Morgunblaðið - 01.04.1960, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.04.1960, Blaðsíða 23
Föstudagur 1. apríl 1960 MORGVTS1U.ÁÐIÐ 23 Hœkkun vegna sölu- skatts á húvörum NÝTT v.erð hefur verið auglýst á ýmsum búvörum. í auglýsingu frá framleiðslUráði landbúnaðar ins um mjólk í pappaumbúðum segir svo: Vegna hækkunar á erl- endum kostnaði við pappaumbúð ir utan um mjólk, hefur verið ákveðið að verð á hyrnumjólk í 1 líters umbúðum, hækki um 20 aura hver líter frá 1. apríl, og verður -3,55 kr. Þá hefur smásöluverð á kinda — Genf Framh. af bls. 1 tillagan verða ofan.á. — Ræða Indvérjans lýsti óljóst yfir stuðn- ingi ’við Kanada-tillöguna, þó með því skilyrði að gerðar yrðu breytingar á henni í þá átt að réttur fjarlægra ríkja yrði virtur eitthvað ákveðið árabil, en nefndi ekki hve lengi. Er þetta í fyrsta skipti að fram kemur opinberlega í ræðu að setja beri tímatakmörk á söguleg réttindi þjóða til veiða innan 12 mílna, en stöðugur orðrómur hefur ver- ið uppi um að það verði lausnin. Indverjinn reif hins vegar nið- ur aflamagnstakmörkunartillögu Bandaríkjanna og sagði: „Ég virði Dean (bandaríski fulltrú- inn) mikils, en ég skil ekkert í honum að bera svona fram. Ef til vill eru til skýrslur um afla- brögð við ísland og Kanada, en þær munu þó vera ófullkomnar. En engar slíkar skýrslur eru til annarsstaðar í heiminum. Eftir- lit með veiðunum er algjörlega óframkvæmanlegt og mundi að- eins leiða til endalausra og ótelj- andi deilna, sem ekki einu sinni Haag-dómstóllinn gæti skorið úr“. Hrekja heimamenn af miðunnm Gundersen frá Noregi lýsti því yfir að í hreinskilni væri kanad- íska tillagan í samræmi við hags- muni Noregs. Sagði hann að nú- tímatækni og fjölgun erlendra togara við Norður-Noreg hefðu skapað alvarleg vandamál fyrir fiskimenn Noregs. Hann taldi mögulegt að þeir yrðu að minnka sókn sína á mið, sem þeir þó hafi sótt frá ómunatíð, vegna ágengni erlendra togara, sefn eyðileggðu veiðarfæri bátanna og hrektu þá af miðunum. íbú- arnir við ströndina væru hins- vegar háðir fiskveiðunum og þessvegna teldu Norðmenn ekk- ret minna duga til að tryggja af- komu þeirra en tólf mílna fisk- veiðilögsögu Gundersen kvað Norðmenn telja tólf mílur skapa jafnvægi hagsmuna um allan heim. Þetta gæfi fiskimönnum strandríkjanna sanngjarna vernd og togurunum enn næg athafna- svæði utan tólf mílna. Gunder- sen tók undir gagnrýni á aflatak- mörkun bandarísku tillögunnar, sem hann sagði að væri algjör- lega óframkvæmanleg_____Hann sagði að kanadíska tillagan væri einföldust og sanngjörnust fyrir alla. Guatemala með Kanada, en . . . Bailey, fulltrúi Ástralíu, mælti með bandarísku tillögunni, en tók undir með Bretum, að það væri mikil fórn fyrir fjarlæg ríki að samþykkja sex mílna fisk- veiðilögsögu. Fulltrúi Guatemala, Pazos, kvaðst mundu styðja tillögu Kanada, en lýsti því þar að auki yfir að Brezka-Honduras væri eign Guatemala! Fitsmaurice frá Bretlandi fékk að gera hér stutta athUgasemd og sagði aðeins að fulltrúar Guate- mala og íslands hefðu komið með ýmsar yfirlýsingar, sem Bretar teldu rangar, og þeir áskildu sér rétt til að leiðrétta þær síðar. Á mælendaskrá fyrir morgun- daginn eru fulltrúar Jórdaníu, Kambodíu, Finnlands og Ung- verjalands. Fulltrúar þrjátiu og sex þjóða hafa hingað +U t^lað á ráðstefn- kjöti, súpukjöti í 1. flokki verið ákveðið 18,90 kr. hvert kg. og í 2. flokki 16,72 kr. hvert kg. Verð á rjóma í lausu máU verður 37,70 kr. hver líter. Skyr mun kosta 8,60 kr. hvert kg. Verð á kartöfl- um í úrvalsflokki verður 2,28 kr. hvert kg. og á gulrófum 4,95 kr. hvert kg. Allar þessar hækkan- ir koma til vegna söluskatts. Skák Framh. af bls. 11 Hxh2; 32. Hc3! og hvítur hefði frumkvæðið. 29. Rd4, Kf7; 30. Ke2 Tal hugðist svara 30. f4 með 30. — g6 og skjótum flutning’ riddarans til e6. 30. — g6; 31.Kd3, Rg7; 32. Hbl, Ha5; 33. Rc2, Re6; 34. Hb4, Hc5; 35. h4, gxh4; 36. Hxh4, d4!; 37. Rxd4, Hxe5; 38 Rxe6, Kxe6; 39. a4, Hg5; Hér bauð Tal jafntefli, sem heims- meistarinn hafnaði. En eftir 40. He4, Kf6 bauð Botvinnik sjálfur jafntefli.. „Einkolíi" eftir Noel Coward írumsynt í Hlégarði í kvold U.M.F. AFTURELDING í Mos- féllssveit frumsýnir gamanleik- inn „Einkalíf“ eftir Noel Cow- ard í kvöld í Hlégarði. Leik- stjóri er Klemenz Jónsson og ér þetta þriðja leikritið, sem hann stjórnar í Hlégarði. í fyrra sýndi Afturelding gamanleikinn „Köld eru kvennaráð" og var það leik- rit sýnt 17 sinnum. Árið þar áð- ur sýndi félagið hinn vinsæla gamanleik „Grænu lyftuna“ og gekk hún mjög vel. Það er orð- inn fastur liður í starfsemi Aftur eldingar að sýna leikrit á ári Málverka- og listinunauppboð KLUKKAN fimm í dag hefst í Sjálfstæðishúsinu listmunaupp- boð Sigurðar Benediktssonar. Á uppboðinu eru 63 málverk og ýmsir aðrir fáséðir hlutir. Af þeim má nefna Vestan af Mýrum, Fallegt höfuð og Blómálfa eftir Kjarval, Kverkfjöll (?) og Blóm og æsku eftir Kristján Magnús- son, Frá Þingvöllum, Ástfanginn köttur og Feigir fiskar eftir Jón Engilberts og blýantsteikning af Oddi Sigurgeirssyni eftir Eggert Guðmundsson. — Af öðrum hlut- um má geta um kínverska hefð- arkonu og persneskan gólfdreg- il. — Suður-Afrlka Framhald af bls. 1. hjálma, sló hringi um þorpin Langa og Nyanga, sem byggð eru blökkumönnum, en það var frá Langa, sem hópur 30.000 negra fór í gær í kröfugöngu til Höfða- borgar til að mótmæla handtök- unum. í dag þurfti lögreglan að grípa til vopna og skaut nokkrum skot um að hópi blökkumanna, sem réðust með grjótkasti að strætis- vögnum í þorpinu Western ná- lægt Jóhannesarborg. Sagt er að brauðskortur sé far- inn að gera vart við sig í Suður- Afríku, og að sífellt verði erfið- ara að útvega matvæli, og verð þeirra fer hækkandi. Hafa blökkumannasamtökin sent Sameinuðu Þjóðunum sím- skeyti, þar sem farið er fram á það að þær taki aftur viðurkenn- ingu sína á ríkisstjórn Suður- Afríku, en viðurkenni í hennar stað bráðabirgðastjórn í landinu. hverju í Hlégarði og eru sýning- ar þar mjög vel sóttar, því að alltaf er reynt að vanda til þeirra eftir beztu getu. Gamanleikurinn „Einkalíf" er eitt af þekktustu verkum þess fræga höfundar, Noels Coward, og hefur leikurinn alltaf gengið vel þar sem hann hefur verið sýndur. Mörgum leikhúsgestum er enn í fersku minni að leikur- inn var sýndur í Þjóðleikhúsinu fyrir 8 árum undir ágætri stjórn Gunnars Hansen. Þetta er léttur og skemmtilegur gamanleikur, sem kemur öllum í gott skap. Þýðingin er gerð af Sigurði Grímssyni en leiktjöldin eru mál uð af Gunnari Bjarnasyni leik- tjaldamálara. Sýningar í Hlé- garði hefjast að jafnaði kl. 9 og fer áætlunarbíll úr Reykjavík kl. 8,30 sýningardaginn. Leikarar í „Einkalífinu“ eru fimm og eru þeir allir úr Mosfellssveit nema Jóhann Pálsson leikari úr Reykja vík, sem leikur með sem gestur. — Við strikum út Framh. af bls. 13 kenna mönnum að líta á haoa sem eðlilegt kynlíf, aðeins af annarri gerð en það kynlíf, sem „normalt" er talið. Hann grein- ir einnig frá bókum, sem verið er að gefa út í nágrannalönd- unum og telur að efni þeirra eigi heima í sálsýkifræðinni, en ekki í hinum fögru listum. Ef list- rænar bókmenntir lenda í sal- sýki og naflaskoðandi sálarfræði geta svo farið leikar að vér eign- umst fjallháa bókastafla, en eng- ar bókmenntir. Ef þessi spá hins norska rit- höfundar skyldi rætast, þá má bæta við einu hugtaki enn til útstrikunar, en það er hugtakið list. Hvers virði er listin þeim manni, sem misst hefur sál sina og ást? Er nokkur skaði skeður þótt hún verði þá líka strikuð út? Vegna þess að til eru menn, þar á meðal mætir listamenn, sem ekki hafa strikað ástina og sálina út, þá viljum vér einnig vona að listin lifi. Og listin er til mannsins vegna, en maður- inn eki listarinnar vegna. Það er von mín, að hún komi nú mannium til hjálpar og hætti við að höggva niður það, sem enn stendur eftir af ást og sál. Jóhann Hannesson. Ferðoiélagið að hefja ferðir Farið á þrjá staði um páskana FERÐAFÉLAG íslands hefur ferðir sinar á þessu ári næstkom- andi sunnudag með göngu og skíðaferð á Skarðsheiði. Lagt verður af stað kl. 9 á sunnudags- morgun frá Austurvelli. Ekíð verður fyrir Hvalfjarðarbotn yf- ir Laxá hjá Miðfelli og þaðan gengið á Heiðarhornið, sem er 1053 m á hæð, en af því er mikið og fagurt útsýni. Komið verður heim um kvöldið. Þá efnir félagið til þriggja 5 daga ferða um páskana. Má þar fyrst nefna ferð að Hagavatni og á Langjökul, ferð í Landmanna- laugar og ferð í Þórsmörk. í þess ar ferðir verður lagt af stað kl. 8 á skírdagsmorgun. Einnig verð- ur farið í Þórsmörk kl. 2 á laug- ardag. í þessum ferðum verður gist í sæluhúsum félagsins. Kom-. ið verður til baka úr ferðunum á 2. í páskum. Allar nánari upp- lýsingar fást hjá skrifstofu fé-. lagsins í Túngötu 5. Ferðanefndin býst við að inn- anlandsferðir verði meiri í sumar en undanfarin ár, þar sem snöggt um dýrara verður að fara til út- landa en áður og hefur því í und. ir búningi áætlun með fleiri ferð um en nokkru sinni áður og Hjantans þakkir sendi ég ykkur öllum sem glöddu mig á 60 ára afmæli mínu 26. marz. Ég bið Guð að blessa ykkur. Rósa Jóhannsdóttir, Þverveg 38. TIL KAUPENDA I í Kópavogi Framvegis mun frú Gerður Sturlaugsdóttir, Hlíðarvegi 35 Kópavogi. sími 14947 annast afgreiðslu á blaðinu í Kópavogi. Móðir okkar og tengdamóðir MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR frá Veggjum, Borgarnesi, lézt í Sjúkrahúsi Akraness 30. marz. Böm og tengdabörn. Eiginkona mín SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR Barónsstíg 27, andaðist að heimili sínu 30. marz. Fyrir mína hönd og barna okkar. Helgi Bogason frá Brúarfossi. Bróðir minn RAGNAR ÁGÚST STEFÁNSSON fæddur 12. ágúst 1888 í Lækjarkoti í Víðidal, andaðist í sjúkrahúsi í Winnipeg 20. marz sl. Fyrir hönd systkinanna. Pétur Stefánsson. Útför unnusta míns NlELS ADÓLFS GUÐMUNDSSONAR Bræðraborg, Grindavík, fer fram laugardaginn 2. apríl, og hefst með bæn frá heimili foreldra minna kl. 2 e.h. — Ferð frá B.S.Í. Reykja vík kl. 12 á hádegi. Fyrir mína hönd dóttur og annara aðstandenda. Hallbera Ágústsdóttir. Faðir okkar PÁI.L MAGNÚSSON jámsmíðameistari, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju laugardaginn 2. apríl kl. 10 f.h. Kransar og blóm vinsamlegast af- þökkuð. Börain. Jarðarför móður minnar, LAUFEYJAR VILHJÁLMSDÓTTUR sem lézt 29. marz, fer fram frá Dómkirkjunni laugard. 2. apríl kl. 11. f.h. — Athöfninni verður útvarpað. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlega bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd aðstandenda: Guðrún Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.