Morgunblaðið - 26.04.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.04.1960, Blaðsíða 1
24 síður 47. árgangur 93. tbl. — Þriðjudagur 26. apríl 1960 Prentsmiðja Morgunhlaðsins Gerum okkar ítrasta til þess að fá 12 mílna fiskveiðitakmörk viðurkennd IVIiðuni afstöðu okkar að~s-------*x 1—:,r og hagsmuni Islands Yfirlýsing Ólafs Thors forsætis- ráðherra á Alþingi í gær EINS og kunnugt er kom Ólafur Thors, forsætisráðherra, heim frá London sl. laugardag. í gær kvaddi hann sér hljóðs á fundi í Sameinuðu Alþingi og gaf þar yfirlýsingu um við- ræður sínar við utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra, er hann hítti í London sl. fimmtudag. Komst forsætisráðherra að orði á þessa leið í yfirlýsingu sinni: „Eins og mönnum er kunnugt, hef ég dvalizt erlendis nokkra daga. Eftir að ég kom heim hef ég lesið íslenzku blöðin að miklu leyti og sé að þar er mjög villandi sagt frá utanför minni og hvað ég hafi aðhafzt etlendis. Ég tel því rétt, enda þótt ég álíti allar deilur um Jandhelgismálið á þessu stigi óheppilegar, að skýra frá hver afskipti mín hafa verið af málinu, — og er mér alveg vandalaust að segja þar sannleikann, og sannleikann allan og ekkert nema sann- leikann. Efni málsins er þetta: f utanför minni átti ég aldrei tal við einn einasta erlendan stjórnmálamann, hvorki um landhsigismálið né neitt annað. Ráðherrarnir Bjarni Bene- diktsson og Guðmundur f. Guðmundsson áttu oft tal við mig i síma um málið frá Genf og sögðu mér hvernig sakir stæðu á hverjum tíma. Viðhorfin voru ákaflega breytileg frá degi til dags. Þegar lieimferð mín var ráðin komu íslenzku ráð- herrarnir daginn áður til London til viðræðna við mig, svo að við gætum borið saman bækur okkar, þar eð sýnilegt var að senn myndi draga til úrslita á ráðstefn- unni. Við vorum allir sammála um öll meginatriði málsins. Við töldum sjálfsagt að gera okkar ítrasta til þess að tryggja að við fengjum 12 mílna fiskveiðilandhelgi okk ar viðurkennda. Tækist það ekki, töldum við sjálfsagt að vinna að því að ráðstefnan færi algerlega út um þúfur. Þannig stóðu málin þegar við skildum í London síðastliðið fimmtudagskvöld. Tillaga íslands Á föstudagsmorgun töluðu ráð herrarnir þrisvar við mig fra Genf. Þó var það ekki fyrr en eftir brottför mína frá London á föstudag, að þeir tóku ákvörð- un um að flytja þá breytingar- tillögu, sem iiú er kunn orðin og hnígur að þvi að sérstaða íslands um 12 mílna fiskveiðilandhelgi verði viðurkennd. Um þá tillögu vil ég taka þetta fram: Það var auðvitað alveg sjálf- sagt að reyna að tryggja henni sigur, því að vitaskuld kemur ckki til greina að Is- lendingar liafni möguleikum á slíkri viðurkenningu á rétti sinum, einungis af þvi að einhverjir aðrir fá ekki 12 mílna LANDHELGI. Þessi tillaga er ekki borin fram sem liður í samningum við einn eða neinn. Ég tel því miður yfirgnæf- andi likuí' til að tillagan verði felld og að vel geti farið svo að hún fái jafnvel aðeins fá atkvæði, — en við höfum þó þrátt fyrir það gert skyldu okkar með því að bera tillöguna fram. Ég vil geta þess, að það er langt frá því að ég sé ör- uggur um að hin sameigin- lega tillaga Bandaríkjanna og Kanada verði felld. Ég er kvíðinn fyrir því, að hún verði samþykkt, og það er Framh. á bls. 2 Handtökur stúdenta í Seoul. Skotið var á mannfjöldann Seoul, Suður Kóreu, I átaka milli herliðs og mann- 25. apríl (NTB, Reuter). fjöldans, sem nú krefst þess að ÁSTANDIÐ í Seoul versnaði aft- Syngman Rhee forseti segi af sér. ur i dag og kom til alvarlegral Talið er að um 30.000 manns íslendingar semja ekki tið Breta um takmörkun sögulegra réttinda Genf, 25. apríl. — Einkaskeyti frá Þorsteini Thorarensen. HÁRE, fulltrúi Breta á landhelgisráðstefnunni hér í Genf, sagði á fundinum í kvöld, að Bretar viðurkenndu sérstaka aðstöðu hjá sumum löndum, eins og Færeyjum og íslandi. Kvaðst hann vona að fulltrúar gleddust yfir því að árangur viðræðna við Dani væri sá að unnt var að breyta svo tíu ára frestinum að hann mætti sér- stakri aðstöðu Færeyja. BÝÐUR SAMNINGA Þá sagði Hare ennfremur: „Ef við getum gert samkomulag um Færeyjar, ættum við að geta gert samkomulag um ísland. A þessari ráðstefnu hef ég komið til íslenzku fulltrúanna og boðið þeim að stytta uppsagnarfrest- inn, en þessar tilraunir mínar hafa verið árangurslausar, og þykir mér það leitt. Samt vona ég enn að okkur megi takast að ná samkoiftulagi. Ef okkur tæk- ist það samt ekki, geri ég hér- með annað tilboð: Að við og ís- lendingar leggjum deilu okkar um tíu ára frestinn fyrir hlut- lausa aðila, sem bæði löndin geta fallizt á. Það tel ég skynsamleg- ustu leiðina til að sætta þessa deilu að setja hana í hlutlausan geiðardóm". „ÞURFA EKKI AÐ KVARTA“ Hare taldi að Islendingar þyrftu yfir engu að kvarta. Ef Bandarísk-kanadíska tillagan yrði samþykkt, fengju þeir tólf mílur innan tíu ára, og jafnvel styttri tíma ef þeir semdu við Breta, og nytu fiskfriðunarsam- þykktarinnar frá síðustu ráð- stefnu. Hare sagði að íslenzka til- lagan gengi allt of langfc. Ef tíu ara fresturinn væri þurrkaður út, myndi það þýða að grundvöllur bandarísk—kanadísku tillögunn- ar væri brotinn. Þá mótmælti hann fyrri ummælum utanrikxs- ráðherra íslands að þorskveiðar við Island skili nú hámarksarði, þetta væri nú umdeilt meðal fiski fræðinga. Hinsvegar taldi Hare tillögu Brazilíu, Kúbu og Urugu- ay um forréttindi skynsamlega. Hann sagði að lokum að augljóst væri að aðeins bandarísk-kana- Framh. á bls. 3 hafi tekið þátt í mótmælunum í dag, sem hófust með því að um 300 háskólakennarar hófu mót- mælagöngu í miðborginni. safn- aðist þá saman fjöldi manns og tók herinn loks það ráð að skjóta fyrir ofan höfuð mannfjöldans. Auka herlið var kvatt til borgar- innar til að reyna að hafa hemil á mannfjöldanum. Þrír drepnir 'Sjónarvottar asija að einn at yfirmönnum herliðsinis hafi á- varpað mannfjöldann áður en skothríð var hafin, og tilkynnt að ef menn hyrfu ekki á brott, yrðq þeir sjálfir að taka afleið- ingunum. Leit um tíma út fyrir að friður væri að komast á, en brátt hófust mótmælagöngur á ný, og stefndu þær að aðalstöðv- um stjórnarflokksins og að heim. ili Lee Ki Poongs, sem sagði af sér embætti varaforseta nú um helgina. I árekstrum sem þá urðu, létu 3 stúdentar lífið, en átta særðust. Lee Ki Poong var kjörinn varaforseti í kosningun- um 15. marz sl., en háværar radd- ir eru uppi um það að úrslit þeirra hafi verið fölsuð. Stúdentum sleppt úr haldi Hópur stúdenta hertók í kvöld tíu vörubifreiðir og óku á þeim um bæinn en skriðdrekar frá hernum eltu þá og skutu á eftir þeim. Þegar tilkynnt var um hátalara kerfi að Syngman Rhee hefði fyrirskipað að allir stúdentar, sem teknir hafa verið höndum vegna óspektanna undanfarið, skyldu látnir lausir, komst aftur nokkur ró á. Neyöarástandi aflýst Þingið hefur nú samþykkt að Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.