Morgunblaðið - 26.11.1961, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.11.1961, Blaðsíða 1
2 / 36 siður dg Lesbók Rússar falla frá krðfum sínum Viðræðum þei/ra við Finna um varnarmál frestað Moskvu, 25. nóv. (AP-NTB) f DAG var gefin út í Moskvu opinber tilkynning varðandi viðræður þeirra Kekkonens Finnlandsforseta og Krús- jeffs forsætisráðherra í Novo sibrisk á föstudag. í tilkynn- ingunni segir að Sovétríkin séu reiðubúin til að fresta frekari viðræðum um sam- eiginlegar varnir landanna. Leiðtogarnir tveir voru sammála um að frekari við- ræður um varnarmál á þessu Stigi gætu leitt til aukinnar spennu við Eystrasalt. Hins- vegar bæri að fylgjast vel með þróun mála í löndun- um við Eystrasalt. Krúsjeff lagði áherzlu á það í viðræðunum að ástandið væri alvarlegt í heiminum og lönd- in yrðu að vera vel á verði. — Finnar mættu vera viðbúnir því að árás yrði gerð á Sovét- ríkin frá Eystrasalti yfir finnska land- og lofthelgi. Kekkonen viðurkenndi að skoðanir Krúsjeffs um að hætta gæti verið á að styrjöld brjótist út hefði við nokkur rök að styðjast. Hinsvegar benti hann á að ef til hernaðarvið- ræðna kæmi milli Finna og Rússa gæti það vakið ugg á Norðurlöndum. Forsetinn lagði því til að Sovétríkin féllu frá ósk sinni um frekari viðræður að sinni. Krúsjeff féllst á þessa til- lögu Kokkenens. Sagði hann að stjórnmálareynsla forsetans tryggði það að Finnar héldu áfram hlutleysisstefnu sinni í ut anríkismálum. Bent er á það í frétt frá Moskvu að úr því Olavi Honka hefur hætt við að bjóða sig Krúsjeft og Kekkonen i Novosibrisk. fram gegn Kekkonen í forseta-®----------------------------------------- kosningunum finnsku í febrúar nk. sé engrar breytingar að vænta í utanríkisstefnu Finna. Kekkonen kom til Moskvu í dag fró Novosibrisk og er væntanlegur tii Helsingfors síð- degis á morgun. Mun hann þá flytja útvarpsávarp þar sem hann skýrir þjóð sinni nánar frá viðræðunum. Kennedy ræðir viö tengdason Krúsjeffs Hyannis Port, Massachuttes,<> 25. nóv. — (AP) KENNEDY forseti og Alexei Adzhubei, ritstjóri Izvestia, og tengdasonur Krúsjeffs, ræddust við í rúmar tvær stuniiir í dag. Þetta er fyrsta sinn, sem forseti Bandaríkjanna hefur átt einka- samtal við rússneskan frétta- mann. Að viðræðunum loknum sagði Adzhubei við fréttamenn: Þið hafið ungan forseta í vold- ugu ríki. Þið ættuð öll að vera hreykin af því. Adzhubei sagði að í lok viðræðnanna hafi Kennedy spurt hvort þetta væri ekki orðið nokkuð langt mál, en hann kvaðst hafa svarað því að landar sínir væru því vanir að lesa langar frásagnir. Kvaðst hann vona að samtalið gæti átt sinn þátt í því að bæta sambúð Rússa og Bandaríkjamanna. Pierre Salinger, blaðafulltrúi Kennedys, sagði að viðræðurn- ar hafi verið mjög einlægar. — Þeir Kennedy og Adzhubei hafi rætt um öll þau vandamál, sem nú eru efst á baugi. Dagblaðið Izvestia er opinbert máigagn stjórnar Sovétrikjanna. Mútur Seoul, S-Kó»»"' 25. nóv. (Aj. RÉTTARHÖLD hófust í dag í móli Kim Young-Sun fyrrver- andi fjármálaráðherra og 16 annarra háttsettra herforingja og embættismanna, sem aðild áttu að tveim fyrrverandi ríkis- stjórnum. Eru þeir ákærðir fyrir að hafa þegið 2600 milljón hwan (um 86 milljón kr.) í mútur með- an þeir áttu sæti í ríkisstjórnum Syngman Rhees fyrrum forseta og Changs forsætisráðherra. Seg- ir í ákærunni að þeir hafi mis- notað völd sín og áhrif til að safna auði. ★ Kim var hægri hönd Changs fyrrverandi forsætisróðherra. — Hann er sakaður um að hafa tek- ið á móti 150 milljón hwan (um kr. 4,8 millj.) á ólöglegan hátt. Hann og fjórir aðrir geta átt dauðarefsingu í vændum fyrir brot sín. !'s Hér eru stúlkurnar, sem vigðu lauglna, að koma upp úr henmi. f baksýn sjást frá vinstri talið: Risasprengjur í flugvélum Sigurgeir Guðmannsson, Guðmundur H. Guðmundsson, Birgir Kjaran, Guðmundur J. Guðmunds son, Gísli Halldórsson, Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Gunnar Helgason, Ólafur Jónsson, Jónas B. Jónsson, Þór Sandholt og Geir Hallgrímsson. London, 25. nóv. (NTB) kjarnorkusprengju og eé því BREZKA dagblaðið Daily hver flugyél fær um að eyða Express skýrir frá því í dag tveim skotmörkum í sömu Sundlaug Vesturbæjar opnuð SUNDLAUG Vesturbæjar var vígð í gær og tekin í notkun, að viðstöddum bæjarfulltrúum, íþróttamöniuum og öðrum aðilj- um, sem beitt hafa sér fyrir þvi, að sundlaugin yrði gerð. Birgir Kjaran, alþingismaður, form. byggingarnefndar flutti ræðu. Rakti hann allan aðdrag- ana þessa máls. Hugmyndin um sundlaug í Vesturbænum mun fyrst hafa komið fram á árinu 1939, þegar KR eignaðist lóð sína við Kaplaskjólsveg, og gerði þá ráð fyrir sundlaug á henni. 1946 sendi íþróttabandalag Reykjavík ur áskorun til bæjarstjórnar um að sundlaug yrði gerð í Vestur- bænum, og upp úr því fór að kom ast skriður á málið. Reykjavíkur- bær lagði fram fjárhæð og bæj- arbúar gengust fyrir söfnun tnál- inu til stuðnings. 1953 var skipuð Framh. á bis. 2» að bandarískar sprengjuflug- vélar á eftirlitsflugi hafi und- anfarið ár ætíð verið búnar kjarnorkusprengjum, sem að sprengiorku jafngiltu risa- sprengju þeirri, er Rússar sprengdu við Novaya Zemlya hinn 30. nóvember sl. Hefur blaðið það eftir vis- indafréttaritara sínuim að B-52 sprengjuflugvélarnar beri að jafnaði tvær 25 megalesta ferðinni. Fréttaritari segir þetta vera skýringuna á því hvers vegna Rússar gátu ekki hætt við til- raunir sínar með 50 mega- lesta sprengjuna. Segir hann þetta einnig skýra það hvers vegna Bandaríkjastjórn hefur verið svo sannfærð um að Bandaríkin hefðu forustuna í smiði kjarnorkuvopna. * » r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.