Morgunblaðið - 24.05.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.05.1960, Blaðsíða 1
24 síður MttWtoMlSi 47 árgangur 117. tbl. — Þriðjudagur 24. maí 1960 Prentsmiðia Movgunblaðsins Síldve Lækkað verð á bræðsluslld, en hækkað á saltsíld? Ráðherra tekur væntanlega ákvorðun um bræðslusíldar- verð í dag STJÓRN Slídarverksmiðja ríkisins hefur ákveðið að leggja til við sjávarútvegs- málaráðherra, að bræðslu- síldarverð verði ákveðið kr. 110 á mál. — Er þar um 10 króna lækkun að ræða frá í fyrra. Hins vegar er gert ráð fyrir, að saltsíld hækki nokk- uð. Ekkert er selt af bræðslu- síldarafurðum, en talið, að tekizt hafi að selja um 220 þús. tunnur saltsíldar. Flugsly: s PARÍS, 23. maí. (Reuter): — Tvær könnunarflugvélar banda- ríska flughersins, af gerðinni R.F. -101, rákust á skömmu eftir flug- tak frá Toul-vellinum í austan- verðu Frakklandi í gærkvöldi. — Báðir flugmennirnir létu lífið. Á fundi undanfama daga Stjórn Síldarverksmiðja ríkis- ins hefur setið á fundum hér í bænum undanfarna daga, m.a. til þess að gera tillögu til sjávarút- vegsmálaráðuneytisins um verð á bræðslusíld í sumar. Á fundi sínum í gærkvöldi samþykkti verksmiðjustjórnin með sam- hljóða atkvæðum að fara fram á heimild ráðherra til þess að S.R. mættu kaupa síldina föstu verði í sumar fyrir kr. 110 málið. Ennfremur var samþykkt að þau útgerðarfélög, sem heldur kysu að leggja síldina inn til vinnslu gegn greiðslu á 85% af áætlunarverðinu, væri það heim ilt og yrðu þá eftirstöðvar, ef einhverjar yrðu, greiddar síðar, þegar reikningar verksmiðjunn- ar hefðu verið gerðir upp. Undanfarin ár hafa menn átt kost á því að leggja síld inn til vinnslu hjá verksmiðjunum, en sl. átta ár munu allir hafa kosið heldur að selja bræðslusíldina föstu verði við afhendingu. Verðfall á síldarmjöli í fyrra var verðið 120 kr. fyrir málið. Lækkunin stafar af hinu gífurlega verðfalli, sem orðið hefur á síldarmjöli, sem lækkað hefur í verði síðan í fyrra um milli 35 og 40%, fyrst og fremst vegna mikillar framleiðslu Peru. Verð á síldarmjöli hefur einnig lækkað síðan í fyrra úr £-68 í £-58-cif. Þessi verðlækk un afurðanna er svo mikil, að hækkunin á útflutningsverðinu vegna gengisbreytingarinnar hef ur ekki vegið að fullu þar móti. Hins vegar benda líkur til Framh. á bls. 2. Vonandi gefst tækifæri til þess að taka margar slíkar myndir á þessu sumri. Tvö skip og tvær flug- vélar stunda síldarleit Ægir fer norður i vikunni DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að varðskipið Ægir stundi eingöngu síldarleit Ogurlegar hamfarir Margar borgir í Chile hálfeyddar eftir þriggja daga landskjálfta og flóðbylgjur Santiago, Chile, 23. maí. — (Reuter) — AFSKAPLEGIR landskjálftar hafa gengið yfir Chile undan- farna daga, eða síðan á laugardag — og síðustu tvo dagana hafa fylgt þeim flóðbylgjur miklar, sem enn hafa aukið á hörmungarnar. Flóðbylgjur hafa einnig gengið á land á Hawaii og fleiri löndum. — Sökum þess, að samgöngur og símakerfi hafa gengið mjög'úr skorðum í Chile við náttúru- hamfarirnar, er erfitt að fá áreiðanlegar fregnir af mann- tjóni og eigna, en eftir því, sem næst verður komizt, hafa a. m. k. 350 manns beðið bana og þúsundir slasazt meira og minna, auk þeirra, sem misst hafa heimili sín, en þá má telja i tugum ef ekki hundruðum þúsunda. — Eignatjón í ham- förum þessum er sagt ólýsanlegt — og miklu meira en í hin- um ægilegu landskjálftum, sem urðu í Chile 1939, er 30 þús- und manns biðu bana. • EINS OG ÚTHAFSÖLDUR Concepcion, 180 þús. manna borg, um 260 mílur fyrir sunnan Santiago, varð harðast úti í fyrstu jarðhræringunum á laug- ardaginn, en þá áætluðu yfir- völdin, að um 140 manns hefðu farizt þar og í Lota, Ronel og Talcahuano. Aðrir sögðu, að manntjónið hefði verið enn meira, a. m. k. 200, auk 3000 særðra og um 50.000, sem urðu heimilislausir. — Concepcion rofnaði þá dlgerlega úr sambandi við umheiminn um margra klukkustunda skeið. Vegir, brýr og járnbrautir eyðilögðust — símalínur slitnuðu, en staurarn- ir kubbuðust sundur. — Sjónar- vottar hafa lýst því, hvernig fólk æddi, viti sínu fjær af skelfingu, fram og aftur um göt- ur borgarinnar, sem „gengu upp og niður“ eins og úthafsöldur væru. —. • NÍU METRA HÁ FLÓÐBYLGJA í gær var aftur á móti mest tjón af jarðhræringunum á Pu- erto Monte-svæðinu, um 300 mílur fyrir sunnan Concepcion, og þar hafa risavaxnar flóðbylgj- ur gengið á land í mörgum bæj- um og fiskiþorpum bæði í gær og dag — allt að 9 metra háar — og valdið hinni mestu eyðingu og manntjóni, sem ómögulegt er enn að gera sér grein fyrir. — Víða á jarðskjálftasvæðunum, sem talin eru um 70 þúsund fer- mílur að stærð, hafa komið upp Framh. a bls. 2. í sumar, en eins og kunnugt er stundaði Ægir landhelgisgæzlu jafnframt síldarleitinni í fyrra og leiddu að sjálfsögðu á því truflanir við leitina. M.s. Fanney mun einnig eins og í fyrra stunda síldarleit. Gert mun vera ráð fyrir því að leið- angursstjóri á Ægi verði Jakob Jakobsson, fiskifræðingur og skipstjóri á Fanneyju verður Jón B. Einarsson. Samvinna um leít Ráðgerð er samvinna milli síldarleitarinnar á skipum og síldarleitarinnar úr lofti. Síldar- leitin úr lofti verður stunduð með tveimur flugvélum, flugvél frá Flugskólanum Þyt og AERO flugvél Sigurðar Ólafssonar, flugmanns, sem einnig stundaði síldarleit í fyrra. Síldarleitarnefnd hefur á hendi yfirstjórn síldarleitarinn- ar með flugvélum og skipa hana þeir Sveinn Benediktsson, form., Guðmundur Jörundsson og Davíð Ólasfsson. Síldarleitar stjóri verður Kristófer Eggerts- son, eins og áður. Tvær hlustunarstöðvar Síldarleitin hefur hlustunar. stöðvar á Siglufirði og Raufar- höfn. Á Raufarhöfn hefur síld- arleitin reist nýtt hús fyrir starf semina og flugvöllur þar hefur verið endurbættur nú í vor með það fyrir augum að önnur síld- arleitarflugvélin hafi bækistöð þar. Með því móti verður flugvélin miklu nær síldarmiðunum en verið hefur til þessa, því að bækistöðvar síldarleitarflugvél- arinnar hafa að jafnaði verið inn á Akureyri og við það hefur farið í flug út og inn Eyjafjörð nærri klukkutími í hverri ferð. Búizt er við að Ægir fari héð- an til síldarleitar á morgun eða fimmtudaginn og Fanney fyrstu viku júnímánaðar. Gert er ráð fyrir að flugvélar hefji síldar- leit 10.—15. júní. Stjórnir allra hkisbank- anna verði kosnar með sama hœtti Frumvarp um breyting á lögunum um Búnaðarbanka Islands lagt fram í GÆR var lagt fram á Al- þingi frumvarp um breytingu á lögunum um Búnaðarbanka íslands og er þar m. a. gert ráð fyrir að tekin verði upp sama skipan á kjöri banka- ráðs og tíðkast hefur um hina ríkisbankana, þ. e. að það verði kjörið af Samein- uðu Alþingi hlutbundinni kosningu til 4 ára í senn. Þá er einnig lagt til að bankaráðs mennirnir verði jafnmargir og í hinum bönkunum eða 5 talsins. Loks er í frumvarp- inu veitt heimild til handa bankaráðinu að fjölga banka- stjórum, enda samþykki land búnaðarráðherra, sem bank- inn heyrir undir, slíka ráð- stöfun. — Þetta eru í stuttu máli megin- atriði frumvarpsins, sem eins og í athugasemdum þess segir „mið- ar að breytingum á stjórn Bún- aðarbanka íslands." í athuga- semdunum segir annars svo um frumvarpið og efni þess: Eðlilegar breytingar „Stjórn bankans er nú skipuð einum bankastjóra og þriggja Framh. á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.