Morgunblaðið - 13.09.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.09.1960, Blaðsíða 1
24 síður Valdabaráttan nær hámarki Kasavubu fyrirskipaði handtöku Lumumba, en óljóst, hvort handtokan hefir raunverulega verið framkvæmd Leopoldville, 12. sept. — (Reuter-NTB) — JOSEPH ILEO, sem Kasavubu forseti hafði skipað forsætis- ráðherra í Kongó, lýsti því yfir í dag, að Patrice Lumumba, sem neitað hefur að leggja niður völd sem forsætisráðherra, heíði verið tekinn fastur, samkvæmt handtökuskipun frá Kasavubu. Lögreglumenn nokkrir kváðust hafa verið vitni að því, er Lumumba var handtekinn og fluttur til herbæki- stöðvar einnar í Leopoldville. — Skömmu eftir að þessar fréttir bárust út, fullyrti hins vegar upplýsingamálaráðherr- ann í stjórn Lumumba, Antoine Bolamba, að þær væru „upp- spuni frá rótum“. — Lumumba hefði aðeins farið til her- stöðvarinnar til þess að ræða einhvern „misskilning" við hernaðarleiðtoga og til að ávarpa hermennina. Hann kvað Lumumba nú of þreyttan til að taka á móti fréttamönnum. — AFP-fréttastofan staðfesti og í kvöld, að Lumumba væri frjáls ferða sinna. Hefði hann haldið til útvarpsstöðvarinnar er hann kom aftur frá fyrrnefndri herstöð og ætlað að flytja ávarp. Yfirvöld SÞ höfðu fyrr í dag opnað útvarpsstöðina, og safnaðist nú þangað fjöldi hermanna, bæði úr liði SÞ, aðallega Ghana-menn, og úr Kongóher, svo og fjöldi óbreyttra borgara. • KYRRT A YFIRBORÐI Þótt mjög erfitt sé að átta sig á atburðarásinni, virðist eitt a. m. k. augljóst — að vaidabaráttan er nú að ná há- marki, og getur varla langt liðið, ]>ar til annar hvor aðil- Öryggisráðs- fundi frestað enn NEW YORK, 12. sept. (NTB/ Reuter/AFP — Öryggisráðið kom saman til fundar aftur í kvöld til að ræða ástandið í Kongó, eftir að ákveðið var á laugardag að fresta fundi og bíða komu sendinefndar frá Kongó. — Fundurinn í dag varð hins vegar mjög stutt- ur, og eftir nokkur orðaskipti milli bandaríska fulltrúans og hins rússneska, var samþykkt tillaga hins fyrgreinda um að fresta enn fundi vegna hins mjög svo óljósa ástands í Kongó, með 9 atkv. gegn 2 atkv.; Sovétríkjanna og Pol- lands. — ★ — Siðar komu ráðsfulltrúar saman á sérstakan fund utan „ramma“ sjálfs ráðsins, að því er glöggar heimildir segja, og var þar rætt um möguleika þess að senda sérstaka nefnd til Kongó án tafar til þess að reyna að koma á einhvers konar samkomulagi eða vopnahléi milli hinna stríð- andi, pólitísku afla í landinu. inn ber sigur af hólmi. — Ástandið var annars kyrrt á yfirborðinu í dag — og með tilvísun til þess, var útvarps- stöðin i Leopoldville opnuð á ný. í ávarpi var hins vegar sagt, að engum yrði leyft að tala í útvarpið á þann hátt, að valdið gæti æsingi eða leitt til ofbeldis. Var mestmegnis út- varpað tónlist i dag. — ★ — Tvær sendinefndir eru nú á leið vestur um haf til að sitja fund Öryggisráðsins — önnur skipuð af Ileo forsætisráðiherra, hin af Lumumba forsætisráð- herra! Hvor aðilinn um sig hefir sent skeyti til S. þ., þar sem sendi nefnd hins er lýst ólöglega skip- uð og farið fram á, að hún fái ekki viðurkenningu. • TSHOMBE KYRRSETTUR Ileo hóf hér fund síðdegis með ýmsum leiðtogum viðs vegar að úr Kongó, í þeim tilgangi að leysa vandamál hins unga iýð Framh. á bls. 2. Gagnbylting í Laos Ekki búizt við, að i hart fari Saigon, S-Vietnam, 12. sept. —■ (Reuter) —• ÖNNUR stjórnarbyltingin á rúmum mánuði var gerð í La- os á laugardaginn. Foringi hinna nýju byltingarmanna, Boun Oun prins, skýrði í út- varpsræðu frá Savannakhet frá ástæðunum til byltingar- innar: „Til þess að koma á ró og friði í landinu, til þess að vernda konunginn, trúna og frelsi fólksins, lýsum vér bylt ingarmenn því yfir í nafni Laos, að við tökum völdin í okkar hendur og ógildum all- an stjórnarskrárlegan rétt nú verandi ríkisstjórnar, frá þess um degi- að telja“. ★ ★ ★ Stjórnarerindrekar hér telja litlar líkur til, að þessi bylting leiði til bardaga — hún muni fyrst og fremst vera bragð hægri sinnaðra til þess að ná sterkari aðstöðu í samningum við vinstri menn um stjórn landsins. — Bo- un Oun heldur því fram, að hin hlutlausa stjórn Souvanna Pho- uma, sem mynduð var fyrir 10 dögum, sé í rauninni alls ekki hlutlaus, ■ heldur ætli hún að glúpna fyrir kröfum hinnar kommúnisku Pathet Lao-hreyf- Framh. á bls 2. RUSSNESKA skipið „Baltika" fór í gær um Ermarsund og lagði út á Atlantshaf með hinn dýrmæta „farm“ sinn, Krúss- jeff, forsætisráðherra Sovét- ríkjanna, ásamt nær 140 manna fylgdarliði, og auk þess aðalkommúnistaleiðtoga Ung- verjalands (Kadar), Rúmeníu, Búlgaríu, Úkraínu og Hvíta- Rússlands. - Þessir herramenn allir munu sitja Allsherjar- þing S. þ., sem hefst í New York 20. þ.m. — Og hér er mynd af „Baltika“. Verhfoll póstmnnno í Höfn Fyrsta verkfall opinberra starfsmanna i Danmörku Kaupmannahöfn, 12. sept. (Einkaskeyti frá frétta- ritara Mbl.) DREIFING á pósti í miðhluta borgarinnar má heita stöðvuð í dag vegna verkfalls póst- manna. — Samkomulag hafði náðst um deiluefnið, sem er í sambandi við eftirvinnu, á milli póststjórnarinnar og Tannhvass biskup rekinn frá S.-Afríku Jóhannesarborg, S-Afríku, 12. sept. — (Reuter) — ERKIBISKUP ensku biskupa kirkjunnar í S-Afríku, Am- brose Reeves, sem lengi hefur einarðlega gagnrýnt stefnu ríkisstjórnarinnar í kynþátta- málum, var fluttur úr landi í dag, aðeins tveim dögum eftir að hann kom heim aftur úr 5 mánaða „útlegð“. — Var Reeves settur með leynd um borð í flugvél, sem fór til Eng lands. Við komu sína hingað sl. laugardag, eftir 5 mánaða dvöl í Englandi, sagðist hann ákveðinn í að halda áfram starfi sínu, „bæði andlegu og pólitísku“. ★ „I þágu þjóðarinnar“ í yfirlýsingu um mál þetta frá innanríkisráðuneytinu sagði: — Ráðherrann getur, ef hann telur það í þágu þjóðarinnar, fyrir- skipað brottflutning hvers þess manns, sem ekki hefur borgara- rétt í S-Afríku“. — I júní sl. hafði innanríkisráðherrann, Tom Naude, sagt, að stjórnin mundi ekki taka ákvarðanir um mál biskupsins fyrr en hann sneri aftur til S-Afríku. Þótt Reeves væri ekki fæddur S-Afríkubúi, hefði hann öðlazt heimilisfesti með dvöl sinni í landinu. Þegar biskupinn sneri aftur mundi ákveðið, hvort það væri „í þágu alþjóðar, að hann dveljist áfram í S-Afríku“. — Reeves hélt úr landi með leynd, þegar lýst hafði verið yfir neyðarástandi. Framh. a bls. 2. Uppreisn- artilraun kœfð CARACAS, 12. sept. NTB-AFP Uppreisnartilraun var gerð hér I höfuöborg Venezúela snemma í morgun. — Um 30 vopnaðir uppreisnarmenn náðu þá á sitt vald útvarps- stöðinni „Radio Conlinente“ — en hermenn, sem trúir eru Betancourt forseta kæfðu upp- reisnartilraunina í fæðing- unni. — ★ — Samkvæmt opinberri til- kynningu frá stjórnarvöldun- um, urðu uppreisnarmenn að gefast upp, er þeir höfðu haft útvarpsstöðina á valdi sínu að- eins skamma stund. Foringi þeirra var lautinant að nafni Llamado Saldivia. — ★ — Ekki er vitað til, að slíkir atburðir hafi gerzt víðar i land inu — og ríkisstjórnin segir, að allt sé nú með kyrrum kjör i stjórnar félagsins — en sam- komulagið var fellt á almenn- um fundi í póstmannafélag- inu. — ★ Þegar póststjórnin skipaði 70 póstmönnum í Köbmagergade- pósthúsinu að vinna eftirvinnu, neituðu þeir — og fengu þar með uppsögn. Tvö hundruð aðrir bréf- berar lögðu þá niður vinnu í mót mælaskyni — og hófu þar með fyrsta verkfall opinberra starfs- manna í Danmörku, en slík verk föll eru bönnuð. . ★ I dag eru engir póstkassar tæmdir og engin bréf borin út í Köbmagergade-umdæminu, að- alverzlunarhverfi miðborgarinn- ar. — Annars staðar, t. d. í Avis- pósthúsinu eru póstberar í „setuvefkfalli“. — Segja má, að öll verzlunarstarfsemi og kaup- sýsla sé meira og minna lömuð vegna þess ástands, því að pen- ingasendingar með pósti og vöru- pantanir komast ekki til skila o. s. frv. — ★ — Allt eins er gert ráð fyrir, að verkfallið breiðist út um alla Kaupmannahöfn. um. Umsáfiirsástand BAMAKO, Súdan, 12. sept. NTB- AFP: — í dag var lýst yfir um- sátursástandi um allt Súdan, en „undantekningarástand" var lýst í landinu 30. ágúst sl. — Ekki er vitað um ástæður til þessarar ráðstöfunar í dag — en tilkynn- ingin kemur í kjölfar þess, að franska ríkisstjórnin hefir viður- kennt Senegal sem sjálfstætt ríki og lýst yfir stuðningi við kröfu þess til inngöngu í Sameinuðu þjóðirnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.