Morgunblaðið - 05.02.1961, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.02.1961, Blaðsíða 23
Sunnudagur 5. féb'r. 1961 WORGUNBLAÐ1Ð 23 — Alþingi Framhald af bls. 10. landi, hafði boðið íslenzka Ríkis útvarpinu og fjallaði um áfengis xnál í Finnlandi. Hafði erindi þessu að sögn verið hafnað á þeim forsendum að templarar yrðu snarvitlausir ef það yrði flutt. I umræddu erindi var rætt um rannsóknir sem sér- ‘fræðingar höfðu gert á við- brögðum finnskra manna eftir ■drykkju ákveðins alkóhólmagns af brennivíni og öli. Sagði svo í erindinu um þessar niðurstöður: „Neikvæð viðbrögð manna jukust eftir því sem þeir drukku meira, þó var hin nei- kvæða afstaða alleinstaklings- bundin. Munur á viðbrögðum þeirra sem drukku brennivíns- blöndu og ®1 var mikil, þótt vín- andaprósenturnar væru alltaf þær sömu í því sem neytt var. þeir sem drukku brennivíns- blönduna sýndu meiri tilfinn- ingasemi og einkum bar meira á árásarhneigð hjá þeim heldur en hinum sem drukku ölið. — Þeir sem drukku brennivíns- blöndu gagnrýndu mjög marga hluti í þjóðfélaginu og ekki allt- af á sérstaklega hæverskan hátt“. Ekkl etnn úr jafnvægl ] Ennfremur: A „Endurtekning á þvl sama kom meira fram hjá þeim sem drukku öl en brennivínsblöndu, en gagnrýni þeirra var aldrei eérlega hvassyrt. Var því líkast, $em ölið kæmi mönnum ekki eins mikið út úr jafnvægi og eterku drykkirnir, en deyfðu hinsvegar alla andlega starf- semi eins og allt áfengi gerir, þegar þess er neytt svo nokkru nemur“. Að síðustu lagðl ræðumaður til að frumvarpinu yrði vísað til 2. umræðu og allsherjar- nefndar. Metra áfengt Halldór Ásgrunsson, 2. þm. Austurlands, talaði næstur. — Sagði hann að nú um skeið hefði verið hljótt um áfengis- mál í sölumi Alþingis, en vék síð- an að samþykkt eldri áfengis- laga og þeim rökum, er beitt hefði verið fyrir setningu þeirra. Sagði, að því hefði verið hald- ið fram, fyrr á árum, af for- mselendum vínneyzlu, að áfeng- ismenning xnundi aukast með auknu frjálsræði í áfengismál- um, en sú hefði ekki orðið raun in á. Enda hefði kjarninn í um- bótatillögum þessara manna ver ið sá, að fá minni bönn og meira áfengi inn í landið. *> Einn merktsberi í>á ræddi ræðumaður fyrri flutning ölmálsins á Alþingi og sagði, að nú væri aðeins einn merkisberi sendur fram með öl- frumvarpið. Væri hann hraust- ur, að standa einn að þessu óþurftarmáli, eins og þingmað- urinn orðaði það. — Ræðumað- ur fór því næst nokkrum orðum tim frumvarpið, og taldi það mjög gallað í sinni núverandi mynd. Þar vantaði mörg ákvæði um framkvæmd málsins í ein- Ctökum atriðum og væri of mik- íð lagt í vald ríkisstjórnarinnar um framkvæmdina. Beindi hann ýmsum fyrirspumum til flutn- ingsmanns í þessu sambandi. ★ Halldór Ásgrímsson lauk máli fnu um kl. 4 og var þá frestað umræðu um ölfrumvarpið, en enn voru nokkrir á mælenda- skrá. — LOFTUR hf. LJÓSMYNDASTOFAN Ingólfsstræti 6. Pantið tíma í síma 1-47-72. Málflutningsskrifstofa JÓN N. SIGURÐSSON hæstaréttarlögmaður liaugavegá 10. — Sími: 14934 1 Línnbrengl í snmtali LINUBRENGL varð í samtalinu við Olaf Gunnarsson frá Lóni hér í Mbl. í gær. Niðurlag samtals- ins átti að vera á þessa leið: Hvert stefnir? ,Hvert stefnir einkum hugur þeirra, sem væntanlega halda áfram námi í menntaskólum og síðar Háskóla?“ „Eins og stendur er áhuginn á allskonar tæknistörfum mjög mikill. Það et mikið spurt um verkfræði, greindustu ungling- arnir miða starfsval sitt eða starfsvalsóskir að miklu leyti við það hversu auðveldlega þeir geti fengið vel launaða atvinnu utan Islands að námi loknu“. „Eru þessar óskir byggðar á ævintýralöngun eða raun- byggju?“ .Vafalaust hvoru tveggja, en þó aðallega á raunhyggju, ung- lingarnir telja að þeirra bíði ekki eins glæsileg framtíð hér á landi eins og þeir telja sig geta hlotið erlendis". Eru nokkrar starfsgreinar, sem mjög lítið eða ekkert er spurt um eins og stendur?“ „Aberandi lítið hefur verið spurt um byggingariðnaðinn í vetur og eins má það teljast hrein undantekning ef piltar spyrja um kennslustörf. Hins vegar hafa stúlkur talsverðan á- huga á því að verða kennslu- konur, einkum íþrótta- og handa vmnukennarar”. „Að lokum ein spurning, sem ekki kemur starfsfræðslunni beint við. Er það rétt að nú- tímaæska sé mjög ókurteis?" „Ekki er það mín reynsla. Mér finnst þvert á móti prúðmennska og þægileg framkoma einkenna æskuna, hið gagnstæða eru und- antekningar“. Félag síldar- saltenda NESKAUPSTAÐ, 4. febr. Nýlega var stofnað hér nýtt félag til að starfrækja síldarsöltun. Félagið nefnist Drífa hf. og eru stofnend- ur útgerðarmenn, sem gera út á síld. Neskaupstaðarbær hafði aug lýst til leigu aðstöðu til síldar- söltunar næsta sumar. Þrír aðilar sóttu um og hlutu útgerðarmenn aðstöðuna, sem er hálft hafnar- planið. Stofnendur félagsins eru 10 talsins. Verða þá að minnsta kosti tvær söltunarstöðvar hér næsta sumar. — Sv. L. Vii kaupa íbúð 4—5 herbergja sem næst mið- bænum. Útborgun kr. 400.000. 00. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. merkt: „400.000.00“ fyrir miðvikuidagsmorgun. Ibúð - Bíll Vil kaupa 1—3ja herb. fbúð á hæð, með Chevrolet ’59 mjög góðan bíl og 50 þús. kr. í pen- ingum sem útborgun. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 9. febr. merkt: „íbúð 1182“. — / heimsókn Framh, af bls. 22 mann fýsir að vita úr kirkjulífi og þjóðlífi frænda vorra Norð- manna í dag. En óðar en varir, er eins og maður sé kominn heim. Það er farið að ræða ísland í for- tíð og nútíð og framtíð. Og ég veit varla að hvoru ég dáist meira: kunnugleika þessa mikla fslandsvinar á mönnum og mál- efnum heima, eða brennandi á- huga hans á því að verða íslandi að liði, stuðla að framgangi góðra málefna í' okkar unga þjóðfélagi þar sem möguleikarnir eru svo miklir en svo margt er ógert. Um þetta þreytist séra Haraldur aldrei að tala. Og þó hann sé önnum kafinn, finnst honum allt- af viðstaðan hafa verið of stutt. Þegar séra Haraldur fylgir manni úr hlaði og biður mann að koma sem fyrst aftur, bendir hann gjarna á nokkur espitré, sem standa í hermannlegri röð austan við húsið. Þau eru ættuð frá íslandi og eru honum því sér- staklega kær. Þau eru nokkurs konar fulltrúar fyrir öll þau mörgu tré er hann hefur átt þátt í að gróðursett hafa verið í ís- lenzkri mold. Þarna standa þess- ar aspir, háar og dálítið renglu- legar en í örum vexti og gefa góð fyrirheit eins og unglingar, sem hafa góðan aðbúnað og temja sér hollar lífsreglur. Indre-Arna, á þriðja dag jóla. Gísli Brynjólfsson. — Ekki búinn Framh. af bls. 3 að brekkurótum. Nú fann ég loksins að ég var kominn á skíði. Kjarkurinn óx um allan helming og hvergi hræddur hélt ég hvítur eins og snjókerl ing upp brekkuna á ný. Nú var ekkert að óttast. Ég hafði að minnsta kosti ekki týnt því niður að detta. Þúfan var tekin til með- ferðar á nýjan leik. Og sú fékk fyrir ferðina. Við rudd- umst yfir hana hver af öðrum og létum okkur fljúga langt niður í brekku. Arangurinn j var nokkuð misjafn eins og að líkum lætur. Og ekki skorti kurteisi þeirra veitingamann- anna. Sverrir datt kylliflatur okkur til samlætis. ★ Olafur tók litla dóttur sína á háhest og brunaði með hana niður brekkuna, sonur hans renndi sér á sleða en heimilis hundurinn, gul tík, elti með fagnaðarlátum. Að síðustu reyndum við að leika allskyns listir eins og i í gamla daga, danska kari- jóka og fara stafastökk. En árangurinn ljósmyndaði Sveinn Þormóðsson og mynd- irnar af því eru svo ferlegar að þær teljast engan veginn birtingarhæfar, jafnvel þótt þær séu sáralítið hreifðar hjá Sveini, eins og honum var orðið skítkalt. Atvinnurekendur 18 ára reglusamur piltur ósk- ar eftir atvinnu nú þegar. — Hefur gagnfræða- og bifreiða próf. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir miðvikudagskvöld n. k. merkt: „Áreiðanlegur — 1398“. Gólfslípunin Þreyttir og kátir héldum við heim í Skíðaskálann. Þar var sezt niður við kræsingar eins og vænta mátti, spjallað um íþróttir, holdafar og sterk- an bjór. Auðvitað hefði ég átt að fara í gufubað á eftir, eins og mér var boðið, því nú þegar þetta er ritað er skrokkurinn helaumur af strengjum. En ég mun ekki láta þaS á mig fá. Eg skal á skíði afturJ vig. Barmahlíð 33. — Sími 13657. TIL SÖLU húseign til niðurrifs eða brottflutings strax. Nánari upplýsingar gefur ÞORSTEINN JÓNSSON, Sími 1-5791. Hinum fjölmörgu vinum og vandamönnum, sem auð- sýndu mér vinsemd á sjötugs afmæli mínu, flyt ég inni- legustu þakkir. Matthildur Kjartansdóttir Hjartanlega þökkum við börnum, tengdabörnam, ætt- ingjum og öðrum vinum, sem á ýmsan hátt minntust okkar á 50 ára hjúskaparafmæli okkar 17. des. s.l. Guð blessi ykkur öll. Guðrún og Gunnar, Marteinstungu Hjartans þakkir til sveitunga okkar, Snæfellinga í Reykjavík, þeirra Akurnesinga og allra nær og fjær, sem veittu okkur höfðinglegar gjafir og margvíslega hjálp, er elding eyddi heimili okkar 15. jan. s.l. Guð blessi ykkur öll. Elísabet, Jónas og synir Neðri-Hól Staðarsveit. Til sölu vegna brottflutnings sófasett og teak sófaborð, skápa og hillusamstæða úr teak. Stero grammófónn, ísskáp- ur, þýzk eldhús-stálhúsgögn, lampar, hrærivél, automatisk saumavél, þýzk o. fl. — Upplýsingar í síma 13001 í dag. íbúð óskast Þriggja til fjögurra herbergja íbúð óskast til Ieigu. Þarf að vera laus til íbúðar á, tímabilinu 1. apríl til 15. maí. íbúðin má vera í kjallara, ef um góða íbúð er að ræða. Nokkur fyrirframgreiðsla getur komið til mála. — Upplýsingar í skrifstofu Bæjar- útgerðar Reykjavíkur n.k. mánudag. Sími 2-43-45. Móðursystir okkar HALLDÓRA JÖNSDÓTTIR verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn T. febrúar kl. 3 e. h. Kristjana M. Sigurðardóttir og systkinL Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir, ÓFEIGUR JÓNSSON verður jarðsunginn þriðjudaginn 7. febr. kl. 13,30 frá, Neskirkju. Fyrir mína hönd, barna og tengdabarna. Valgerður Guðmundsdóttir. Jarðarför litla drengsins okkar, GUTTORMS sem lézt 28. f.m. fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 6. febr. kl. 10,30 árdegis. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Sóiveig Guttormadóttir, Jón Finnsson. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför SNORRA FR. WELDING Sigríður S. Welding os aðrir aðstandendur. Þakka auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður míns, DANÍELS MATTlASSONAR frá Hraunsfirði í Helgafellssveit. Sérstaklega þakka ég hjónunum á Borg í Stykkishólmi fyrir þeirra miklu hjálp. — Einnig öllum öðrum, sem veittu hjálparhönd við útförina. Guð blessi ykkur öll. Páll Daníeisson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.