Morgunblaðið - 16.08.1960, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.08.1960, Blaðsíða 18
18 MORCuynr.AÐifí Þriðjudagur 16. ágúst 1960 Keflavík rœndi ! Fram forysfunni — og Akranes tekur við henni ÞAU mæltust á sunnudags- kvöld, toppliðið í 1. deild, Frani, og liðið sem hefur þurft að berjast við fallhætt- una, Keflavík. Hefði ókunn- ugur verið látinn gizka á eft- ir spili liðanna, hvort væri „toppliðið'4, hefðu án efa allir sagt að það væri Keflavíkur- liðið. Spiiið var allan tímann betra hjá Keflvíkingum — komst raunar eiginlega aldrei í gang hiá Fram. Og Fram- liðinu tókst ekki að forða því að boltinn fór 4 sinnum í Framnetið, en einungis tví- vegis tókst Fram að skora og það ekki fyrr en undir leiks- lok, er uthald Keflvíkinga var gersamlega þrotið. Með þessum sigri tryggði Keflavik sig svo gegn fall- hættunni, að möguleikar á falli þeirra úr deildinni eru aðeins talfræðilegir — bundn ir að minnsta kosti þremur ef — ef — ef — Um Ieið „rændu" þeir forystunni í mótinu frá Fram og fengu hana Akurnesingum. Hins vegar hafa möguleikar KR til sigurs i mótinu aukizt við þetta. MR hefur langfæsta leiki að baki og að öllu slysa- lausu má búast við forystu þeirra er þeir hafa náð upp leikafjöldanum. — En við höf- um nú séð að allt getur skeð í knattspyrnu. „Topplið" okk- ar mega ekki reikna sér sig- urinn fyrir leikinn. Akranes vann 7:1 AKURNESINGAR og Akureyr- ingar kepptu i 1. deildarkeppn'- inni á sunnudaginn og fór leikur inn fram á Akranesi. Þau urðu úrslit leiksins að Akurnesingar sigruðu með yfir- burðum skoruðu 7 mörk gegn 1. Reyndar skoruðu Skagamenn öll 8 mörkin — en settu eitt í sitt eigið net. Dómarinn mœtti ekki Á SUNNUDAGINN áttu Þróttur og Hafnfirðingar að leika í Bikarkeppninni og átti leikurinn að fara fram í Hafnarfirði. Þegar leikmenn voru tilbúnir til að hefja leikinn var dóm- arinn, Hreiðar Ársælsson, hvergi nálægur og aðeins annar línuvörðurinn mætt- ur. Varð því að fresta leikn um og nokk.ir tugir áhorf- enda fengu endurgreidda aðgöngumiðana, sem þeim höfðu verið seldir. Auk þess sem dómarinn sást hvergi kvörtuðu Þrótt- ararnir yfir því að völlur- inn væri ekki réttilega strikaður og niun sú kvört- un hafa verið á rökum reist og ’/VÍ mjög leiðinlegt fyrir foiystu knattspyrnumála í Hafnarfirði, að geta ekki haft vóllinn löglega strik- aðann fyrir opinber mót. Eitt er víst að menn fóru sárgramir heim af vellinum því mjög gott veður var til að leika knattspyrnu. ★ Fram sækir Fyrsti stundarfjórðungur leiks- ins var jafn, en Framarar þó held ur meira í sókn, án allrar hættu við mark Keflavíkur. Gott tæki færi gekk Guðm. Óskarssyni úr greipum er hann stóð einn og óvaldaður nálægt markteig en spyrnti langt framhjá. Annað tækifæri átti Fram er Grétar ték upp að endamörkum og með þeim og reyndi síðan markskot — úr vcnlitlu færi, enda hitti hann stöng og knötturinn hrökk fra. Að þessum tveim upphlaupum frátöldum ásamt nokkrum lang- skotum Guðjóns er upptalið hvað Fram reyndi til marka í fyrn hálfleik. Og þeim tókst aldrei að ná neinum yfirburðum, jafnvel ekki íiumkvæði úti á vellinum. ★ Keflav*k tekur frumkvæðið í sóknarlotum Keflvíkinga var öllu meiri þungi, þó frammistað- an er að marki kom væri svipuð og hjá Fram. Sókn Keflvíkinga Guðjón grefur andlitið í jörð eftir að hafa stýrt knettinum í eigið mark. (Ljósm.: Sv. Þormóðss.j þyngdist er á fyrri hálfleik leið. Skúli Skúlason miðherji lokkaði Geir úr markinu — en í stað þess að senda til annars tveggja félaga sinna óvaldaðra við markið kaus hann vonlausu leiðina — að skjóta úr lokuðu færi og eyði- leggja tækifærið. Tveim min. síð Framhald á bls. 19. Björgvin meistari i 3 Síðasta mark Keflavíkur. Högni fékk skorað af stuttu gegnum varnarmúr Fram. Bikarkeppnin Á LAUGARDAGINN kepptu ís- Annað mark leiksins skoruðu ls- firðingar fyrsta leik sinn í Bikar- keppninni. Leikurnn fór fram hér á Melavellnum og mófcherjar ís- firðinganna var 1. flokkur Vals ísfirðingarnir fóru með sigur frá leiknum 3:1, eftir 1:0 í hálfieik. Lið ísfirðinganna var mun sókn harðara en lið Vals og höfðu þeir frumkvæðið í leiknum mestan tímann og sigur þeirra aldrei í hættu. Björn Helgason skoraði fyrsta mark leiksins er 24 mín. voru af leik. Skallaði Björn knött inn í mark úr fyrirsendingu. firðingarnir er 22 mín. voru af síð ari hálfeik og þrem mínútum síð- ar var dæmd vítaspyrna á mark- mann Vals og skoraði Björn Heigason örugglega úr henm. Leikurinn stóð því 3:0 fyrir ís- firðinga er 25 mín. voru af síðari hálfleik. Mark Vals skoraði Bragi Björrsson er 33 mín. voru af síð- ari haifleik. — ísfirðingarnir áttu að keppa annan leikinn í gær, en héldu heim vegna einhvers mis- skilning um framkvæmd leiks- ms. En þeir munu koma til bæj- arms aftur í vikunni. UM helgina lauk Meistara- móti íslands í frjálsum íþrótt- um með keppni í tugþraut og þremur öðrum greinum. Var veður ákjósanlegt en nokkur svali er leið á daginn, hæði á laugardag og sunnudag. Kepp endur í tugþrautinni voru fjórir og var keppnin skemmtileg og árangur all- góður. ★ Forysta Björgvins Björgvin Hólm tók forystuna i annari grein og hélt henni eítir það. Valbjörn fylgdi honum þó fast eftir og skildu oft ekki nema nokkrir tugir stiga þá félaga að. Valbjörn náði tveim beztu af- rekum sem unnin voru í þraut- inni, 100 m hlaup 10.9 og 4.30 m í stangarstökki. Björgvin var hins vegar mjög jafnvígur, en óheppni elti hann fyrri daginn og var hann þá nokkuð frá sinu bezta t. d. í kúluvarpi og eink- um hástökki. Síðari daginn tókst Staðan í 1 1. deild L U J T Mörk St. Akranes 7 4 2 1 25:11 10 Fram 7 4 2 1 17:13 10 Valur 7 2 3 2 12:17 7 KR 4 3 0 1 18:6 6 Keflavík 8 2 1 5 13:23 5 Akureyri 7 1 0 6 11:24 2 Hólm ÍR tugþraut h.onum illa upp í kringlukasti. Hafði þetta þau áhrif að hann skorti 60 stig upp á æskilegt af- rek til Rómarfarar en fyrr í vik- unni hafði h-ann sýnt, að hann er fullfær um að ná þeim árangri. Björgvin hefur lítið getað æft þar til nú síðustu viku vegna veik- inda og er árangur hans því enn athyglisverðari. Til samanburðar má geta þess að bezti árangur Arnar Clausen eftir gildandi stigatöflu er 6886 stig. Úrslit Tugþraut Isl.meistari Björgvin Hólm ÍR 6440 stig. (Afrek Björg- vins voru 11.1 í 100 m., 6.64 í langstökki, 1307 í kúluv., 1.65 í há stökki og 52.8 í 400 m. hl., 15.00 í 110 m. grhl., 39.77 í kringluk., 3.40 í stangarst., 58.16 í spjótk. og 4.47 í 1500 m. hl.) 2. Valbjörn Þorláksson ÍR 5997 stig. (10.9, 6.48, 11.04, 1.74, 53.8, 16.2, 33.47, 4.30, 57.97 hætti). 3. Karl Hólm ÍR 4670 stig. 4. Brynjar Jensson HSH 4219. 4x800 m. hlaup ísl.meist. Sveit KR 8.25.6 2. Dr.sv. ÍR 9.05.6. 10 km. hlaup Isl.meist. Kristl. Guðbjörnsson KR 33.39.4, 2. Haf- steinn Sveinsson 35.44.4, 3. Reynir Þorsteinsson KR 37.49.4. 1500 m. hindrunarhlaup ungl- inga Ungl.meist. Agnar Levty KR 4.50.8, 2. Friðrik Friðriksson ÍR 5.05.6! Olympíumót í kvöld Vilhjálmur reynir þrí- stökk í Laugardal í kvöld í dag er Olympíudagurinn og í kvöld er efnt til íþróttahátíðar í Laugardal í tilefni þess. Þar fer fram handknattleikur milli kvenna. — Annar vegar stendur liðið sem fyrir nokkru vann það ^ frækiega afrek að vinna Svia í | landsleik í Svíþjóð og hins vegar ; úrval annara handknattleiks- kvenna. Mun marga fýsa að sja í sl. handknattleiksstúlkurnar sem svo vel stóðu sig ytra. Þá fer fram knattspyrnukapp- leikur í 2. aldursflokki milli Vals ■ og Akranes. Er það úrslitaleikur íslandsmótsins. Þar spreyta sig menn framtíðarinnar. Inn á milli og í hálfleik er flétl- að frjálsum íþróttum hlaupum, stökkum og köstum. Allra augu munu beinast að Vilhjálmi sem nú reynir sig í þrístökki i síðasta sinn fyrir Rómarleikana. Þá verð- ur keppt í stangarstökki Valbjörn og fleiri, í hástökki þar sem Jón Pétursson reynir við 2 metra og hærra kannski. Og þarna koma allir Olympíufararnir fram. Fólk ætti að fjölmenna á völl- inn og hvetja þá í þessum síðustu tilraunum þeirra fyrir Rómarleik ana — í því felst góð kveðja til manna sem eiga erfitt verk fyrir höndum. Þrír syntu út í Viðey Á SUNNUDAGINN syntu þrír lögregluþjónar Viðeyjarsund. — Lögðu þeir af stað frá Lofts- bryggju og syntu út í eyna. Menn þessix voru Guðni Sturlaugsson, Guðmundur Þorvarðarson og Halldór Einarsson. Guðni og Guðmundur syntu ósmurðir og voru 2 klst. og 4 mín. og 2 klst. og 6 mín. á sundi. Hall- dór var smuiður og synti á 2 k Ist. og 7 mín. Enn tveir valdir til Rómarfarar Á FUNDI sínum í dag ákvað Olympíunefnd íslands, að fengn- um tillögum Frjásíþróttasam- bands íslands að senda eftirtalda iibróttamenn til keppni á Olymp íuleikunum í Róm. Björgvin Hólm Í.R. til keppni í tugþraut og Pétur Rögnvaids. son KR til keppni í 110 metra grindahlaupi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.