Morgunblaðið - 18.12.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.12.1960, Blaðsíða 1
48 siður (I. 09 II.) * 47 árgangur 291. tbl. — Sunnudagur 18. desember 1960 Prentsmiðia Morganblaðsins ■* Brú- arross í FYRRAKVÖLD kom hið nýja skip Eimskipaféiags ís- lands, Brúarfoss, til Reykja- víkur. Skipið hafði haft góða heimferð og reynzt hið bezta. — Jónas Böðvarsson er skip- stjóri á Brúarfossi. í gær var fréttamönnum boðið að skoða hið glæsilega skip. Fer lýsing á því hér á eftir: Kjölurinn var lagður að hinu nýja skipi í Aalborg Værft í| Álaborg 30. sept. 1959, en skipið var afhent hinn 25. nóv. sl. — Ganghraði var 15,35 sjómílur í reynsluferð. Brúarfoss er systur- skip Selfoss, að öllu leyti eins, nema með lítilsháttar breyting- um með tilliti til fenginnar reynslu af Selfossi. Tvær lestar Skipið er smíðað úr stáii og styrkt til siglinga í ís. Einnig er það búið hlífðarlistum á hlið- um til varnar skemmdum er legið er við bryggju í óveðrum. Fjórar lestar er-u í skipinu, tvær eir.angraðar til flutnings á fryst- um vörum. Lestarrúmmál er 193.000 rúmf, þar af frystilestar um 100.000 rúmfet. Allur er út- búnaður við lestarop mjög handhægur. Hægt er að halda 20 stiga frosti í lestum við 25 stiga sjávarhita og 35 stiga loft- hita. Frh. á bls. 23 Fé til gjuld- þrotasjóðanna Fjárveitinganefnd ber fram breytingartillö’gu við 3. um- ræðu fjárlaga, að ríkisstjórn inni sé heimilt, að útvega eða lána Ræktunarsjóði Is- lands, Byggingarsjóði íslands, Byggingarsjóði sveitabæja og veðdeild Búnaðarbanka ís- lands allt að 36 millj. Hér liggur Brúarfoss fánum skreyttur í Reykjavíkurhöfn. Þegar hann kom í gærkvöld, flutti hann aðallega tunnur og efni til tunnugerðar. Tunnurnar losar hann á höfnum hér við Faxaflóa og fyrir norðan og þangað fer hann með tunnuefnið. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) 55 ffarast i öðru ægilegu flugslysi Flugvél hrapar brennandi yfir fjölfarið torg í Míinchen EKKI er ein báran stök í flugslysunum um þessar mundir. í fyrradag varð mesta flugslys í sögunni, þegar tvær stórar farþega- flugvélar rákust á yfir New York. — í gær bárust svo fréttir af öðru hörmulegu slysi. — Bandarísk flugvél, sem var að hefja sig til lofts með 13 mcnntaskólanemendur, hrap- aði niður á torgið fyrir fram- an járnbrautarstöðina í Hœgrl menn unnu bar- dagann um Vienfiane Stjórn þeirra hefur innreið í höfuðborgina Vientiane, 17. des. BARDAGAR halda áfram í úthverfum Vientiane, höfuð- borgar Laos. Hægrisinnar hafa náð megin hluta borg- arinnar á sitt vald, en hún er mjög illa leikin eftir tveggja daga bardaga. Hús og hallir liggja í rústum eft- ir fallbyssuskothríð og rýkur enn víða úr brunarústum. Flótti til Thailands Almennir borgarar höfðu flú- ið Vientiane. Meðal annars höfðu þúsundir manna flúið yfir landa mærin til Thailands. Meðal flóttamanna, sem komið hafa yfir landamærin eru hermenn kommúnistahersins Pathet Lao, sem hafa kastað frá sér vopn- um á flóttanum og eru aðfram- komnir bæði af hungri og þieytu. Flugvöllur tekinn Það varð fyrst ljóst, að her hægrimanna undir forustu Phoumi Nosavan, myndi bera sigur úr býtum í bardaganum um höfuðborgina, þegar þeir náðu flugvelli hennar úr hönd- um kommúnista. Varð harðasti bardaginn um flugvöllinn, þeg- ar hann var fallinn, brast flótti í lið kommúnista. Síðustu fregn- ir herma, að meginherstyrkur þeirra láti undan síga eftir þjóð veginum til Luang Prabang, sem er aðsetur konungs landsins. — Lið þetta sem undan kemst flyt- ur með sér allmargar meðal- þungar fallbyssur, sem það fékk fyrir skömmu sendar frá Rúss- landi. Mikið mannfall Hershöfðingi hægri manna, Phoumi Nosavang og forsætis- ráðherra bráðabirgðastjórnar þeirra, Boun Oum prins, komu í morgun til Vientiane og lýstu því yfir, að borgin hefði verið frelsuð úr höndum kommún- ista. Mun lið hægri manna nú hefjast handa um að friða hér- aðið og reisa úr rústum. Það er örugglega vitað um 320 manns, sem fallið hafa í bardögunum síðustu tvo daga, en læknar á sjúkrahúsum segja vafalítið að margfalt fieiri hafi látið lífið. Miinchen, höfuðhorg Bæjara- lands. Manngrúi var á torginu í jólainnkaupum og á leið út úr borginni með járnbraut- um. Minnsta kosti 30 manns á jörðu niðri lét þegar lífið. Allir sem í flugvélinni voru 13 farþegar og 7 manna áhöfn fórust og samstundis. Manntjón er því áætlað milli 50 og 60 manns. Eldar komu upp í húsum á nokkrum stöðum bæði við járnbrautartorgið og á ná- lægum stöðum, þar sem log- andi brak féll úr flugvélinni. 13 nemendur í jólafríi Umrædd bandarísk farþega- flugvél var eign bandaríska flug hersins, af tegundinni C-131, sem ætluð er til að flytja fallhlífar- herlið. Flugvélin kom á föstu- dagskvöldið til Múnchen og átti að sækja bandaríska unglinga, sem stundað hafa nám á vegum Marylands-háskóla, en hann ann ast kennslu fyrir bandariska hermenn og börn þeirra og rek- ur m. a. menntaskóla í Múnch- en. Hóf flugvélin sig á loft frá Múnchenarflugvelli með 13 nem eridur, sem allir voru 17 ára gamlir. Voru þeir á leið í jóla- leyfi til foreldra sinna í banda- ríska varnarliðinu í Englandi. Yfir borginni var þoka og lág- skýjað. Hagaði svo til í þeirri vind- átt sem nú ríkti, að flugvélin varð að fljúga yfir miðbik Múnchen. í flugturninum heyrð- ist stuttlega frá flugvélinni, að einhver vélarbilun hefði orðið. Síðan ekki meir. Mannfjöldi á torginu Mikill manngrúi var úti á Framh. á bls. 23 Stephen litli dáinn New York, 17. des. STEPHEN BALTZ litli, sem menn voru bjartsýnir um í gær, að kæmist lífs af úr flugslysinu mikla í New York, lézt á sjúkrahúsinu í dag. Um nóttina hafði hon- um hrakað mjög og voru það aðallega brunasár hans sem voru svo alvarleg, að lífi hans varð ekki bjargað. Með andláti drengsins er tala þeirra sem fórust í slys- inu komin upp í 137. Þetta er þó ekki endanleg tala, því búast má við að fleiri lík finnist í húsarústunum. S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.