Morgunblaðið - 27.04.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.04.1960, Blaðsíða 1
24 siður ocf Biirnale Jiók Sendlnefnd íslands á Genfarráðstefnunni. Fremstir á myndinni eru ráðherrarnir Bjarni Benediktsson og Guðmundur I. Guðmundsson. Bræðingstillaga Kana da og Bandarikjanna Féll á atkvæði íslands Hinum sögulega órétti bægt frá Tillögur íslands hlutu 25 og 24 atkvæði Frá atkvæðagreiðslurmi á Genfarráð- stefnunni i gær — Rábstefnunni lokið Einkaskeyti til Mbl. frá Þorsteini Tliorarensen. Genf, 26. apríl. A U urðu úrslit atkvæðagreiðslu hér á ráðstefnunni í " morgun, að bræðingstillaga Bandaríkjanna og Kanada fékk ekki nægan meirihluta. Með henni greiddu atkvæði 54 þjóðir, 28 voru á móti, en 5 sátu hjá. — Arthur Dean, fulltrúi Bandaríkjanna, gerði örvæntingarfulla tilraun til að bjarga málinu við með því að óska eftir annarri atkvæðagreiðslu um tillöguna, en þegar leitað var atkvæða um það, hvort leyfa bæri slíkt, náðist ekki heldur nægur meirihluti, 50 voru með, 29 á móti, en 8 sátu hjá. í bæði skiptin var fulltrúi eins ríkis fjarverandi, fulltrúi Líbanons. — Þannig skorti aðeins 1 atkvæði til að „bræðingurinn" næði tilskildum meirihluta — og getum við íslendingar vel litið svo á, að þarna höfum við ráðið úrslitum. lögu Brazilíu, Kúbu og Úruguay um forgangsrétt strandríkis utan almennrar fiskilögsögu, og sömu- leiðis hefðu þeir náð stuðningi Afríkuríkja með því að tryggja framgang tillögu Eþíópíu, Líber- íu og Ghana um tækniaðstoð, en talið er að samhliða þeirri til- lögu, sem aðeins var áskorunar- tillaga, hafi Bandaríkin heitið bak við tjöldin fjárfram- lögum til tækniaðstoðar. — Ræða Deans var löng og frá- munalega leiðinleg, sviplaus og „ódiplómatísk“. Aðeíns á einum stað hóf ræðan sig upp úr skýrslu lestrinum, en einmitt sá kafli verður nú kaldhæðnislegur, eftir að úrslitin eru kunn. Þar sagði Dean: — Ég trúi því, að við ná<um samkomulagi við atkvæða- greiðsluna í fyrramálið, því að meirihluti fulltrúa mun fylgja anda sátta og sanngirni. Atkvæðagreiðslan mun verða merkilegur áfangi í alþjóða- lögum og í því að setja niður deilur með þjóðum, með þolin mæði og friðsamlegri mála- miðlun. Það mun verða svar til þeirra sem telja fundarsköp Sameinuðu þjóðanna of stirð og óþjál. — ★ — Þá skoraði Dean margsinnls i fundarmenn að fella báðar tillög- ur íslands og sagði, að hin ágæta tillaga Brazilíu, Kúbu og Urug- uays mundi koma í staði.nn. — En sannleikurinn er sá, að hún nefði ekki komið íslendingum að notum, því að munurinn er sá, að samkvæmt íslenzku tillögunni heíði viðkomandi ríki fyrst lýst yfir forréttindum sínum, síðan hefði málið farið til sérfræðinga- nefndar — en samkvæmt hinní tillögunni hefði það fyrst þurft að fara fyrir sérfræðinganefnd og ríkið því aðeins fengið forrétt- indin, að nefndin gæfi leyfi til þess. A þessu er reginmunur. Framh. á bls. 2 Þökkum sendinefnd okk- ar á Genfarráðstefnunni störf sin af festu og lagni Bitur ósigur Þessar atkvæðagreiðslur eru sérstaklega bitur og mikill ó- sigur fyrir Arthur Dean, sem síðastliðinn hálfan mánuð hefur haft alla utanríkisþjón- ustu Bandaríkjanna á bak við sig í stórkostlegri herferð fyr- ir bræðingistillögunni. Þegar ég talaði við hann strax eftir atkvæðagreiðslu, var hann niðurdreginn mjög og skýrði ósigurinn svo, að fjögur ríki hefðu breytt afstöðu sinni síð- an í gærkvöldi. Hefðf það ráð- ið úrslitum. Hann sagði, að Chile hefði lofað að sitja hjá, en greitt atkvæði á móti, Ekvador lofað að greiða at- kvæði með, en greitt á móti, Japan lofaði að greiða at- kvæði með, en setið hjá og Filippseyjar sömuleiðis. Sigurvissa — léleg ræða Næturfundurinn í gær stóð til kl. langt gengin eitt. Var eftir- tektarvert hve Engilsaxar voru hróðugir og virtust vissir um sig- ur sinn. Andstæðingar þeirra virtust einnig vonlausir um að fá stöðvað bandarísk-kanadísku tillöguna, og lýstu nú margir því yfir, að þeir myndu ekki undir- rita neitt samkomulag á grund- velli þeirrar tillögu ef samþykkt yrði. Hægra megin við blaðastúk- una í fundarsal sat hópur full- trúa brezkra útvegsmanna. Voru þeir með langa lista, og reiknuðu út hvernig atkvæði mundu falla. Virtust þeim tölur benda til þess, að 56 greiddu bræðingstillögunni atkvæði og um 25 á móti. Hin langa ræða, sem Dean flutti í nótt, sýndi einnig þessa sigurvissu, en persónulega gæti ég trúað því, að hafi þeir bræð- ingsmenn tapað nokkru, þá hafi það verið vegna þeirrar ræðu, sem var full af hroka — eins og Dean teldi sig stjórna allri ráð- stefnunni. Það kom fram í ræðu hans að hann og menn hans hefðu nóð á sitt band Suður-Ameríku- ríkjunum með því að styðja til- Hún vann ÍSLENZKA þjóðin þakkar sendinefnd sinni á Genfarráð- stefnunni áigæta og drengilega forystu og baráttu fyrir mál- stað íslands. Niðurstöður ráð- stefnunnar sanna, að sendi- nefndin hefur hagað málflutn ingi sinum af hyggindum og árvekni. Það sést m. a. af því, hve mikið fylgi tókst að fá við tillögu hennar um að und- anþiggja ísland hinum sögu- Iega rétti. Mikill sigur fyrir íslenzku þjóðina Enda þótt sú tillaga næði ekki samþykki naut málstað- ur íslands svo ríkrar samúðar, að bræðingstillagan, sem Bret- ar höfðu lýst fylgi sínu við féll einmitt á atkvæði íslands. Er það vissulega mikill sigur fyrir íslenzku þjóðina. Má segja að sendinefnd okkar hafi haft forystu um andstöðuna við hinn sögulega órétt, sem Bretar settu allt sitt traust á. Ofurkapp bræðings- manna Sú staðreynd verður ekki sniðgengin að lagt var ofur- kapp á að afla bræðingstillögu Kanada og Bandaríkjanna fylgis. Bretar gerðu íslending- um einnig á síðustu stundu lilboð um frekari takmark- anir á hinum sögulega rétti. En aendinefnd íshmds hélt fast við stefnu sína um óskor- uð 12 mílna fiskveiðitakmörk. Brugðust á örlag- astundu íslenzkur almenningur á hinsvegar bágt með að skilja það, að tveir menn í sendi- nefnd íslands, þeir Lúðvlk Jósefsson og Hermann Jónas- son skyldu rjúfa einingu sendi nefndarinnar á örlagastundu og neita að vera með í flutn- ingi breytingartillögunnar um að hinn sögulegi réttur skyldi ekki gilda gagnvart íslandi og öðrum Iöndum, sem eiga af- komu sína og efnahagsþróun algerlega komna undir fisk- veiðum. Sú ráðabreytni þeirra gat hæglega orðið til þess að gera aðstöðu okkar erfiðari. Af festu og lægni En aðalatriðið er nú, að meirihluti sendinefndarinnar hélt á málstað fslands af festu og lægni. Þess vegna benda nú allar líkur til þess að við stöndum miklu sterkari eftir ráðstefnuna en fyrir hana. Um úrslitin í Genf er rætt nánar í forystugrein blaðsins í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.