Morgunblaðið - 15.02.1961, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.02.1961, Blaðsíða 1
48. árgangur 37 tbl. — Miðvikudagur 15. febrúar 1961 • Prentsmiðja Morgunblaðsins Rússar viðurkenna Hammarskjöfd sem embættismann SÞ Krefjast brottflutnings liðs SÞ frá Kongó London, Moskvu, 1J). fébrúar — (Reuter/NTB) 'rfr Tass-fréttastofan rússneska skýrði í dag frá opinberri tilkynningu stjórnar Sovétríkjanna, þar sem segir, að stjórnin muni héðan í frá ekki eiga nokkur samskipti við Hammarskjöld, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, og viðurkenni hann ekki lengur sem embættismann samtak- anna, enda sé hann meðal annars ábyrgur fyrir morði Lumumba. ■jfc Rússneska stjórnin krefst þess, að Sameinuðu þjóðirn- ar fordæmi Belgíumenn fyrir aðgerðir þeirra í Kongó, er leitt hafi til handtöku og nú lífláts Lumumba. Sé sá verknaður „alþjóðlegur glæpur“, sem engan veginn sam- rýmist stefnuskrá Sameinuðu þjóðanna. Þá krefst stjórnin þess, að þegar verði bundinn endir á „hið svokallaða starf“ samtakanna í Kongó og allt herlið flutt á brott þaðan inn- an mánaðar svo og allir menn af belgísku bergi brotnir, til þess að þjóðin fái stjórnað sér sjálf og varið frelsi sitt. Rússneska stjórnin krefst ennfremur handtöku þeirra Moise Tshombe og Josephs Mobutus og afvopnun herja þeirra. Skuli þeir báðir leiddir fyrir rétt sem böðlar Lum- umba og dæmdir samkvæmt því. þátt í handtöku hans, flutningi milli fangelsa né morði hans. Kallaði Wigny utanríkisráðherra sendiherra Rússlands á sinn fund New York, 14. febr. (NTB/Reuter) ÖRYGGISRÁ® Sameinuðu þjóðanna kemur saman til þess að ræða Kongómálið síð- tri hluta miðvikudags. Fyrstir á mælendaskrá enu fulltrúar Bandaríkjanna og Rússa. í dag og afhenti honum mótmæli gegn svívirðingum Rússa. Framh. á bls. 19. Dag Hammarskjöld — Rússar viðurkenna hann ekki Venusar- flaugin á réftri braut London, Washington, Moskvu, 14. febrúar. — (Reuter) SOVÉZKIR vísindamenn segja, að með ferð rússnesku eldflaug- arinnar í áttina til Venusar sé hafið tímabil samgangna milli plánetanna. Rússneski vísindamaðurinn, prófessor Alexander Markov, seg ir í grein í Pravda í dag, aS enginn vafi leiki á því, að þess- ari tilraun muni aðrar fylgja — haldið verði áfram að senda geimfö]; til Venusar og annarra pláneta. í geimförunum verði sjálfvirk rannsóknartæki, er skila muni til jarðar ómetanleg- um upplýsingum um andrúms- loft Venusar, svo og yfirborð, dýra- og gróðurlíf, ef um slíkt sé að ræða á þessari dularfullu reikistjörnu. Tass-fréttastofan hefur eftir Alexander Nesmeyapov, forseta sovézku vísindaakademíunnar, að sá dagur nálgist óðum, er mennirnir megni sjálfir að rann saka pláneturnar. Segir hann, að Frh. á bls. 19 Verkfalli yfirmanna lauk í aærkveldi Jafnframt segir í tilkynningunni, að nú sé heilög skylda sérhverrar friðelskandi þjóðar að styðja stjórn- ina í Stanleyville og stuðningsmenn Lumumba. '•fa Jafnframt hinni opinberu yfirlýsingu stjórnarinnar, skýrði Tass frá því, að Nikita Krúsjeff, forsætisráð- herra, hefði sent Antoine Gizenga, forvígismanni stjórnar- innar í Stanleyville, bréf, þar sem lýst væri innilegri samúð Sovétmanna vegna fráfalls Lumumba. Krúsjeff sagði í bréfi sínu að Rússar mundu gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að koma fram refsingu á hendur þeim, er ábyrgð bæru á morði Lumumba. Ennfremur mundu Rússar veita alla mögulega aðstoð föðurlandsvinum í Kongó í rétt- látri baráttu þeirra gegn nýlendukúgun. Belgíska stjórnln hlrt! einnlg yfirlýsingu í dag, þar sem hún frábiður sér alla ábyrgð á lífláti Lumumba, sem hafi verið hinn hryggilegasti atburður. Segist stjórnin ekki hafa áitt nokkurn í GÆRKVÖLDI gerðust þau gleðitíðindi að leysa tókst verkfall yfirmanna á vél- bátaflotanum í verstöðvun- um hér við Faxaflóa og á Suðurnesjum Náðist sam- komulag í deilunni laust fyr- ir klukkan 10 í gærkvöldi, en það hafði þá staðið frá 8. þessa mánaðar. Samningar tókust fyrir milli göngu Valdimars Stefánssonar sakadómara, sem er varasátta- semjari ' Þegar í gærkvöldi tók að koma hreyfing á bátaflotann hér í Reykjavíkurhöfn, og farið að undirbúa fyrsta róðurinn eftir verkfallið. Sjómenn á bátun- um höfðu fáeinum dögum áður en yfirmannaverkfallið skall á, upphafið verkfall og frest að verkfallsaðgerðum sem þá voru. Ekki geta róðrar hafizt í Hafnarfirði og á Akranesi nú þegar, því þar eru liásetar v verkfalli. Aðalinntakið í hinum nýju samningum við yfirmennina, sem undirritað var í gærkvöidi, er á þá leið, að útgerðarmenn líftryggja yfirmenn bátanna fyr- ir 200.000 krónur. 1 fyrri samn- ingum hafa yfirmenn fengið greiddar mánaðarlega kr. 551,00 aukagreiðslu. Nú lækkar þessi aukagreiðsla nið ur í 250 krónur á mánuði. Lækk- unin- jafngildir iðgjaldi hinnar nýju líftryggingar. Hún nær einn ig til yfirmannanna, þá er skipin stunda síldveiðar. Lækka mán- aðarlegar fastagreiðslwr til yfir- manna á síldveiðum um sömu upphæð og hér að ofan getur. í gærkvöldi lét Farmanna- og ffskimannasambandið aflýsa verk fallinu með sérstakri tilkynningu í útvarpinu. Hækho V.-Þjóðverjor tilboð sitt? Tshombe neitar samvinnu við starfsmenn SÞ Elisabethville, 14. febrúar. — (Reuter/NTB) — MOISE Thsombe, forsætis- ráðherra Katanga, réðist í dag harkalega á starfsemi Sameinuðu þjóðanna í Kongó og tók það skýrt og skorin- ort fram við fréttamenn, að hann hefði ekki í hyggju að eiga samvinnu við SÞ um rannsókn á lífláti Lum- umba. Tshombe sagði, að Sameinuðu þjóðirnar hefðu komið á slíkri óreiðu og ringulreið í Katanga, að mörg ár mundi taka að koma öllu þar í eðlilegt horf. — Tshombe sagði, að stöðugt væri unnið að því að koma á erlendum yfirráðum í Kongó á ný En hann kvaðst skyldi sjá um að koma á ró og reglu í Katanga, ef Sameinuðu þjóðirnar létu vera að lama lögreglustyrk hans og her- styrk. Tshombe sagði, að íhlutjfn ann arm ríkja í Kongó mundu hafa í för með sér blóðbað, sem Sam- einuðu þjóðirnar væru ábyrgar fyrir. Tshobe neitaði að segja nokk- uð um líflát Lumumba. Fréttarit ari Reuters telur ,að margir Afrikumenn kunni að fallast á skýringar Katangastjórnar á líf- láti Lumumba, en henni muni vart aðrir trúa. Evrópumenn í Elisabethville eru mjög í vafa um sannleiksgildi skýringar Tshom- bes, en flestir styðja þeir hann Frh. á bls. 2 Bonn, 14. febrúar — (Reuter) HEINRICII von Brentano, utan- ríkisráðlierra V-Þýzkalands, fór flugleiðis til Bandaríkjanna í dag og mun þar væntanlega ræða við Kennedy Bandaríkja- forseta og utanríkisráðherrann, Dean Rusk. Brentano lét svo um mælt við fréttamenn, áður en hann fór frá Bonn í dag, að vestur- Ný kafbátur Washington, 14. febrúar. TILKYNNT var hér í dag, að bandaríska flotanum hefði bætzt nýr kjarnorkukafbátur, sem hlaut nafnið Theodor Roosevelt. Er hann búinn polarisflugskeyt- um, sem geta flutt kjarnorku- sprengjur. Eins og um fleiri báta af þessari gerð, er hægt að skjóta úr þeim í kafi. þýzka rikisstjórnin væri fús til þess að halda áfram viðræðum varðandi efnahagsvandræði Bandaríkjamanna. Þó kvaðst ut- anríkisráðherrann ekki fara til Bandaríkjanna til þess að semja um þessi mál, en vestur-þýzka fréttastofan DPA segir, að Brentano muni afhenda Kenne- dy forseta orðsendingu frá Ad- enauer kanzlara. Ekki hefur verið tilkynnt hvenær Brentano muni ræða við Bandaríkjaforseta. Hann mun fyrst halda ræðu um framtíð Atlantshafsbandalagsins, í New York, en fljúga til Washington á fimmtudag. Er Brentano var að því spurð- ur, hvort Vestur-Þjóðverjar hygðust hækka tilboð sitt fram yfir þann milljarð er áður hafði verið fallizt á að greiða Banda- ríkjamönnum, kvaðst hann ekki geta svarað því að svo stöddu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.