Morgunblaðið - 25.06.1958, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.06.1958, Blaðsíða 1
J 45. árgangur 140. tbl. — Miðvikudagur 25. júní 1958 Prentsmiðia Morgunblað" ins Stalinistar reyna undan Gomulka í Ungverjalandi rikir alger jbögn um mótmæli erlendis við morbunum Varsjá og Búdapest 24. júní. Samkvæmt áreiðanlegum heim ildum i Varsjá hafa stalinistarnir nú hert til muna andróðurinn gegn Gomulka og hans fylgis- mönnum innan kommúnista- flokksins pólska. Margir kunnug- ir í Varsjá telja, að Gomulka sé hætt kominn — og allt bendi til þess að úrslitatilraun verði gerð til þess að velta honum úr valda- stóli fyrr en síðar. Af hálfu pólskra stjórnarvalda hefur ekkert álit verið látið uppi á aftökunum í Ungverjalandi og virðist ljóst, að Gomulka ætli ekki að hætta sér of langt út á ísinn. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum mun pólski kommún- istaflokkurinn ekki taka opin- bera afstöðu til Ungverjaiands- málanna undir forystu Gomulka — og í dag, er talsmaðúr stjórnar innar var að því spurður, hvert hefði verið efni orðsendingar miðstjórnar flokksins til flokks- deildanna úti á landi, sagði hann, að bezt væri að ræða sem minnst um það. Flokksdeildirnar hafa fengið leyfi til þess að túlka að cigin vild þögn flokksforystunnar um þetta mál, sagði talsmaðurinn. ★ ★ Fulltrúar flokksins i fjölmörg- um verksmiðjum hafa verið spurðir að því hverju þögn flokksstjórnarinnar sætti. Verka- menn hafa verið mjög áhuga- samir um þessi mál og mikið hef- ur verið rætt um aftökur Ungverj anna þar í landi. Flokksfulltrúarnir hafa gefið þau svör, að forysta pólska komm únistaflokksins hafi ekki fengið neinar upplýrsingar um réttai'- höldin og aftökurnar áður en fréttirnar voru birtar allri heims- byggðinni — og pólskir kommún- að grafa istar hefðu ekki fagnað aftökun- um. ★ ★ í Ungverjalandi hefur rikt al- ger þögn um viðbrögð erlendis við aftökum ungversku frelsis- hetjanna. Hvorki útvarp né blöð hafa birt staf um mótmælaöldu þá, er risið hefur á Vesturlönd um — og jafnvel hefur mótmæla. orðsending júgóslavnesku stjórn- arinnar ekki verið birt. Xalsmaður ungversku stjórnar innar var að .því spuröur hvert álit hans væri á orðsendingu Júgóslava, en hann sagðist ekkert um þá orðsendingu hafa heyrt. Gomulka Hljóðritað samtal Nagy og Mikoyan? BÚDAPEST, 24. júní —Víða umstjórnin hafi tvö stór tromp á Ætlar H. C. Hansen að gerast milligöngumaður? Kaupmannahöfn, 24. júní. „INFORMATIONEN“ segir i dag, að Bretar séu ekki sérlega fúsir til þess að ræða við Dani um út- víkkun fiskveiðilandhelginnar við Færeyjar. Þegar hafi hugur Breta komið greinilega fram, því að lágt settir menn í brezka utanríkisráðuneytinu hafi tekið við dönsku orðsendingunni og fjallað um hana. Bretar vilja að sjálfsögðu taka orðsendingu Dana til greina, en fyrst um sinn vilja þeir bíða átekta, því að vopn þeirra gegn Islendingum mundu snúast í höndum þeirra, ef þeir gæfu eitthvað eftir hvað útvíkkun fiskveiðilandhelginnar við Færeyjar snertir — í viðræð- unum við Dani. „Sorö Amtstidende" flytja þá frétt eftir Lundúnafréttaritara sínum, að innan brezku stjórnar- innar sé staðhæft, að H. C. Han- sen muni í heimsókn sinni til Reykjavíkur í byrjun júli reyna að miðla málum með íslending- um og Bretum. Brezka stjórnin er fús til þess að ræða við ís- lenzku stjórnina, segir Lundúna- fréttaritarinn danski, hvenær sem er, en íslenzka stjórnin hef- ur ekki enn svarað tillögu dönsku stjórnarinnar um við- ræðufund. Ef forsætisráðherrann geti hins vegar fengið íslendinga til viðræðna um málið, sé mögu- leiki á því að brezka stjórnin viðurkenni sjónarmið íslendinga og Færeyinga. — Páll. sveitir Ungverjaiands drógu bændur svarta fána að húni er aftaka Nagys og féiaga hans varð kunn — og margir báru svarta borða um handlegg. Þá herma fregnir, að í mörgum verksmiðj- um hafi verkamenn unnið þögul- ir, algjör þögn hafi ríkt á vinnu stöðum í minningarskyni við hina myrtu. Þetta eru fyrstu fregn- irnar af viðbrögðum ungversku þjóðarinnar. Fréttamönnum er gert mjög erfitt fyrir að hafa samband við fólkið. Orðrómur er á kreiki í Búda- pest þess efnis, að júgóslavneska sinni hendi: I fyrsta lagi hljóðritað samtai Nagys og Mikoyans, varaforsætis ráðherra Ráðstjórnarinnar, þar þar sem hann lofaði því, að Rúss- ar færu með her sinn úr Ung- verjalandi, en Nagy var forsætis ráðherra uppreisnardagana. í öðru lagi dagbók Nagys, er hann skrifaði uppreisnardagana. KAIRO, 24, júní. — Tilkynnt var í Kario í dag, að uppreisnarmenn í Alsír hefðu stofnsett bráða- birgðastjórn þrátt fyrir andmæli stjórna Xúnis og Marokko. Foot skrif- aði Crivasi Kýpur, 24. júní — Foot, Iand- stjóri Breta, er farinn til London til viðræðna við stjórn sína. Eftir brottför hans var birt bréf, er hann ritaði Grivasi, foringja upp rcisnarmanna 12. apríl og bað |hann hætta hryðjuverkum og- koma til fundar við sig á einhverj um afviknum stað og ræða vanda málin. Hét Foot því, að ekki yrði skert hér á höfði uppreisnarfor- ingjans. Bréfinu er ósvarað, en EOKA hefur hætt hryðjuverkum. Grikkir hafa tilkynnt, að þeir munu enga samvinnu hafa við Tyrki innan NATO um lausc Kýpurdeilunnar, ef Bretum tak- ist ekki að leysa málið svo við- undandi sé, muni pví aftur verða skotið til SÞ. Soraya í áreksfri HAMBORG, 24. júní. — Soraya, fyrrum drottning Iranskeisara, er nú komin heim úr Bandaríkja förinni. Um helgina varð hún fyrir miklum skakkaföllum, er hún lenti í bifreiðaárekstri. Ók hún fólksbíl föður síns beint framan á vörubíl og stórskemmdi fólksbílinn. Ekki varð hún samt fyrir neinum meiðslum. Frönsk kjarnorku- sprengja PARÍS, 24. júní. — Sennilegt *r talið, að Frakkar sprengi fyrstu kjarnorkusprengju sína í haust, e. t. v. í október. Fljúgandi sönglagasmiðurinn vildi á dansleik eftir Atlantshafsflugið Fylgið hrynur af komm- únistum í Bretlandi LONDON, 24. júní. —- Fylgið virðist nú enn vera að hrynja af kommúnistum í Bretlandi eftir aftöku Nagy og félaga hans. — Eftir uppreisnina í Ungverja- landi hrakaði fylgi þeirra mjög — og allt fram á þennan dag hefur það smám saman far- ið minnkandi. Einn af leiðtogum námuverkamanna, Horner að nafni, sem er einn áhrifamesti maður kommúnista innan verka lýðshreyfingarinnar, hefur nú lýst yfir fyrirlitningu á vinnu- brögðuiú kommúnista og sagt, að síðustu verknaðirnir gæfu til kynna, að stalinisminn væri genginn aftur. Hálft í hvoru hefur verið bú- izt við því, að kommúnistar gerðu Horner brottrækan úr flokknum fyrir þessi ummæli, en ekki hefur enn orðið úr þvi, svo álitið er, að þeir þori ekki að grípa til slíkra úrræða, Horner sé þeim of mikilvægur og þeír telji heppilegra að láta tímann græða sárin. Daily Worker, aðalmálgagn kommúnista í London, hefur ekki minnzt á aftökurnar í Ung- verjalandi í ritstjórnargreinum sínum, en í þess stað hamrað mikið á Little Rock og svert- ingjavandamálinu í Bandaríkjun um. PALERMO, SikHey, 24. júní — Mörg hundruð manns tóku á móti „fljúgandi afanum“ Max Conrad, frá San Francisco, er hann lenti einhreyfilsflugvél sinni eftir 33 stunda viðstöðu- laust flug frá New York. Conrad hló og gerði að gamni sínu, þegar hann steig út úr flugvélinni, hélt þegar til næsta pósthúss og póst- lagði kort, sem hann hafði skrifað á leiðinni — til kono sinnar og 10 barna. Hann sagðist ekkert þreyttur, flugið hefði verið hvíld eftir erfiðan undirbúning — og hann vildi fyrir hvern mun fara á dansleik strax um kvöldið — til þess að lyfta sér upp. En ráða- menn á Sikiley, sem fögnuðu honum með góðum gjöfum, gácu þó komið honum í rúmið án þess að til.átaka kæmi! Þetta var 27. flugferð Conrads yfir Atlantshafið. Hann lærði að fljúga árið 1927 — og hefur mik- ið flogið síðan. Aðalstarf hans er sönglagasmíði — og flest lögin hefur hann samið á flugferðum. Eitt lag samdi hann á ferðinni yfir Atlantshafið nú og mun sennilega semja annað á leiðinni heirn, því að hann ætlar ekki að stanza lengi á Sikiley. — Þegar hann hefur hvílzt nægilega vel heldur hann þegar aftur heim, því að hann á að fljúga annarri flugvél austur yfir Atlantshaf eftir viku — og verða Bandaríkja menn þá sennilega enn einu söng- Iaginu ríkari. Von Brentano mótmœl- ir harðlega Rússar borga, en biðjast ekki afsökunar BONN og Moskvu, 24. júní — Von Brentano, utanríkisráðherra V-Þýzkalands, afhenti - dag sendi fulltrúa Rússa í Bonn haröorða mótmælaorðsendingu vegna at- burðanna við þýzka sendiráöið í Moskvu í gær. Sagði í orðsendingunni, að samkvæmt staðhæfingu þýzka Biður Libanon um hernaðarað- stoð Bandaríkjanna? BEIRUT, 24. júní — Hammar- skjöld kom til Beirut í dag frá Kairó, en þar átti hann tal við Nasser. Ræddi Hamarskjöld við Líbanonsforseta í dag, en för hans mun ekki hafa orðið til fjár, a. m. k. mun Nasser ekki hafa Iagt neitt til málanna, sem eykur friðarhorfurnar nema síður sé. Er Hammarskjöld fór til bú staðar síns að fundinum loknum í dag, sprakk sprengja í 100 m fjai’lægð, er hann gekk inn í bygginguna. Forseti Líbanons mun senni- lega fara fram á það við Hamm- arskjöld, að SÞ sendi nægilegan liðsafla á vettvang svo að hægt verði að koma á kyrrð í landinu. Að öðrum kosti mun forsetinn biðja Breta og Bandaríkjamenn um hernaðaraðstoð, að því að talið er. Af hálfu Ráðstjórnarinnar hafa Bretar og Bandaríkjamenn ver*ð sakaðir um það að ætla að hluc- ast í innanlandsmál Líban- ons með hervaldi en bandaríska stjórnin hefur svarað á þá lund, að stofnskrá SÞ tryggi það, að Bandaríkjaher aðhafist ekkert það, sem stofnað getur friðinum í hættu. Ef Líbanonsstjórn biðji hins vegar um aðstoð, þá muni Bandarikjamenn veita hana sam- kvæmt áður gerðum samningi við Líbanon þar að lútand* sendiherrans hefði Ráðstjórnin ekki dregið rieina dul á það, að aðförin að þýzka sendiráðinu hefði verið henni að skapi og teeiðni sendiherrans um aukið lög reglulið hefði ekki verið sinnt fyrr en mannfjöldinn var búinn að vinna mikið tjón. Þrátt fyrir mótmæli sendiherrans hefðu Rússar ekki beðizt afsökunar á atburði þessum. Þýzki sendiherrann í Moskvu skýrði svo frá í dag, að um 1000 ungmenni hefðu tekið þátt í grjót kastinu við sendiráðið. Ráðstjórn in hefði nú fallizt á að greiða allan viðgerðarkostnað, en ekki hefði nein afsökunarbeiðni af hennar hálfu borizt. Enginn vafi þykir leika á þvi, að hér hafi verið um skipulagðar aðgerðir af hálfu Ráðstjórnarinn- ar að ræða sem eg við danska sendiráðið í Moskvu á dögunum. Sem kunnugt er réðust nng- verskir flóttamenn og austur- þýzkir að sendiráði Rússa í Bonn og brutu allmargar rúður áður en lögreglu tókst að tvístra hópn- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.