Morgunblaðið - 04.09.1958, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.09.1958, Blaðsíða 1
Þórarinn Björnsson skipherra á Ægi Jón Jónsson skipherra á Albert Lárus Þorsteinsson skipherra á Maríu Júlíu Sigurður Árnason skipherra á Sæbjörgu Pétur P. Jónsson skipherra á Óðni Þriðj'i dagur ofbeldisverka brezka flotans: Árekstur milli íslenzks varðskips @g hrezks fogara um, netjakúlum og öðru tiltæki- legu. Laust fyrir miðnætti höfðu brezku herskipin hér við land, sem stjórnað hafa innrás brezku togaranna fyrir vestan og út af Austfjörðum, ekki dregið sig út fyrir 12 mílna landhelgina. Kvöldið hafði liðið án þess að til stórtíðinda drægi. Svarta þoka var á út af Aust- fjörðum og birti Eiríkur Kristó- fersson skipherra á Þór orðsend- ingu til fiskibáta um að fara ekki út fyrir 4 mílna línuna í nótt, vegna þess að siglmg þar gæti verið mjög hættuleg, t.d. vegna Sáralítil veiði virðist hjá brezku togurunum í DAG hafa ekki borizt fréttir um átök milli íslenzkra varð- skipa og brezkra togara eða herskipa í íslenzkri landhelgi. Brezku togararnir hafa haldið áfram að veiða innan landhelginnar á sama hátt og tvo undanfarna daga. Árekstur varð í gær milli íslenzka varðbátsins Alberts og brezks togara, en slys á mönnum varð ekki. Talsmaður flotamálaráðune’ytisins brezka hefur lýst því yíir, samkvæmt fregn frá því í gærkvöldi, að flotinn mum halda áfram að „vernda“ landhelgisbrjótana. íslendingarnir 9 eru enn í haldi um borð í brezka her- skipinu H.M.S. Eastbourne. í GÆKDAG voru 24 brezkir tog- arar að veiðum í landhelginni, þar af 12 út af Austfjörðum. Það gerðist helzt tíðinda í gær, að brezkur togari sigldi i veg fyrir varðskipið Albert með þeim af- leiðingum að árekstur varð, en menn sakaði ekki. í fréttatil- kynningu frá Landhelgisgæzl- unni í gærkvöldi segir á þessa leið: „Brezku landhelgisbrjótarnir fyrir Vestfjörðum halda sig nú aðallega út af Arnarfirði. Eru þeir þar 9 saman undir vernd her skipsins RUSSEL. Við Horn eru þrír brezkir togarar að veiðum innan landhelgi. Fyrir austan eru 12 brezkir togarar að veiðum innan landhelgi út af Norðfirði. Virtust þeir óánægðir með að þurfa að vera þar, enda sáralítil veiði, sums staðar t.d. aðeins einn maður við aðgerð. Varðskipið ALBERT og brezki togarinn „Búrfell" rákust á í dag. Þegar varðskipið var að at- huga um togarann, beygði hann snögglega í veg fyrir varðskip- ið, þannig að það rakst á togar- ann aftarlega og brotnaði vörpu- hléri, en skemmdir urðu litlar á varðskipinu. Út af þessu urðu noKkur orðaskipti milli íslenzku varðskipsmannanna og skipvevja á brezka herskipinu „Eastbour- ne“, er kom þarna að á mikilli ferð með mannaðar fallbyssur. Skipverjar á togaranum voru með vatnsslöngur og barefli. Engin meiðsl urðu á mönnum við ái eksturinn. Fyrir Austfjörðum var þoka í dag. Ráðnir hafa verið menn á ÞÓR og MARÍU JÚLÍU í stað þeirra, sem teknir voru til fanga af Bret- um. Eru hinir nýju skipverjar flestir frá NorðfirðiV Fregnir berast nú af því að brezku togararnir gera ýmsar ráðstafanir til þess að ekki sé hægt að leggjast upp að þeim að veiðum, m.a. með því að skara borðstokkana með trollbobbing- hraðsiglingar ísl. varðskipa, brezkra togara og herskipanna brezku. Út af Vestfjörðum var og kom- in þoka seint í gærkvöldi. Litlu varðskipin, Albert og Óð- inn, voru búin að hrella brezku togarana mjög í gærkvöldi, þar sem þeim gekk illa að átta sig á, hvar þau væru. Herskipið var eins og þeytispjald á eftir varð- skipunum, en togararnir voru alltaf að senda út neyðarkall um að nú væru þau að koma, og kom þá ósjaldan fyrir að rugling- ur yrði á nöfnunum. Gripu Bret- arnir þá til þess ráðs að kalla skipin Sputnik I og Spútnik II. Dagurinn í dag gæti vissulega orðið viðburðaríkur, ef brezku togararnir verða enn innan 12 mílna línunnar. Ekki er ólíklegt að gripið verði til nýrra ráða til þess að koma í veg fyrir áfram- haldandi landhelgisbrot þeirra. Guðni Thorlacius skipherra á Hermóði Brezki flotinn œtlar að halda áfram að „vernda" landhelgishrotin Búast má við áframhaldandi átökum hér við land TALSMAÐUR brezka flotamála- ráðuneytisins tilkynníi í gær- kvöldi að brezk herskip myndu halda áfram að veita brezkum togurum á íslandsmiðum „flota- vernd“ eins og tekið var til orða í fregninni. Talsmaðurinn gat þess að brezka ríkisstjórnin væri fús til þess, eins og tekið hefði i verið fram áður, að semja við íslendinga um takmarkanir á fisk veiðum á vissaim svæðum við ísland. Brezka stjórnin mótmælti hins vegar því að ríki hefði rétt til einhliða ákvörðunar um út- færslu á landhelgi sinni og taldi að svæðið frá 3 til 12 mílna væri hluti af alþjóðasjóleiðum. Þessi tilkynning flotamálaráðu neytisins er gefin undir lok þrlSja dagsins, sem brezkir togarar hafa stundað landhelgisbrot við ís- land, en eins og áður hefir verið skýrt frá hér í hlaðinu höfðu fulltrúar togaraútgerðarmanna í Bretlandi lýst því yfir að togar- arnir myndu ekki stunda veiðar í landhelgi nema þrjá daga. Virð- ist því hafa orðið breyting á þess- ari ákvörðun og að landhelgis- brot brezku togaranna muni halda áfram um sinn undir „vernd“ brezka flotans. Hvernig lýsir þj óðareiningin sér s framkvœmd? Þjóðviljinn segir utanrikisráðherra hættan að geta hugsað eins og íslend- ingur, hvorki tilfinning hans né skyn- semi sé af islenzkum toga Eysteinn Jónsson her tilhœfulausar sakir á Sjálfstœðismenn Metið heilindin eftir málflutningnum ALDREI hefur komið skýrar í ljós en síðustu dagana, hver hugur fylgir máli hjá hverj- um og einum, þegar hann tal- ar um þjóðareiningu og nauð- syn hennar í landhelgismál- inu. Lítum t. d. á Reykjavík- urblöðin í gærmorgun. — Ekkert þeirra nema Morgun- blaðið birtir ályktun mið- stjórnar og þingflokks Sjálf- stæðismanna, sem þó hafði verið lesin í útvarpinu kvöld- ið áður. Ályktunin hljóðaði svo: „Miðstjórn og þingflokk- ur Sjálfstæðismanna mótmæl ir harðlega ofbeldisaðgerðum Breta í íslenzkri fiskveiðiland helgi. Skorar miðstjórnin og þing- flokkurinn á alla íslendinga að standa saman um rétt sinr. og lífshagsmuni þjóðarinn- ar“. Þessi yfirlýsing Sjálfstæðis manna, sem þegar hinn 21. maí sl. lýstu fylgi sínu við 12 mílna fiskvei^ilandhelgina sýndi eindrægni þeirra í að efla samhug þjóðarinnar og láta nú allar innbyrðis ýfing- ar hvíla sig. Engu stjórnar- blaðanna finnst þessi afstaða stjórnarandstöðunnar frá- sagnarverð. í stað þess birtir Þjóðviljinn a. m. k. fjórar níðgreinar um framkomu annarra íslendinga en kommúnista í landhelgismálinu. Og Tíminn burðast með að minnsta kosti þrjár rógsgreinar um Sjálfstæðismenn af þessu til- efni. Berið þetta saman við skrif Morgunblaðsins í gær, undan- farna daga, vikur og mánuðil Auka-tilgangnr kommúnista Morgunblaðið hefur alárei dregið í efa að andstæðingar Sjálfstæðismanna, þ. á. m. komm únistar, vildu út af fyrir sig sig- ur íslendinga í landhelgismál- inu. En blaðið hefur bent á, að kommúnistar hefðu hug á að ná öðru í leiðinni, því, að spilla sem mest sambúð okkar og þeirra lýð ræðisþjóða, sem vitað var, að andstæðar skoðanir hafa við okkur í þessu máli. Sjálfstæðis- menn hafa talið að landhelgis- málið sjálft væri of mikilsvert og vandasamt til þess, að þar mætti blanda annarlegum efn- um inn í. Allt kapp ætti að leggja á, að fá sigur í því og halda öðrum deiluefnum þar fyr- ir utan. Samtímis þessu hafa Sjálf- stæðismenn bent á, hversu hættu legur væri hinn stöðugi ágrein- Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.