Morgunblaðið - 26.08.1959, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.08.1959, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 26. ágúst 1959 MORfíriNM AfílÐ 9 Sjúkrabílar og sjúkraflutningar SJÚKRAFLUTNINGAR eru fyr- ir löngu orðin nauðsynleg þjón- usta í þessum bæ, og svo þýðing- armikil, að ef sú þjónusta félli niður, þó ekki væri nema einn sólarhring, yrði hér neyðar- ástand. Brunaverðir í slökkvi- stöð Reykjavíkur annast sjúkra- flutningana, eins og kunnugt er, en Reykjavíkurdeild Rauða krossins leggur til sjúkrabílana. Þeir tveir sjúkrabílar, sem nú eru i notkun, eru komnir nokkuð á þriðja ár, það þykir víst ekki hár aldur á bílum, en þegar tek- ið er tillit til þess, að þessir bílar eru í notkun svo að segja allan sólarhringinn, og að þeim er ekið til skiptis af 20 til 30 mönnum, þarf engan að undra þó að þeir láti á sjá, fyrr en aðrir bílar, sem kannski einn og sami maður með höndlar. Við, sem önnumst og eigum að sjá um sjúkraflutningana, teljum varla hægt að bjóða sjúku fólki nema það bezta í þessu efni, og það minnsta, sem við getum hugsað okkur, er það að árlega sé einn sjúkrabíll fluttur inn til endurnýjunar á þeim sjúkrabíl- um, sem ekið er frá Slökkvistöð Reykjavíkur. Það mun nú liðinn tími, sem skiptir mánuðum, sem Reykjavík urdeild Rauða krossins hefur reynt að fá innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir tveimur sjúkrabílum frá Bandaríkjunum, en ekki tekist fyrr en fyrir fáum dögum, að leyfi var veitt fyrir einum sjúkrabíl, og loforð fyrir öðrum mjög bráðlega, og verðui' sjálfsagt við þetta að una í bili. Bg er ekki viss um að þeir, ann- ars ágætu menn, sem á hendi hafa veitingu bílaleyfa, hafi gert sér nægjanlega grein fyrir því, að sjúkrabílar hljóta að vera í sérflokki þegar rætt er inn inn- flutning á bílum, jafn ómissandi sem þeir eru, og það má alls ekki henda, að neinar skorður séu settar fyrir nauðsynlegum inn- flútningi þeirra, er geri bæði dýrari rekstur þeirra fyrir Rauða krossinn, og valdi þeim mönnum, sem sjúkraflutningana eiga að annast, óþarfa erfiðleikum og leiðindum. Ég vil geta þess hér, þó það eigi ekki að hafa nein áhrif í þessum málum, að þessir bílar eru raunverulega að miklu leyti í þjónustu ríkisins, og ættu kannski að vera reknir af ríkinu, þar sem mikið af sjúkrahúsum og hælum sem þeir starfa fyrir eru ríkiseign, og nú þegar nauð- synlegt er að fjölga mönnum á Slökkvistöð Reykjavikur, vegna aukinna sjúkraflutninga, ætti ríkið vissulega að taka þátt í þeim aukna kostnaði, sem af ^jví hlýtur að leiða fyrir Reykjavík- úrbæ. Þetta er mín skoðun, en ékki veit ég hvort bæjarráð Reykjavíkur eða ríkisstjórnin eru mér sammála þar. Eins og ég tók fram í upphafi þessa máls, þá eru sjúkraflutning arnir ein sú nauðsynlegasta þjón- usta, sem almenningi er í té lát- in í þessum bæ, og fara þeir stöð- ugt vaxandi með fólksfjölgun og vaxandi sjúkrahúsrými, og er nú ekki óalgengt að sjúkraflutning- ar, framkvæmdir frá slökkvi- stöðinni, komist upp í 30 á sólar- hring, og oft er það svo að marga sjúkraflutninga þarf helzt að •framkvæma á sama tíma, þó ekki sé reiknað með slysaflutningum, sem komið geta þegar verst gegnir, og alltaf þurfa að ganga fyrir öðru, er nú svo komið, að nauðsynlegt . er að hafa tvo sjúkrabíla í gangi samtimis þeg- ar svona stendur á, enda er fjölgun manna á slökkvistöðinni nú miðuð við þessar aðstæður. Sjúkraflutningar eru vanda- samt og erfitt starf, og er mesta furða hve vel hefur tekizt um framkvæmd þeirra öll þessi ár, eða síðan 1926, að varðmenn ég því segja það hér, að í nýju stöðurnar á slökkviliðsstöðinni þýðir ekki að velja aðra en úr- vals kraftamenn. Sjúkraflutningarnir frá Slökkvi stöð Reykjavíkur eru fram- kvæmdir á stóru svæði. Það eru ekki aðeins íbúar Reykjavíkur og umhverfis, sem verða þessar- úr þjónustu aðnjótandi, heldur og fólk, sem byggir nærliggjandi byggðarlög og bæi. Má þar til nefna bæði Seltjarnarnes og Kópavogskaupstað, að viðbættum nærliggjandi sveitum, og fjær- liggjandi líka. Af öllu þessu sést að hér er um mikla og þarfa þjónustu að ræða, sem heyrir undir liknar- og björgunarstarf. Og ég vil Sjúkrabílar Rauða Kross Islands. slökkvistöðvarinnar fengu þá á sig, með sínu aðalstarfi. Sjúkra- flutningsmennirnir verða oft að vinna sitt verk við erfiðar að- stæður, og vera við því búnir að þurfa að horfast í auga við ýms- an vanda. Til nýrra' erfiðleika fyrir þessa menn, má nú telja hin háu hús, sem risið hafa, og áfram verður haldið að byggja hér í bæ, allt upp í 13 haeðir og þar yfir og í flestum þessum hús- um eru ekki og í þau fást ekki lyftur, en íbúð á efstu hæðum þessara húsa ætti ekki að leyfa fyrr en lyftur eru komnar í þau. Er auðvelt að hugsa sér það erf- iði sjúkraliðsmanna, að rogast með sjúkrakörfu upp á allar þess ar hæðir með svona tvö til þrjú hundruð punda innihaldi, og vil ekki trúa því að þjóð mín verði nokkum tíma svo illa á vegi stödd, að nauðsynleg tæki til slíkrar starfsemi fáist ekki end- urnýjuð. Kjartan Ólafsson, brunavörður. Halló! Tveir ungir piltar, sem eiga „Chevrolet ’59“, og eru að fara í sumarleyfi, óska að kynnast tveim stúlkum, sem ferðafélögum. Tilboð ásamt mynd, sendist blaðinu fyrir helgi, merkt: „Ferðafélagar". 5-7 herbergi óskast til leigu í nýju eða nýlegu húsi, sem fyrst, fyrirframgreiðsla. Góð umgengni. Upplýsingar í síma 16285. Frystikista eða frystiskápur Góð frystikista eða frystiskápur óskast. Tilboð ásamt upplýsingum um stærð og verð sendist afgr. Mbl. merkt: „Frost—4838“ fyrir 1. sept. n.k. Iðnaðarmenn Get tekið að mér ýmislega pressuvinnu. Tilboð send- ist afgr. Mbl. merkt: „Pressa—4831“. Unglingspiltur getur fengið atvinnu við iðnaðarstörf. Tilboð sendst afgr. Mbl. fyrir mánaðar- mót merkt: 4879. og nýlenduvoruverzlun til sölu í vaxandi úthverfi bæjarins. Nánari uppl. hjá EINAR SIGURÐSSON hdl. Ingólfsstræti 4. Sími 1-67-67 3/a til 4ra herb. íbúð óskast til leigu. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. Vélaverkstæði Bjorns & Halldors Sími 36030 og 36467 (eftir kl. 6) Vel byggt einbýlishús óskast í skiftum fyrir góða íbúðarhæð, á bezta stað í Austurbænum. Ibúðin er á 1. hæð með sér inngang og sér hita, nýr bilskúr, ræktuð lóð stærð 110 ferm. 4 herb. TRYGGINGAR og FASTEIGMR, Austurstræti 10, 5. hæð sími 13428 og eftir kl. 7 sími 33983. ELEKTROLUX Hrærivélar með beriapressu Electrolux trvggir fullkomna nvtingu berjanna. Snarar tíma Soarar vinnu Hrærivélar — Ryksugur — Bónvélar — Loftbónarar — Varahlutir Kaupið bað bezta — kaupið ELECTROLUX 2 Vi árs ábyrgð. Einkaumboðsmenn: Hannes Þorseinsson & Co. Simi 15300 Ægisgotu 4 IMýkomið: SKERPITAN GIR HURÐARÞVINGUR HORNÞVINGUR STUTTHEFLAR LANGHEFLAR KANTHEFLAR SI-SLETT P0PLIN (N0-IR0M) MINEKVA STRAUNING ÓÞÖRF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.