst hefur byrjunarsam- | komulag um afvopnun. Munu I I Bandaríkjamenn ráðgast við Breta og Frakka um þetta mál. ■jlr Éisenhower Pullvissaði Ad- enauer um, að Bandaríkin mundu því aðeins ganga inn á tillögur um afvopnun, að önn- ur meðlimaríki Atlantshafsbanda lagsins samþykkliu þær. Hann hét því að Bandaríkin nmndu ekki gera neinar þær ráðstafan- ir, sem torvelda kynnu samein- ingu Þýzkalands. Voru þcir sammála um, að Rússar ættu höf- uðsök á ófremdarástandinu í heimlinum nú. Óski rússneskM leiðtogarnir eftir friði og betri sambúð þjóða á milli, geta þeir bezt sýnt það í verki með því að fallast á sameiningu Þýzkalands. A Það mál manna, að Adenau- er hafi unnið mikinn sigur með því að fá Bandaríkjamenn til að heita því að gera ekkert sem skaðað geti sameiningu Þýzká- iands og með því að lofa að gera ekki endanlega samninga um af- vopnum, fyrr en Þýzkaland hef- ur verið sameinað. Mun þetta styrkja Adenauer mjög í kosn- ingabaráttunni í haust. 11 stúdeniar fyrlr rétti Belgrad, 28. maí. ELLEFU króatískir stúdent- ar verða dregnir fyrir rétt í borginni Zadar og ákærðir fyrir þjóðernisstarfsemi. Er sagt, að þeir hafi verið hand- teknir eftir að þeir höfðu skipulagt hátíð til að minnast þess, að Króatía var gerð að „sjálfstæðu ríki“ undir stjórn nazista. Hópur stúdenta í Zagreb, höfuðborg Króatíu, voru nýlega dæmdir til hegn- ingar fyrir tilraunir til að koma af stað þjóðernishreyf- ingu í Króatíu. Rússar vaka yfir Austur-Evrópu rithöfunclum. Leyniráðsfefna í Búdapesff Varsjá, 28. maí. ★ ÞAÐ er haft eftir góðum heimildum, að stjórnmálaleiðtogar og herforingjar landanna, sem eiga aðild að Varsjársáttmálanum, hafi komið saman til ráðstefnu nú um helgina í einhverri höfuð- borg Austur-Evrópu, sennilega í Búdapest. Var hér um að ræða leyniráðstefnu, sem fjallaði um tillögur Rússa þess efnis, að þeir minnkuðu herstyrk sinn í leppríkjunum, ef samkomulag næst um afvopnun. ★ 1 þessari ráðstefnu tóku þátt Gómúlka, framkvæmdastjóri pólska kommúnistaflokksins, Cyrenkievicz forsætisráðherra, Jedr- zychovsky meðlimur miðstjórnar flokksins og háttsettii foringjar í pólska hernum. Sú ályktun, að ráðstefnan hafi verið haldin í Búdapest, hefur styrkzt við þá vitneskju, að Sjukov landvarna- ráðherra Rússa og Gromyko utanríkisráðherra hafa verið þar. ★ Meðal stj órnmálafréttaritara í Varsjá er álitið, að þessi ráð- stefna sé liður í endurvakinni „friðarsókn“ Rússa, en annar liður hennar var bréf Búlganins til Mollets forsætisráðherra Frakka í fyrri viku, en þar lagði hann til, að herstyrkir Atlantshafsbanda- lagsins og Varsjárbandalagsins yrðu minnkaðir. ★ Pólverjar voru ekki boðaðir á síðasta fund Varsjárbanda- lagsins í janúar s.l., en hann var einnig haldinn í Búdapest, en um það leyti var samband Póllands við önnur leppríki Austur-Evrópu minna en nokkru sinni. Lundúnum, 28. maí. ^jOVÉTSTJÓRNIN hefur nú gert gangskör að því að koma villu- ráfandi skáldum, rithöfundum og blaðamönnum á rétta línu aftur. í menningarmálum á að gilda sama regla og á öllum öðrum sviðum: það er aðeins til ein lína: sú er lína flokksins. Astaiidið í efnahagsmálum . Frakka Þegar hafðar eru í huga þær ströngu refsingar, jafnvel lífláts- dómar, sem beitt hefur verið upp á síðkastið, fer ekki milli mála, að Rússar ætla nú að koma í veg fyrir það í eitt skipti fyrir öll, að menningarfrömuðir í Sovétríkj- unum eða leppríkjunum fari út af hinni réttu línu. Menningar- fulltrúar Rússa við sendiráðin í Varsjá, Prag, Búdapest og öðrum höfuðborgum hafa fengið fyrir- mæli um að hafa náið eftirlit með rithöfundum og blaðamönn- um í hverju landi og sjá svo um, að þeir fari ekki af hinum þrönga bási kommúnískrar hugmynda- fræði. HEIMBOÐ OG HEIMSÓKNIR Jafnframt þessu hafa verið send heimboð til ritiiöfunda í Póllandi og öðrum Ieppríkjum og er þeim vel fagnað í Moskvu, en rússneskir höfundar fara í hrönnum íil leppríkjanna til að Frh. á bls. 2. París, 28. maí — Frá Reuter-NTB. DENE PLEVEN fyrrverandi forsætisráðherra Frakka gerði í dag enn eina tilraun til að fá Jafnaðarmenn og fhaldsmenn til að eiga samstarf um myndun nýrrar stjórnar í Frakklandi. Pleven, sem er í Frjálslynda flokknum, hefur verið falið af Rfené Cotý forseta að rannsaka möguleikana á að leysa stjórnarkreppuna, sem afsögn stjórnar Mollets leiddi til. Erfiðasta verkefni Plevens er að jafna misklíðina milli Jafn- aðarmanna og íhaldsmanna, serri áttu mestan þátt í því að stjórn Mollets féll í fyrri viku. Pleven lauk hinum formlegu umræðum sinum við stjórnmálaleiðtogana í morgun, en átti seinna í dag fund við leiðtoga Jafnaðarmanna og íhaldsmanna. Hann mun leggja skýrslu um málið fram fyrir Coty forseta á morgun, sam- kvæmt áætlun þeirra. Meðan þessu fór fram,. hefur Mollet, sem er enn við völd vegna þess að lausnarbeiðni hans hef- ur ekki verið samþykkt, gert ráðstafanir til að leysa mest að- kallandi efnahagsvandamál lands ins. Hann hefur kvatt báðar deildir þingsins saman á morgun til að samþykkja bráðabirgða- samning milli ríkisins og franska þjóðbankans, en í honum hefur Mollet farið fram á aukið lán bankans til fjármálaráðuneytis- ins, og nemur sú aukning 98 milljörðum franka. SLÆMAR HORFUR Búizt er við, að ný stjórn sjái sig tilneydda að biðja enn Frh. á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.